Þjóðviljinn - 10.12.1943, Page 1

Þjóðviljinn - 10.12.1943, Page 1
Alþýðusambðndið mótmælir nýjum milljónaálögum á launþegastéttirnar Alþýðusamband íslands hefur sent Alþingi svo- hljóðandi mótmæli vegna dýrtíðarfrumvarps ríkis- stjómarinnar: Alþýðusamband íslands mótmælir hér með harð- lega frumvarpi til laga um tekjuöflun vegna dýrtíðar- ráðstafana, sem núverandi ríkisstjóm hefur lagt fyrir Alþingi, og skorar á Alþingi, í nafni allra launþega og millistétta landsins, að fella þetta frumvarp. Alþýðusambandið vill taka fram eftirfarandi: 1. Undangengin stríðsár og fram til þessa dags hafa launþegastéttir landsins orðið að sæta tilfinnan- legri launaskerðingu fyrir aðgerð r löggjafarvaldsins og stjórnarvalda, ýmist vegna gengisskráningar, órétt- látrar dýrtíðarvísitölu eða niðurgreiðslu hennar á kostnað þeirra, án raunverulegrar dýrtíðarlækkunar. Þessar einstæðu aðgerðir hins opinbera hafa, svo sem kunnugt er, þýtt árlegt milljónarán á kaupi allra laun- þega í landinu. 2. Þar eð ekki verður annað séð en að nefnt stjórn- arfrumvarp boði nýjar milljónaálögur á launþegastétt- irnár, til að lækka kaup þeirra sjálfra, ofan á undan- gengið ranglæti — sem launþegastéttirnar hafa þó um- borið til þessa af undraverðri þolinmæði, — þá verður ekki lengur hjá því komizt, áð þær mótmæli kröftug- lega og bregðist einhuga til vamar með öllu samtaka- afli sínu. Alþýðusamband íslands mun styðja þessa baráttu launþegastéttanna, hvenær sem á þarf að halda, bæð' á sviði kaupgjaldsbaráttunnar og annarra réttindamála þeirra. Virðingarfyllst. (Undirskrif tir). ilmræðamav tim íolíahæfebanírnar .OeMijlliriM defOdf aO helta saia- tohan slain tll ao tiætma awsa- lasglO. et saaaa 0 að lara að' Yfirlýsingar Sósíalistaflokksins á Afþingi í gær Fmmvarp ríkisstjómarinnar um tekjuöflun vegna dýrtíðarráðstafana, var til fyrstu umræðu í neðri deild í gær. Einar Olgeirsson kvaddi sér hljóðs og fletti ofan af háttalagi ríkisstjómarinnar og hinna 28 „samsæris- manna“, sem hafa bundizt samtökum um það, að við- halda og auka dýrtííina í landinu á kostnað alþýðunn- ar, með auknum tolla- og skattaálögum. Hringurlnn um Snamenha að lokasf Hernaðarsérfræðingar telja a. m. k. 30 þýzk herfylki séu í mikilli og vaxandi hættu fyrir sunnan Kremensjúg, eftir að rauði herinn rauf járnbrautina milli Snamenka og Krivoj Rog. Sé horfur þessara herfylkja hinar alvar- legustu og geti enginn sigur Þjóðverja á Kieff-vígstöðv- unum kippt þessu í lag. Rauði herinn hefur náð þýðingarmiklum landsvæð- um á sitt vald báðum megin við Snamenka og eru einnig byrjaCir á innikróunarsókn til borgarinnar frá suðri. Rússar hafa stækkað kafla þann sem þeir tóku í fyrradag af jámbrautinni milli Snamenka og Krivoj Rog og eru nú minna en 35 km. frá hmni þýðingarmiklu iðn- aðar- og samgöngumiðstöð Kirovo. Fjármálaráðherra flutti stutta ræðu, þar sem hann leitaðist við að sannfæra þingheim um að þessar nýju skatta og tolla álögur miðuðú að því að halda- dýrtíðinni ‘ í skefjum. Vonaðist hann til að málið fengi skjóta afgreiðslu í þinginu, og minnt- ist á í því sambandi að þing- menn væri nú farið að langa til að komast heim! Að ræðu fjármálaráðherra lokinni tók Einar Olgeirsson til máls. Kvaðst hann furða sig á því ef ríkisstjórnin ætlaðist til að þetta mál yrði afgreitt f flýti af þinginu og án þess að Framhald á 8. síðu. Fulltrúar allra lýð- ræðisflokka í stjórn Titos Anthony Edcn hefur rcétt við hina júgóslavnesku stjórn Péturs lconungs í Kairo um hina nýju stjóm Titos hershöjðingja. Er tal- ið, að hann hafi reynt að koma á málamiðlun. Það er kunnugt, að júgóslavneska stjómin hefur reynt að afturkalla hina álcöfu áráis sína á nýju stjómina, eftir að hafa rœtt um málið við áhrifamenn, en sú afturköllun lcom of seint. Breslct blað skýrir svo frá, að fuíltrúar allra lýðrœðisflokka landsins eigi sceti í stjórn