Þjóðviljinn - 09.12.1943, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.12.1943, Blaðsíða 1
VILIINN Lesið gremina: „Píslarvætti norsku kennaranna“ á 4. og 5. síðu. 8. árgangur. Fimmtudagur, 9. desember 1943 277. tölublað. Þad á að verja þessu fé tíl að „kaupa níður" dýrtíðína(!> með öðrutn orðum: iækka launín Meiri hluti fjðrveitinganefndar viil fá minnst 10 milijónir króna í upp- bætur á útfluttar landbúnaðarafurðir Sósíalistaflokkurinn vill takmarka slíkar uppbætur við þá bændur, er þess þurfa. — Og ennfremur láta fiskimenn njóta jafnréttis við bændur. Meirihluti. jjárveitingarnefndar lagði fram í gœr breytingatillögu >nð fjárlögin, sem liljóðar svo: „Verðuppbœtur á útfluttar landbúnaðarvörur (kjöt, gœrur, ull og osta), framleiddar árið 1943, þannig, að framleiðendur fái verð fyrir þær samkvœmt, niðurstöðum landbimaðarvísitölunefndar í. áliti dags. 1S. ágúst s. /., og greiðist verðuppbœtumar um leið og káupendur borga vörurnar, áœtluð fjárhœð kr. 10 000 000“. Verðuppbætur á útfluttar land búnaðarafurðir fyrir árið 1942 urðu sem kunnugt er um 15 rnilljónir króna. Nú á að bæta við þetta fé uppbótum, er nema minnst 10 milljónum, getur eins °rðið 15—16 milljónir króna. Þrír þingmenn Sósíalista- flokksins, þeir Lúðvík Jósefs- son, Þóroddur Guðmundsson og Brynjólfur Bjarnason lögðu fram breytingartillögu við þessa tillögu meirihluta fjár- veitinganefndar, um að tillagan orðaðist svo: „Til að verðbæta útfluttar landbúnaðarafurðir (kjöt, gær- Fraxnhald á 8. síðu. Tito nwtap bFáOabiroOa- í iiíoóslaoíu Afstaða brezku stjórnarinnar vinsamieg Tito hershöfðingi hefur myndað bráðabirgðastjórn í júgoslavnesku landshlutunum, sem eru á valdi þjóðfrels- ishersins. — Hefur það vakið mikla eftirtekt í löndum Bandamanna. Brezka stjómin lýsti í gær á þingfundi af- stöðu sinni til hinnar nýju stjómar og hersveita Titos yfirleitt. Sagði stjómin að það væri regla sín að styðja öU þau öfl, sem berðust gegn Þjóðverjum. Hefði brezka stjórnin undanfarið veitt Tito miklu meiri stuðning en Mihailovits, eins og eðlilegt væri, þar sem her Titos hefði veitt Þjóðverjum langtum meiri mótspyrnu. Júgoslavneska stjómin í Kairo Brezka blaðið Daily Mirror seg- Kairo er mjög gröm þessari nýju stjórn- m-myndun. Segja talsmenn hennar, uú þessi nýja stjórn njóti ekki stuðnings neins stjórnmálaflokks í Júgoslavíu nema Kommúnista- flokksins. ir: „Aðstaða Mihailovits hershöfð- ingja vcrður nú óeðlileg, þar sem ekki eru lengur neinir sambands- Framhald á 8. síðu Ríkisstjórnin lagði í gær nýtt frumvarp fyrir Alþingi. Það er stutt og hljóðar svo: „Frumvarp til laga um tekjuöflun vegna dýrtíðarráð- stafana. 1. gr. Til ársloka 1944 er ríkisstjórninni heimilt að leggja sérstakt 2% gjald á cifverð allra innfluttra vara. Skal það innheimt á sama hátt og tollar. 2. gr. Á árinu 1944 er heimilt að imiheimta tekju- og eignaskatt með 15% viðauka. 3. gr. Tekjunum samkvæmt 1. og 2. gr. skal varið til dýrtíðarráðstafana. 4. gr. Þessi lög öðlast þegar gildi. Athugasemdir við lagafrumvarp þetta: Það er nú ljóst orðið, að ekki verður nægilegur tekjuafgangur á f járlög- um uæsta árs til þess að standa straum af nauðsynlegum ráðstöfunum vegna dýrtíðar. — Verður því ekki hjá því komizt að afla nýrra tekna í þessu skyni“. Þetta frumvarp þarf ekki margra skýringa við: Það á að hækka tollana — til að lækka dýrtíðina!! Það á að innheimta tekju- og eignaskatt meS' 15% við- auka, — og nota hann til þess að kaupa niður------laun manna!! Hér mætti ætla, að hrein Klepps- vinnubrögð