Þjóðviljinn - 24.11.1944, Side 3
Föstudagur 24. nóvember 1944.
Þ JÓÐVIL JINN
3
Keppnisleyfi
í gildandi reglum er svo ákveðið að enginn megi keppa
fyrir nema eitt félag á sama ári eða eftir ákveðinn mánaða-
fjölda. Þessi regla er sjálfsögð, og virt um allan heim.
Þrátt fyrir þessa gullnu reglu, hefur þótt sjálfsagt að taka
upp sérstakt eftirlit með að henni sé framfylgt, og er það gert
með svonefndum keppnisleyfum. Hér á landi hefur þetta nána
eftirlit ekki verið upp tekið ennþá, en ýmislegt bendir til'þess
að það verði einnig tekið upp hér.
Eins og nú er ástatt um þetta atriði má segja, að það sé
heldur losaralegt, og svo kveður rammt að því að málaferli
ganga vegna þess að ekki hefur verið með óyggjandi sönnunum
hægt að ganga úr skugga um hið rétta, á ég þar við keppnis-
leyfi, en treyst sögn mannanna sjálfra. Leyfi þetta gæfi íþrótta-
sambandsstjórnin út og hefði þar um samstarf við héraðsstjóm-
ir. Næði leyfið aðeins til þess fólks, sem ætlaði sér að taka
þátt í keppni, og gæfi þá yfirlýsingu um það í hvaða grein eða
greinum það ætlaði að keppa og fyrir hvaða félög.
Með þessu ýrði á hverjum tíma og á hverjum stað hægt
að fylgjast nákvæmlega með því hverjir og hve margir væru
keppendur. Þetta hefur alltaf vantað þrátt fyrir margar óskir
um að fá skýrslur um það. Eitt enn bendir líka ótvírætt til þess
að fram hjá þessu verði ekki lengur komist, en það er stofn-
anir sérsambanda.
Eg hef rekið mig á, sérstaklega hér í höfuðstaðnum, mik-
inn áhuga fyrir því að stofna sérsambönd fyrir sund, knatt-
spyrnu, frjálsar íþróttir og skíði, og er það að ýmsu leyti æski-
legt og vel farið, en samkvæmt lögum Í-S.Í. verður viss hluti
félags í hverri grein að samþykkja sérsambandsstofnunina.
Nú er það að verða viðtekin regla, að þau ein félög, sem
hafa sen,t menn til keppni hafa rétt til áhrifa í sérráðum. Mundi
sennilega svipað gilda um sérsamband. Með því nú að koma þessu
keppnisleyfi á og íylgja því fast eftir, ætti að vera fundin leið
til að finna þau félög sem þátt taka í keppni. Sé sá áhugi sem
komið hefur fram varanlegur og alvara sé á bak við, þolir
þessi framkvæmd enga bið. íþróttasambandsstjórnin þarf nú
þegar að undirbúa þetta mál og félögin að bregða við og af-
greiða þessi keppnisleyfi strax. Þegar keppnisleyfið er gefið
út verður að sjálfsögðu miðað við þá sem stóðu 1 keppni s.l. ár,
komi svo nýjir menn fram verður að sækja um leyfi fyrir þá,
og er það hægt hvenær sem er.
Gera má ráð fyrir að ef menn eða félög trassa að fá leyfin,
þá missi þeir réttinn til keppni, svo áherzlu verður að leggja á
það að þetta sé samvizkulega gert, svo félögin missi ekki rétt
sinn til góðra manna. Þetta mál er sem sagt tímabært og hefur
þegar verið nokkuð rætt. Það ætti að fyrirbyggja málaferli sem
stafa af slæmu eftirliti með því að sami maður keppi fyrir tvö
félög eða hlaupi á síðustu stundu í næsta félag af smávægilegum
ástæðum. Það ætti líka að fást örugg skrásetning þess fólks, sem
stendur í keppni, og þá um leið auðveldar, og gerir framkvæm-
anlega stofnun sérsambanda.
Fréttir frá í. S. í.
Staðfest íslandsmet:
300 m. hlaup. Hlauptími 37,1
sek. Methafi Kjartan Jóhannes-
son íþróttafélagi Reykjavíkur.
4x50 m. boðsund kvenna.
Sundtími 3 mín- 04,8 sek. Met-
hafi boðsundssveit Sundfélags-
ins Ægis. í sveitinni voru:
Kristín Eiríksdóttir Ingibjörg
Pálsdóttir, Iialldóra Einarsdótt-
ir og Auður Einarsdóttir.
