Þjóðviljinn - 10.02.1949, Síða 8
Erlaiidei* og Endén Iiafna þátttökn í Átlanzhafsbanda
lagi; myndi draga Svíþjóð inn í kalda stríðið
„Aðalí'undur Félags bifvélavirkja, haldinn 31. jan. 1949,
Iítur svo á að með hinuni nýsamiþykktu dýrtíðarlögum ríkis-
í umræðum um utanríkismál í sænska þinginu í
gær kom greinilega í liós, að sænskir forystumenn
líta á hið fyrirhugaða Atlanzhafsbandalag sem árás-
arbandalag gegn Sovétríkjunum. Erlander, forsætis-
ráðherra sænsku sósíaldemókratastjórnarinnar sagoi
t. d. að Svíþjóð myndi ekki gerast aðili að Atlanz-
hafsbandalaginu, þar sem Svíar vildu ekki láta neitt
ríki fá land sitt til afnota til hernaðarundirbúnings
og ekki gefa neinu ríki tilefni til að halda, að land-
ið sé notað til árásarundirbúnings gegn því.
Erlander og Undén utanríkis-
ráðherrar gáfu skýrslu um af-
stöðu ríkisstjórnarinnar, sinn í
hvorri þingdeild.
Halda fast við hlutleysisstefn-
una.
Undén sagði, að Svíar gætu
ekki fallizt á það, sem sumir
héldu fram, að hlutleysisstefna
í átökum stórveldanna væri orð
in úrelt og til einskis nýt. Sví-
þjóð hefði búið við frið í 135
ár í skjóli hlutleysisstefnunnar
og ætlaði að halda því áfram.
Undén kvað Svía ákveðna i því,
að láta ekki dragast inn í kalda
stríðið milli stórveldanna. Hann
skýrði frá, að sænska stjórnin
hefði boðið Noregi og Dan-
mörku að mynda með þeim
skandinaviskt bandalag, er
fylgdi sem heild lilutleysis-
stefnu, en það hefði strandað á
andstöðu Norðmanna.
Danska stjórnin Ieitar upplýs-
inga um Atlanzhafsbandalagið.
1 danska þinginu fóru einnig
fram umræður um utanríkismál
í gær. Rasmussen utanríkisráð-
herra lýsti yfir fyrir hönd
stjórnarinnar, að hún áliti
skandinaviskt bandalag helzt
samsvara hagsmunum skandi-
navisku landanna og það væri
hvergi nærri útilokað að um-
ræður um myndun þess hæfust
á ný. Hinsvegar hefði danska
stjórnin nú leitað upplýsinga
um Atlanzhafsbandalagið og að
þeim fengnum verður ákvörðun
tekin um, hvort stjórnin æskir
eftir að Danmörku verði boðin
þátttaka í bandalaginu.
Sendiherrar Danmerkur, Nor-
egs og Svíþióðar í París gengu
í gær á fund Schumanns utan-
ríkisráðherra og ræddu við hann
um viðræður landa sinna undan
farið.
Acheson utanríkisráðherra
sagði í Washington í gær, að
hann hefði enn enga afstöðu
tekið til myndunar skandinav-
isks bandalags og væri fús til
að hlýða á allar röksemdir, er
það snertu. Lange utanríkisráð
herra Noregs mun ræða við
Acheson á ný, leggja af stað
heimleiðis á laugardaginn og
hitta Bevin í London á heimleið
inni.
Hverjir vildu segja Þjóðverjum
og Japönum stríð á hsndur?
í blaðinu Þjóðyörn, sem út kom í gær og flytur yfir-
leitt prýðilegar greinar, er því haldið fram aftur og aft-
ur með fyrirsögninni „Pólitísk buxnaskipti“ að sósíal-
istar hafi viljað Ir»';a segja Þjóðverjum og Japönum stríð
á heiidur: „Fyrir Rússa vildu kommúnistar á sínum
t*nm. að Island segði Þjóðverjum og Japömim stríð á
he’’dur“ o. s. frv. Þessi óskammfeilna staðhæfing c 1 ;k-
in óme't úr lygagreinum Morgunblaðsins og landsölu-
r»*u "em Ilcimdellingurinn Magnús Jónsson fh 'U i út-
varp’ð fyrir nokkru. Þjóðviljinn hefur yfirleitt ebki
ncim* að elta ólar við jafn rakalausan þv ‘ ting, en J á
fer slíörin vissulega að færast upp í bekkinn þegar
Þjóðvörn birtir áróðurslygar landsölumannanna.
