Þjóðviljinn - 21.11.1944, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 21.11.1944, Qupperneq 3
IÞriðjudagur 21. nóvem'ber 1944. Þ JÓÐVIL JINN 3 „Saga Kommúnistaflokks Ráðsijórn- arríkjanna" kemur út næstu daga íslenzka þýðingin gerð af Birni Franzsyni Einhvem nœstu daga lcemur út á íslenzku eitt merkasta ritið í ■sósíalistabókmenntum síðari ára, — Saga Kommúnistaflokksins i Sovét- ■rikjunum, rituð að tilhlutun miðstjórnar flokksins. Margir beztu leiðtog- ■ar Kommúnistaflokksins rússneska hafa tekið þátt í samningu bókar- innar, t. d. hefur Stalín ritað Icaflann um heisnspeki marxismans, díalek- tíska efnishyggju, og er sá Jcafli prýðisgóð greinargerð í stuttu máli fyrir miklu efni. Þjóðviljinn mun bráðlega birta ýtarlega greinargerð um þessa merku bólc. IJér er birtur serh sýnishorn lcaflinn Um byltinguna, hina heimssögulegu atburði 7. nóv. 1918. Vladimir Iljitsj Lenín. Bolsjevrkar bjuggust til upp- xeisnar af fremsta megni. Lenín Benti á það, að bolsjevíkar gætu tekið og lilytu að taka ríkisvald- ið í sínar hendur, er þeir hefðu nú •öðlazt meiri hluta í fulltrúaráð- um verkamanna og bænda í hin- um tveim höfuðborgum ríkisins, Moskvu og Pétursgarði. í ályktun um af undangenginni þróun segir Lenín: „Meiri hluti þjóðarinnar er á olckar bandi“. Lenín ieggur fram ákveðna áætlun um framkvæmd uppreisnarinar í greinum sínum og bréfum til miðstjórnar og flokks- deildanna. útskýrir, hvernig beita skuli hernum, flotanum og rauða vamarliðinu, tiltekur helztu stöðv- ar þær í Pétursgarði, er nauðsyn- legt sé að hertaka til þess að tryggja fullan árangur uppreisnár- innar, og svo framvegis. Hinn 7. október kemur Lenín til Pétursgarðs, en þangað hafði hann farið huldu höfði frá Finn- landi, og 10. október er hinn frægi miðstjórnarfundur haldinn, þar sem afráðið er að grípa til vopna og hefja uppreisn einhvern næstu daga. í hinni frægu fundarályktun miðstjórnar, sem samin er af Len- in, segir svo: „Það er ályktun miðstjórnarinn ar, að tímabært sé orðið að gripa til vopna og hefja uppreisnina, og veldur því bæði ástandið í alþjóða- málum, að því er rússnesku bylt- inguna snertir (uppreisn innan þýzka flotans, sem er fyllsta tákn um það, að hin sósíalíska heims- bylting sé að nálgast öll lönd Ev.- rópu, og hættan á því, að heims- valdasinnar geri frið með sér til þess að bæla niður byltinguna í Rússlandi), hernaðarafstaðan (tví- mælalaus fyrirætlun rússnesku bur _ geisastéttar, Kerenskís og slíkra um það að ofurselja Þjóðverjum iPétursgarð) og nýfengið meiri- hlutavald verklýðsflokksins innan ráðanna, — enn fremur bænda- uppreisnin ásamt þeirri staðreynd, að flokkurinn hefur unnið sér traust fólksins (kosningarnar í Moskvu), og loks öllum vitanleg- ur undirbúningur nýrrar Kornil- offsuppreisnar (brottflutningur her liðs frá Pétursgarði, út/boð kós- akkahers í umhverfi borgarinnar, sát kósakkasveita um borgina Minsk /og svo framvegis). Þar sem nú miðstjórnin hefur gengið úr skugga um, að vopna- uppreisn sé óhjákvæmileg og skil- yrði hennar fullþróuð, skorar hún á allar flokksdeildir að hegða sér þar eftir og hafa þetta sjónarmið að leiðarvísi um meðferð og af- greiðslu allra dægurmála (svo sem