Alþýðublaðið - 03.09.1921, Side 1

Alþýðublaðið - 03.09.1921, Side 1
1921 Laugardagiira 2. september. 202. tölabl. Húsaleigan Og húsaver.ðið. Hámarksverð á húsaleigu. Jafafikjótt og fór að bera á því, að erfiðleikar væru á að ná í húsa- við og öaaur efni til húsagerðar, sáu húsabraskaramir sér leik á borði og tóku að bjóða hátt verð í hús manna. Margir létu ginnast af fjárhæðunum og seldu hús sia, 4 von um að sirfðið stæði .skamma stund ©g að þeir gætu, að því lokuu reist sér miklu veglegra hús, fyrir verð gamla hússins. En sú von brást og hefir enn brugðist, Afleiðiagin varð sú, að þessir menn urðu oft og tíðum að kaupa hús sía aftur, eftir nokkurn tíma, svo þeir befðu skjól yfir höfuðið. Og þá kostuðu þau vitaalega all- miklu meira en áður. Þeir töpuðu því á sölu sinni og húsin hækk uðu í verði En þetta var smá- ræði. Hitt var miklu verra, að húsin gengu og ganga enn kaupum og sölum milii húsabraskaranna, sem hækka verð þeirra í hvert skifti, og eru ýmis dæmi til þess, að hús hefir á skömmum tíma hækk að io—20 falt í verði. Og jafn- framt hefir húsaleigan hækkað. Vegna þess, hve alt efni til húsagerðar varð dýrt, drógu menn það í leogstu lög, að reisa ný hús, en ioks kom að því, að menn gátu ekki lengur beðið. Astandið í bænum var orðið hræðilegt. Þá var byrjað að reisa hús. Fiest sraáhýsi. Eu þó reistu ein- stakir menn nokkur hús, sem þeir leigðu út, því í húsnæðisvandræð unum urðu menn, nauðugir vilj- ugir, að hlíta þeim kostum, sem þeira voru settir, hversu harðir sem þeir voru. Þegar eitthvað er leigt af þessum nýju húsum, er leigan undatekningarlítið svo há, að allur almcnningur hefir ekki iarðarfðr Gifðna Guðnasonar, Bjarnaborg, er lézt þ. 24. f. m., fer fram frá Fríkirkjunni mánud. 5. þ. m. kl. 12 á hád. Sóldís Guðmundsdáttir. ráð á að veita sér svo rúmgott húsnæði, sem þörf krefur. Leigan er oftast frá 150 kr. tii 300 og 350 kr. á mánudi fyrir 2—4 her- bergi og cldhús. Vegna þess, hve leigan hækk aði gífurlega í nýju húsunum, ieið ekki á löngu unz farið var að færa hana upp að mun í gömlum húsum. Og hefði húsaleigulaganna ekki notið við, er ómögulegt að segja, hve húseigendur hefðu spent bogann hátt. Heiðariegar uadan tekningar eru þó til. Auðvitað var ekkert við því að segja, þó leigan í gömlum húsum hækkaði nokkuð, £ samræmi við það, sem efni tii viðhalds hækkaði, en meira hefði hún aldrei mátt hækka. Og að hækka leigu í hvert skifti, sem einhver smávegis viðgerð er gerð á gömlum ibúðum er hreint ekur, því vitaniega er gert ráð fyrir fyrningu húsa, þegar þau upp- hsflega, eru seld á leigu. Þeir, sem kunnugir eru í höf- uðborgum nágrannmiandanna segja hvergi jafn smánarlega okrað á húsnæðisvacdræðunutu og hér. Og ekki sízt á því, að húsnæði það sem leigt er, er oft og tíðum alis ekki macnabústsðir. En það er auðvitað að nokkru leyti því að kenna, að ekki er völ á beíra, og fólk er orðið því svo vant, að taka öllu með þoiin- mæði eða öliu heldur roluskap. Það lætur bjóða sér svo að segja aít, nöldrar kanske í bartn sér, en þar með búið. Því hugkvæm- ist ekki, sennilega af ótta við það, að verða sett út á götuna, að leita verndar húsaleigulaganna og heilbrigðis-samþyktarinnar. En ef menn gérðu það almént, yrðu þeir sr Jj Brunatryggingar 5 á innbúi og vörum hvergl ódýrari ©n hjá A. V. Tulinius vátryggingaskrifstofu Elms kipaf ó lags h ús 1 nu, 2. hæð. sem nota sér neyð fólks, innan skamms svo brennimerktir, að þeir mundu telja sig sæla, að verða sem minst á vegi laganna. Nú fellur efni til húsagerðar svo að segja daglega Það má því búast við verðfaili á húsum hér mjög bráðlega. Og jafnframt ætti húsaleigan auðvitað að lækka, ekki sízt vegna þess, að hún hefir mn langt skeið verið alt of há. Það er því afar-nauðiynlegt, að menn gleymi því aldrei að leita til húsaleigunefndar, ef einhver ætlar sér að hækka húsaleiguna að óþörfu. Neíndinni ber skyida tii að rannsaka málið og ákveða leiguna. Og þeitn úrskurði breytir enginn nema húsaleigunefnd sjáif. Þó mönnum sé þannig heimilt að leita aðstoðar nefndarinnar, vill svo verða í reyndinni, að þeir gera það örsjaldan, og fuilkomið samræmi og sæmilegt hóf verður nidrei á húsaieigunni, fyr en h&- marksverd hefir verið sett á, og það þyrfti að vera gert sem aiira fyrst.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.