Þjóðviljinn - 13.05.1945, Blaðsíða 1
Síglíngar á heímahöfnm Japana lamadar efiir árásir bandarísbra kafbáfa
Montgomery fagnað
í Kaupmannahöfn
Montgomery marskálkur kom
til Kaupmannahafnar í gær, og
ræddi viö Kristján konung og
Buhl forsœtisráöherra.
Þrettán þúsund danskir heima
hermenn höfðu raðað sér upp
meðfram götunum sem Mont-
gomery fór um á leið frá flug-
vellinum að hótelinu, og fagn-
aði mannf jöldinn honum með
húrrahrópum.
Buhl forsætisráðherra, Ole
Björn Kraft og Christmas Möll-
er tóku á móti Montgomery og
bauð forsætisráðherrann hann
velkominn til Kaupmannahafn-
ar en Montgomery þakkaði með
nokkrum ojrðum.
Borgin var öll fánum skrýdd
í tilefni' af komu hershöfðingj-
ans.
í gær hófust herflutningar, sem ekki eiga sinn líka
1 sögunni, er fyrstu Bandaríkjahersveitimar lögðu af
stað frá stöðvum sínum í Evrópu áleiðis til vígstöðva
Austur-Asíu.
Tilkynnt var \ gær, að af þeim 3% milljón Banda-
ríkjahermanna, sem nú dvelja í Evrópu, fari 3.100.000
til Asíu, en um 400 þúsund verði eftir til að gæta þess
hluta Þýzkalands, sem Bandaríkjamenn hemema.
Meginhluti Bandaríkjahersins fer til Austur-Asíu-
vígstöðvanna yfir Ameríku, en ýmsar sérfræðingasveit-
ir fara með skipum stytztu leið. Fara þær sveitir um
Marseille, en herinn, sem fer yfir Ameríku, stígur á
skipsfjöl í Lettavre, Cherbourg og Antwerpen.
Þýzku hafnirnar verða eink-
um notaðar á næstunni sem inn-
flutningshafnir, bæði til að
flytja Bandamannaherjunum í
Þýzkalandi birgðir og matvæla-
flutninga til meginlands Evrópu.
Komið verður upp miklum æf-
ingarstöðvum í Evrópu, þar sem
hermennirnir fá þjálfun í ýmsu
er lýtur að Asíuhernaði.
ÞRENGIR AÐ JAPAN
Undanfarnar vikur hefur
Bandaríkjaflugherinn unnið að
því að lama siglingar Japana á
höfunum kringum Japan, og orð-
ið mikið ágengt.
Risaflugvirki hafa lagt sprengi
duflabelti fyrir helztu hafnar-
borgir Japans, svo kerfisbundið,
að siglingar Japana eru allar að
komast á ringulreið.
Á Mindanao (Filippseyjum)
og Okinava (Ríú-kíú-eyjum)
/
júgoslavar telja Horthy
óg Bardossi stríðsglæpa-
menn og heimta þá
framselda
Júgóslavneska stjórnin hefur
krafizt þess aö Horthy, fyrrver-
andi einvaldsherra Ungverja-
lands, og Bardossi, fyrrverandi
forsætisráöherra, veröi fram-
seldir sem stríðsglœpamenn.
Saka Júgóslavar þá um ábyrgð
á fjöldamorðum er ungverskt
herlið framdi í þeim héruðum
Júgóslavíu, sem Ungverjar her-
námu, en þar voru myrtir um
20 þúsund manns.
Krafan um framsal þeirra
Horthys og Bardossis var gerð
eftir að nefnd sú, er rannsaka á
stríðsglæpi í Júgóslavíu, hafði
■skilað áliti.
vinnur Bandaríkjaher á í bar-
dögum við japanska herinn.
ERU JAPANAR AÐ ÞREIFA
FYRIR SÉR UM FRIÐ?
í Washington hefur komið á
kreik orðrómur um friðartilboð
frá Japönum, að því er fréttarit-
arar skýra frá.
Sagt er að tilboð þetta bygg-
ist á því, að Japanar bjóðast til
að kalla her sinn heim úr öllum
þeim löndum sem þeir hafa her-
numið, ef Bandamenn samþykki
að hernema ekki heimaland Jap-
ana.