þeirra, er varða þing ráðanna í nprðuiihéruðunum, brottflutning herliðsins frá Pétursgarði, baráttu vorra manna í Moskvu og Minsk og svo framvegis)“. (Lenín: Úr- valsrit, VI. bindi, 307. bls.) Tveir miðstjórnarmenn töluðu gegn þessari sögumerku samþykkt og greiddu atkvæði gegn henni. Það voru þeir Kamenjeff og Sinov jeff. Þeir vildu koma á borgara- legu lýðveldi með þingræðisskipu- lagi og létu sér sæma að óvirða verklýðsstéttina með því að stað- hæfa, að hún hefði hvorki styrk til að framkvæma sósíalíska bylt- ingu né þroska til að taka við ríkisvaldinu. Trótskí greiddi að vísu ekki beinlínis atkvæði gegn þessari sam þykkt miðstjói’nar, en hann lagði fram breytingartillögu, sem var þess eðlis, að með samþykkt henn- ar hofði uppreisnin verið dæmd til ósigurs. Tillagan var á þá leið, að uppreisnin yrði ekki hafin, fyrr en búið væri að setja II. allsherj- arþing ráðanna, það er, — upp- reisnin skyldi dregin á langin'n, upphafsdágur hennar opinberaður og bráðabirgðastjórninni gert kunnugt um, hvað í vændum væri. Miðstjórn bolsjevíkaflokksins sendi erindreka til Donjetssvæðis og Úralhéraða, til Helsingfors, Krónstaðar, suðvesturvígstöðv- anna og víðar um til þess að undir- búa uppreisnina. Flokksfélögunum Vorosiloff, Molotoff, Dsersinskí, Ordsonikidse, Kiroff, Kaganovitsj, Kúbisjeff, Frúnse, Jaroslavskí og fleirum var falin stjórn uppreisn- arinnar á ýmsum stöðum í umboði flokksins. Sjdanoff starfaði meðal hersveitanna í Sjadrinsk, borg í Úralhéruðum, og á vígstöðvunum vestur í Hvíta-Rússlandi vann Jes joff að uppreisnarundirbúningi meðal hersveitanna. Erindrekar miðstjórnar kynntu forustumönn- um flokksdeildanna uppreisnará- ætlunina og bjuggu deildirnar und- ir að hefja baráttu til stuðnings við uppreisnina í Pétursgarði. Samkvæmt fyrirmælum mið- stjórnar var stofnuð hermálancfnd byltingarvmnna innan fidltrúa- ráðsins í Pétursgarði, og varð hún liið lögmæta foringjaráð uppreisn- arinnar. En andbyltingarliðið hraðar sér jafnframt að safna sínum mönn- um til baráttunnar. Ilerforingja- stéttin sameinazt til dæmis í „liðs- | bermánaðar höfðu þeir 43 slíkar sveitir í þjónustu sinni. Sérstakar sveitir þessarar tegundar mynduðu liðsforingjar þeir, sem báru orðu sankti Georgs. Komið hafði til mála, að Ker- enriristjórnin tæki sig upp og flytt- ist frá Pétursgarði til Moskvu. Var af því ljóst, að hún hafði í hyggju að selja höfuðborgina í hendur Þjóðverjum til þess að koma í veg fyrir uppreisn þar á staðnum. En mótmæli verka- manna og hermanna í Pétursgarði neyddu hana til að halda þar kyrru fyrir. Hinn 16. október var haldinn víkkaður miðstjórnarfundur. Þar voru kosnir menn til flokksmið- stöðvar þeirrar, sem stjórna skyldi uppreisninni, og var Stalín fyrir þeim. I flokksmiðstöð þessari var saman 'kominn forystukjarninn úr hermálanefnd byltingarmanna frá fulltrúaráðinu í Pétursgarði, og hafði hann á hendi stjórn á allri framkvæmd uppreisnarinnar. A miðstjórnarfundinum voru þeir uppgjafarsinnarnir Kamenjeff og Sínovjeff og komu enn fram sem ákveönir andstæðingar upp- reisnarinnar, svifust þess jafnvel okki, er tillögum þeirra var liafn- að, að fara með málið í blöðin og lýsa þar andstöðu sinni við