Þjóðviljinn - 24.12.1943, Blaðsíða 1
@íe3itecjs j6í\
8. árgangur.
Föstudagur 24. des. 1943.
290. tölublað.
Rdssar 12 m. Iri oilelsh
• r V
Rauðí herínn vínnur nú eínníg á veslur af Kíeff
Ofsalegir bardagar geisa í nágrenni Vitebsk. Er
auðséð, að Þjóðverjar ætla að leggja allt í sölumar til
að verja þetta höfuðvirki sitt. Harðnar vörn þeirra því
meir sem nær dregur borginni. En rauði herinn þokast
sífellt nær borginni. í gær gerðu Þjóðverjar yfir 20
gagnáhlaup þarna, þar af 16 áhlaup á litlu svæði fyrir
norðan Vitebsk. Öllum áhlaupunum var hrundið. Rúss-
ar beittu byssustingjum hvað eftir annað.
Á öðrum stað voru yfir 1000
Þjóðverjar drepnir, er Rússar
brutust yfir þýðingarmikla á,
sennilega Okol-ána, sem rennur
gegnum járnbrautarmiðstöðina
Gorodok, sem er aðeins rúmlega
12 km. fyrir norðan Vitebsk. —
Þjóðverjar játa, að þeir hafi
neyðst til að stytta víglínu sína
sums staðar.
Fyrir suðvestan Slobin gerðu
. Þjóðverjar mikil skriðdrekaá-
hlaup, og var þeim öllum hrund-
ið og mikið skarð höggvið i
skriðdrekafylkingarnar.
Fyrir austan Korosten, á Ki-
eff-vígstöðvunum, vörðust Rúss
ar hörðum áhlaupum Þjóðverja
og sóttu því næst töluvert fram.
Áhlaupum Þjóðverja suðaust-
ur af Kirofograd var og hrund-
ið. Á einum stað tókst talsverðu
þýzku liði að brjótast í gegnum
varnarlínu Rússa, en hún var á
skammri stundu umkringd og
henni gereytt.
Þjððviljinn
Þjóðviljinn er fjórar síður í
dag, vegna rafmagnsskorts í
prentsmiðjunni í gær. Jólablað-
ið er borið til kaupenda með
þessu blaði.
Næsta blað Þjóðviljans kem-
ur út þriðjudaginn 28. desem-
•ber.
Til eftirbreytni
Hressingarheimilið í Kumbaravogi fær
höfðinglega gjöf
Bókasafn í minningu um Vilborgu Guðnadóttur
Hress/ngarheim/l/nu í Kumb
aravogi hefur bor/zt myndar-
leg gjöf — 5000,00 krónur, t/I
þess aö koma upp bókasafni
fyrir hæl/Ö.
Gjöf þess/ cr gef/n tii m/nn-
/ngar um frú Vilborgu Guðna
dóttur frá Keldum. En hún
var um fjöida mörg ár félag/
Góðtemplarareglunnar og
hafði jafnan óskað þess, að
liálverkasýning Jóns Engil-
berts verður opin báða
jóladagana
IJm 1500 manns hafa nú
sótt málverkasýningu Jóns
Eng/lberts og 60 mynd/r hafa
selzt.
Vegna hinnar ágætu að’-
sóknar verður sýningin opin
fyrsta og annan dag jóla frá
kl. 1—10 e. h.
Munu margir fagna því aö
geta litið inn á sýningu Eng-
ilberts um jólin, en þá er líka
síðasta tækifærið, því annar
jóladagur veröur síöasti dag-
ur sýningarinnar.
þe/m fjármunum, sem eftir
s/g kynnu að verða, yrði var-
ið á einhvem hátt til styrkt-
ar e/nhverr/ þeirri mannúðar-
starfsem/, sem Reglan hefði
meö höndum.
Nú er þaö hugmynd og ósk
gefandans, að þetta mætti
veröa vísir aö meiru, og aö
vinir og velunnarar Vilborgar
sálugu, sem vildu heiöra minn
ingu hennar, geröu það meö
því áö auka viö safn þetta
meö gjöfum.