Þessí s-aShæfr.ag um aS sóssalisiair hafi viiý-
að Iá':a Sslastd segja tveim sfórveldimt sfríð á
er upnsptmi frá rótvm. i»vert á móii
grelddu sásíalistar atkvæði gerjít þvl að gsng-
ið yrði að slíkri málaleitan
Engan þarf að undra þótt dollarablöoin víli ckki íyrir
sér að birta hvers konar ósannindi til að rugla almenn-
ing og spilla dómgreind hans, svo að auðveklara verði að
véla þjóðina inn í liernaðarbandalag. Ilió'; vekur meiri
furðu að þeir menn sem að Þjóðvörn standa skuli láta
blekkja sig til að birta dollaraáróðurinn í blaði sínu.
Það er ekki heiðarlegur málflutningur, og bjarnargreiði
við þann málstað sem þjóðvarnarmenn berjast annars
fyrir af miklum sóma.
Andstaðan gegn hernaðarbanda
lagi í Noregi og Danmörku.
Andstaðan gegn þátttöku í
Atlanzhafsbandalaginu fer stöð
ugt vaxandi í Noregi og Dan-
mörku. Jörgen Jörgensen, for-
maður Róttæka flokksins í Dan-
mörku hefur lýst yfir andstöðu
við þátttöku Danmerkur í banda
laginu. Bandalagsþátttaka,
sagði hann, mundi kljúfa
dönsku þjóðina í andstæðar fylk
ingar. 1 Osló sóttu 12.000 manns
útifund á Youngstorgi, sem hald
inn var til að mótmæla þátttöku
í Atlanzhafsbandalaginu. Þar
töluðu menntamenn, rithöfund-
ar og forystumenn verkalýðs-
félaga.
I gær barst Slysavarnafélagi
íslands mjög rausnarleg gjöf
frá ónafngreindri konu.
Afhenti hún frú Guðrúriu
Jónasson formanni kvennadeild
ar Slysavarnafólagsins í Reykja
vík gjöfina, sem er 8000,00 og
gefin er til minningar um lát-
I inn bróður gefandans. Er Slysa
! varnastarfseminni í landinu vel
j borgið á meðan það nýtur slíks
J stuðnings og hugarfars, sem
þessi gjöf sýnir.
(Frá Slysavarnafélaginu).
Hljómleikar Tón-
listarfélagsins
annað kvöld
Tónlistarfélagið hefur vegna
f jölda áskorana um að beita sér
fyrlr því að haldnir verði hér
í bænum í vetur nokkrir úrvals
tónleikar, þar sem flutt sé að-
gengilegt efni, ekki alltof þung-
meltanlegt og með hóflegu verði
á aðgöngumiðum. svo allir geti
- átt kost á að njóta hljómleik-
anna, snúið sér til nokkurra úr
hópi okkar beztu tónlistar-
manna.
i Er nú ákveðið að halda í vet-
ur 3 slíka hljómleika og eru
þeir fyrstu annað kvöld kl. 7 í
Austurbæjarbíó.
Efni á þessum hljómleikum
verður við allra hæfi, sem skyn
bera á góða tónlist og verð að-
göngumiða verður aðeins 10.00.
Á hljómleikunum annað kvöld
jleika þeir Wilhelm Lanzky-
Otto og Dr. Urbantscbitsch.
Fyrsta verkið á skránni er hin
vinsæla og stórfenglega c-moll
;partíta Bachs, en hún er í 6
köflum, symfónísk svíta eftir
Carl Nielsen og Polonesa Chop-
ins. Þessi verk leikur L-Otto
einn. Þá leikur hann eftirtalin
verk fyrir horn með undirleik
dr. Urbantschitsch: Sónötu í
þrem köflum eftir Paul Hinde-
mith, Rondo fyrir horn og píanó
eftir Mozart og Adagio og alle-
gro fyrir horn og píanó eftir
Róbert Schumann.
