Þjóðviljinn - 24.05.1944, Síða 8

Þjóðviljinn - 24.05.1944, Síða 8
Næturlæknir er í læknavarðstof- unni í Austurbæjarskólanum, sími 5030. Næturakstur: Litla bílstöðin sími 1380. Útvarpið í dag: 19.25 Hljómplötur: Óperusöngvar. 20.30 Útvarpssagan: Smásaga eftir Johan Falkberget (Helgi Hjörvar). 21.00 Hljómplötur: íslenzkir ein- söngvarar og kórar. 21.15 Erindi (Thorolf Smith blaða- maður). 21.35 Hljómplötur: Stenka Rasin eftir Glasunow. Dregið var í happdrætti Húsbygg ingarsjóðs Verkalýðsfélags Dalvíkur 10. apr. s. 1. Þessi númer hlutu vinn inga: Nr. 1366: Gólfteppi, 2010: ljósakróna, 1415: armbandsúr 19087: málverk, 19306: Kartöflur, 4537: peningar 300,00 kr., 12687: pening- ar kr. 300.00, 9511: peningar kr. 200.00, 6248: peningar kr. 200.00, 11069: peningar kr. 100.00, 9520: peningar kr. 100.00. Handbækur alþýðu. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík hef ur gefi'ð út tvær handbækur, sem allri alþýðu eru mjög nauðsynlegar. Fyrri bókin heitir Orlof, og hefur hún að geyma lög og reglugerð um orlof ásamt skýringum. Verð kr. 2.00. Seinni. bókin er Vinnubók, sem ætluð er til þess að færa í vinnu- stundafjölda og kaupgjald. Mjög auðsynleg bók fyrir þá, sem tíma- vinnu stunda. Bókin kostar 3 krón- ur, og er henni æílað að duga eitt ár. Bækur þessar fást í skrifstofu Fulltrúaráðsins, Hverfisgötu 21, skrifstofum verkalýðsfélaganna og í bókaverzlunum. Niels Ebbesen, hið fræga leikrit Kai Munks, er komið út á íslenzku í þýðingu Jóns Eyþórssonar. Útgef- andi er félagið „Frie Danske í Is- land“. Úrval, 3. árg. nr. 2., er nýkomið út, og flytur að vanda margar skemmtilegar og fróðlegar greinar. Meðal þeirra eru Heimkoman, Með steinskipi yfir Atlanzthaf, Fr'æðsla í kynferðismálum, Tito marskálkur (áreiðanlegri heimildir um Tito er hægt að fá í bók Júgóslavans Louis Adamic: My native land; þessi grein er tekin úr enska íhaldsblaðinu Observer), Villiminnkurinn, Ævin- týri með olíulitum, Fjárglæfrar sænska eldspýtnakóngsins, Blóðrann sóknir, Indó-evrópsk tungumál. Nýj- ungar í vísindum, Hellisbúar, „Skipbrot" á Grænlandsjökli, Ævin- týri læknisins, Bölvunin sem fylgdi Bátsöngnum, þróun skynfæranna, Frjósemi jarðvegsins, Rússnesk veðr átta, Hara-kiri. Heftið flytur auk þess útdrátt úr bók um Edgar Wall- ace, eftir Margaret Lane. Nemendur Handíðaskólans. Allir sem verið hafa nemendur skólans og ekki hafa sótt muni sína eða t teikningar, eru beðnir að vitja þessa í skólann í dag eða á morg- un kl. 5—6 síðd. FSofefesjrlrsii HVÍTASUNNUFERÐ Enn er tækifæri að kaupa far- miða íil Geysis. Þeir eru seldir á Skólavörðustíg 19. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 5 frá Skóla- vörðustíg 19, og komið aftur í bæ- inn á annan í livítasuimu. Búið verður í leikfimihúsi íþrótta skólans í Haukadal, upphituðum með hveravatni. Við húsvegginn er þægilega heit sundlaug. Geysir gýs og á kvöldisi verður dans og annar gleðskapur. Fcrðanefndin. Kvikmynd af EýðveEdiskosnirigyRum Tæknin og hraðinn eykst alls staðar í heiminum, einnig hér á íslandi. Lýðveldiskosningarnar hafa staðið yfir í 4 daga. í' gær sýndi Óskar