Það fylgir fregninni, að ekki
verði rætt við Japana á öðrum
grundvelli en skilyrðislausri
uppgjöf.
JAPANSKA STJÓNIN NEIT-
AÐI HITLER UM LANDSVIST,
SEGIR BREZKT BLAÐ
Enskt blað skýrir frá, að jap-
anska stjórnin hafi neitað Hitler
og nokkrum öðrum æðstu naz-
istum um landsvist, af ótta við
að það kynni að ýta undir þátt-
töku Sovétríkjanna í Asíustríð-
inu.
Segir blaðið, að á neðanjarðar-
flugvelli við Berlín hafi síðustu
mánuðina beðið flugvél af nýrri
gerð, sem hinn frægi, flugvéla-
smiður prófessor Willy Messer-
schmitt hafi látið byggja í Fokke
Wulf verksmiðjunum.
í slíkri flugvél hefði reyndur
þýzkur flugmaður, Paul Boltze,
flogið án viðkomustaðar hálofta
flug til Tokíó, og átti hann að
fljúga með Hitler til Japan. Að-
eins fimm slíkar flugvélar voru
smíðaðar, og voru allar í eign
æðstu manna nazistaflokksins.
Hugmynd nazistaforingjanna
var að mynda þýzka „útlaga-
stjórn“ í Japan. En japönsku
stjórninni leizt ekki á þessar fyr-
irætlanir og harðneitaði að taka
við nazistaleiðtogunum.
JAPANAR SYRGJA
ROOSEVELT
Það þykir einnig benda á ótta
Japana við framtíðina, að jap-
anski forsætisráðherrann, Su-
zuki flotaforingi, lýsti yfir
„djúpri samúð“ með Bandaríkja-
mönnum í tilefni af dauða
Roosevelts forseta.
SENDIHERRA JAPANA í
BERLÍN HANDTEKINN
Osima hershöfðingi, sendi-
herra Japans í Berlín, hefur ver-
ið handtekinn af Bandamönnum.
Ásamt sendiherranum voru
130 starfsmenn japanska sendi-
ráðsins handteknir.
Ægilegar fangabúð-
ir finnast
Herlið úr 7. Bandarikjáhern-
um hefur náð á vald sitt einum
fangábúðum enn, í Ebensee,
skammt frá Salzburg.
Liðsforingi sá, er stjórnaði
töku fangabúðanna, segir að
meðferð fanganna í þeim hafi
verið svo hryllileg,- að hvorki
Dachau né Buchenwald jafnist
á við það.
í fangabúðum þessum voru
pólitískir fangar frá ýmsum
Evrópulöndum.
700 þús. fangar á
f jórum dögum
Enn barizt í Tékkoslovakíu
Sovétherstjómin birti enn
hemaðartilkynningu í gær. Seg-
ir þar að síðustu fjóra daga hafi
700 þúsund þýzkir hermenn
gefizt upp fyrir sovéthemum
og verið teknir til fanga. Meðal
þeirra em 63 hershöfðingjar.
> Enn berjast þýzkar liðssveitir
í Tékkoslovakíu, en sovéther-
inn vinnur skipulagsbundið að
útrýmingu þeirra, og verður vel
ágengt.
Tékkneska ríkisstjómin hélt
í gær fyrsta fund sinn heima í
höfuðborginni Prag.
Sjöundi Bandaríkjaherinn
hefur enn tekið marga hátt-
setta nazistaleiðtoga höndum,
þar á meðal Walter Funk og
Dietrich hershöfðingja.
Ólaf ur krónprins að
koma til Noregs
Ólafur krónprins, yfirhers-
höfðingi Norðmanna, er að
koma heim til Noregs, og var
í gær uppi fótur og fit í Osló
við að undirbúa komu hans.
Ndfnd þýzkra foringja úr hern-
um í Noregi komu í gær flugleiðis
til Skotlands -til að skýra frá
hvernig her Þjóðverja væri dreift
um Noreg og hvar tundurdufla-
svæðin séu meðfram ströndinni.
