Þjóðviljinn - 12.12.1943, Síða 1

Þjóðviljinn - 12.12.1943, Síða 1
\ Benes forseti kominn til Moskva Forsetinn mun undirrita nýjan vináttusáttmála Sovétríkjanna og Tékko- slovakíu Eduard Benes, forseti Tékkó- slóvakíu, kom til Moskva í gær morgun, og tóku á móti honum á brautarstöðinni Molotoff ut- anríkisþjóðfulltrúi Sovétríkj- anna og Vorosiloff marskálkur. Síðar í gœr ræddi Benes við Kalinin forseta. Benes er kominn til_ Moskva til að undirrita gagnkvæman vináttu- og hjálparsáttmála, er stjórnir Sovétríkjanna og Tékkóslóvakíu hafa gert með sér og fjallar meðal annars um samvinnu á sviði atvinnumála kaupskipum Bandamanna. Brennandi þýzkir skriðdrekar eftir viðureign við stórskotalið Rússa. Bítvegur lagðuir mílftí Sovéftríkfanna og Indlands, er greíðlr mjdg fyrír víðsklpftum landanna Wnlii sllif Mí M lukaMiDi í vœntanlegum aukakosningum í kjördœmi í Bretlandi styður Kommúnistaflokkurinn í fyrsta sinn síðan 19hl ekki frambjóðanda stjómarinnar. Ilefur flokkurinn í því sambandi gefið út eftirfarandi yfirlýsingu: í þágu þjóðareiningarinnar í bar- áttunni gegn fasismanum hefur Kommúnisaflokkurinn hingað tiJ undirgengizt reglur þær, sem hindra flokka í að hafa mótframbjóðend- ur í kjördæmum þeim, sem losna, og stutt frambjóðendur stjórnar- innar. En hann hefur mótmælt því, með hve ólýðræðislegum hætti þess um kosningareglum hefur verið beitt, með þeim afleiðingum, að kosnir hafa verið óheppilegir og jafnvel afturhaldssamir frambjóð- endur, án tillits til óska kjósenda. Uppástungum Kommúnistaflokks ins um, að kölluð væri saman ráð- stefna með það fyrir augum, að ná samkomulagi um lýðræðissinnaðan frambjóðanda, var ekki sinnt, og þrátt fyrir, að þetta kjördæmi er aðallega byggt verkamönnum, var sendur þangað frambjóðandi frá íhaklsflokknum, sem hefur þann feril að baki sér, að hann er gjör- samlega óhæfur til að vera fulltrúi fyrir hinar andfasistisku ^skoðanir kjósendanna. An þess að hirða um vilja fólksins er hann fylgjandi því að Mosley var látinn laus, og styð- Framhald á 8. síðu. Eftir töku hinnar mikiivægu járbrautárborgar Snamenka sækir rauði herinn hratt fram í átt til Kirovograd og nálgast hana úr tveim áttum, segir í fregn frá Moskva í gærköld. Tuttugu og þrír þýzk- ir skriðdrekar voru eyðilagir og 1S00 Þjóðverjar féllu í lokabaráttunni um Snamenka. Hin hraða sólm Kússa vestur eftir hefur flutt sov- étherina á Kremensjúg- og Tsérkassisvæðunum mjög nærri hvorum öðrum. Óstaðfestar fregnir herma, að rauði herinn hafi þegar brotizt inn í Tsérkassi, og sé barizt þar á götunum. Rússar hafa nú á valdi sínu allt jámbrautakerfið í norðurhluta Dnéprbugðunnar. Verkamenn á Sikiley mót- mæla stjórnarráðstöfnunum Amgot -Nýir sigrar í barátt- unni við kafbátana á» Norðuratlanzhafi Flugvélar og herskip Banda- manna grönduðu fimm þýzkum kafbátum og löskuðu þrjá af deild tuttugu kafbáta, er hóf árásir á tvær mikilvægar skipa lestir í Norður-Atlantshafi ný- lega. Voru þrír kafbátar eyðilagð- ir og þrír laskaðir af flugvélum, en tveir eyðilagðir í herskipa árás. Baráttan við kafbátana held- ur áfram að ganga Bandamönn um mjög í vil. Hefur því verið lýst yfir nýlega að fleiri kafbát- um hafi verið sökkt á Atlanz- hafi síðastliðinn mánuð en en kaupskipum Bandamanna. íhðldið neitar um af- brigði fyrir skatta- frumvörpunum 1 gær var frumvarpið um brcyt- íngar á lögum um tekjuskatt og