Þjóðviljinn - 15.12.1943, Page 1
VILJIN
8. árgangur.
Gandhi og Wavell
Fréttir frá London herma, að
hlað samvinnufélaganna brezku,
Reynold’s News, sem er talið
mjög ábyggilegt í fréttaflutn-
ingi, hafi birt þá frétt, að vænt-
anlegt sé, að Wavell varakon
ungur Indlands og Gandhi
muni hittast og eiga tal sam-
an fyrir áramót.
Gandhi situr enn í fangelsi
eins og aðrir helztu leiðtogar
Indverja. Er vonandi, að þessi
fundur tákni það, að brezka
stjórnin hafi í hyggju að sýna
sjálfstjórnarkröfum Indverja
meiri sanngirni en hingað til.
Sex ára telpa verður fyr
ir bifreið, meiðist aðeins
lítilsháttar
I gœr kl. 16 varð 6 ára gömul
telpa fyrir bifreið á Fríkirkju-
veginum.
Hlaut hún ótrúlega litil
meiðsli. Varð ekki séð að hún
hefði hlotið önnur meiðsli en
mar og hrufl í andliti.
Miðvikudagur 15. des'. 1943.
282. tölublað.
35 fem. míllí rússnesfeu herjanna
Kremensjúgvígsföðvuntim — Rússar
í sérstakri dagskipun, sem Stalín marskálkur gaf
út um miðjan dag í gær, tilkynnti hann að rauði herinn
hefði tekið borgina Tsérkassi, sem margsinnis hefur
j verið getið í fréttum undanfarið. Var hún aðalvarnar-
i stöð Þjóðverja á Dnéprbökkum á mið- og suðúrvígstöðv-
unum eftir að þeir misstu Gomel. Er nú liðinn mánuð-
ur síðan rauði herinn brauzt yfir fljótið í nágrenni borg-
arinnar og kom sér fyrir á vestri bakkanum.
Tsérkassi er mikilvæg samgöngumiðstöð og var mið-
stöð sykurrófnaiðnaðarins á þessum slóðum.
Rússneski hershöfðinginn, er ust inn i borgina, komu svo
stjórnaði hersveitunum, sem
tóku borgina, er sá sami sem
stjórnaði töku Dnépropetrofsks
og Krementsjúgs. Sama fall-
hlífarliðið, sem aðstoðaði við
töku Snamenka, átti drjúgan
þátt í töku Tsérkassi.
Bardagarnir voru geisiharðir
hjá borginni og inni í henni.
Fyrstu hermennirnir, sem rudd-
á Tsérfeassi « og
yfírgefa Radomisl
Innbrotsþjófar
handsamaðir
Aðfaranótt s. 1. sunnudags
var brotizt inn í vörugeymslu
Eggerts Kristjánssonar í Fisher
sundi 1.
Stolið var 6 hjólbörðum og
einhverju af spilum. Hvort
meiru hefur verið stolið er enn
óupplýst.
Lögreglan hafði hendur í hári
þjófanna, en þeir voru tveir, og
höfðu þeir þá selt nokkuð af
þýfinu. Hafa þeir meðgengið
þjófnaðinn, en málið er þó ekkí
að fullu upplýst enn. Menn þess
ir hafa áður komið við sögu hjá
lögreglunni.
segir Anthony Eden.
Anthony Eden hélt í gær £ neðri deild brezka þingsins ræðu,
sem vakið hefur mikla athygli. Sagði hann, að á næstu mánuð-
um mundu verða háðar hinar miklu úrslitaorustur stríðsins. Gerð-
ar yrðu feikilega árásir á Þýzkaland og Japan. Hefði náðst al-
gjört samkomulag um allar áætlanir og tíma á nýafstöðnum ráð-
stefnum.
Eden byrjaði ræðu sína á að
afsaka að Churchill gæti ekki
verið viðstaddur. Hann sæti enn
á þýðingarmiklum ráðstefnum.
Eden kvað Breta og Banda-
ríkjamenn þurfa á allri sinni
orku, hugrekki og samheldni að
halda í hinni væntanlegu sókn.
Væri hyggilegast að forðast
alla ótímabæra bjartsýni.
Eden sagði um ráðstefnurnar,
að fyrri ráðstefnan í Kairo og
Teheran-ráðstefnan hefði snúizt
aðallega um hernaðarmál. „Okk
ur tókst“, sagði hann, „að full-
komna sameiginlegan undirbún
ing þeirra mála svo, að annað
eins hefur ekki þekkzt í þessu
stríði."
í sambandi við fyrri ráðstefn-
una í Kairo sagði hann, að
Bandaríkjunum, Bretlandi og
Kír^a væri fyllilega Ijóst, að það
að sigra Þýzkaland og semja
svo frið við Japan mundi sá
því fræi, sem upp af sprytti
þriðja heimsstyrjöldin. „Við
höfum ákveðið, sagði hann, „að
berjast við Japana til úrslita,
hvað sem það kostar og hvað
lengi sem við verðum að því.“
Eden sagði að ráðgjafanefnd-
in fyrir Italíu væri tekin til
starfa, og Evrópunefndin í Lon
Framhald á 8. síðu
mn í
skyndilega, að þeir mættu lít
illi mótspyrnu fyrst í stað. En
brátt komu skriðdrekar Þjóð-
verja og handvélbyssumenn á
vettvang. Var upp frá því ekk-
ert lát á hinum heiftarlegu bar-
dögum á götum borgarinnar.
