Þjóðviljinn - 03.02.1949, Page 1
14- árgangur.
Fhnmí'udagur 3. febrúar 1949.
25. tölublað.
£F,R.
Málfur.dux* verður í kvöld
kl. 8,30 á Þórsgötu 1.
Umræðuefni: Atvinnuleysi
Leiðbeinandi:
Guðmundur Vigfússon.
býður Truman til fundar i Soy*
étríkjunum, Póll. eða Tékkoslóvakíu
E»akkar koð til Washington en getnr ekkt
farið svo laugt af hellforigðisásí æðuvn
Síðdegis í gær birti Parísarblaðið „France Soir"
svör Jóseís Stalíns við nýrri fyrirspurn frá Kings-
bery Smith, bandaríska blaðamanninum, sem bar
íram spurningarnar, sem birtar voru ásamt svörum
Stalíns um síðustu helgi, og þar sem Stalín lýsti
yfir, að Sovétríkin væru reiðubúin til að undirrita
friðarsáttmála ásamt Bandaríkjastjórn.
Þessi síðari yfirlýsing Stalíns
var svar við skeyti, sem Smith
sendi i fyrradag, þar sem hann
spurði hver væri afstaða Stalíns
til boðs Trumans forseta um
sð koma til Washington, og ef
hann gæti ekki þegið það, á
hvaða stað hann gæti þá átt
fund með Truman.
Stalín svaraði að hann væri
þakklátur Truman fyrir að
bjóða sér til Washington. Eins
og hann hefði sagt Roosevelt
í Jalta og Truman í Potsdam
hefði hann lengi óskað að koma
til Washington. Sem stendur
hvaðst hann ekki geta fullnægt
þessari ósk sinni, því að lækn-
ar leggðu blátt bann við því, að
hann færi í löng ferðalög, allra
sízt flugleiðis eða sjóleiðis.
Hinsvegar segist Stalín geta
lýst því yfir, að sovétstjórnin
myndi fagna þvi ef Truman
gæti komið til Sovétríkjanna,
og sjá sér fært að taka á móti
honum hvort heldur væri í
Moskva, Leningrad, Odessa,
Jalta eða Stalingrad. Ef Tru-
man sér sér ekki fært að koma
til Sovétríkjanna kveðst Stalín
reiðubúinn að hitta hann í Pól-
landi eða Tékkóslóvakíu.
Losnar um málbeinið
á Acheson.
'Bandaríkjamenn hafa sem
fæst viljað segja um yfirlýs-
ingar Stalíns og auðsjáanlega
verið í mestu vandræðum. En
Aivinniileysisskráningiif:
89 hafa verið skráðir
lasti skráningardagur er í dag —
Latið strax skrá ykkur!
Atvinnuleysisskráning hófst í Ráðningarstofu
Reykjavíkurbæjar í fyrradag og lýkur henni í kvöld.
í fyrradag komu 42 til skráningar en 42 í gær
eða samtals 89. Ekki hafði í gær unnizt tími til
þess að flokka hina skráðu eftir stétt og afkomu.
Allir sem komið hafa að höfninni undanfarið og
séð hópana sem orðið hafa frá að hverfa, án þess að
fá nokkuð að gera, þegar fullskipað hefur verio í
þau skip sem afgreidd hafa verið, vita að þessi tala
gefur langt frá því rétta hugmynd af atvinnuleysinu
sem þegar er komið.
Verkamenn, þið sem eruð atvinnulausir! Með
því að vanrækja það að láta skrá ykfcur eruð þið
sjálfir að hjálpa tii að hindra það, að nokkrar ráð-
stafanir verði gerðar til þess að þið getið fengið
vinnu.
Farið því strax í dag og iátið skrá ykkur.
Síðasti skráningardagur. er í dag, í Ráðningar-
stofu Reykjavíkurbæjar, Bankastræti 7, og hefst
skráningin kl. 10 f. h. og heldur áfram kl. 1 e. h.
og Jýkur H. 5 síðdcgis.
í gær leysti Acheson, utar.'.ik-
isráðherra loks frá skjóðunni.
Hann hvað Truman forseta
ekki sjá neina ástæðu til að fara
kringum hálfan hnöttinn vegna
svo lítilfjörlegs tilefnis sem yf
irlýsinga Stalíns. Bandarikja-
stjórn kvao Acheson ekki myndi
taka þátt í umræðum um nein
mál sem varða önnur ríki, án
þcss að þau taki þátt.
Rætt um félags
Kravsjenlío veit ekki, hvað stendur í
i, er hann þykist hafa skrifað!
VeEkamamiaflckksþingntaðtuinn Ziíliacus. fyrrver-
andi hrezkur njósn&ri í Sovétríkjunum, ber
viíni gegn Kravsjenko
Réttai’höMm í nieiðyrðamáli Viktors Kravsjenko, sem
á stríðsárunum strauk úr þjónustu rússneskrar verzlunar-
sendinefndar I Bandarík junum, gegn franska blaðinu „Les
Letters Francaises“ hafa nú staðið í viku í París og þrátt
fyrir aðstoð færustu Iögfræðinga hefur Kravsjenko fengið
hina verstu útreið.
gegn
meíni
Fundur til að undirbúa stofn-
un félags til varna gegn krabba
meini, var haldinn í fyrrakvöld
að tilhlutan Læknafélags Rvík-
ur í I. kennslustofu Háskólans.
