Þjóðviljinn - 17.01.1947, Side 3

Þjóðviljinn - 17.01.1947, Side 3
Föstudagur 17. janúar 1947 ÞJÓÐVILJINN 3 Það Jrarf al lengja keppnístlniabilli - Fjölga leikj- um og lýsa tipp völliii Því hefur verið haldið fram, að sumrin okkar séu stutt og verður því varla móti mælt- Þessi stuttu sum ur hafa oft verið notuð sem afsökun fyrir því að hér væri ekki eins góð knatt- spyrna og annarsstaðar, og við þessu væri í rauninni ekkert að gera. Öll fram- kvæmd þessara mála hefur staðfest þessa skoðun, sem er orðin að furðulega fastri venju. Opnun vallarins til af- nota félaganna er hérumbil jafnörugg 1. maí ár eftir ár eins og koma kríunnar í Tjarnarhólmann, sem sögð er bera alltaf uppá sama dag. Þó allur apríl hafi verið til- valinn til æfinga, frostlaus og mildur, hafa búningsklef- ar verið lokaðir og oftast ver ið ónothæfir þann mánuð og völlurinn líka. Venjulega er farið að hugsa um það, sem gera þarf, þegar æfingar eru byrjaðar, sem svo að sjálf- sögðu veldur truflun og töf- um. Þarna er einn þátt- urinn í því að stytta sumarið meir en þörf er á og má þar saka vallarstjórn. Þurfi að gera við búningsklefa á að gera það um vetrartímanu. Völlinn á að laga jafnskjótt og fært er vegna frosts í jörðu og er það á valdi vall- arstjórnar. Um mörg s- 1. ár' hefði verið hægt að byrja útiæfingar í byrjun apríl og með því lengja sumarið, ef svo mætti segja, um heilan mánuð. Með þessu ættu knattspyrnumenn í meistara- flokki að vera komnir í sæmilega þjálfun í byrjun maí. Þetta mætti enn undir- ^yggja með markvissum og skipulegum leikfimisæfingum í jan., febr. og marz. Því mið ur mun það ekki vera nógu algengt að knattspyrnumenn stundi leikfimi á vetrum. — Þeir hafa yfirleitt ekki enn skilið eða sýnt í verki að þeir noti þetta atriði til að undi-rbúa þjálfun sína. — 1 Slæmar æfingar er líð- ur á sumar Ef svo aftur á móti er athugað hvernig tíminn er notaður að haustinu, kemur í ljós að langflestir leikmenn Ieggja að mestu niður æfing ar eftir Reykjavíkurmótið en það fer oftast fram milli 10- og 20. ágúst. — Walters- keppnin á sunnudögum í september hefði átt að halda lífinu í æfingum í september en sú venja er upptekin að slá slöku við allar æfingar. Enda má oft sjá á þessum leikjum að menn eru famir að fara úr þjálfun. Á Norðurlöndum þar sem keppnin fer fram á vormán- uðum og á haustmánuðum er venjulega keppt á sunnu- dögum. Leikmenn þessara landa mæta á æfingar alla vikuna. Sé dimmt er tíminn notaður til hlaupa og sam- ræðna um knattspyrnu- Þetta verðum við að taka upp líka, ef þessi haustkeppni á ekki að verða að tilgangslitlum vana. Sú tilhögun að nota sunnu daga haustsins til keppni, er ágæt og sjálfsögð, en eins og framkvæmdin er á undir búningi þeirra leikja og æf- ingunum, missa þéir að miklu leyti marks. Sá tími er því illa notaður og gerir sitt til að stytta þann tíma sem nota má til þess að fullkomna og þroska knattspyrnuna hér. Að þessu athuguðu kemur í ljós, að inniæfingar eru lé- legar, aprílmánuður ónotað- ur að mestu, síðari hluti á- gúst, allur sept. og hálfur okt., sem ákveðið ætti að taka með í kappleikjatímabil ið, er mjög illa notaður til æf inga, en kappleikir aðeins þrjá sunnudaga í sept., — (Wálterskeppnin). Þar við •bætist að júlímánuður er al- mennt notaður til sumarleyfa sem eru nokkuð eðlilegt og svo til