Þjóðviljinn - 09.04.1947, Síða 4

Þjóðviljinn - 09.04.1947, Síða 4
* 4 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 9. apríl 1947. IIIÓÐVILIINN Útgefandi: Sameining'arflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guðmundsson, áb. Fréttaritstjóri: Jón Bjarnáson. Ritstjórnarskrifstofur: Skóiavörðust. 19. Símar 2270 og 7500 (eftir kl. 19.00 einnig 2184). Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184. Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399. Prentsmiðjusími 2184. Áskriftarverð: kr. 8.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Yfirlýsing Stefáns Jéhanns Forsvarsmenn herstöðvasamningsins hafa til skamms tíma falið sig bak við blekkingar og ósannindi. Þeir hafa haldið því fram við þjóð sína að samningurinn skerti í engu fullveldi Islands, veitti Bandaríkjunum engar herstöðvar, heldur tryggði Islendingum að hinn erlendi her færi loks af landi burt fyrir fullt og allt. Þeir hafa íklæðzt gervi óvita og fáráðlinga, þóttust ekki skilja sjálfsagða hluti, og ef til vill hefur þeim tekizt að blekkja einhvern hluta þjóðarinn- ar með forheimskunarherferð sinni. En Stefán Jóhann Stefáusson er hégómlegur þegar Svíar eiga í hlut, og honum hefur ekki fallið gervi fáráð- lingsins þegaí hann átti tal við hina sænsku blaðamenn. „Forsætisráðherrann dregur enga dul á hið rétta cðli samn- ingsins. Island, segir hann, er mjög hættulega sett hern- aðarlega. Enda hafa Ameríkumenn framvegis rétt til að lenda hér með hernaðarvélum meðan hernám Þýzkalands stendur yfir. Annars gildir samningurinn fyrst uni sinn 5y> -ár með eins árs uppsagnarfresti." Síðan segir forsæt- isráðherrann að ,,auðvitað“ megi segja að samningurinn skerði fullveldi íslands, en hann hefði verið nauðsynlegur vegna þess að Rússar hefðu að öðrum kosti krafizt þess að fá herstöðvar á íslandi! Sænsku blaðamönnunum þóttu þetta miklar fréttir sem vænta mátti. Þeir höfðu að vísu haft óljósar fréttir um herstöðvamálið áður, en íslenzk stjórnarvöld höfðu reynt að gera sem minnst úr því og héldu því fram að Bandarík- in hefðu ekki fengið nein óvenjuleg fríðindi á íslandi. En nú lýsir forsætisráðherra íslands'ýfir því kinnroðalaust að sjálfstæði íslands hafi verið skert, að Bandaríkin hafi fengið herstöðvar á íslandi „fyrst um sinn“ í 6 y2 ár sem nota megi til að sprengja upp allan iðnað Bretlands, Vest- urevrópu og Ráðstjórnarríkjanna, og að þessi landráð hafi "verið framin vegna sjúklegs haturs á Ráðstjórnarríkjun- um, sem síðan er rökstutt með tilefnislausum dylgjum og uppspuna um ásælni Rússa. Það má fullyrða að aldrei hafi nokkur forsætisráð- herrad nokkru siðuðu landi gefið aðra eins yfirlýsingu op- inberlega. Ummæli Stefáns Jóhanns merkja ekkert annað en það að ísland sé orðið bandarískt leppríki, hlekkur í árás- arkerfi Bandaríkjanna gegn Ráðstjórnarríkjunum, „kjarn- orkumiðstöð“ eins og einn blaðamaðurinn kemst að orði. Og Stefán Jóhann Stefánsson getur ekki smokrað sér und- an orðum sínum, því að sænsku blaðamönnunum ber sam- 'an um ummæli hans. En ef hann hefði nokkurn snefil af sómatilfinningu, sem ekki er fyrir að fara, myndi hann biðj- ast opinberlega afsökunar á gaspri sínu. . Yfirlýsing Stefáns Jóhanns Stefánssonar kórónar svik hans og félaga hans við sjálfstæði íslands. Og hún getur ■einnig gert sitt til að koma á f járhagslegu hruni á íslandi. I Ráðstjórnarríkjunum er nú sendinefnd að semja um sölu á íslenzkum afurðum, og árangurinn af störfum hennar mun hafa stórvægileg áhrif á afkomu íslenzku þjóðarinn- ar. En hversu fúsir ætli Rússar verði nú til að semja við íslendinga, eftir að forsætisráðherra hefur lýst yfir því op- inberlega að Island sé orðið mikilvægur liður í árásarkerfi Bandaríkjanna gegn Ráðstjóhnarríkjunum. Aldrei fyrr mun jafn fávíst ómenni hafa gegnt for- ^ætisráðherrastörfum á íslandi. MJAIMMISTTRINN, “ ....