upp- reisnina og' flokkinn. I yfirlýsingu frá þeim, er kom 18. október í mensjevíkablaðinu Novaja Sjisn, var því ljóstað upp, að bolsjevík- miðstjórnar um uppreisnina og taf arlausan undirbúning hennar. þetta voru fjörráð við flokkinn. Lenín ritaði af því tilefni: „Kam- enjeff og Síonieff hafa gerzt vísvit- andi svikarar með því að ljósta upp við Rodsjanko og Kerenskí ákvörðun flokksstjórnar sinnar um uppreisnina“. Lenín beindi því til miðstjórnarinnar, hvort ekki mundi rétt að víkja þeim Kamen- jeff og Sínojeff úr flokknum. Andbyltingarliðið brá þegar við, er því hafði borizt þessi viðvör- un svikaranna. Uppreisninni skyldi hnekkt og gengið milli bols og höfuðs á forystuliði byltingar- innar, flokki bolsjevíka. Bráða- birgðastjórnin efndi til leynifund- ar, þar sem lögð voru á ráðin um það, hversu baráttunni gegn bolsje víkum skyldi hagað, og 19. októ- ber lét hún í skyndi kveðja her- sveitir heim frá vígstöðvunum til höfuðborgarinnar. Um strætin fóru vopnaðar varðsveitir og höfðu feng ið liðsauka. Einna fjölmennastir urðu andbyltingarmenn í Moskvu. Þessi var ráðagerð bráðabirgða- stjórnarinnar: Degi áður en II. allsherjarþing ráðanna kæmi sam- an, skyldi ráðast á og hernema Smolnystofnunina, þar sem mið- stjórn flokksins hafði aðsétur. A þennan hátt átti að tortíma stjórn- armiðstöð bolsjevíka, og í því skyni voru hersveitir, sem stjórn- in taldi sér óhætt að treysta, dregn ar saman þar í höfuðborginni. En nú voru taldir dagar bráða- birgðastjórnarinnar og jafnvel stundir. Héðan af megnaði ekk- ert að stöðva sigurför hinnar sósí- alísku byltingar. Hinn 21. október sendu bolsje- vikar fulltrúa frá hermálanefnd byltingarmanna til allra þeirra her sveita, sem byltingunni voru hlynntar. Síðustu dagana fyrir upp reisnina var látlaust og kappsam- lega starfað innan hersins, í verk- smiðjum og á vinnustöðvum að undirlbúningi baráttunnar. Þá voru og ákveðin verkefni falin her- skipunum, til dæmis bryndrekun- um Aurora og Sarja Svobody. Á fundi í fulltrúaráðinu í Pét- ursgarði kom raupsemin upp í Trotskí, svo að hann glopraði því út úr sér í eyru andstæðinganna, hvaða dag bolsjevíkar höfðu á- .kveðið, að uppreisn skyldi hefjasti Til þess nú, að Kerenskístjórninni gæfist ekki færi að hnekkja upp- reisninni, afréð miðstjórnin að hefja hana fyrr en til var ætlazt eða degi áður en II. allsherjar- þing ráðanna átti að koma sam- an. Snemma morguns hinn 24. októ- ber (6. nóvember) hefst Kerenskí handa, gefur út tilskipun um bann á aðalmálgagni bolsjevíkaflokks- ins, Rabotsji Pútj, og lætur bryn- reiðalið t^ka sér stöðu umhverfis ritstjórnarskrifstofur blaðsins og prentsmiðju bolsjevíka. En um kl. 10 þá um morguninn verða bryn- Framh. á 5. síðu. •<íwx,s Lenín og Stalín á fundi með hermönnum úr rauða hernum dögum byltingarinnar. ■ foringjabandalagi“ svonefndu. Andbyltingarmenn koma sér upp , miklum fjölda miðstöðva, sem I j hafa það hlutverk að skipuleggja [ árásarsveitir þeirra. í lok októ- ar væru að búast til uppreisnar, en sjálfir kváðust þeir hins vegar telja slíka uppreisn háskalegt glæfratáfl. Með þessu opinberuðu þeir fjandmönnunum ákvörðun

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.