ferðalaga flokka. Leikfimi á að taka sem fast- an lið í undirbúningsþjálfun inni. Það yrði beinlínis til að lengja sumarið, þar sem útiþjálfunin gengi betur og menn færari til að leggja á sig harða þjálfun. Æfinga- og keppnis- tímabilið Æfinga- og keppnistíma- bilið fyrir I. aldursfl., mundi því líta þannig út: .... | Jan., febr., marz: leikfimi. Hefja útiæfingar í byrjun apríl. Hafa lokið Tuliniusar- mótinu um mánaðamótin apríl—maí. Þriðja vika maí verði notuð til að fá hingað erlend úrvalsfélög atvinnu- manna eða áhugamanna. — íslandsmótið hefjist í byrjun júní. Ættu menn þá að vera komnir í sæmilega þjálfun. Frá 25. júní til 10. ág., verði engin mót. Sá tími notaður til að fá hingað landslið eða til utanfara landsliðs eða fé- laga- og innanlandsferða. Um miðjan ágúst hefjist svo Reykjavíkurmótið og flestir leikirnir látnir fara fram á sunnudögum svo og Walters keppnin eins og verið hefur, og ætti því tíminn til 15. okt að nægja, en á þessu tíma- bili verði hafnar skipulegar æfingar á kvöldum, þó að- eins sé leikið á sunnudögum. Þetta miðsumarshlé er ekki nauðsynlegt kríattspymu mönnum einum. Frjálsíþrótta menn hafa ábyggilega í huga beimsóknir í framtíðinni og mundi þessi tími sumarsins vera þeim heppilegur til heimboða. Með þessu yrði mótatíma- bilinu skipt í tvennt eða apríl, maí og júní. Hálfur ágúst, allur sept- og hálfur okt. — é Ef til vill finnst einhverj- um að hér verði of mikið af leikjum, og mætti það til sanns vegar færa hvað vallar skilyrðin snertir. — Hvað snertir fullkomnun og þroska knattspyrnunnar, ber að fjölga leikjunum til muna. Um það ber öllum saman, sem látið hafa í ljós skoðun sína við þann er þetta ritar, hvað gera þurfi til að bæta knattspyrnuna hér, en það er: fleiri leiki, lengra keppn istímabil og grasvelli. 4-- Það er á valdi knattspyrnu mannanna hér að nota þær aðstæður sem fyrir hendi eru með KRR í fararbroddi. Að lokum má vekja at- hygli ráðandi knattspyrnu- manna og vallarstjórnar á því, að sett hefur verið upp sérstakt ljóskerfi við æfinga- og keppnisvelli erlendis, með ágætum árangri, og er sjálfságt fyrir þessa aðila að koma því upp hér. Gæti BDMENNING V íð Islendingar höfum j ekki getað stært okkur af! búmenningu, til þessa. Sára I fáir bændur geta talist bú- menn. Menn, sem ganga snyrtilega um úti og inni, á- samt því að hirða áhöld sín vel og rækta til hins ítrasta hvern fermeter af ræktuðu landi, sem þeir hafa til um-| ráða- Síra Björn Halldórsson íl iSauglauksdal, sem uppi var á 18. öld, áleit ekki vel rækt að, ef dagsláttan gaf ekki af sér 36 hestburði. En nú á '• einstaklingsleg. Sú búnaðar- fræðsla sem bændaskólarn- ir hafa veitt, hefur verið í meiri og minni andstöðu við þá möguleika, sem þjóð- félagið hefur boðið bænda- efnunum. Fyrirmyndir þær, sem þeir hafa lært þar, hafa aðallega átt við stórbúskap. en ekki fátæklegan einyrkia búskap, eins og allir fátæk ari bændur verða þó að reka. Árangurinn hefur því orð ið sá af 'bændaskólunum, að bændurnir kunnu ekki að sníða sér stakk eftir vexti. tímum má að mestu leyti nefna 15—16 af dagsl, til jafnaðar, þó einstakar undan tekningar finnist eitthvað hærri. i Yfirleitt virðast bændur hafa lagt mesta áherzlu á það undanfarin ár að kom- ast yfir sem stærst land, til ræktunar, án þess að gæta þess jafnframt að gera það