\ GOTT PÁSKAVEÐUR Páskaveðrið reyndist okkur vel að þessu sinni. Frídagarnir voru fagrir og bjartir og lokk- uðu marga upp í fjöll. Maður get ur hæglega séð það á andlit- unum, hver hefur farið á fjöll og hver setið heima um pásk- ana. Sá sem er dökkur og úti- tekinn í andliti, hefur áreiðan- lega ekki notað frídagana til að drattast um Austurstræti eða glápa framan í náungann á veit ingastöðum bæjarins; og sá, sem er grár og næpulegur í framan, hefur áreiðanlega ekki notað frídagana til að sveiflast um sólglampandi skíðabrekkur Hellisheiðar. Hinir gráu horfa með öfund á hina brúnu og harma það, að þeir skuli ekki hafa notað páskaleyfið til að breyta um hörundslit. ¥ RAUTT NEF OG FREKNUR Svo er aftur á móti ein og ein ung og útitekin stulka, sem dóm um sitt eigið útlit, að sólin hafi veitt því óþarflega mikinn hreystiblæ. Hún á t. d. bágt með að sætta sig við sitt geislandi rauða nef, og hún bölvar í hljóði freknunum, sem óboðnar hafa setzt á kinnar henni. Það stoðar lítið þótt kunningjarnir segi í fullri meiningu, að freknurnar og rauða nefið séu henni allt annað en óprýði; geri hana meira að segja „hressilega' sæta“; hún bíður þess óþreyju-j full að hvorttveggja hverfi, 1 rautt nef og freknur. I VORIÐ f NÁND En öll þessi útiteknu andlit, sem nú prýða bæinn okkar, eru gleðilegur vottur um vaxandi gengi sóJarinnar hér um slóðir. Með degi hverjum rís hún nú hærra á himninum og fær við það betri aðstöðu til að setja hreystiblæ á útlit okkar. En um leið og við sjálf fáum frísklegra útlit, léttir okkur hið innra. Við lítum hvert framan í annað horfir í spegil og fellir þann sjáum þar vorið í hressilegu rauðu nefi og mátulega fram- hleypnum freknum, sem ekki bera einu sinni virðingu fyrir næmustu fegurðartilfinningum yngismeyja þeirra, er vilja um- fram allt vera „fölar og intress- ant“. Vorið gerir grín að allri tilgerð. Fegurð þess er hreyst- in. Gaman að vita vorið svo skammt undan. * KLUKKAN Á TORGINU Br. skrifar: „Hversu lengi á klukkan á Læk jartorgi aðA vera vitlaus ? Hversu oft (í viðbót við það sem orðið er) eiga tímanaumir menn aÁ hrökkva í kút, þegar þeir líta á hana úr suðurátt? Hversu lengi á að falsa tímann á þeim stað í þessum bæ, þar sem menn þurfa mest á því.að halda að fá ófalsaðar upplýsing- ar um það, hvað klukkan er? staðnum sem strætisvagnar dag legs lífs leggja upp frá, hver á sínu ákveðna augnabliki, allt eftir því hvernig vísarnir standa á klukkuskífu daglegs lífs. Vísarnir á suðurskífu torg- klukkunnar hafa ekki hreyfzt í þrjár vikur eða lengur. Eg er ekki einn um að heimta hreyfingu á þá tafarlaust. Bi “ Stefán Jóhann um herstöðvarnar ,. borgaralegu starfsliði. FOR- SÆTISRÁÐHERRANN DREG- UR ENGA DUL Á HIÐ RÉTTA EÐLI SAMNINGSINS. ísland, segir hann, er mjög hættulega sett liernaðarlega. Enda hafa Ameríkumenn framvegis rétt til að lenda hér með hernaðarvél- Um á meðan liernám Pýzkalands stendur yfir. Annars gildir sam igurinn FYRST UM SINN 5«/2 ! ár með eins árs uppsagnar- j f resti! Rússum geðjast ekki að því að Bandaríkjamenn setjast að á Islandi — enda stendur her- málaráðuneytið í Washington á bak við American Overseas. Hið síðarnefnda vill forsætisráðherr I ann ekki láta hafa eftir sér, en ! hið fyrra staðfestir hann. Rúss- nesku blöðin, segir hann, létu mjög greinilega'í Ijós viðhorfin í Moskvu. íslenzku kommúnist- arnir mótmæltu ákaflega og fóru úr stjórninni vegna Keíla víkursamningsins, sem braut í bága við hagsmuni Rússa. En — segir forsætisráðherrann — ef Ameríkumenn hefðu ekki ver ið hér, hefðum við vafalaust orðið fyrir því að Rússar hefðu krafizt flugvallar fyrir vélar sín ar hér á íslandi! 