Þjóðviljinn - 15.06.1944, Side 6

Þjóðviljinn - 15.06.1944, Side 6
ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 15. júní 1944. Merkasli bókmennlaviðburður á siofnári lýðveldisins 1844 1944 var Jón Sigurðsson fyrst kosinn á -þing er endurreisn lýðveldis á Isiandi . Jón Siprðsson í ræðu 02 riti Þetta er bók eftir Jón Sigurðsson og um hann. Verk hans hafa verið dreifð og óaðgengileg og ffestura Iftt kunn. í hessa bók er ífyrsta sinn safnað úrvali úr ræðum og ritum þessa þjóðskðrungs Vilhjálmur Þ. Gíslason t hefur sett hér saman í eina bók það snjallasta úr ræðum hans á þingi og þjóðfundi og fleiri mannfundum og úr stjómmála- og fræðiritgerðum hans. Bókin hefst á ágætri ritgerð hans um Jón Signrðsson, og ennfremur skrifar hann níu smærri ritgerðir eða formálsgreinir fyrir aðalköflum bókarinnar, auk skýringa. NOKKRAR kaflafyrirsagnir gefa hug- mynd um fjölbreytni efnisins: Hver stjórnlögun bezt þyki. Reykjavík og Þing- vellir. Kostir borgaranna og kröfur til þingmanna. Þingskipun og kjördæmi. Þing mælska. Kirkjustjórn og klerkar. Forn frægð og nýtt frelsi. Öll stjórn er grund- völluð á þjóðarvilja. Hvað er auður? Ein- okun og frjáls verzlun. Félagsverzlun. Skólar fyrir allar stéttir. Bókmenntir og menning. Hestar. Sauðfénaður. Fjallagrös. Tóvinna. Samgöngur. Búnaðarfélög. Fiski- félög. Betri skip. MYNDIR eru í öllum köflunum. Þær eru úr ritum Jóns Sigurðssonar eða af stöðum ,og atburðum úr lífi hans og samtíð. Höfuðþættir bókarinnar eru: Jón Sigurðsson: dæmi hans og áhrif. Um Alþingi. Þjóðfundurinn. Þjóðfrelsi og þjóðarhagur. Verzlrmarfrelsi. Um skóla. Bókmenntir og saga. Bóndi er bústólpi. Hafsins nægtir. Menn og málefni. SÍÐASTI aðalkafli bókarinnar heitir: Menn og málefni. Þar er fjöldi smágreina úr bréfum, ritum, ræðum og samtölum Jóns Sigurðssonar. Þær sýna mjög skemmtilega viðfangsefni hans og tónteg- und í gamni og alvöru: Farsæld þjóðanna. Sögur afreksmanna. Skólar og pólitík. Almenningsálit. Að drekka dús. Að þekkja sjálfan sig. Að þola níð og aulahátt. Æfingar í vopnaburði. Gildi íslandssögu. Virðing Alþingis. Prestar. Læknar. Stúd- entar. Kvenfólkið. Dómar um manngildi. Hóratíus. Frumleiki og sérvizka. Eftir- hermur fornaldarinnar. Þjóðdansar.. íþróttir. Á aldarafmæli þingmennsku forsetans mikla rísa þama úr djúpi minninganna hinir merkustu og glæsilegustu atburðir úr frelsisbaráttu þjóðarinnar og lífi jóns Sigurðssonar. Rit Jóns Signrðssonar hafa sérstakt gildi sem heimildarrit og hátíðarrit á þeim tímamótum, þegar lýðveldið er stofnað. tJrvalsrit Jóns Sigurðssonar verða á sínn sviði ein af eftirlætisbókum Éslendinga, á borð við það, sem rit Snorra Sturlusonar, Hallgríms Péturssonar og Jónasar Hallgrímssonar eru á öðrum sviðum. Slerbasla uDn iHieislns isiis i Miinisi anin nerðnr sndl iðns Slgnrðssnnir ng lann tlrllsl sklir ein I ræ« ns rlil Góð vinar- og minningargjöf um stofnun lýðveldisins

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.