Tito. Hinn kunni brezki þingmaður, Vernon Bartlett, hefur látið svo um mælt: Það er mjög athyglisvert, að þjóðfrclsisnefnd Titos hershöfð- ingja hcfur tekizt það, sem hinni útlægu stjórn tókst ekki, nefni- lega að koma á samvinnu milli fulltrúa flestra stjórnmálaskoðana úr öllum landshlutum. Afleiðinga þessarar þróunar mun gæta langt út fyrir takmörk Júgó- slavíu, því að magn það, sem Bret- ar hafa sent af liergögnum til Titos hershöfðingja, er áhrifarík sönnun um nánari samvinnu milli London og Moskva. Ætti því að verða mikið ágengt í að eyða grun þeim, sem oft hefur látið á sér bæra síð- an Darlan-málið var á döfinni, um að brezka stjórnin vildi licldur eiga skipti við afturhaldsöfl, þó að þau séu miklu ónýtari í baráttunni gegn öxulveldunum, heldur en hin- ar sundurleitari og ómenntaðri, en baráttufúsari alþýðuhreyfingar“. Lundúna-blaðið Star segir allt innbyrðis ósamkomulag Júgóslava vera að kenna blindni afturhalds- ins þar, sem kalli alla ráðherra nýju stjórnarinnar kommúnista. / Júgóslavíu eru nú harðastir bardagar umhverfis bæ, fyrir suð- austan Sarajevo. IJafði jijóðfrels- isherinn áður telcið þarm bœ. Flugvélar Bandamanna veita Júgóslövum aðstoð með sprengju- árásum. Hull, utanríkismálaráðh. Banda- ríkjanna hefur upplýst, að afstaða þeirra til Júgóslavíu sé alveg sú sama og Bretlands. Fyrir sunnan og vestan Krem- ensjúg hrundu Rússar í gær hörð- um gagnáhlaupuin Þjóðverja og sóttu fram og tóku 15 hemaðar- lega mikilvæga staði. í sókninni vestur frá Kremensjúg hafa þeir sótt fram meira en 15 km. á fá- einum dögum. Rauði herinn hratt í gær harð- vítugum árásum þýzkra skrið- dreka- og fótgönguliðssveita á suð- vesturhluta Kieff-vigstöðvanna. Bardagar vor’u harðastir fyrir norð- ausan Tsérnigoff. Þar voru 75 skriðdrekar Þjóðverja eyðilagðir í fyn’adag, og því samtals 159 skrið- drekar þeirra á tveira dögum. varaliði sínu á Kieff-vígstöðvun- um, muni Riissar hefja feikilega harðar gagnárásir. Fluttir til Þýzkalands Útvarpið í Osló segir frá því, að samtals séu 1356 stúdentar í fanga- búðunum lijá Larvik og Tönsberg, og að Þjóðverjarnir álíti um 200 þeirra holla sér. IJina alla á að senda til Þýzlcalands og sehnilega um 20 háskólakennara. Þjóðverjar álíti stúdentana afvegaleidda menn, sem hafi beðið tjón á sálu sinni i andrúmslofti Oslóar-há- slcóla. Muni þeim því verða komið fyrir á stað, þar sem þeim verði Hernaðarsérfræðingar í Moskva spá því, að sókn Þjóðverja á Kieff- vígstöðvunum mundi algerlega verða stöðvuð jafnskjótt og Rúss- ar hefðu náð aðalmarkmiðum sín- um íDnéprbugðunni. Þeir segja, að þegar Þjóðverjar hafi eytt öllu veitt pólitísk frœðsla og uppeldi og auk þess hernaðarþjálfun. Fréttir bárust um það í gær- kvöldi, að um 600 stúdentar hefðu yerið fluttir frá Larvik til Osló og látnir þar í skip, sem þegar er á leið til Þýzkalands. 31% HDgrsMar i germegagitraiB- mneiaflaai, er laga slílisfiefllsinanna Sigurður Kristjánsson hefur lagt fram tillögu um að heimila rikis- stjóminni að skera niður um allt að 30% frá því, sem gert er ráð fyrir á fjárlögum, allar þœr fjárveitingar, sem ekki em bundnar með öðr- um lögum. SUk heimild sem þessi hafði verið í fjárlögum á þjóðstjómartím- anum, en í fyrra tólcst, þrátt fyrir harða mótspyrnu og nokkur œðis- Jcöst Hriflunga, að fá fellda úr fjárlögunum. — Allir vita, að þessi lieimild þýðir fyrst og fremst, að ríkisstjórnin getur cftir eigin geð- þótta stórlœklcað framlög til allra verklegra framkvœmda og fjölda menningarmáda. Ríkisstjómin hefur margsinnis látið skina í það, að ef hún fengi slíka heimild, mundi hún nota hana, þar sem hún teldi að ýmsar þessar fjárveitingar vœm alltof háar, miðað við telcjur ríkissjóðs. Þessi tillaga þýðir því niðurskurð verklcgra framkvœmda, því fullvíst má telja, að heimildin vcrður notuð.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.