Þjóðviljinn - 17.12.1943, Qupperneq 1
Þíngslíl I dag!
Fransíln og ÍMII saniiast on að lela
—'T'TVirr
tautti iileusiiF frá sHafíamáliinum - slriHnr uííf sldro arflln - 09 suíftnr allf
Jólagiðfakort
Þjóðviljans
Sósíalistar og aðrir velunn-
arar og vinir Þjóðviljans!
Þessa dagana eruð þið að
undirbúa jólagjafirnar til
vina og kunningja.
Nú eigið þið kost á að gefa
þeim vinum yltkar, sem ekki
kaupa Þjóðviljann, ágæta en
ávænta jólagjöf.
Gefið þeim hálfs árs á-
skriftarkort að Þjóðviljanum.
Þessi jólagjöf er i senn
bezta, ódýrasta og óvœnt-
asta jólagjöfin.
Kortin getið þið fengið á
afgreiðslu Þjóðviljans og í
skrifstofum Sósíalistaflokks-
ins, Skólavörðustíg 19. —
3ala þeirra hefst á morgun.
Gefið vinum ykkar jóla-
kort Þjóðviljans!
SINDRI KOWnNN
Vélbáturinn Sindri, sem
Slysavarnafélagið lýsti eftir í
útvarpinu í gærkvöld kom fram
heilu og höldnu seinna í gær-
kvöld.
í gær báru nokkrir Framsóknar- og Sjálfstæðisþingmenn
fram eftirfarandi þingsályktunartillögu í sameinuðu þingi:
„Tillaga til þingsályktunar um heimild fyrir ríkisstjómina
til þess að lækka verð á vörum innan lands.
Flm.: Jakob Möller: Bernh. Stefánsson, Magnús Jónsson,
Skúli Guðmundsson.
Sameinað Alþingi ályktar að heimila ríkisstjóminni að lækka
verð á vörum innan lands gegn framlagi úr ríkissjóði til þess að
hindra verðbólgu, þar til er Alþingi gerir aðrar ráðstafanir.
Greinargerð: Tillaga þessi er flutt eftir tilmælum ríkisstjórn-
arinnar.“
Með þessari tillögu er ríkisstjórninni veitt ótakmörkuð heim-
Ud til að ausa fé úr ríkissjóði, — meðan eitthvað er eftir í hon-
um, — tll þess að borga niður verð á landbúnaðarafurðum.
Fulltrúar Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins töluðu em-
dregið gegn þessari þingsályktun.
Eftir allharðar umræður var tillagan afgreidd með atkvæð-
um Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins, gegn atkvæðum Sósíal-
istaflokksins og Alþýðuflokksins-
Meðan þetta gerðist í sameinuðu þingi, var svo fundum lokið
í neðri deild, án þess frumvarplð um breytingu á lögunum um
dýrtf.ðarráðstafanirnar (— sem tók af öll tvímæli um að stjómin
hefði rétt til niðurborgunar) væri tekið fyrir, en það var komið
til síðastu umræðu. Mótmælti Sigfús Sigurhjartarson þessu harð-
lega fyrir hönd Sósíalistaflokksins.
Rauði heriun sæklr aítur á
á Kíelf-Ylgstöðvufium
Rússar hafa yfirleitt bætt hag sinn mikið á Kieff-
vígstöðvunum síðastliðinn sólarhring. Hafa þeir náð
tölúverðu landi aftur og hafa hermenn Vatútins hers-
liöfffingja tekið mörg þorp fyrir sunnan Malin og fyrir
norðvestan Rodomisl. Rússneska stórskotaliðið hefur
valdið miklum usla í skriðdreka- og fótgönguliði Þjóð-
verja í gagnáhlaupum þeirra.
Churcltill veiKur
— Er á bitavegi
Hið mesta uppnám varð í
brezka þinginu í gær, er það
varð upplýst, að Churchill væri
búinn að vera veikur í nokkra
daga. Hefði hann haft kvef og
snert af lungnabólgu í vinstra
lunga. Engin hætta er þó á ferð
um ennþá og meira að segja
fullyrt, að hann sé á batavegi.
— Ekki var sagt, hvar hann
væri staddur, en líklegt þykir,
að hann sé í Kairo eða þar í
grennd. — Eden utanríkisráð-
herra sagði, að Churchill þyrfti
að ljúka mikilvægum störfum,
þar sem hann væri.
Attlee, varaforsætisráðherra,
fullvissaði þingmennina um, að
Framhald á 8. síðu.
Rétt eftir hádegi í gær af-
henti þingflokkur sósíalista for-
mönnum Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins svohljóð-
andi bréf:
„Reykjavík, 15. des. 1943.