Gíslason ljósmyndari blaðamönnum kvikmynd af lýðveld- iskosningunum, sem hann hafði öðrum degi kosninganna. Kvikmynd þessi, sem er tekin á mjófilmu, mun á sínum tíma þykja merkilegt plagg í íslandssögunni. Þessi mynd er ekki löng — sýning hennar tekur ekki nema örfáar mínútur, en hún varðveitir frá gleymsku nokkrar augnabliks- myndir úr lífi þjóðarinnar þegar borgarar Reykjavíkur greiddu at- kvæði um helgasta mál þjóðarinn- ar: — lýðveldisstofnun á íslandi. Þessi mynd er aðeins einn kafli úr heildarmynd sem Óskar Gísla- son ljósmyndari hefur í hvggju að taka í sambandi við lýðveldis- stofnunina. Þegar þar að kemur mun hann ætla sér að taka kvik- mynd á Þingvöllum 17. júní og S tekið fyrir tveim dögum, eða á , þegar hátíðahöldin 17. og 18. júní I eru afstaðin mun hann væntan- lega gefa almenningi kost á að sjá þá mynd er hann hefur tekið áf því sem fram fór. Á undan myndinni af lýðveldis- kosningunum sýndi Óskar aðra mynd, sem hann hafði tekið af útifundinum sem æskulýðsfélögin héldu við Austurvöll um lýðveldis- 'málið. Það er alveg nýtt hér á landi, að kvikmynd, sem tekin er af at- burðum er gerast að morgni dags, sé tilbúin til sýningar að kvöldi þess sama dags eða daginn eftir — en þannig verður það í fram- tíðinni. (Hello Beautiful). Amerísk gaman- og músík- tnynd. GEORGE MURPHY, • ANN SHIRLEY, CAROLE LANDIS, BENNNY GOODMAN og hljómsveit hans. DENNIS DAY útvarps- ;öngvari. Sýnd kl. 5, 7 og 9. MUNIÐ Kaffisöluna Hafiiarstræíi 16 („Watch on the Rhine“) Mikilfengleg stórmynd. ÍAðalhlutverk: Bette Davies, Paul Lukas. Bönnuð bömum yngri en 12 ára. Sýnd kl. 6,30 og 9. Rithöfundur sem leyni- lögreglumaður (Over my Dead Body). MILTON BERLE MARY HUGES Sýnd kl. 5 Bönnuð börnum yngri en 12. Öllum þeim mörgu vinum, ættingjum og kunningjum nær og fjær, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á sextugsafmæli mínu, þ. 14. maí s. L, votta ég mitt innilegasta þakklæti. Guð blessi ykkur öll! Sigdór V. Brekkan Norðfirði. Kappreiðar Fáks á annan í hvítasunnu i i i KappreiÖar IIestamannafélagsins Fáks /ara /ram á annan í Ilvíta- j sunnu. Félagið var stofnað 1922 og hefur haldið 50—60 kappreiðar og \ greitt um lfi þús. kr. í verðlaun. Félagið hefur nú ákveðið að gangast fyrir stofnun lahdssambands ! hestamannafélaga á landinu, en þau eru nú 12. Hestamannafélagið Fákur bauð blaðamönnum í gær að skoða hest- hús sem íélagið hefur í Tungu fyr- ir hesta félagsmanna sinna. Var húsið fyrst tekið í notkun á s.l. hausti, en áður voru Fáksmenn margir í vandræðum með hús fyrir hesta sína. Bærinn keypti útihúsin í Tungu á s.l. ári og leigði Fák þau til 5 ára, en félagið lét endur- bæta þau og er þar nú rúm fyrir 36 hesta, en alls munu vera í bæn- um um 250 hestar. Iiafa Fáks- menn í hyggju að koma upp húsi yfir 150 hesta, auk þeirra sem nú er rúm fyrir í Tungu. — Stjórnendur Fáks luku miklu lofsorði á Ingólf Guðmundsson ráðsmann sinn fyrir góða hirðingu á hestum félags- manna, enda hefur þessi hesthus- rekstur félagsins orðið vjnsæll. Núverandi skéiðvöllur félagsins er gamall óg úr sér genginn og er félaginu ætlaður nýr skeiðvöllur