Þjóðviljinn - 02.03.1946, Side 1
11. árgangur.
Laugardagur 2. marz. 1946.
51. tölublað.
agggBBiSSMWHi
Dagsbrúnardeilan leyst:
1120 manna Dagsbrúnarfundur samþykkir nýjan kaup- og
kjarasamning með öllum greiddum atkvæðum gegn tveimu
Aðalatriði hins nýja samnings eru: Lægsta grunnkaupið hækk-
ar úr kr. 2,45 í kr. 2,65 á klst. - Mánaðarkaup verkamanna hækk-
ar úr kr. 450 og kr. 475 í kr, 500- - Mánaðarkaup bifreiðarstjóra
úr kr. 475 og kr. 500 í kr. 550
Ríkisstjórniii lýsir yfir að bún muni greiða göto íélags
sem stofnað verði til að koma á fót matsölu fyrir al-
menning. Ríkisstjórnin lýsir ennfremor yfir að veitt
verði innflntmngsleyfi beint til neytenda. Ríkisstjórnin
og borgarstjórinn hafa lofað að beita sér fyrir samein-
ingu vmnumiðlunarskrifstofwnnar og ráðningarstofu
bæjarins
Verkfall strætisvagnstj óra
heldur áfram
Sáttafundur kl. 2 í dag
Verkfall strætisvagnstjóradeildar Hreyf-
ils heldur áfram. — Fyrir milligöngu sátta-
semjara ríkisins héldu deiluaðilar sáttafund
kl- 5 í gær, en samkcmulag náðist ekki, og
var boðaður annar sáttafundur kl. 2 í dag.
Stöðvun strætisvagnanna hefur valdið al-
mennri óánægju meðal bæjarbúa, vegna
þeirra margháttuðu örðugleika, er af henni
hljótast. — Er þess krafizt að bæjaryfir-
völdin leggi kapp á að leysa deiluna sem
fyrst.
30 félög iiman Alþýðusambandsins höfðu á-
kveðið samúðarverkfal! til aðstoðar Dagsbrún
Bretar
a
Frakkar sampy
jastjórnar
Klukkan feálfníu í fyrrakvöld hófst samninga-
íundur þar sem mætt var stjórn og samninganefnd
Dagsbrúnar ásamt framkvæmdanefnd Vinnuveit-
endafélagsins, sáttasemjari ríkisins og menn úr
ríkisstjórninni. Sanminganefndarfundir stóðu yíir
alla nóttina og til kl. 10 í gærmorgun og var þá
svo komlð að fyrir lá samningsgrundvöllur, er
báðir aðilar undirrituðu með þeim fyrirvara að
félög aðila samþykktu.
Þrjátíu félög innan Alþýðusatnbands íslands
höfðu ákveðið samúðarverkfall til aðstoðar Ðags-
brún og hefðu þau hafizt í gær og næstu daga.
Fundur vár bcðaður í vmf. Ðagsbrún kL 4 í gær
í Gamla Bíó og skýrði ritari Ðagsbrúnar, Eðvarð
Sigurðsson, frá samningunum og fara aðaiatriði
þeirra hér á eftir:
Grunnkaup í almennri
dagvinnu hækkar úr kr.
2,45 1 kr. 2,65 á-klst.
Taxti sem áður var kr,
2,75 hækkar í kr. 2,90.
Ýmsar breytingar voru
geröar á kaupgjaldsgrein!
samningsins verkamörmum
í hag. Helztu þeirra eru aö
verkamenn sem vinna íag-
vinnu svo sem við trésmíði,
bifvélaviðgerðir, blikksmíði,
rafvirkjun og málaravinnu. j
þar með talin málun og ryð
hreinsun bíla er nú tekin
inn í samninga en var þar
ekki áður.
Leyst var deilumálið' um
sk’lgreiningu á hjálpar-
mönnum í járniðnaði og
fengu þeir nokkra hækkun
við óþrifalegustu vinnuna
1 (ket'lvinnu o. fl.).
Sömule'.ðis var deilan um
kaup verkam. í lýsisvinnslu
stöðvum leyst.en félagsdóm
ur dæmdi þá á sínmn tíma
? lágmarkstaxta, en samiö
hafði verið um kr. 2,90 á
klst. fyrir þá. Þessir vinnu-
flokkar eru nú allir á
tveggja króna og níutíu
aura kaupi á klst.
Vinna greidd með
kr. 2,90.
Nýir vinnuflokkar á
tveggja króna og níutíu
aura taxta eru eftirfaraudi;
Stjórn á hverskonar
dráttar og lyftuvögnum,
vinna við loftþrýstitæk’,
hreinsun benzín- og olíu-!
geyma að innan, rýðhrems
un með hanaverkfæium,
vinna á smurni ngsstöö vm u
og stúfun lýsistunna í lest,
enda sé stúfað í einu 50
tonn eða meira.
Samið var um nýjan
taxta fyrir stjórn á stór-
v'rkurn vinnutækjum svp
sem vélskóflum og ýtum,
fvrir það greiðist kr. 3,50 á
klst.
Þá var samið um kaup
næturvarðmanna og skuiu
þeir fá kr. 34,00 fyrir 12
stunda vöku.
Kaup, ef vinna getur
ekki hafizt
Þá var skorið úr því deilu
máli hvort greiöa skuli
verkamönnum kaup ef
vinna getur ekki hafizt að
morgni vegna óveðurs cða
annarra orsaka, í samn-
Framhald á 7, síöu.
í Spánarmálunuiíi
Góðar vonir um einingu spánska
lýðveldisins
Tilkynnt var í Washington í gær, að svör Breta
og Frakka við orðsendingu Bandaríkjastjórnar um
Spánarmálin væru á þá leið, að þeir væru í megin-
atriðum samþykkir stefnu Bandaríkjastjórnar.
I París fara fram tilraunir til að sameina alla
spánska lýðveldissinna um stjórn þá, er José Giral
veitir forystu og víkka grundvöll stjórnarinnar-
í fyrrinótt var landamær
um Frakklands og Spánar
lokað, spönskum skipum
bönnuð afnot franskra
hafna og spönskum flugvél
um bannað aö lenda á
frönskum flugvöllum.
í orösendingu Banda-
ríkiastjórnar er lagt til, aö
stjórn sú, er mynduð væri,
ef Franco léti af völdum.
go'i nólitískum föngum
upp sakir.
Góðar horfur um
sameiiimgu
Einn af foringjum Baska
í París lét svo ummælt í
gær, aö sameiningu allra
spánskra lýöveldrsinna um
eina stefnu væri nær lokiö
Bidault utanríkisráöherra
Frakklands haföi boðaö Gir
a.l á sinn fund 1 gær, en
boðið var afturkallað á síö-
ustu stundu.
Stjórn hollenzka verka-
iýössambandsins og hol-
lenski Kommúnistaflokkur-
inn hafa skoraö á ríkis-
stiórn Hollands aö slí t
stj órnmálasamba ndi H
Franco.
Enn hefur verið hert 1
ritskoöuninni á Spání <■ •
hafa engar fréttir borizt
, þaöan síðustu daga.