Þjóðviljinn - 23.12.1943, Page 1
VILIIN
Sendið vinum ykkar
jólakort Þjóðviljans
(Sjá augl. á 6. síðu)
8. árgangur.
Fimmtudagur 23. desember 1943
289. tölublað.
MKiOl frð TitO
looh 0 lolí III
Fcr íram á fiilla víðmrkentiingu Bandamanna
á bráðabírgðasfíórninní
Fréttir herma, að sendinefnd frá Tito marskálki sé
á leið til London til að ræða við brezku stjórnina um
fulla viðurkenningu á bráðabirgðastjóminni.
Herflokkar Mikhailovits hershöfðingja, sem njóta
stuðnings stjómar Péturs konungs, áttu engan fulltrúa
á ráðstefnunni í Alexandríu, þar sem fulltrúar brezku
og amerísku herstjórnanna ræddu hernaðarmálefni við
fulltrúa frá júgoslavneska þjóðfrelsishernum.
Útvarpsstöð frjálsra Júgoslava
tilkynnir, að stjórn Titos viðurr
kenni ekki samninga eða al-
þjóðlegar skuldbindingar, sem
hin útlæga ríkisstjórn í Kairo
hafi undirgengizti
Ribaro, forseti frjálsra Júgo-
slava, hefur krafizt þess, að
Kairo-stjórnin verði svipt öllum
réttindum, og að bráðabirgða-
stjórnin ein verði viðurkennd
af Rússum, Bretum og Banda-
ríkjamönnum sem fulltrúi Júgo
slavíu.
Ivo Sitsjinshajn, fjármálaráð-
herra himjar útlægu stjórnar í
Kairo, hefur verið hanc)tekinn
þar og tekinn til yfirheyrslu
vegna gruns um viðskipti við
Samvinnufélag sjfimanna
og útgerðarmanna stofn-
að í Húsavík
Sunnudaginn 19. desember
1943 var stofnað samvinnufélag
útgerðarmanna og sjómanna í
Húsavík.
Markmið félagsins er að sjá
um innkaup á olíu og öðrum
útgerðarvörum og ennfremur að
annast sölu á sjávarafurðum og
vöruvöndun þeirra.
í stjórn félagsins eru Stefán
Pétursson, Einar Sörertsson og
Bjöm Kristjánsson.
' Fréttaritari.
iunitrot f Vesturgfitu 21
í jyrrinótt var brotist inn í
■úra- og skrautgripaverzlunina á
Vesturgötu 21 og stoliö 5 úrum
úr sýningarglugga.
Brotin var rúða í sýningar-
glugga á Úra- og skrautgripa-
verzlun Franch Michelsen á
Vesturgötu 21, sennilega um kl.
1, í fyrrinótt og var stolið 5
úrum sem voru í glugganum.
Ekki hefur enn tekizt að hafa
npp á sökudólgnum.
óvinina. Hann er fyrrverandi
ofbeldisseggur frá Dalmatíu í
Júgoslavíu, þar sem Mikhailo-
vits skipaði Sétnika-flokkum
sínum að hafa samvinnu við
ítalska fasistaherinn gegn skæru
liðum. — Talið er að handtaka
(l
hans byggist á upplýsingum frá
ítalska hershöfðingjanum Ró-
atta, sem áður skipulagði Sét-
nika-sveitirnar fyrir ítölsku her-
stjórnina.
Lengi. hefur verið víðtæk ó-
ánægja í löndum Bandamanna
yfir því, að töluvert júgoslavn-
eskt fjármagn, sem er ,,fryst“
í Bandaríkjunum, er alveg á
valdi júgoslavneska sendiherr-
ans í Washington, Fotits. Fotits
var skipaður sendiherra af harð-
stjóranum Stojadinovits sem um
eitt skeið var forsætisráðherra
Júgoslavíu og mjög hlynntur
möndulveldunum, og er nú í
varðhaldi hjá Bretum á eynni
Máritíus. Fotits er náskyldur
kvislingunum, Nedits hershöfð-
ingja og Ljotits hershöfðipgja,
sem er yfirmaður sjálfboðaliðs-
sveitar, sem hefur samvinnu við
Þjóðverja.
Þeir félagar, Fotits, Sitsjin-
shajn og Mikhailovits, eru á-
litnir mjög hættulegir, og er
það skoðun manna, að lýðræðis-
legri yfirstjórn hins júgoslavn-
eska fjármagns mundi vera í
meira samræmi við hagsmuni
júgoslavnesku þjóðarinnar og
Bandamanna.
ÁÆTLANIR UM BANDALAG
JÚGOSLAVNESKRA ÞJÓÐA
Útvarpsstöð frjálsra Jógoslava
hefur tilkynnt, að áætlanir hafi
verið samdar um bandalag sex
jógoslavneskra þjóða. Er í þessu
nýja skipulagi viðurkennt sjálf-
stæði allra júgoslavneskra þjóða
og hindrar það, að Júgoslavía
verði framar leikvöllur fyrir
vélabrögð ýmissa afturhaldsafla.
Flugvélar Bandamanna veittu
þjóðfrelsishernum stuðning á
ýmsan hátt í bardögunum í gær.
Einkum er nú barizt í Austur-
Bosníu. Tókst Júgoslövum að
taka þar af Þjóðverjum einn
bæ og þrjú þorp. Um 500 Þjóð-
verjar voru drepnir.
Skæruliðar trufluðu víða sam-
göngur Þjóðverja, i’ufu meðal
annars járnbrautarlínuna milli
Belgrad og Zagreb.