Barst leikurinn inn í miðdepil
borgarinnar, en þar voru mikil
stórhýsi, skólar o. fl. Komu
Þjóðverjar sér fyrir í kjöllur-
um þeirra og vörðust þar með
vélbyssum. Var mótspyrna
þeirra sérstaklega öflug þarna.
Var hún um síðir brotin á bak
aftur með handsprengjum. Síð-
ustu leifar varnarhers Þjóðverja
voru reknar út um suðaustur-
hverfi borgarinnar.
Hersveitir þær, sem sækja
norður með Dnépr frá Krem-
ensjúg sóttu í gær enn fram
um 15 km. og eru nú um 35
km. milli þeirra og hersveit-
anna, sem tóku Tsérkassí. Fram
sókn Rússa annars staðar
á Krementsjúg-vígstöðvunum
gengur einnig vel.
I sókninni til Kirofograd hef-
ur rauði herinn tekið mörg
þorp og er nú kominn svo ná-
lægt borginni, að stórskotalið
hans er þegar farið að skjóta
Framhald á 8. síðu.
í dag og á morgun
í dag og á morgun eru skiladagar í Þjóðvilja-
söfnuninni, og eru allir áminntir að skila af listum
sínum.
Skrifsofa söfnunarinnar á Skólavörðustíg 19
er opin kl. 4—7.
Þessa daga er líka tilvalið tækifæri fyrir þá
velunnara blaðsins, sem ekki hafa náð í neinn
„lista“-mann, að senda Þjóðviljanum það sem þeir
hafa ætlað honum á fjárlögum sínum fyrir des-
ember!
Látið rauðu seí.Uana fjúka til Þjóðviljans þessa
næstu daga!
Verðlagsstjóri ákveOor 20 °|0 verðiækk-
un á innlendum bókum
Verðlagsstjóri hefur ákveðið að frá og með
deginum í dag skuli verð á öllum innlendum bók-
um, sem út hafa verið gefnar eftir 1. okt. 1942
lækka um 20%.
Frá sama tíma er bókaútgefendum ekki skylt
að greiða bóksölum hærri sölulaun en 20%.
Útgefendum cr þó gefinn kostur á að fá hækk-
að útsöluverð bókar, ef þeir geta upplýst að tap
verði ella á útgáfunni.
Frá sama tíma er bókaútgefendum óheimilt
að ákveða útsöluverð bóka, án samþykkis verðlags-
stjóra og er þeim skylt að senda honum nákvæma
skýrslu um útgáfukostnað sérhverrar bókar er þeir
gefa út-
A
I
Grjófí og Icír rígnír á sfóru svæðí
— Gróðurhúsíð eyðífagðísf — Tjón~
íð nemur þúsundum feróna
Síðastliðinn laugardag kom hver upp í gróðurhúsi að Reykja-
koti í Ölvusi.
Sprengdi hann þakið af húsinu og eyðilagði mestallar plönt-
ur sem £ því voru.
Tveim stundum áður hófst gos úr borholu skammt frá. Grjóti
og leðju rigndi yfir stórt svæði umhverfis.
Unnið hefur verið undanfar-
ið að borun fyrir jarðhita fyrir
Menntaskólaselið að Reykjakoti.
Borhola þessi tók að gjósa um
kl. 11 s. 1. laugardag. Var gos
þetta ofsalegra en úr nokkurri
annarri borholu hér á landi til
þessa. Með gufunni þeyttist
grjót hátt í loft upp og fylgdu
gosinu svo miklar drunur og
dynkir að ekki heyrðist manns-
ins mál.
Eftir tvær stundir dró úr gos-
inu og virtist holan þá hafa
stýflazt, en samtímis kom upp
hver í gróðurhúsi þar í grennd
inni, sprengdi hann þak hússins
og leirleðja úr hvernum rann
um allt húsið og eyðilagði allt
sem þar var, nema nokkrar
plöntur, sem fyrir dugnað og
snarræði tókst að ná út.
Síðar um daginn fór borhol-
an að gjósa á ný. Sveinn og
Aðalsteinn Steindórssynir, sem
önnuðust borunina og Jón Guð-
mundsson pípulagningarmaði
reyndu þá að koma járnpíj
fyrir í holunni til þess að r
gufunni þar upp og hindra £
hún brytist upp um gróðurhú
ið. Tókst þeim það og gaus J
upp gufa grjót og leir, en eft
því sem pípan var rekin lengi
niður magnaðist gosið, unz pí;
an, sem var um 50 feta lön
sökk skyndilega og sást ek'
meir, en svo virðist, sem bo
holan hafi stíflazt við þetta, þ'
hlé varð á gosinu og hefur hc
an haft hægt um sig síða:
nema' blágræn leðja sýður nið
í gígnum, sem myndazt hefi
við gosið.
Gígurinn eftir gosið er u
meter á dýpt og 4—5 metrar
þvermál. Grjót og leðja hefi
þeytzt út um stórt svæði c
hefur grjótregnið m. a. dunið
Menntaskólaselinu.
Tjónið af gosi þessu nemi
þúsundum króna.