Þjóðviljinn - 21.12.1943, Blaðsíða 1
MIN
8. árgangur.
Þriðjudagur 21- desembev 1943.
287. tölublað.
FyrsfuEysfrasalfsvígsföðvarnar"
570 bæír og þorp fckín á 6 dogum
Drengur slasast alvar-
lega af byssuskoti
f jyrradag vildi það slys til
norður í Mývatnssveit, að dreng
ur, serrv var að leika sér að
riffli varð fyrir skoti og særð-
ist allmikið. Var hann fluttur
í sjúkrahús á Akureyri.
í fyrradag voru drengir að
leika sér með byssu við tún-
garðinn að Vogum í Mývatns-
sveit og hljóp þá skot í einn
þeirra.
Var þegar símað til læknis
að Breiðumýri og kom hann
eins fljótt og kostur var á og
bjó um sár Örengsins og lét
síðan flytja hann í skyndi í
sjúkrahús á Akureyri.
Stjórn Hlífar
sjálfkjörin
Verkamannafélagið Hlíf í
Hafnarfirði hélt fund í fyrra-
dag. Uppstillingarnefnd skil-
aði tillögum og komu engar
aðrar tillögur fram og var
stjórnin því sjálfkjörin.
Ýmsar samþykktir Hlífar
eru þirtar á 2. síðu Þjóð-
viljans í dag.
Rauði herinn hóf fyrir 6 dögum síðan öfluga sókn
milli Nevel og Vitebsk. Hefur hann rofið járnbrautar-
línuna milli þessara borga. — Þjóðverjar höfðu oft und-
anfarið talað um hörð áhlaup Rússa á þessum slóð-
um, en Rússar nefndu engin átök þar, fyrr en í gær, að
þeir tilkynntu að rauði herinn hefði í fimm daga sókn
rofið víglínu Þjóðverja milli Nevel og Vitebsk á um 80
km. breiðu svæði og sótt fram um 30 km. Tekið meira
en 500 bæi og þorp, fellt meira en 20 þús. Þjóðverja og
tekið a. m. k. 2000 höndum.
Flugvél hrapar
Um kl. 2,30 í fyrradag hrap-
aði flkgvél í nánd við bœinn,
kom hún niður skammt fyrir
sunnan Grandaveg."
Kom flugvél þessi utan af
hafi og flaug yfir Bráðræðis-
holtið. Flaug hún mjög lágt
yfir bæinn, en þegar kom suð-
ur fyrir Grandaveginn missti
hún jafnvægið og kom niður
á hvolfi.
Ekki er kunnugt enn, hversu
alvarlegt slysjð hefur verið.
Á þessum fyrstu fimm dög-
um tók rauði herinn afarmikið
herfang af birgðum og hergögn-
um, þ- á m. um 106 skriðdreka.
Sovétherstjórnin upplýsti, að
fjórum þýzkum fótgönguliðsher
i fylkjum, sem telja um 60 þús.
! hermenn og einu skriðdrekaher-
I fylki að auki hefði verið tvístr-
jað.
I gær tók rauði herinn um 70
bæi og þorp í viðbót, m. a. bæ,
sem er um 50 km. norðvestur
af Vitebsk og um 30 km. frá
járnbrautinni milli Vitebsk og
Polotsk- Er síðarnefndur bær
talinn höfuðmarkmið þessarar
sóknar fyrsta sprettinn. Polotsk
er þýðingarmikil jámbrautar-
miðstöð. Um hana liggur önnur
aðalbrautin frá Póllandi til
sijðniiiDo í Boiiuio
Herforingjauppreisn varð £ Bolivíu í Suður-Ameríku í gær
og vann sigur á skammri stundu. Kalla uppreisnarmenn sig „Þjóð-
ernis-byltingarhreyfinguna".
Forsetinn var tekinn höndum á heimili sínu, og er hann enn
í haldi asamt nokkrum ráðherra sinna. Yfirmaður herforingja-
ráðsins og tveir hershöfðingjar hafa og verið handteknir. — Ný
stjórn hefur verið mynduð, en ekki er kunnugt um utanríkisstefnu
hennar. Er talið, að hún verið Mk og áður, en fyrri stjórn hafði
allnána samvinnu við stjórn Bándaríkjanna. — Öll blöð eru bönn-
uð etns og stendur.
1 Boliviu eru einhverjar auð-
ugustu tinnámur heimsins og er
framleiðsla þeirra Bandamönn-
um mjög mikilvæg. Námurnar
eru í eigu fáeinna stórauðugra
manna, en verkamenn búa við
hin aumustu kjör. Hefur hvað
eftir annað komið til árekstra
milli þeirra og námueigenda,
en auðugastur og harðsvíraðast-
ur þeirra heitir Simon Patino.
Hafa fulltrúar Bandaríkjastjórn
ar í Bpliviu einatt reynt að
miðla málum síðan stríðið hófst,
svo að hin mikilvæga fram-
leiðsla tefðist ekki og lagt að
námueigendum að sýna verka-
mönnunum svolitla sanngirni,
en eigendurnir hafa sýnt hina
mestu þvermóðsku, er einkum
frægt bréf frá Patino, sem hann
skrifaði einum af forstjórum sín
um, þar sem hann bannaði hon-
um að láta í nokkru undan og
kvartaði undan „afskiptasemi"
Bandaríkjamanna, sem aðeins
mundu ala upp í verkamönnúm
„heimtufrekju".
Hefði að athuguðu öllu á-
standi alþýðu í Bolivíu alveg
eins mátt búast við byltingu af
hennar hálfu.