Hér með leyfum vér oss að
fara þess á leit við flokk yðar,
að beita sér fyrir því ásamt
Sósíalistaflokknum, að Alþingi
verði ekki slitið fyrr en skatta-
frumvörpin (eignar-aukaskattur
og breyt'ng á tekju- og eignar-
skattslögunum, 159. mál) hafa
verið afgreidd. Jafnframt geri
flokkarnir það sem unnt er, til
þess að málum þessum verði
hraðað svo sem frekast má.
Svar óskast nú þegar.
Virðingarfyllst.
F.h. Sameiningarflokks alþýðu -
Sósíalistaflokksins“
(undirskrift).
Svör höfðu ekki borizt frá
flokkunum, er þetta vra skrifað,
Framhald á 5. síðu
Verklýðsnefnd fer
ti! Ítalíu
Brezka stjórnin hefur veitt
samþykki sitt til, að sendinefnd
frá alþjóðasambandi flutninga-
verkamanna fari til hins frjálsa
hluta Ítalíu. í nefndinni eru
brezkir og ítalskir verklýðsleið
togar. Er markmið nefndarinn-
ar að endurskipuleggja sam-
band ítalskra flutningaverka-
manna, efla samgöngur og flutn
inga og kynna sér verklýðsmál
yfirleitt.
Hinir ítölsku meðlimir nefnd
arinnar eru fyrrverandi verka-
lýðsfélagaleiðtogar og sósíal-
istar, sem voru landflótta í
Bretlarjdi.
í Dnépr-bugðunni heldur
sóknin áfram. Hefur ennþá
mikið áunnizt fyrir sunnan og
suðaustan Tsérkassí. Það var
ranghermt í fréttum í gær, að
Rússar hefðu tekið járnbrautar
miðstöðina Smiela. Hinsvegar
eru fremstu sveitir rauða hers-
ins komnar að úthverfum bæj-
arins, en sækja til hans úr
samtals þrem áttum.
í sókninni til Kirofograd sæk
ist rauða hernum vel og hefur
hann tekið allmörg þorp á
þeirri leið.
Skriðdrekatjón Þjóðverja var
í gær samtals 37 skriðdrekar,
en 100 flugvélar.
Vetrarveðrátta er nú orðin
ríkjandi á norður- og miðvíg-
stöðvunum og þokast smám
saman suður á bóginn. Þjóðverj’
ar tala enn um öfluga sókn
Rússa hjá Nevel og Slobin, en
Rússar nefna hana ekki.
Þrír þýzkir herforingjar, þ. á.
m. einn stormsveitarforingi
sem Rússar hafa tekið höndum
verða nú að standa fyrir máli
sínu í Karkoff. Eru þeir ákærð
ir fyrir hryðjuverk gegn rúss-
neskum almenningi.
Bandamenn hafa’fyrir löngu
og oftar en einu sinni hótað
stríðsglæpamönnunum hörðum
refsingum, en þetta er í fyrsta
Framh. á 5. síðu.
Fulltrúaráð verklýðsféEaganna mótmæl-
Ir dýrtlðarfrumvarpi ríkisstjórnar. Heitir
á samtök launjjega að vera á verði
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna í Reykjavík samþykkti F
gær mótmæli gegn friunvarpinu um tekjuöflun vegna dýr-
tíðarráðstafana- Jafnframt skorar það á samtök launþega
um að vera á verði gegn öllum árásartilraunum á kjör þeirra.
Mótmæli fulltrúaráðsins liafa verið send forseta sameinaðs
Alþingis og fara þau hér á eftir:
„Fundur í Fulltrúaráði verklýðsfélaganna í Reykjavík,
haldinn fimmtudaginn 16- des. 1943, undirstrikar mótmæli
Alþýðusambands íslands gegn svokölluðu frumvarpi til laga
um tekjuöflun vegna dýrtiðarráðstafana, sem borið er fram
af núverandi ríkisstjórn, og skoðar þetta frv. sem freklegt
framhald þeirrar stefnu í dýrtíðarmálum, sem þegar hefur
kostað launþegastéttirnar meira en þær geta risið undir.
Fyrir því skorar fulltrúaráðið á öll launþegafélög í
Reykjavík, að vera við því búin, hvenær sem er, í samráði
við Alþýðusambandið, að styðja hvert annað á sviði kaup-
gjaldsbaráttunnar, bæði til þess að leiðrétta það misrétti, sem
þegar hefur verið framið á þessu sviði og til þess að hrinda
nýjum árásum sem gerðar kynnu að verða.
Loks mótmælir fundurinn harðlega hinum illræmdu nið-
urgreiðslum á vöru og krefst þess að þær verði lagðar niður.“