vel, sem verður þó aðalat- riðið við alla ræktun. Hver og einn hefur þótzt mestur maðurinn, sem hefur glennt sig út yfir mesta víð- áttu. Afraksturinn af þessum sléttum hefur oft orðið sára lítill, þegar tekið er tillit til ræktunarkostnaðar. Oft og tíðum hefur bændur skort áburð á þessar nýrækt- ir og útkoman því í mörg- um tilfellum orðið sú, að þeir hafa svelt túnin, til þess að geta borið eitthvað á ný- ræktina: túnin hafa því ekki sprottið heldur, svo nið urstaðan hefur orðið neikvæð við það sem til var ætlazt, aukin útgjöld, minni ágóði. ef miðað er við stærð hins brotna lands. Fyrir utan hvað það er leiðinlegt að sjá illa sprottin og óræktarleg tún, þar sem stráin æpa hvert á annað og illgresið skýtur upp kollinum sem vitni um áburðarskort og illa hirðingu. En út yfir allt tek- ur þó það, þegar bændur þenja sig út um allar engjar, en láta þúfurnar óáreittar innan túngirðinga. — Oft hefur það líka komið fyrir að slíkar nýræktir hafa aldrei komizt lengra en það, að plógurinn hafi bylt land- inu og svo hefur allt gróið upp að nýju, eins og hann skildi við það- Og þá er ver farið en heima setið. Pen- ingar, tími og erfiði hafa farið þar til ónýtis. En sé þetta allt athugað í sambandi við þá búnaðar- fræðslu sem bændur hafa hlotið, þá eiga þeir sína af- sökun. Slík fyrirbrigði eru meira þjóðfélagslegs eðlis en það orðið einn þáttur í því að lengja sumarið og gera völlinn meira ' aðlaðandi, þegar dimman annars ríkir. þegar þéir fóru að búa. Lær dómur og líf, fór sitt hvorn veginn. Þjóðfélagið hafði ekki skapað þeim skilyrði til þess, að framkvæma það sem þá hafði dreymt um í búnað- arskólunum og viljinn stóð til. — Því það eiga bændur, að ekki vantar þá viljann. Lengi hefur sá orðrómur ■hvílt á búfræðingum, að þeir væru einna mestir bú- skussar í bændastétt, en or- sakanna er yfirleitt að leita á þessum vettvangi. — Þetta atriði út af fyrir sig ætti að opna augu bænda fyrir því, hvað þjóðfélagið býr illa að landbúnaðinum. Búmenning byggist fyrst og fremst á því að öll bún- aðarstörf séu leyst a-f hendi með vgndvirkni og smekk- vísi — og öðrum þræði á því, að þjóðfélagið búi svo að atvinnuveginum að þeir er búnað stunda geti lifað við svipuð lífskjör og aðrar stéttir í landinu. En eins og nú standa sakir vantar mik- ið á að svo sé. Ef landbúnað urinn á ekki að fara alveg í hundana, verða bændur að gera sér það ljóst, að á þeirn veltur það fyrst og fremst. hvort hann á nokkra framtíð fyrir höndum. Sannleikurinn er sá, að búvísindi frá Hólum og Hvanneyri hjálpa þeim ekki í þeim sökum, ef þá skortir þekkingu á því þjóðfélagi, sem þeir lifa í og vita ekki hvernig það er byggt, þvi vandamál landbúnaðarins er þjóðfélagslegs eðlis, sem að- eins er hægt að leysa með fullum skilningi á samtíðinn’. og þeim lífskjörum sem. fólkið býr við í sveit og -við sjó. Engirí stétt getur skapað sér menríingu nema að gera kröfur til sírí og þjóðfélags- ins um bætt lífsskilyrði, sem eru í samræmi við þróunina á hverjum tíma. Sú menning sem verkamannastéttin hef- ur skapað sér sem heild. varð til af þeirri einföldu ástæðu, að hún stóð saman um það að bæta lífskjör sín. með kröfum um hærra kaup og styttan vinnut. Bændur og verkamenn ættu að hugsa meira um það framvegis að Framh. á 7. síðu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.