Pormaður nefndarinnar er
Kriiger höfuðsmaður. Er búizt við
að viðtöl Bandamannaforingja við
þessa þýzku nefnd muni standa
nokkra daga, og upplýsingarnar
sem með því fáist, muni verða til
að auðvelda og flýta fyrir afvopn-
un þýzka hersins í Noregi.
í Oslóaffregn segir, að þýzki
herinn haldi ýfirleitt uppgjafar-
skilýrðin. Á nokkrum stöðum, þar
á meðal í Kristiansand. reyndu
liðlssveitir nazi-sta að eyðileggja
mannvirki, en sveitir úr norska
heimahernum hindriiðu það.
SEIP í OSLÓ.
Práfessor Seip, rektor háskól-
ans í Osló, kom þangað í gær, og
fögnuðu stúdentar og háskóla-
kennarar honum ineð móttöku í
háskólanurh
Danir fagna sovét-
hernum
Rússneskt herlið er komið til
Borgundarhólms, og hefur af-
vopnað þýzka herinn, sem þar
var.
Sovéthershöfðinginn, sem er
fyrir þessu liði, fór í gær eft-
irlitsför um eyna, og fögnuðu í-
búarnir honum alstaðar þar sem
hann kom.
Tjarnarboðhlaup
K.R.
Tjarnarboðhlaup K. 11. fer fram
í dag og hefst kl. 3.1.5 e. h. 5 sveit-
ir taka þátt í hlaupinu: tvær frá
K. 11., tvær frá í. II. og 1 frá Ár-
manni. Alls 50 manns. Hefst hlaup-
ið við Bindindisíhöllina og verður
hlaupið urohverfis Tjörnina, sam-
tals 13*20 metra, og staðnæmst við
Barnaskólann.
Liggur við hungurs-
neyð í Hollandi
/ llollandi blandast fögnuðurinn
yfir fengnu frelsi áhyggjunum
vegna onatarslcorts sem, er svo al-
varlegur, að víða liggur við hung-
ursneyð.
Rauði krossinn. bæði hollenzka
deildin dg erlent starfslið reynir
að bæta úr mestu neyðinni. Fjöldi
fólks hefur dáið úr hungri, en það
er helzt fólk sem búið hefur eitt
sér, og ekki haft sam-band við aðra
eftir að það var orðið svo lasburða
að það gat ekki borið sig eftir
þeirri litlu fæðu sem fáanleg var.
Brauðskammtur hvers manns í
Hollandi er nú 400 gr. á viku, en
á-Mka mikið lætur Rauði krossinn
í té. Kjötskammturinn er 25 gr.
á viku.
Dánartala barna og gamals
fó'lks hefur stórhæk’kað í Hollandi
síðustu mánuðina
Kafbátarnir tínast
fram
Þrettán þýzkir kafbátar hafa
komiA til brezkra hafna, einn
til hafnar í Kanada, annar er
væntanlegnr til Nýja-Sjálands,
og einn hefur leitað hafnar í
Gibraltar.
Frakkar hafa tilkynnt, að í
höfum á Atlanzhafsströnd,
sem franski herínn er nýbúinn
að taka, hafi náðst þrír kafbát-
ar og 20 lítil herskip þýzk.
I brezkri fregn er talið lík-
legt, að einhverjir af þýzku kaf-
bátunum reyni að komast und-
an til Japan.
Lík Jóns Sigurðs-
sonar fundið
Lík Jóns Sigurðssonar kaujjfé-
lagsstjóra frá Djúpavogi, sem
hvarf héðan úr bænum 5. vmrz s.l.,
fannst í fyrradag við hafnargarð-
inn er liggur austur frá Örfirisey.
Tveir drengir fundu. líkið, þar
sem það var skorðað í urðinni við
garðinn. Enginn áverki var á lík-
inu og -fötin óákemmd. Skjöl voru
í vösunum, þ. á. m. sparisjóðsá-
vísunai'bók, tékkhefti o. fl. smá-
vegis. Peningar fundust engir, enda
var talið fullvíst að Jón heitinn
hdfði enga peninga haift á sér er
hann hvarf.
S