Stjórn Hressingarheimilis-
ins hefur þegar tekiö viö gjöf
þessari og keypt nokkuö af
bókum, sem hæliö hefur feng-
ið nú fyrir jólin.
Stiórn Hressingarheimilis-
ins þakkar hjartanlega fyrir
þessa rausnarlegu gjöf, enda
er hér bætt úr mikiili og
bráöri nauösyn. Hæliö haföi
þegar áöur eignast nokkuö af
bókum — g'jafir frá ýmsum,
— en hér er lagöur grund-
völlur aö reglulegu safni, sem
vér vonum aö geti eflst og
aukist.
Gleymið ekki jóla-
gjöfinni til Þjóð-
viljans
Gleymið ekki gjöfinni til
Þjóðviljans, þegar þið ákveð-
ið í dag síðustu jólagjafirn-
ar!
Ef ykkur vantar gjöf til
einhvers góðs kunningja, œtt-
uð þið að senda honum jóla-
kort Þjóðviljans, (hálfs árs
áskrift að blaðinu). Þau fást
á skrifstofu Sósíalistaflokks-
ins, Skólavörðustíg 19.
Hrímfaxi strandar við
Raufarhðfn
Verður dreginn suður til viðgerðar
Hrímfaxi strandaði í fyrra-
dag þegar hann var á leið/nn/
út frá Raufarhöfn, tók niðr/
á sundinu skammt fyrtr utan.
Skemmd/r urðu á stýri,
skrúfu og hæl skips/ns, en
það komst hjálparlaust á flot
aftur /nn til Raufarhafnar.
Eng/nn maður meidd/st og
engar skemmd/r urðu á vör-
um.
Þegar Hrímfaxi strandaöi
voru ekki í skipinu aörar vör-
ur en þær sem áttu aö fara
til Þórshafnar og eitthvaö til
Sauöárkróks. — Hrímfaxi get-
ur ekki komizt hingaö suö-
{ ur hjálparlaust og veröur því
aö fá skip til þess aö draga
hann hingað.
Stórkostlegt tjón af
loftárás á Berlín
1
Ljósmyndir hafa verið teknar af
fíetlín, til að kanna árangurinn af
loftsókn Bandámanna gegn henni.
sem hófst 15. nóvember, en sam-
tals hafa verið gerðar 6 stórar lojt-
árásir á hana.
Kemur í Ijós, eins og áður var
vitað, að stórkostlegt ijón hefur
orðið í borginni.
I’essi hverfi luifa m. a. orðið
mjög hart úti: Tiergarten. Cha:--
lottenburg, Moabit, Reininger.,
Schönberg, Wilhelmsdorf og Siem-
enstadt. Meðal verksmiðja þetrra,
sem hafa verið eyðilagðar að mestu
eða öllu leyti, eru Heinkelverk-
Alvarlegar horfur í kolafram-
leiðslu Bretlands
Ríkísstjórnín á bandi námueígenda
Hið slæma ástand í kolaframleiðslumálum Bretlands
verður æ ískyggilegra. í forystugrein í Daily Herald er
svo komizt að orði: Við sárbænum ríkisstjórnina að taka
í taumana í þessum málum, sem hafa verið meðhöndl-
uð á rangan hátt frá byrjun stríðsins. — Ráðherramir
hafa hver á fætur öðrum sagt almenningi, að ástandið í
kolaframleiðslunni væri afskaplega alvarlegt.
í maímánuði 1942 sagði Staf-
ford Cripps neðri deild þingsins
að nauðsynlegt væri að taka
upp skömmtun á eldsneyti, en
það ,var aldrei gert, en í þess
stað hafinn mikill áróður fyr-
ir sparnaði.
Ríkisstjórnin hikaði við full-
Benes forseti Tékkó-
slovakíu ræðír samvinnu
slavneskra þjóða
Benes forseti Tékkoslovakíu
hefur i yfirlýsingu, sem hann
hefur gefið út í Moskva, látið
í Ijós vonir sínar um land sitt
eftir stríðið. Hann sagðist von-
ast eftir, að komið yrði á nýju
stjórnmála- og hagkerfi. Það
yrði að vera vandlega íhugað
og mundi verða framkvæmt með
einskonar fimm ára áætlun.