49. landið undir banda- rískum fána Þetta sögðu forsetinn og for- sætisráðherrann, sem hafa tekið á sig ábyrgð á því að Keflavíkur samningurinn sé bezta hugsan- lega lausnin á hernaðarvanda- málum íslands samkvæmt nýja atómkortinu. Hörð togstreita varð milli amerískra og rúss- nesjira afla áður en samningur inn var gerður og á meðan bjó ísland við langvinna stjórnar- kreppu. Samkvæmt amerískum | heimildum eiga Rússar meira að segja að hafa boðið íslending um að kaupa alla fiskiframl. ársins 1947 fyrir hátt verð. Danir og Norðmenn voru gripn ir miklum Ugg og bentu stjórn- inni í Washington á hættuna á því að Rússar tækju tvö skref ef Ameríkumenn tækju eitt. Einnig á Islandi hefur orðið vart við nokkra óró. Svartsýnn Dani sagði við mig: — Bíðið þér bara þar til æska íslands, sem liefur orðið fyrir sterkum amerískum áhrifum á stríðsárunum, fer að taka þátt í þjóðmálunum! Bíðið þér bara þar til fjárhagsltreppan á Is- landi kemst á slíkt stig að kaup- sýslumennirnir sjá sér ekki ann að fært en að taka dollaralán. Þá verður tsland ef til vili 49. landið undir bandarískum fána! Góð kaup En spyrjist maður fyrir hjá jafn dómbærum mönnum og sænska sendiherranum í Reykja vík, Otto Johansson og Sigurði Þórarinssyni dósent, þá fær mað ur róandi svör. Báðir fullvissa, að hin amerísku áhrif á æskuna séu nú mjög að dvína. Lítilfjör- leg fyrirspurn í ameríska senat- inu um þann orðróm að innlima ætti Island í Bandaríkin vakti mikla gremju um allt ísland. Tengslin við Skandinavíu verða sífellt greinilegri einnig nú eftir sjálfstæðisyfirlýsinguna. Einnig Stefánsson forsætis- ráðherra, gamall vinur Pers AI- bins og formaður norræna fé- lagsins, telur sjálfstæði Islands vega salt milli austurs og vest- urs. Að Ameríkumenn hafa með farþegaflutningum American Overseas innlimað ísland í ör- yggiskerfi Bandaríkjanna telja íslenzkir stjórnmálamenn yfir- leitt góð kaup. Frá íslandi geta Banda- ríkjamenn sprengt í loft - upp allan iðnað Evrópu Hitler skildi eins vel og Churc hill að ísland gat haft úrslita- gildi í heimshernaði, og þegar „big“ Iiob Williams, einn af helztu lierforingjum ameríska herflugsins, fer nú í borgaraleg an búning sem yfirmaður „Ice- land Airport Corporation“ og undirinenn hans í Keflavík fara úr einkennisbúningunum 5. apríl utanáskrift þeirra breytist úr APO 610 í Airport of Keflavík og þeir eru jafnframt látnir búa við íslenzk lög, þá stendur hitt óhaggað að herforinginn er eítir sem áður ábyrgur gagnvart her málaráðuneytinu í Washington. Ef til stríðs kemur — já, þá fyllist hinn risastóri flugvöllur í hraunauðninni Jiegar í stað af B 29-vélum með atómsþrengjum og langdrægum orustuvélum. Frá íslandi geta Ameríkumenn sprengt í loft upp allan iðnað Vesturevrópu og einnig öll rúss nesk iðnaðarhéruð bæði í Síber- íti og Úral. Ef Rússar gera á hinn bóginn Island að atómbækistöð, þá eru Ameríkumenn verr settir. Þá splundrast hinn fullkomni iðnað ur í Connecticut Valley, Detroit og Pittsburg. Þess vegna hafa Bandaríkin komið sér upp her- stöðvum bæði í Grænlandi og Alaska.. Ef til nýrrar heimstyrj aldar kemur, geta sjómenn á Ishafinu séð skammt undan æ- vintýralega atómvopnabaráttu yfir þveran norðurpól milli tveggja stærstu meginlanda heims. Christer Jáderlund“

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.