Þjóðviljinn - 24.11.1944, Page 1
9. árgangur.
Föstudagur 24. nóv. 1944
237. tölublað
18. þing Alþýðusambands fslands
42 félðg hafa gengíð í sambandíð síðan 1942 og með~
límatalan aukízi um hálft þríðja þúsund á Iveím árum
Fundir hófust í gær kl. rúmlega 4. Forseti þings-
ins lýsti kosningu varaforseta. Hermann Guðmunds-
son var kosinn 1. varaforseti, Hannibal Valdimarsson
2. varaforseti.
Á þinginu 1942 voru 116 félög í Alþýðusambandinu
með samtals 17693 meðlimum. Á tímabilinu hafa 8
félög horfið úr sambandinu með 472 meðlimi. Félaga-
tala hinna 108 félaga hafði um síðustu áramót auk-
izt um 1700 félagsmenn og var samtals 18921.
Á tímabilinu milli þinga hafa 12 félög með sam
tals 1270 félagsmönnum gengið í sambandið og tel-
ur það því nú 120 félög með samtals 20191 meðlimum.
Fundir hófust í gær kl. rúm-
lega 4 e. h. Forseti þingsins,
Þóroddur Guðmundsson, lýsti
kosningu varaforseta, en at-
kvæðagreiðsla fór fram á fundi
kvöldið áður. Fyrsti varaforseti
var kosinn Hermann Guðmunds
son með 105 atkvæðum, annar
varaforseti Hannibal Valdimars
son með 98 atkvæðum, 1 seð-
ill var ógildur.
Hannibal Valdimarss. kvaðst
ekki myndi taka sæti ann-
ars varaforseta, þar sem
hann teldi kosningu sína ólög-
mæta. Var Hannibal fullur úlf-
úðar og virtist ætla að stofna
til illinda á sömu línu og „sálu-
félagar“ Sæmimdar Ólafssonar
daginn áður. Forseti kvað vara-
forsetakosninguna hafa farið
fram að lögum, en sæi Hannibal
sér ekki fært að gegna störfum
annars varaforseta, myndu eng-
in vandræði af því hljótast.
Hófst því næst allsherjarat •
kvæðagreiðsla um kjörbréf
þeirra fulltrúa er eigi höfðu
verið afgreidd daginn áður. Var
fyrst greitt atkvæði um hvort
taka skyldi Verkamannafélag
Dyrhólahrepps inn í Alþýðu
sambandið og veita fulltrúa
þess full réttindi á þinginu.
Eins og getið var um í Þjóð-
viljanum í gær er þetta nýtt
félag, (var fyrst stofnað 1935)-
Dyrhólahreppsmenn voru áður
•en félagið var endurstofnað í
. Víkurfélaginu og höfðu árum
saman deilt við Víkurmenn um
.að þeir útilokuðu Dyrhólamenn
frá vinnu, iafnvel í sínum eigin
ihreppi. — Sæmundur Ólafsson
og .,sálufélagar“ hans vildu
neita Dyrhólamönnum um rétt
til að stofna verkamannafélag í
jsínum eigin hreppi.
Atkvæðagreiðslan fór þanriig, að
Dyrhólahreppsfél. var samþykkt
af 106 fulltrúum með 9465 atkv.
á bak við sig. Á móti greiddu atkv.
98 fulltrúar með 8490 atkv. á bak
við sig.
Næst var atkvæðagreiðsla um
réttindi Þórshafnarfulltrúans. —
Þórshafnarfélagið hafði sótt um
undanþágu til sambandsstjórnar,
eftir að konsingafrcstur var út-
runninh, en sambandsstjórn neit-
að. Félagið kaus samt fulltrúa og
sendi til þings. Meiri hluti kjör-
bréfanefndar lagði til að hann
fengi full réttindi, minni hluti
nefndarinnar lagði til, að fulltrú-
inn fengi fundarsetu með málfrelsi
Framhald á 8. síðu.
Á myndinni sjást kirkjuklukkur, sem Þjóðverjar höfðu rænt úr kirkjum
Hátfðahöid stúdenta
1. desember
Hátíðahöld stúdenta 1. deseni-
ber n.h. verða með svipuðu móti
og undanjarið, eftir því sem jor-
maður Stúdentaráðs, Bárður Dan-
íelsson, shýrði blaðinu jrá í gœr.
Stúdentar munu safnast saman
við Iíáskólann. Þaðan munu þeir
fara í skrúðgöngu og verður stað-
næiiizt á Austurvelli kl. 2. Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikur fyrir
g.ngunni. Kl. 2 flytur svo dr. Ein-
ar Ól. Sveinsson ræðu af svölum
Alþingishússins. Verður henni út-
varpað. Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur ættjarðarlög fyrir og eftir.
Kl. 3.30 hefjast svo hátíðahöld í
Hátíðasal Iláskólans og Tjarnar-
bíó.
í hátíðasalnum munu flytja ræð-
ur Brynjólfur Bjarnason mennta-
málaráðherra og Pálmi Hannésson
rektor. Ennfremur mun þar verða
söngur og hljóðfærasláttur.