Sökn RQssa suður frá Kevel
miöar vel áfram
Rauði herinn 20 km«-frá Víðebsk
Sókin rauða hersins til Vitebsk miðar áfram jafnt
og þétt. Hann sækir að borginni úr þrem áttum, en mest
hefur honum áunnizt í sókninni suður frá Nevei- Tóku
Rússar yfir 20 þorp á þeim slóðum í gær. Sækja þeir
þar meðfram járnbrautarlínunni milli Nevel og Vitebsk.
Hersveitirnar á fyrstu Eystra-
saltsvígstöðvunum eru undir
stjórn Bagramiams hershöfð-
ingja, sem er Armeníumaður að
ætterni.
Hernaðarsérfræðingur brezka
útvarpsins bendir á, að herinn
á þessum vígstöðvum sé aðeins
einn af mörgum fleiri sem hafa
verið sérstaklega þjálfaðir fyrir
vetrarhernað, og það eigi eftir
um átta sósíalista, sem gáfu blaðinu sínar þúsund krón-
urnar hver í jólagjöf? Þetta er vel gert og til eftir-
breytni. Þjóðviljinh veít vel að fæstir af vinum hans eru
þannig efnum búnir að þeir geti haft gjöfina svo stóra, en
þeir eru ótrúlega margir sem þessa dagana henda tugum,
hundruðum og jafnvel þúsimdxun króna í þýðingarlitlar jóla-
gjafir?
Munið eftir blaðinu ykkar þegar þið búið út „fjárlögin“
um jólagjafirnar! Komið á skrifstofu Sósíalistaflokksins,
Skólavörðustíg 19, kl. 1—7 og gefið Þjóðviljanum jólagjöf,
hver eftir sínum efnahag.
Mm slasisf á
að koma í ljós hvar hinum verði
beitt.
Á öðrum vígstöðvum er aðal-
lega um að ræða varnarbardaga,
sem Rússar háðu með góðum ár-
angri.
Suðvestur af Slobin hratt
rauði herinn hörðum áhlaupum
Þjóðverja og olli miklu tjóni
fótgönguliði þeirra, en sér’stak-
legá þó 1 skriðdrekasveitunum.
Eyðilögðu Rússar þar 45 gkrið-
dreka fyrir andstæðingunum.
Á vesturodda Kieff-vígstöðv-
anna hrundu Rússar afar hörð-
um áhlaupum þýzks fótgöngu-
liðs og skriðdrekasveita nálægt
Korosten. Misstu Þjóðverjar þar
60 skriðdreka, en Rússar bættu
töluvert aðstöðu sína.
í Dnépr-bugðunni, fyrir suð-
austan Ki'rofograd, gerðu Þjóð-
verjar hörð áhlaup, en urðu að
láta undan síga, er þeir höfðu
beðið mikið tjón á mönnum og
hergögnum.
Samtals eyðilögðu Rússar 148
skriðdreka jyrir Þjóðverjum í
gœr, og er það mesti fjöldi í
heilan mánuð, eða síðan árásir
Þjóðverja á Kieff-vígstöðvunum
náðu hámarki.
Það slys vildi til s. I. mánu-
dag, að ungur maður, Gunnar
Jónsson Merkigili í Eyjajirði
varð jyrir rijjilskoti. Gekk kúl-
an gegnum brjóstholið, en varð
honum ekki að jjörtjóni.
Gunnar var að rjúpnaveiðum
á fjöllum uppi þegar hann varð
fyrir skotinu, .mun hann hafa
hrasað, en í þeim svifum hljóp
skotið úr byssunni og l$om 1
brjóstholið neðarlega.
síðan fór hann á móti bifreið,
sem sótti hann og flutti á sjúkra
húsið á Akureyri. Var líðan
Gunnars talin sæmileg í gær.
Jálablað Þjóðviljans verður selt á gat-
unum og afgreiðslnnni í dag
í dag kemur út jólablað ÞjóðvUjans og verður selt á
götunum og afgreiðslunni, Skólavörðustíg 19.
pilts, nemanda
Efni blaðsins er m. a. þetta:
Björn Sigfússon magister
skrifar hugleiðingar um jólin
er hann nefnir Guðspjall um
frelsun lýðsins. Leggur Björn
út af jólaguðspjallinu á óvenju-
legan og hugðnæman hátt.
Jón úr Vör á þarna jólakvæði,
sem heldur ekki er í venjuleg-
um jólastíl.
Rannveig Kristjánsdóttir ritar
gi-ein sem hún nefnir „Látið
ekki matarstritið eyðileggja jól-
in fyrir ykkur“ og gerir tillög-
Gekk Gunnar heim til sín og ’ Ur um hvað hafa skuli í matinn
alla jóladagana.
Þá er löng saga þýdd, „Mart-
einn bróðir minn“ um við-
i skipti ungrar kennslukonu
og stálpaðs
hennar.
Þá er bráðskemmtilegt bréf er
Tómas Sæmundsson skrifaði fé-
lögum sínum í Kaupmannahöfn
fyrir rúmum hundrað árum,
lýsing á ferð um Þýzkaland, og
grein er nefnist „Vörn frelsis
og mannréttinda“, um baráttu
sovétþjóðanna.
Barnasaga Jólabl^ðsins nefn-
ist „Leiksysturnar“, og börnum
er einnig ætluð frásögn um jóla
sveinana einn og átta. Þá ma
geta verðlaunakrossgátu, og er
heitið 50 kr. verðlaunum. Marg-
| ar myndir eru í blaðinu.
| Upplagið að Jólablaðinu er
j lítið, og er því vissara að draga
I ekki að kaupa það.
/