Hann vænti nýrrar stefnu gagn
vart þjóðabrotum. Benes benti
og á, að Sovétríkin vildu vin-
samlega sarnbúð við Pólland,
ekki siður en við Tékkoslovakíu
og óskuðu eftir góðu samkomu-
lagi miili Tékkoslovakíu og Pól-
lands.
í sambandi við sáttmála
Tékkoslovakíu og Sovétríkj-
anna hafa samtök Slava í Lond-
on vakið máls á því, að Rúss-
ar, Úkrainumenn, Tékkar, Slo-
vakar, Karpato-Úkrainar, Serb-
ar, Króatar, Slovenar, Make-
doníumenn og Búlgarar hæfu
undirbúning að nánari sam-
bandi milli slavneskra þjóða.
Vilja þeir einnig, að lýðræðis-
sinnum Póllands sé boðin sam-
vinna og undirbúa mikinn fund
smiðjurnai', Argus véhiverksmiðj-
1 urmw. A E. G raimagnsvcrksmiðj-
urnar og Daimler-Rruz verksmiðj-
urnai.
Margar stjórn'irbyggingar hafa
verið skemmdai' eða eyðilagðar, }>.
á. m. innanríkisráðuneytið, flufn-
ingamálaráðuneytið, liermálaráðu-
neytið, kanslaralúillin, höll Alberts
prini o. fl — Allar helztu járu-
bra u t arstöðvarnar . eru stór-
skemmoar.
komna skömmtun, af því að
hún óttaðist afturhaldsöflin, og
af sömu ástæðu hikar hún við
að gera nauðsynlegar ráðstafan
ir til að auka eldsneytisfram-
leiðsluna.
Eftir að hafa þrjózkazt lengi
við ráðleggingum sérfræðinga
samþykkti stjórnin loks að leysa
takmarkaðan fjölda námu-
manna úr herþjónustu.
Það var ekki fyrr en hin ó-
fullkomna skipulagning kolaiðn
aðarins var farin að stinga í
augun, að stjórnin kom með
hálfvelgjutega áætlun um end-
urskipulágningu. Þegar hún hef
ur reynzt ófullnægjandi, fæst
ríkisstjórnin ekki ennþá til að
koma með tillögur um, að ríkið
taki að sér rekstur og fjármál
námanna, af því að uppástung-
an niundi „vekja deilur“. —
Vekur ekki núverandi fyrir-
komulag deilur? Námamenn og
öll verklýðshreyfingin mótmæla
því.
Námamenn hafa borið fram
margar vandlega athugaðar
uppástungur um eftirlit með
launakjörum og vinnuskilyrð-
um námamanna, sem mlðuðu
að þvl að auka framleiðsluna.
Er blaðið þeirrar skoðunar, að
almenningsálitið sé einaregið
fylgjandi þessum tillögum1.
Framkvæmdanefnd sambands
námaverkamanna- hefur lýst því
yfir, að tillögur ríkisstjórnar-
innar um eftirlit með koiafram
leiðslunni, á meðan á stríðinu
stendur, séu algerlega ófullnægj
andi. — Jim Bowman, varafor-
seti sambandsins segir: „Við
verðum að fá eitthvað ákveðið
um kaupgjaldsmálin. — Náma-
menn mótmæla eindregið, að
ríkisstjórnin skuli neita að leyfa
þeim að rökstyðja kauphækkun
arkröfur sínar fyrir undirnefnd
ríkisstjórnarinnar um innanrík-
ismál“.
Leikfélag Reykjavíkur hefur
frumsýningu á sjónleiknum Vopn
guðanna eftir Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi á annan í jólum
en önnur sýning verður daginn
eftir. — Aðgöngumiðasalan verð-
ur opin frá kl. 2 á annan í jól-
um.