Hástökk innanhúss. Stökkhæð
1,84 m. Methafi Skúli Guð-
mundsson, úr Knattspymufélagi
Reykjavíkur. í sambandi við
þetta met skal þess getið, að
stjórn íþróttasambandsins hefur
tekið upp þá nýbreytni að stað-
festa innanhússmet.
Ný sambandsfélög:
Ungmenna- og íþróttasam-
band Vestur-Barðstrendinga
hefur gengið í í. S. í- í sam-
bandinu eru 4 félög. Formaður
þess er Albert Guðmundsson.
Sveinseyri.
Ungmennasamband Dala-
manna hefur einnig gengið í
iþróttasambandið. í því eru 6
félög með 250 félagsmönnum.
Formaður sambandsins er Hall-
dór E. Sigurðsson frá Staðar-
felli-
Staðfestir íþróttabúningar:
Umf. Skallagrímur í Borgar-
nesi hefur fengið staðfestan í-
þróttabúning með þessum lit:
Gulur bolur, grænar buxur og
gulir sokkar.
íþróttafélagið Þór á Akureyri
hefur fengið staðfestan íþrótta-
búnþrg: Hvít skyrta, rauðar
buxur og rauðir sokkar.
Bókaútgáfa:
Að tilhlutun íþróttasambands
ins hefur verið gefin út stiga-
Keppandi í 25 ár
Gísli Sigurðsson segir örlítið Irá 25 ára starfi sem þátttakandi íkeppni
Allir þeir, sem fengist hafa
við íþróttamál og lagt stund á
keppni skilja bezt hvílíkt
feikna starf og vilji liggur á bak
við öll þessi ár. Þetta afmæli
Gísla mun þó ekkert einsdæmi
vera hér á landi, og munu finn-
ast menn sem eiga svipaðan ó-
slitinn árafjölda að baki sér
sem keppendur.
En ef betur er að gætt, mun
þetta afmæli þó vera nokkuð'
ef ekki alveg sérstakt. Flestir
þeir menn sem ég til þekki og
náð hafa svo háum keppnis-
aldri, hafa að launum hlotið
fjölda verðlauna, bæði í ein-
staklingskeppni og flokka. Þó
Gísli hafi 1 sumum greinum náð
sæmilegum árangri, þá hefur
þátttaka hans aldrei miðast við
það hvort hann hefði tækifæri
á verðlaunum eða ekki. Hann
hefur aðeins verið með, íþrótt-
arinnar vegna og félagsins
vegna. Vegna trúar sinnar á það
að fólk ætti að stunda íþróttir
til þess fyrst og fremst að njóta
þeirrar hollnustu sem þær geta
veitt, njóta þeirrar skemmtun-
ar sem skemmtilegt félagslíf
veitir. Mundi nokkur ykkar
sem þetta ' lesið hafa haldið
svona lengi út? Hefðum við
ekki gefist upp? Þess vegna
segi ég, að Gísli sé fagurt for-
dæmi flestra þeirra sem íþrótt-
ii iðka, og fyrir þessar sakir
sem nefndar hafa verið er þetta
afmæli sérstakt. í tilefni af
þessu afmæli hefur Íþróttasíðan
snúið sér til Gísla og beðið
hann að segja örlítið frá þessu
starfi sínu:
— Það er svo skrýtið, að þeg
ar stundin er liðin hjá, þá finnst
manni það sem gerðist svo lítið
og eðlilegt, þó allt virðist svo
fullt af torráðnum gátum þegar
maður horfir framundan. Svo
satt að segja hef ég eiginlega
ekkert að segja.
Við skulum þó sjá. Fyrsta
íþróttafélagið sem ég var í og
var stofnandi að hét Framsókn,
og var í Hafnarfirði, en þar hef
ég verið síðan ég var 8 ái’a- I
því félagi var ég elztur, og sá
eini sem enn keppir af þeim
hóp. Fyrsta keppnin sem ég
tók þátt í var í knattspyrnu,
og kepptum við knattspyrnufél.
17. júní, og töpuðum 3:1 Um
svipað leyti fengum við II. fl.
frá Víking til að keppa við og
töpuðum við með 9:0.
tafla fyrir Jrjálsar íþróttir. Út-
gefendur eru Magnús Baldvins-
son og Ingólfur Steinsson.
G ísli Sigurðsson.
