Þjóðviljinn - 16.05.1946, Síða 7
Fimmtudagur 16. maí 1946.
ÞJÓÐVILJINN
Ur borginni
Næturlæknir er læknavarð-
stofunni, Austurbæjarskólanuæ,
sírai 5030.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 1633.
Næliirvörður í Ingölfs Apóteki
Landsbókasafnið er opið alla
virka dag-a kl. 10—12 f. h., 1—7
og 8—10 e. h. Þjóðskjalasafnið
er opið alla virka daga kl. 2—7
e. h. Þjóðminjasafnið er opið
sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu
daga, kl. 1—3 e. h. Bæjarbóka-
safn Reykjavíkur: Lestrarsalur-
inn er opinn alla virka daga kl.
10—12 f. h. og 1—10 e. h. —
Útlánsdeildin er opin kl. 2—
10 e.h. Náttúrugripasafnið opið
sunnudaga, þriðjudaga- og
fimmtudaga kl. 2—3 e. h.
Heimsóknartími spítalanna:
Landsspítalinn: Kl. 3—4 alla
virka daga, kl. 2—4 sunnudaga.
Hvítabandið: Kl. 3—4 og 6,30.
Landakotsspítalinn: Kl. 3—5 alla
daga. Sólheimar: Kl. 3—4,30 og
7—8 e. h. alla daga.
Skipafréttir. Brúarfoss er í
Reykjavík, fer kl. 22.00 í dag til
Hull. Fjallfoss er í Reykjavík,
kom 11 þ. m. frá Hull. Lagarfoss
fór kl. 20.00 í gærkvöld til Leith
og Kaupmannahafnar. Selfoss fór
frá Leith kl. 14.00 í fyrradag til
Rvíkur. Reykjafoss fór frá Rvík
11/5 til Engl. og Antw. Bunt-
line Hitch fór frá New York
11/5. Acorn Knot fór frá Reykja-
vík 6/5 til New York. Salmon
Knot fór frá Reykjavík 11/5 tll
New York. True Knot er í Rvík,
kom 12/5 frá Halifax. Sinnet er
í Reykjavík, kom 12/5 frá Lis.sa-
bon. Empire’ Gallop fór frá Hali-
fax 11/5 til Reykjavíkur. Anne
er í Reykjavík, kom 10 þ. m.
Lech kom til Reykjavíkur 10 þ.
m. frá Leith. Lublin er sennilega
á Skagaströnd. Horsa hleður í
Leith í þessum mánuði.
Kaupendiir ÞjóSviljans eru
vinsamlega beðnir að tilkynna
bústaðaskipti á afgreiðslu J)laðs-
ins, Skólavörðustíg 19, eða í
síma 2184.
Lúórasvein Svanur, leikur við
Laugarnesskólann í kvöld kl. 9
ef veður lej'fir. Stjórnandi Karl
O. Runólfsson.
Útvarpið í dag;
Fimludagur ÍG. maí.
20.20 Útvarsliljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórn-
ar): a) Lagaflokkur úr
„Copelia" eftir Delibes. b)
„Töfrablómið", — vals eftir
Waldteufel.
20.50 Dagskrá kvenna (Kvenn-
réttindafél. Islands): Erindi:
frá fundi norrænna kvenna í
Kaupmannahöfn (frú Sigrið-
ur Magnússon).
21.15 Lög leikin á liarpsikord
(plötur).
21.25 Frá útlöndum (Gísli Ás-
mundsson).
2145 Lög úr tónmyndinni „For
wliom the bell tolls“ (plöt-
ur).
Svíþjóðarbátarnir
Kjóla:
Naglar
Perlur
Paliettur
H. TOFT
iSkólavörðust. 5.
Sírni. 1038.
Framhald af 1. síðu.
taka þátt í væntanlegum samn-
ingagerðum í Svíþjóð.
Sendimenn þessir fóru héðan
áleiðis til Svíþjóðar þann 20.
apríl og komu heim 13. þ. m.
Þegar til Svíþjóðar kom hófust
þegar viðræður við hina sænsku
verktaka, Atlas Diesel A.B. í
Stokk-hólmi og Förenade Batvarv
A. B. í Gautaborg.
Kom þá í ljós að ekki stæði
eingöngu á vélunum, heldur
einnig að nokkru leyti á smíði
bátanna.