væru viðhöfð, ef aðoins er litið á yfirborðið og eklci gáð að tilganginum með þessu frumvarpi. En tilgangurinn er, eins.og svo oft hefur verið sýnt fram á hér: að láta launþegana sjálfa borga niður laun sín, — ræna þá á tvennan Iiátt: Fyrst á að láta þá borga hærri tolla og hærri skatta. Það á að inn- heimta 2% gjald af allri nauðsynja- vöru, 2% toll á hveiti og rúgmjöli, kaffi og sykri. Það á að innheimta 15% viðauka af tekjum, einnig brýnustu þurftartekjum manna. — Þetta á svo að nota til að kaupa uiður verðið á landbúnaðarafurð- um, til þess að vísitalan lækki. Og tilgangurinn með því að lækka vísi töluna er sá, að lækka launin hjá launþegum. — Og kostnaðinn við þcssa lækkun eru launþegarnir sjálf ir látnir borga! Kosturinn við þess- ar aðferðir — fyrir stóratvinnurek- endur — er auðsær. Og þeim þjón- ar ríkisstjórnin með svona tillög- um í dýrtíðarmálunum. Það mun nú sýna sig.í þingiifu hvaða flokkar og valdaklíkur það eru, sem standa að svona pólitík í dýrtíðarmálunum, hverjir það eru, sem vilja byrja á ný á tolla- pólitík þjóðstjórnarinnar og tengja hana við jafn vitskertar aðferðir í dýrtíðarmálum og hér cr um að ræða. Sósíalistaflokkuriun berst ein- dregið gegn bessari afturhaldspóli- tík. Og verklýðshreyfingin mun öll verða að athuga aðstöðu sína alla mjög rækilega, ef svona. aðfarir á að hafa í frammi. (I forustugrein blaðsins í dag, á 4. síðu, er nánar rætt um þetta mál). Þýzkir verkamenn í Bandaríkjunum með í baráttu gegn Hitler „Sigumefnd“ þýzk-amerískra verkamanna, sem heldur ráð- stefnu þessa dagana í New York með 91 fulltrúa frá ame- rísku verkamannasamböndun- um (AFL og CIO), hefur skuld- bundið sig til að styðja fyrir- hugaða alþjóðaráðstefnu verka- manna sem bezta ráðið til að hjálpa þýzkum verkamönnum í baráttu þeirra gegn Hitler og til að tryggja stöðu hinna end- urreistu þýzku verklýðsfélaga innan verklýðshreyfingar heims ins. Ráðstefnan skorar á hermála- ráðuneyti Bandaríkjanna að leyfa útbreiðslu andfasistiskra bókmennta meðal þýzkra her- fanga í bandarískum fangabúð- um. Hitaveitan komin í á annað hundrað hús Á annað hundrað húsa hafa nú fengið lieita vatnið frá Reykjum. Eru þau i Norðurmýrinni, og erv það flest öll húsin í því hverfi. Næst vcrður heita vatninu hlcypt á í húsunum við Egilsgötu, Iæifs- götu og Eiríksgötu. , Lokið er nú við um 85—90% af götuleiðslunum. Rússar taka N. Praga og Jelitavetkofka í miðnæturtilkynningu sovétherstjórnarinnar i gær var í annað sinn aðeins minnzt á bardagana á tveim stöðum vígstöðvanna, nefni lega í Dnépr-bugðunni og á Kieff-vígstöðvunum. Rauði herinn hefur rofið þýð- ingarmestu járnbrautarlínuna, sem liggur um Snamenka. Er það sii braut, sem liggur á milli Snamenka og Krivoj Rog. En hún stenduv í sambandi við brautina til Nikopol. Um leið hafa Rússar rofið síðustu jám- brautariinu Þjóðverja til vesturs úr Dnépr-bugðunni fyrir norð- an Krivoj Rog. Náðu Rússar þessum árangri með því að taka bœinn Novoja Praga. Auk þess tóku Rússar bæinn Jelitavet- kofka, sem er sunnar, og mörg þorp. Rússar hrundu í gær hörðum gagnáhlaupum Þjóðverja fyrir vestan og suðvestan Kremen- sjúg. Novoja Praga er rúmum 20 km fyrir suðvestan Sna- menka. Fréttir í gærdag hermdu að rauði herinn væri um 4 km. frá áður nefndri borg. Sunnar í Dnépr-bugðunni hefur rauði herinn unnið talsvert á. Fréttaritarar í Moskva telja, að með þessum sigri hafi Rúss- ar lamað svo mjög samgöngu- kerfi Þjóðverja 1 Dnépr-bugð- FramhaJd af 1. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.