Formaður undirbúningsnefnd
ar, Alfi’eð Gíslason setti fund-
inn. Níels Dungal prófessor
flutti erindi um krabbamein- Að
því loknu tóku margir til máls,
flest læknar, og hvöttu eindreg-
ið til félagsstofnunar.
Á fundinum var kjörin átta
manna nefnd til að undirbúa
stofnun félagsskapar til varnar
gegn krabbameini, og eiga þess
Konni Zilliacus.
ir menn sæti í henni: Níels Dun-
gal, prófessor, Alfreð Gíslason
læknir, dr. Gísli Petersen yfir-
læknir, Ólafur Bjarnason lækn-
ir, Katrín Thoroddsen læknir,
Sveinbjörn Jónsson hrlm., Gísli
Sigurbjörnson forstjóri, frú Sig
ríður Magnússon og Magnús
Jochumsson póstfulltrúi.
Norska stjórnin ætfar að „kynna
sér inntökuskilyrði í Atlanz-
hafsbandalagið*4
I gær var birt svar Noregsstjórnar við fyrirspurn Sovét-
stjórnarinnar um afstöðu hennar til hemaðarbandalags
Norður-Atlanzhafsríkja.
Norska stjórnin kveðst hafa
ákveðið, að kynna sér nánar,
hvaða skilyrði Noregur þurfi að
uppfylla til að geta tekið þátt
í Atlanzhafsbandalaginu.
Samþykkja ekki herstöðvar á
friðartímum
Norska stjórnin kveðst ekki
muni ganga að neinum skilyrð-
um, sem hefðu í för með sér
erlendar herstöðvar á friðartim
um.
Formælandi brezka utanrikis-
ráðuneytisins sagði i gær, að
í London væru menn mjög á-
nægðir með svar norsku stjórn-
arinnar.
Lausafréttir herma, að Banda
ríkjastjórn hafi hamrað það í
gegn þrátt fyrir andstöðu
Breta, að bjóða Italíu þátttöku
í Norður-Atlanzhafsbandalag-
inu.
Athugið
að símaniimer blaðsins eru
eftir kl. 6:
7501; prentsmiðjan.
7502: blaðamenn.
7503; riísíjórn.
Kravsjenko krefst þriggja
milljóna franka í skaðabætur
vegna þess að franski blaðamað
urinn Vurmser sagði í grein í
„Les Lettres Francaises", að
Kravsjenko hafi ekki skrifað
bókina „I Chose Freedom“, sem
gefin var út undir hans nafni
og þótt hefur setja met í sovét-
níði.
Hvernig lýkur „Brúðu-
heimilinu“ ?
Vurmser sagði, er réttarliöld-
in hófust, að hann stæði við allt,
sem hann hafði skrifað, og kvað
ekkert auðveldara en að sanna,
að Kravsjenko hefði ekki skrif-
að „I Chose Freedom". Síðan
lagði hann þessa spurningu fyr-
ir Kravsjenko:
„Hvernig lýkur leikriti Ib-
sens, ,,Brúðuheimilinu“ ?
Kravsjenko kom fyrst engu
orði upp. Svo rak hann upp
öskur, helti ókvæðisorðum yfir
Vurmser og veifaði handleggj-
unum í kríngum sig. Þegar
hann hafði verið róaður sagði
Vurmser:
,,Hr. dómsforseti, í bók Krav-
sjenko eru 2 síður um „Brúðu-
heimilið“ eftir Ibsen. Úr því að
Kravsjenlto gat elcki svarað
spurningu minní sannar það, að
hann hefur ekki sjálfur skrifað
bókina.“
Kvislingar vitni Kravsjenkos
Kravsjenko hefur leitt sem vitni
Rússa og Ukrainumenn, sem
neituðu að fara heim frá Vestur
Þýzkalandi eftir styrjöldina, af
þeirri góðu og gildu ástæðu, að
þeir höfðu á stríðsárunum gerzt
handbendi Þjóðverja og áttu
vísa refsingu.
I gær bar brezki Verkamanna
flokksþingmaðurinn Konni
Zilliacus vitni. Hann var um
tíma brezkur njósnari í Sovét-
ríkjunum og kvaðst geta borið
um, að ýmsar staðhæfingar í
„I Chose Freedom“ væru upp-
spuni frá rótum- Zilliacus sagði
að bókin væri einn þáttur í þeim
áróðri, sem nú er rekinn til að
undirbúa jarðveginn fyrir þriðju
heimsstyrjöldina.
„Les Lettres Francaises“ hcf-
ur kallað vitni frá Sovétríkjun-
um, þar á meðal fyrri konu
Kravsjenkos. Eru þau nú komin
t:I Pa.rísar.