í Tjarnarbíó munu flytja ræður
Gunnar Thoroddsen prófessor og
Gylfi Þ. Gíslason dósent. Stúd-
entakór, undir stjórn Þorvaldar
Ágústssonar stud. med., syngur.
KJ. 7.30 hefst svo samsæti sti'ub
enta að Ilótel Borg. Þar talar
Magnús Jónsson prófessor, Hall-
dót- Kiljan Laxness rithöfundur les
uþp og Guðmundur Jónsson
söngvari syngur einsöng.
Stúdentablaðið kemur út í til-
efni af deginum og verður það selt
á götunum ásamt merki stúdenta.
Bandaríki Júgoslavíu
Tito marskálkur hefur átt tal
við blaðamenn um hugmyndir sín-
ar um framtíðarskipulag Júgó-
slavíu.
Sagði hann hana eiga að verða
lýðrœðislegt bandaríhi (federation).
— Ríhin yrðu sex og hvert með
sína ríkisstjórn undir einni sam-
bandsstjóm.
Rauði iierinn tekur Tnkaj
[ llngverjalandi
Rauði herinn tók í gær ungverska bæinn Tokaj, sem er mið-
stöð frægs vínyrkjuhéraðs norðarlega við Tiszafljót.
Rauði herinn er kominn að Uzhorod í Slovakíu.
Tokaj hefur 6000 íbúa. Hún
er allmikil samgöngumiðstöð.
Fruði herlon í ítlsertn Slrasboros
Þýzki herinn í Korðaustur-Frakklandi í upplausn
Götubardagar eru háðir í úthverfum Strassburgs,
stærstu borgar í Elsass og einnar af stórborgum Frakk-
lands.
Frönsk skriðdrekasveit komst þangað kl. 10 í gær-
morgun eftir afar hraða sókn niður Savernedalinn.
Bandarískur hershöfðingi segir fullkomna upplausn
í þýzka hernum í Elsass-Lothringen.
Frakkar höfðu farið 30 km í
„leifturhókn" yfir Vogesafjöll og
niður dalinn ásamt bandarískum
sveitum úr 7. hernum.
Franskar sveitir nálgast Stras-
burg einnig sunnan frá Mulhouse.
— Komist þær þangað fljótlega
eru horfur á, að afar mikill þýzkur
her verði króaður inni.
Áðurnefndur hershöfðingi sagði
í gær, að þýzkir fangar skýrðu svo
frá, að þeim hefði verið skipað að
varpa frá sér öllum farangri og
forða sér sem skjótast til Þýzka-
lands.
Er fregnin um Strasburg barst
til fulltrúa þingsins í París, stóðu
þingmenn allir upp og sungu þjóð-
sönginn. — Sömdu þeir síðan á-
varp til íbúa borgarinnar og hér-
aðsins.
Á milli Moselle og Saar sótti 7.
herinn fram 6 km í gær á 30 km
langir víglínu.
Her Pattons er kominn góðan
spöl inn í Þýzkaland fyrir suðaust-
an Luxemburg og er í útjaðri Sieg-
friedlínunnar.
9. herinn bandaríski er á vest-
ari bakka Roerárinnar á 20 km
kafla og er við jaðar Kölnarslétt-
unnar.
67 þýzkir skriðdrekar voru eyði-
lagðir á þessum vígstöðvum í gær.
Bretar eru nú 1 krn frá Venlo, —
sunnar eru þeir komnir að Maas á
25 km kafla.
ÁRÁS Á OLÍU-
VINNSLUSTÖÐ.
Bandaríkjamenn gerðu mikla á-
rás á olíuvinnslustöð nálægt Gel-
senkirchen í gær.
Nokkru seinna sama dag réðust
Bretar á hana.
Þetta er mesta olíuverksmiðja í
Ruhrhéraði.
Hefur hún áður verið skemmd
alvarlega.
FANGAR.
Bandamenn haja tekið 710.000
janga i Vcstur-Evrópu síðan inn-
rásin var gerð.
í Slovakíu tók rauði herinn
um 50 bæi og þorp, þ. á. m.
Sepel og Kopp. Síðar nefndur
bær hafði undanfarið ýmist ver
ið í höndum Þjóðverja eða
Rússa.
3500 fangar voru teknir í Slo-
vakíu.
í gær og fyrradag voru 2550
þýzkir og ungverskir fangar
teknir í Ungverjalandi.
Uppreisn í stærsta
fangels! í Róm
Um 500 jangar gerðu uppreisn
í stœrsta jangehi Rómaborgar i
gœr. — Eru þeir nú í umsát á
efstu hœð jangelsisins.
300 ítalskir lögreglumenn hófu
skothríð á fangana og drápu
nokkra. — Fulltrúi frá Scotland
Yard kom á vettvang og skipaði
þeim að hætta að skjóta.
Fangarnir eru sagðir hafa kvart-
að undan fæðinu, og sumir segjast
hafa verið 5 mánuði í haldi fyrir
pólitískar sakir án þess að fá tæki-
færi til að verja sig.