( Frá Tónlistarfélaginu ).
stjómarinnar og Alþingis sé gengið svo freklega á rétt og lífs-
afkomu launþega að ekki verði lengur við unað og telur óhjá-
kvæmilegv fyrir launþega, eins og nú horfir í þess'am málum
að athuga möguleika að nýjum hækkunum grannkaups eða öðr-
um raunhæfum aðgerðum í þessu efni.“
,.4ðalfundur Verkalýðsfélags Vestmannaeyja haldinn 30.
jan. s.I. samþykkti einróma mótmæli þar sem m. a. segir svo að
fundurinn telji „dýrtíðarlögin alls óhæf og ná engan veginn
þeim tilgangi er til var ætla:'., en með þeim er velt þunga dýr-
tíðarinnar yfir á herðar alþýðumanna og rýrð lífsafkoma verka-
fólks svo þótt það kunni að hafá vinnu verður afkoma þess í æ
ríkara mæli verri vegna síhækkandi nauðsynja- duldra wkatta í
gegnum uppbótafargan og sívillandi vísXölu.“
í niðurlagi samþykktarinnar segir ennfreinur svo: „Fundur-
j inn krefst þess einnig að afnumin verði lögin er binda dý.'.íðar-
uppbót á kaupgreioslu við 300 vísitölustig og verði kaup-fram-
vegis greitt með dý. ‘ Iðaruppb't efíir vísRöíu cins og hún reyn-
ist á hverjum tíma. Þá gerir funduriiin cnnírerouv þá kriifu til
stjórnar Alþýðusambands íslands að hún þegar í stað geri of-
anskráða tillög'n að barát'lumáli sínu.“
Gep skerðinp félagafrelsis
„Aðalfundur Vmf. Raufarhafnar haldinn 16. janúar 1949,
mótmælir eindregið frumvarpi Jóhanns Hafsteins o. 11. um
hlutfallskosningar í verkalýðsfélögunum og ölluni afskipt'um rík-
isvaldsins um innri mál verkalýðsfélaganna.“
„Aðalfundur Þvot'iakvennafélagsins Freyju, haldinn 30. jan.
1949, lýsir sig algerlega andvígan framkomnu frumvarpi um hlut
fallskosningar í verkalýðsfélögum og skorar á Alþingi að fella
frumvarpið.“
„Fundur haldinn í Prentmyndasmiðafélagi íslands 2. fcbr.
1949, samþykkir að fella framkomið frumvarp til laga um hlut-
fallskosningar í verkalýðsfélögunum, þar sem vér teljum það
árás á félagafrelsið í landinu og íhlutun um innri mál verkalýðs-
félaga af háifu löggjafar og dómsvalds."
EEdur í „Ghemia“
Efnagerðin Chemia, Höfða-
jtúni 10, skemmdist talsvert af
elíli og reyk í fyrrinótt.
Eldurinn kom upp í miðstöðv
arklefa í kjallara hússins, en j
slökkviliðinu tókst að hefta út-
breiðslu hans. Hinsvegar barst:
reykur til efri hæða hússins um l
lyftuop, og olli það talsverðum ;
skemmdum. Aðalskemmdirnar
urðu í herbergi, sem er uppyfir
miðstöðvarklefanum.
Eitduzfekinn samsönguz j
Mjög mikil aðsókn var að I
söngskemmtun Útvarpskórsins |
s.l. sunndag, og urou margirj
frá að kverfa. Því hefur verið
ákveðið að endurtaka hana
næsta sunnudag. Hefst hún
eins og í fyrra sinn í Dómkirkj
unni kl. 6,30. Söngskráin verð-
ur óbreytt og aðgöngumiðar
seldir á sömu stöðum.
Alfabrenna.
Skátar gangast fyrir Álfa-
brennu á íþróttavellinum i
kvöld og verður þar margt til
skemmtunar.
HnefaieiStaméft
Armanns í kvöld
Hnefaleikamót Armanns hefst
í Austurbæjarbíó í kvöld kl. 11.
Keppt verður í 6 þyngdarfl.
— I f jaðurvigt keppa Cuðmund
ur Karlsson og Davíð Haralds-
son, í léttvigt Ottó Malmberg
og Kristján Jóhannsson, í milli-
vigt Bragi Ásbjörnsson og Jón
Ólafsson, í veitivigt Björn Ey-
þórsson og Gizzur Ævar, í létt-
þungavigt Jóel Blómqvist og
Sigfús Pétursson og í þunga-
vigt Þorkell Magnússon og Guð
mundur Sigprðsson.
Auk venjulegra verðlauna
verða þarna veitt sérstök feg-
urðarverðlaun fyrir fegurstan
og drengilegastan leik.
Eftir keppnina verða sýndar
kvikmyndir af viðureignum ým-
issa heimsmeistara í hnefaleik,
og koma þar m. a. fram bessir:
Jack Dempsev, Schmeling, Billy
j Conn, Max Bea.r, Carpenticr
I og Joe Louis.