í sambandi við íþróttásvæðið í Láugadalnum. Fáksmenn hafa í hyggju að fara ríðandi til Þingvalla 17. júní n.k. í stjórn Fáks eru nú Björn Gunnlaugsosn form., Olgeir Vil- hjálmsson ritari, Óli M. ísaksson gjaldkeri og meðstjórnendur Sig- urður Gíslason og-Birgir Kristjáns- son. í nefndinni, scm aðalfundur félagsins, 5. maí s.l., lcaus til þess i að undirbúa stofnun landssam- bands hestamannafélaganna, eru þessir menn: Bjarni Eggertssön, Einar E. Sæmundsen og Gunnar i Bjamason. Auðvitað var drukkin hestaskál og Einar E. Sæmundsen lét heyra margar af sinum snjöllu hestavís- um, sem því miður er ekki rúm fyrir hér, þó skulu tvær teknar með, sú fyrri ort á skírdag s.l.: Eftir vetrar veðrin stinn, vorsins fann ég blæinn. Góður er hann Gráni þinn, guðsást fyrir daginn. Hin síðari, ort á stundinni fyrir tilmæli blaðamannanna er þannig: Þó að Olgeir veiti vel völdum hestaglönnum, vísuna ég sjálfur sel svona blaðamönnum. Lýðveldiskssningar Framh. af 1. síðu. S-Múlasýsla: 99.1%. N.-Múlasýsla 98.8%. Austur Skaftafellssýsla 98.0% Vestur-Skaftafellssýsla 100%. Vestmannaeyjakaupstaður: 1965 af 1985, 99.0%. RangárvaRasýsla: 99.9%. Ámessýsla: 2988 af 3002 99.5%. Gullbringu- og Kjósarsýsla: 3294 af 3312 99,5%. Hafnarfjarðarkaupstaður: 2285 af 2318, 98.7%. Reykjavík: 96%. Allt landið: 97.3%. Aoglýsiiigar þurfa að vera komnar { afgreiðslu Þjóðviljans fyr ir kl. 7 deginum áður era þær eiga að birtast t blað Snu MÓÐVILTINN. E F rúða brotnar hjá yður þurfið þér aðeins að hringja i síma 4160. Höfúm rúðugler af öllum gerðum og menn til að annast ísetningu. VERZLUNIN BRYNJA Sími 4160. TIL tlBSUIJSilii Sfyrbiir tii íslenilinga í lioreoi Eins og áður hefur verið skýrt -frá gaf norskur maður, Gunnar Frederiksen konsúll í Noregi fyrir nokkru 2000 krón- ur (norskar) til styrktar íslend ingum í Noregi. Upphæð þessari hefur nú verið skipt jafnt á milli 10 ís- lendinga og eru þeir þessir: Stúdentarnir Trvggvi Jó- hannsson, Jón Jónsson, Rögn- valdur Þorláksson, Hallgrímur Björnsson, Baldur Bjarnason, Hólmfríður Jónsdóttir Sæhle, I ennfremur Óskar Sveinsson garðyrkjumaður, Sigurlaug Jón asdóttir matreiðslukona, Jó- hann Guðjónsson og Þóroddur Þóroddsson. Gunnar Frederiksen konsúll hefur tvisvar áður gefið jafn- háa upphæð til styrktar íslend ingum í Noregi. Áki Jakobsson héraðsdóms lögmaður og Jakob J. Jakobsson Skrifstofa Lækjargötu 10 B. Málíærsla — Innheimta Reikningshald — Endurskoðtm #9 ® M Jri £$ Hverfisgötu 74. Sími 1447. Allskonar húsgagnamálim og skiltagerð. VINNU- OG SKEMMTII ERÐ sjálfboðaliða verður farin um hvítasunnuna austur í land fé- lagsins til að vinna að lagn ingu ca. 150 metra langs vegar. Lagt verður af stað á laugar- dag. Ferðir fríar. Þátttakendur hafi með sér mat, svefnpoka eða teppi og tjöld, ef hægt er, ennfremur vinnuföt. Félagsmenn eru beðnir að hafa með sér skóflu og haka og hjólbörur, ef þess er kostur Þeir félagsmenn, sem vilja taka þátt í ferðinni, eru beðn- ir að tilkynna þátttökú sína á skrifstofu félagsins eigi síðar en n. k. fimmtudagskvöld. Nefndin.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.