Aðal viðbárur téðra verktaka,
voru þær, að skortur væri á fag-
mönnum í Svíþjóð, vélamönnum
til að setja vélarnar niður og
eins bátasmiðum. Auk þessa
deildu verktakarnir sín á milli
um ýmisleg atriði. Jafnframt full
yrtu verktakarnir að ekki væri
hægt að fá þessa fagmenn í Nor-
egi eða Danmcfcku. Sendiráðið
og fulltrúar ríkisstjórnarinnar
sneru sér fyrst að því að útvega
fagmennina. Um þetta leyti kom
til Stokkhólms frá Kaupmanna-
höfn járnsmíðameistari Einar
Ásmundsson í Reykjavík. Hann
hafði áður ráðið danska jám-
smiði í sína þjónustu og taldi
hann líklegt, að hægt væri að fá
fagmenn í Danmörku. — Fyrir
beiðni íslenzku fulltrúanna sneri
hann strax aftur til Kaupmanna-
hafnar þessara erinda. Góður
árangur varð af för hans, því
honum tókst fljótlega að ráða
nokkra danska fagmenn. Einnig
tókst sendiráðinu að ráða fag-
menn, og útlit er fyrir að fá eins
marga fagmenn í Danmörku og
þörf er á.
í viðræðum við verktakana
lofuðu þeir hvor um sig að gera
allt sem í þeirra valdi stæði til
þess að hraða afgreiðslu bát-
anna.
Auk framangreindra ráðstaf-
ana til útvegunar á fagmönnum
útvegaði sendiráðið raflagning-
arefni í Danmörku, sem ekki
fékkst í Svíþjóð, og breytt var
til um vinnuaðferðir, sem allar
miða að því að hraða afgreiðslu
bátanna. Ekki varð komizt hjá
því að sumar þessar aðgerðir
hefðu nokkurn aukakostnað í
för með sér fyrir íslendinga, en
ekki er í það horfandi, þegar um
það er að tefla að koma fleiri
bátum á síldveiðar.
Vegna framangreindra aðgerða
standa nú sakir bannig, ef engin
óvænt atvik koma fyrir, að bú-
ast má við að allir bátamir að
undanteknum 8 eða 9 verði til-
búnir það snemma að þeir geti
tekið þátt í síldveiðum að mestu
eða öllu ley.ti.
í þessu sambandi skal tekið
fram, að sendifulltrúi Vilhjálmur
Finsen og verkfræðingur Ólafur
Sigurðsson, sem hefur haft yfir-
umsjón með bátasmíðinni frá
upphafi, hafa sýnt alveg einstak-
an áhuga og skyldurækni í störf-
um sínum til þess að gæta hags-
muna íslendinga í þessu máli frá
upphafi, og mun þetta vera sam-
eiginlegt álit þeirra, sem tik
þekkja.
(Atvinnumálaráðuneytið,
15. mai 1946).
„Þú heldur, að þjóðin geti ekld verið
5 án þín46
F4amh. af 5. síðu.
istanna" í lóg, að gripið var til
þess ráðs að- senda tveim dönsk
um rithöfundum sínar þúsund
krónurnar hvorum!
HingaS og ckki lengra
Það er eitt til marks um hina
hyldjúpu lítilsvirðingu fyrir
skáldum og listamönnum á Is-
landi, að ekki skilaði þessi póli-
tíska úthlutunarnefnd af sér
störfum fyrr en seint í marz-
mánuði. Er J)ó næsta auðskilið,
að vegna þeirra, sem þarna
treysta á sinn aðallífeyri, ætti
slíkri úthlutun helzt að vera
lokið um áramót eða að minnsta
kosti í síðasta lagi í jan.lok. En
hvernig ræðst um daglegt brauð
svona manna í tvo til þrjá mán-
uði — það er mál, sem forsjón
þessa þjóðfélags virðist hreint
ekki koma við.
Þegar úrslitin urðu loks kunn,
fór mér sem sex öðrum félög-
um minum, að ég kaus heldur
að herða á mittisólinni en
beygja mig undir vöndinn. Eg
veit ekki, hvernig þeir kunna að
skýra sína ákvörðun og mun því
einungis halda mig að minni
eigin. Mér hafði einu sinni áð-
ur verið refsað á samskonar
bátt, en lét þá kyrrt liggja, með
því að þá var liöggið öðruvísi
tilkomið og ég enda seinþreytt-
ur til vandræða. En þegar ég
nú var sleginn á hina kinnina,
var mínu kristilega innræti nóg
boðið.
Vissulega þurfti ég á þessum
krónum að halda, enda liafa títu
prjónar Alþýðublaðsins ekki
sparað að geta Jjess til. Og l)að
var engan veginn þessi 600 kr.
lækkun á lífeyri mínum, sem hér
skipti mestu máli.Spurningin var
hinsvegar Jiessi: Er manni, sein
teljast vill nokkurnveginn heið-
arlegur, það sæmandi að láta
Jijóðfélag sitt refsa sér hvað eft-
Samúðarkort
Slysavarnafélags
Islands
kaupa flestir, fást hjá
slysavarnadeildum
um allt land, í Reykja
vík afgreidd í síma
4897
ir annað fyrir að hafa skoðanir
og sannfæringu? Og kjósi hann
sér slíkt hlutskipti — er hann
l)á líklegur til að varðveita þá
siðferðilegu alvöru, sem jafnan
er blóð og mergur allrar tíma-
bærrar listar?