Leningrad auk fleiri járn-
brauta. Er bærinn um 35 km.
frá fyrri landamærum Póllands,
en rúmlega tvöfalt lengra frá
landamæmm ¦ Lettlands. Rauði
herínn var sagður vera um 90
km. frá landamærum Lettlands
í gær, þar sem hann var lengst
kominn- — Góðar horfur eru
taldar á því, að rauða hernum
muni takast að umkringja borg-
ina Vitebsk. í henni skerast
járnbrautirnar á milli Smolensk
og Polotsk og á milli Mogileff
og Nevel, en gildi hennar sem
járnbrautarmiðstöðvar er nú orð
ið lítið fyrir Þjóðverja síðan
Rússar rufu línuna norður til
Nevel, en hún hefur verið álitin
þungamiðjan í varnarkerfi Þjóð
verja á þessum slóðum og er
í miklu gildi enn sem slik og
verður rauða hernum til stór-
mikils hagræðis vegna allra að-
flutninga vestur á bóginn, þeg-
ar hann hefur náð henni á sitt
vald.
Þjóðverjar viðurkenna, að
árásir Rússa á þessum slóðum
séu nú orðnar að stórsókn, og
muni tilganeur hennar vera að
umkringja Vitebsk og sækja til
lettnesku landamæranna.
Rússar hrundu í gær hörðum
áhlaupum Þjóðverja á Kíeff-
vígstöðvunum í nánd við Koro-
sten.
Fyrir suðaustan Kirofograd
gerðu Þjóðverjar tvær harðar
árásir og var báðum hrundið við
mikið tjón í liði beirra.
Samtals eyðilögðu Rússar 82
skriðdreka fvrir Þjóðverjum í
gær og 57 flugvélar.
Niðurstaða réttarhaldanna í
Karkoff var sú, að hinir þrír
þýzku stríðsglæpamenn voru
dæmdir til dauða ásamt einum
rússneskum aðstoðarmanni
þeirra- — Voru þeir allir teknir
af lífi opinberlega í Karkoff í
gær.
Leikfélagið hefur frumsýn-
ingu á hinu nýja leikriti Davíðs
Stefánssonar, á annan dag jóla:
LiuelilisllDliMF 3 sliipa 9 manna
nelnd tii afl yndirbua sioinun lúðueldis
Stjórnmálaflokkarnir á Alþingi, sem standa að
lausn lýðveldismálsins á næsta ári, Sjálfstæðis-
flokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Sósíalista-
flokkurinn, hafa kjörið nefnd, sem hefur með hönd-
um undirbúning málsins fram á næsta þing. Eru í
nefndinni 3 menn af hverjum flokki, en tveir full-
trúar ríkisstjórnarinnar starfa með henni. Þessir
eru nefndarmenn:
Frá Sjálfstæðisflokknum:
Bjarni Benediktsson, Gísli Sveinsson og Ólafur
Thors.
Frá Framsóknarflokknum:
Hermann Jónasson, Hilmar Stefánsson og Jónas
Jónsson.
Frá Sósíalistaflokknum:
Áki Jakobsson, Brynjólfur Bjarnason og Einar Ol-
geirsson.
Frá ríkisstjórninni:
Björn ÓMsson og Einar Arnórsson.
Formannsstörfum í nefndinni gegnir Gísli
Sveinsson.
Af þessum 11 nefhdarmönnum starfa þrír í fram-
kvæmdanefnd, þeir Bjarni Benediktsson, Einar Ol-
geirsson og Hilmar Stefánsson.
Bandamenn
semja við Tito
Það var opinberlega tilkynnt
í Alexandríu í gær, að lokið
væri ráðstefnu milli fulltrúa
Titos marskálks og fulltrúa frá
Bretum og Bandaríkjamönnum.
Aðeins hernaðarleg mál voru
rædd. Náðist fullt samkomulag
um, að Bandamenn veittu Júgó-
slövum þeim, sem veittu Þjóð-
verjum mótspyrnu, fullkominn
hernaðarlegan stuðning.
Frá höfuðstöðvum þjóðfrelsis-
hersins er tilkynnt, að miklir
bardagar séu háðir í Bosníu og
Kroatíu.
Þjóðverjar tala- einkum um
bardaga í Austur-Bosníu.
Eldingu slær niður
í loftnet
Sá sjaldgœfi atburður gerðist
15. þ. m. að eldingu laust nið-
ur í íveruhús á Brokey á Breiða
firði.
Skemmdir urðu ekki aðrar en
þær, að loftnetið slitnaði og út-
varpstækið eyðilagðist algjör-
Frá Norcfirði
27 útskrifuðust ðf
ffló'ornámskeiði
Fréttaritari Þjóðviljans á
Norðfirði símaði í gcer: Nánv
skeiði því er háldið hefur ver-
ið hér undanfarið fyrir mótor-
ista, er nú lokið. 27 luku prófi
og hlutu 11 ágætiseinkun og 10
fyrstu emkun. Allir stóðust próf
ið.
Hæstu einkunn hlaut Hallgrím
ur Pétursson frá Norðfirði 47%
stig en hæsta einkunn sem hægt
er að fá er 48 stig, næstur varð
Á. Sigurbergsson frá Fáskrúðs-
firði með 47% stig og sá þriðji
Jósafat Henriksson frá Norð-
firði með 44% stig. Iftir ára-
mótin hefst mótornámskeið á
Patreksfirði.
Valdemar V. Snævar, sem
gegnt hefur kennara og skóla-
Frh. á 5. síðu.
lega, er það talin einstök heppni
að ekki kviknaði í húsinu.
Þegar atburð þennan bar að
höndum, var enginn maður við-
staddur. Útvarpstækið tættist
sundur út um gólf.