Fljótt var hafizt handa um
byggingu vallarins, en hann var
byggður fyrir. samskotafé frá
bæjarbúum og félögunum. 1920
fórum við að iðka hlaup og
litlu síðar köst. Maður var með
í öllu þessu. enda fáir sem gátu
eða vildu segja til. Á þessum ár
um hef ég oft haft með hönd-
um kennslu fyrir félög í Hafn-
arfirði, t. d. íþróttafélag Hafn-
arfjarðar Þjálfa og Hauka
meðan þeir voru að komast vfir
erfiðasta byrjunarhjallann. auk
þess annaðist ég íþróttakennslu
við Hvítárbakkaskólann í 3 vet-
ur.
Eg hef verið svo lánsamur að
lifa það að íþróttalíf í Hafnar-
firði stendur nú í miklum
blóma, og að það félag, sem ég
nú síðast hef sérstaklega starf-
að í, Fimleikafélag Hafnarfjarð
ar, hefur átt úrvalsmenn í hópi
íþróttamanna, og að íþróttirnar
eru að ná til fjöldans í Hafnar-
firði, þrátt fyrir síæm skilyrði
á mörgum sviðum-
Hvað þátttöku mína í íþrótt-
um snertir, er ekkert að segja,
þar eru engin íslandsmet eða
meistarastig, né óteljandi verð-
laun. Eg hef verið með til þess
að fá aðra til að vera með. Eg
hef notað íþróttirnar sem lækn
fþrðtt3húsbygi|inguniii á
Akranesi miðar vel áfram
Eins og kunnugt er, hafa þeir
Akranesingar í smíðum íþrótta
bús og vinna miög að því sjálf-
ir. Eftir því sem Íþróttasíðan
hefur frétt, er þátttaka góð í
sjálfboðavinnunni. Mæta þar
oft á kvöldin um helgar um
30—40 manns- Sýnir þetta mik-
inn dugnað og gott félagslíf og
samstarf, sem lífsnauðsyn er að
varðveita.
islyf. Það eru mínir sigrar og
þeim sigrum geta allir náð ef
þeir taka íþrótt sína rétt.
Uppáhalds íþrótt mín er
ganga, og hef ég m. a. gengið
flestar þær leiðir sem farnar
eru milli Borgarf jarðar og
Reykjavíkur. Menn gera of lítið
að bví að ganga um landið nær
og fjær.
Til gamans má geta þess að
sund er meðal hinna ýmsu
greina, sem ég hef keppt í.
Að lokum vil ég segja þetta:
Fyrir unglinga ér það mikil-
vægt að þeir fullorðnu líti til
þeirra leiðbeinandi og vingjarn-
lega.Það mun vissulega hafa sín
miklu áhrif á framtíð þeirra-
Ollum, sem íþróttir hafa iðkað,
ræð ég að halda lengi áfram og
æfa stöðugt, en gætilega, þegar
árin fjölga. Með því halda menn
sér ungum og hraustum.
Mesta afrek mitt er: Hlaupa-
brautin á Hörðuvöllum.
Meistarar frá byrjun
Stangarstökk.
.1927 Ekki keppt-
1928 Jón Magnússon K.R. 2,64
1929 Ekki keppt.
1930 ÁsmundurSteins K.V. 3,20
1931 Sami 3,23
1932 Óskar Valdason K.V. 2,85
1933 Ásm. Steinsson K.V. 3,00
1934 Karl Vilmundars. A. 3,03
1935 Hallst. Hinrikss. F.H. 3,20
1936 Sami 3,18
1937 Ólafur Erlendss. K.V. 3,36
1938 Karl Vilmundars. A. 3,30
1939 Hallst. Hinrikss. F.H. 3,20
1940 Ólafur Erlendss F.H. 3,18
1941 Þorst. Magnúss. K.R. 3,31
1942 Magnús Guðm.s. F.H. 3,00
1943 Sami - 3,20
1944 Guðjón Magnúss. KV. 3,40
v
Þrístökk
1927 Sveinbj. Ingim. Í.R 12,73
1928 Sami 11,56
1929 Sig. S- Ólafsson K.R. 11,92
1930 Sami 12,47
1931 Ingvar Ólafss. K.R. 12,03
1932 Karl Vilmundars. A. 12,21
1933 Daníel Loftsson K.V. 12,60
1934 Sami 12,61
1935 Sig. Sigurðss. K.V. 13,38
1936 Sami 13,73
1937 Sami 13,98
1938 Sig. Norðdahl Á. 12,94
1939 Sig- Sigurðsson Í.R. 12,92
1940 Oliver Steinn F.H. 13,00
1941 Oddur Helgason S.f. 13,15
1942 Oliver Steinn F.H. 13,36
1943 Oddur Helgason Á. 13,33
1944 Skúli Guðm.s. K.R. 13,61