Þegar svo þar að auki er á
það lilið, að hér var í rauninni
um ofsókn gegn heilum félags-
skap að ræða, miðað við sjónar-
mið annars félagsskapar, sem
hafði klofið sig út úr hinum á
næsta hæpnum forsendum og
stéttinni til mikillar óþurftar,
þá var ég ekki lengi í vafa um,
hvað gera skyldi.
Að síðari yfirlýsingunni, við-
víkjandi notkun verka minna,
kaus ég að standa einn og hef
ekki ráðgazt við aðra um það
mál. Eg laldi sjálfsagt, að meðan
ég ælti í útistöðum við fulltrúa
þjóðar minnar út af samvizku-
spursmálum, þá væri í raun-
inni óviðeigandi að flytja lienni
inína túlkun á lífinu, að svo
miklu leyti sem hægt væri að
komast lijá því. Játað skal, að
slík ráðstöfun kann að geta kom
ið niður á saklausum, en þeim
hinum sömu treysti ég einmitt
hezt til að virða mér þessa af-
slöðu mína lil vorkunnar. Það
er síður en svo að ég haldi, eins
og mín góða vinkona gat upp á,
að þjóðin geti ekki verið án
mín. Hún gæti meira að segja
vafalaust verið án sagna Kilj-
ans og Kristmanns og ljóða
Davíðs og Tómasar. En hvort
hún mætti níð því til langframa
— það er mál, sem hún
verður að gera upp við sig sjáif
Eg hef ekki risið til mótstöðu
í þessu máli vegna þess, að ég
telji skáldskap minn svo örugg-«
an hakhjarl til varnar. Þar
standa vafalaust ýmsir aðrir
margfallt hetur að vígi en ég.
Hinsvegar krefst ég jafnaðar við
hvern annan þjóðfélagsþegn um
almenn mannréttindi og telji ég
hera þar mjög út af, þykist ég
mega þiggja eða veita eftir því
sem efni standa til.
Stjórnmálarabb
Frh. af 4. síðu.
izt hefur fyrir henni .illa stund,.
þann flokkrnny sem ~hrf ijr“ vaxtff
frá ári til árs, vegna l-ess að
hann hefur svarað til hinnar
vaxandi róítækni og stórhugar
fjöldans. Eins og sakir standæ
er ekki nema ■ ein ieið "íær aft
því markmiði að sameina allæ-
sósíalista á íslandi tii sameigin-
legra átaka og hún er að efla
Sósíalistaflokkinn.
Árið 1922 fylgda 63.8% af
kjósendum steir.n Sjálf-
stæðismamia, áráð 1046 ca.
48%.
Það er ekki síður íióðtegt, aÁ
athuga fylgisbreytir.gar íhalds-
ins, sem ýmist heíur kallað sig
íhaldsflokk eða Sjálfstæðisflokk.
Eftir því sem hagskýrslar
Reykjavikur segja, hefui fylgi
þess flokks við bæjarstjórnar-
kosningar í Reykjavik. veriÁ
þannig, miðað við hundrað'
greiddra atkvæða.
Árið 1922
Árið 1924
Árið 1926
Árið 1928
Árið 1930
Árið 1934
Árið 1938
Árið 1942
Árið 1946
63.8 af hundraði
63.9 —•
60.3 — —
48.4 — —
53.5 — —
49.3 — —
54.7 — —
48.7 — —
48 — •—■
Örlög þessa flokks hafa ver-
ið þau, að hann heíur minnkáíF
að sama skapi sem róttækni og
stórhugur hefur vaxið, • og nú-
stjómar hann bænum með;
minnihluta kjósenda að balti sér.
Allir eitt um að efta. fiokk uú-
tímans, Sósialistaflokbiim. ■—-
Munið, að Þjóðviljinn þ.ivf að
komast inn á hvert toermiii.
MIPAUTCERÐ
RIMlISINS
□
Hrímfaxi
til Akureyrar og Siglu-
fjarðar. — Vörumóttaka á
morgun (föstudag). Æski-
legt að fá vörurr.ar strax
að morgninum.
Freyja
til Stapa, Sands og Olafs-
víkur. Vörumóttaka árdeg-
is í dag.
Brúarfoss
fer héðan í kvöld fimmtu-
daginn þ. 16. þ. m. kl. 10
síðdegis til Hull.
H. f. Eimskipafélag
íslands
Sonur okkar og bróðir,
SIGURÐUR JÓN
verður jarðsunginn frá dómkirkjunni föstudlaginn
17. maí. — Athöfnin hefst að heimili okkar, Mjóu-
hlíð 2 kl. 3,30 síðdegis. Jarðað verður í Fossvogi.
1
mt
Jörína G. Jónsdóttir, Sigurvin Einarsson og börn.
Prentsmiðja Þjóðviljans li.f.
Aðalfundur
félagsins verður haldinn mánudaginn 20 þ.
m. kl. 8,30 e. h. í Kaupþingssalnum.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
STJÓRNIN.
;
i
’váWJ’