eignarskatt til 1. umr. í efri deild. Sömuleiðis var eignaaukaskattur- inn þar til 3. umr. En afbrigði þurfti að fá fyrir bæði málin. Og íhaldið neitaði um afbrigði, sem annars er sjaldgæft að gert sé. Eru nú hafðar aðrar aðferðir en þegar allir fulltrúar ílialdsins í fjár- veitinganefnd laumuðu fram á síð- asta degi þriðju umræðu um fjár- lögin tillögunni um 10 milljón kr. uppbætur. Harðir bardagar eru háðir á víg- stöðvunum um 100 km. vestur af Kíeff, suður og suðvestur af bæn- um Malín. Tókst sovéthernum að hrinda hörðum árásum þýzkra skriðdreka- og fótgönguliðssveita á þessum slóðum. Má nokkuð marka hve hörð baráttan er á þessum hluta vígstöðvanna af því, að 103 af þeim 126 þýzku skriðdrekunl, sem eyðilagðir voru á austurvíg- stöðvunum í gær voru frá þessum hluta. BÍLVEGUE LAGÐUE MILLI INDLANDS OG SOVÉTEÍKJ- ANNA eru þegar í stöðugri umferð á vegi þessum og vdrður þei-m fjölgað mjög á næstunni. Indverskur embættismaður hef- ur látið svo um mælt, að í Indlandi bíði hráefni, er mikilvæg séu fyrir hergagnaiðnað Sovétríkjanna, og muni þau send jafnskjótt og færi gefst. Sovétstjórnin hefur boðizt til að senda matvæji til Indlands, en í stórum hlutum landsins er hung- ursneyð. Inflúensa í Bretlandi og Bandaríkjunum Verkamenn á Sikiley eru mjög reiðir nýrri fyrirskipun frá AMGOT, sem neitar þeim um leyfi til að kjósa sjálfir starfs- menn hinnar nýendurreistu verklýðsfélagamiðstöðvar í Pal- ermo, höfuðborg Sikileyjar. Eina blaðið, sem gefið er út í borginni, Sicilia Liberata, gagn rýnir þessa fyrirskipun AMGOT um, að skipa eigi formann og starfsmenn miðstöðvarinnar fyrir að meðlimir verklýðssam bandsins kjósi þá. Blaðið gagn- rýnir og að núverandi kaup- samningar skuli vera látnir gilda enn, en þeir voru samdir af fasistastarfsmönnum og at- vinnurekendum. Ennfremur eru allir opinberir fundir bannaðir. — Það sé áríðandi að endurreist séu lýðræðisleg réttindi, mál- frelsi, prentfrelsi, fundafrelsi, og umfram allt verði að útrýma öllum leifum fasistískra áhrifa Bílvegur hefur verið lagður’milli Indlands og Sovétríkjanna. Ilann liggur yfir fjöll og eyðimerkur, og er mikilvœgur liður í flutningum milli landanna. Vegur þessi var lagður á átta mánuðum, og unnu að lagningu hans 30 þúsund manns, karlar, kon- ur og börn. Um 1000 flutningabílar Síðastliðna viku létust 709 manns af inflúensu í Englandi og Wales, og er það hœrri dán- artala af völdum þessa sjúk- dóms en verið hefur undanfarn ar vikur. Inflúensa breiðist nú einnig út í Bandaríkjunum og virðist ætla að verða almenn farsótt. undir eftirliti AMGOT í staðinn úr stjórnarskrifstofum. Dagur á vínnusftað Sveínbíorn Guðlaugsson féfcfe verðlaun víkunnar Sveinbjöm Guðlaugsson hlaut verðlaun þessarar vilcu i sam- kcypninni um greinamar ,,Dagur á vinnustaff'. Nefnir Sveinbjörn greinina „Fyrsti dagur á togara', og birtist hún á 2. síðu blaðsins í dag. Samkeppnin heldur áfram, og þurfa greinar sem lcoma eiga til álita fyrir nœstu helgi að vera komnar til ritstjórnarinnar ekki siðar en á miðvikudagskvöld. Þátttakendur mega ekki œtla, að verðlaun fái þœr greinar einar, sem lýsa sjómannalífi, þó svo hafi ráðizt, að þrjár fyrstu verðlauna- greinarnar lýsi vinnudegi við sjávarsíðuna- Að sjálfsögðu standa lýsingar á vinnudegi úr öUum starfsgreinum jafnt að vígi til að Idjóta verðlaunin.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.