Þjóðviljinn - 02.04.1949, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.04.1949, Blaðsíða 1
VILJIN Æ. F. H. -wv\ 14- árgangnr. i,aiisardagiir 2. apríl 1949. 74. töi'ublað. Ilafnf irðinsar! Leshringur Æ.F.II. verður n.k. sunnud. kl. 4 c. h. í G.T.-húsinu (uppi). Leiðbeinandi verður Hauk- ur íleigason. Öllum er heimil þátttaka. ARLAUST AÐ VÍKJA ÚR BÆTT "IMPPK Hvífiiðasveitunum og hinum óðu lögregluþjónum ber að refsa, og draga til ábyrgðar formenn sfjórnarflokkanna sem stuðluðu að mannsöfnuði á Austurvelli og létu síðan siga á varnarlaust fólkið lögreglu og vopnuðum Heimdellingaskríl _ marsiuniawtiiiii iii.t.ii.íu-.,:. , ,,.. .1, Hvers vegna báðu Olafur Tliórs. Eysteinn Jónsson og SfeÉVm Jóhann ekki heióursgesti sina að vikja af Austurvelli áóur en lögreglu og ileiiii- dallarskrílnuin var skipaó til atlögu? Leppstjórnin íslenzka virðist nú hugsa sér til hreyfings að taka þegar að framkvæma næsta lof- orðið við bandaríksku húsbændurnar.íblöðum Banda ríkjaleppanna linnir ekki hótunum gegn ,,kommún- istum" en svo nefna þeir að nazista- og bandarísk- um sið alla stjórnmálaandstæðinga afturhaldsklík- unnar sem hrifsað hefur völdin í landinu og framið hin svívirðulegustu landráð í sögu þjóðarinnar. I blaði forsætisráðherrans er því lýst yfir í gær og haft eftir sakadómara að „mikil og víðtæk rétt- arhöld" séu „framundan út af atburðunum sem gerð- ust í fyrradag." Virðist þessi mikla og víðtæka rannsókn beinast að öðru en því sem þarna þarf að rannsaka, hinni ósvífnu framkomu Stefáns Jóhanns Stefánssonar, Eysteins Jónssonar, Ólafs Thors og lögreglustjérans, sem allir hafa á Alþingi verið bornir þeim þungu sökum að hafa vitandi vi*s stofn- að til óeirða og vandræða með því fyrst að stefna fólki að hinghúsinu og láta síðan gera á það óvið- búið kylfuárás lögreglu og óðs Heimdallarskríls og fyrirvaralausar gasárásir. Meðan þessir menn liggja undir hinni þungu kæru að hafa með þessu stofnað til óeirðanna er það skrípaleikur einn að setja rétt- arvélina í gang til að elta uppi unglinga þá sem köstuðu steinum í þinghúsið og þá menn sem í sjálfsvöm vörðust brjálæðisárásum Heimdallar- skrílsins og lögreglunnar. Enda þótt hin raunverulega ábyrgð hvíli fyrst og fremst á ríkisstjórninni og Ólafi Thors er það ský- laus krafa þjóðarinnar að lögreglustjóranum í Rvík, nazistanum Sigurjóni Sigurðssyni, verði tafarlaust vikið úr embætti fyrir embættisafglöp á miðviku- daginn. Áki Jakobsson alþingismaður dró aðalákværurnar á lögreglu stjóra þannig saman, er hann spurðist fyrir á Alþingi hvort gerðar hefðu verið ráðstafanir til að víkja honum frá: „1. Hann bannaði þingmönn- um að íara frjálsir ferða sinna út úr þinghúsinu, að þingfundi loknum. 2. Lögreglustjóri vopnaðj um félagsskap „F. II. S. Heim- dalli“ og hleypti þeim til þess í skjóli laga að berja á saklausu fólki. 3. Lögreglustjóri fyrirskipaði fyrst lögregluárás, síðan árás hins kylfubúna félagsskapar og loks táragasárásir, allt án þess að aðvara fólkið áður eða biðja Jiað að víkja frá húsinu, sem honum bar þó tímælala'ust með kylfum menn úr pólitísk- skylda til. 4. Loks gaf lögreglustjóri vís vitandi ranga skýrslu, þar sem hann heldur því fram að hann hafi aðvarað fólkið áður en liann hóf gasárásina. Þúsundir manna eru til vitnis um það, að þetta eru ósannindi.“ t nýju ,,skýringunum“ og af- sökunum stjórarblaðanna á at- burðunum staðhæfa þau aftur og aftur, að yfirgnæfandi meiri hluti fólksins á Austurvelli hafi verið friðsamir borgarar, en örfáir ,,kommúnistar“ ætl- að að taka Alþingishúsið með árás!! En þcir urðu smeykir, skömmustulegir og orðlausir ráðherrarnir, er þeir voru spurðir á Alþingi: Hvers vegna ávörpuðu forust'u- menn þingflokkanna ekki þessa heiíursgesti sína í há- talara og báðu þá að víkja frá, og skilja eftir „kom- múnistana“ í stað þess að siga lögreglu og Heimdallar- skríl í kylfuárás á þetta fólk og gera fyrirvaralaust tára- gasárásir til að sundra því? Seku mennirnir, sem vissu að þetta var gert til að egna til óeirða, og kenna „kommúnist- um“ um, gátu engu svarað. Lögreglustjóriitn Það er algert hneyksli og lýs- ir réttaröryggi reykvískra borg ara betur en flest annað að Bjarni Benediktsson skyldi ein- mitt velja nazistann Sigurjón Sigurðsson í embætti lögreglu- stjórans' í Keykjavík. Og það er gengdarlaus móðgun við Al- þingi að einmitt þessi maður, sem hvað eftir annað hefur sett. sig út til að svívirða Alþingi sem stofnun skuli svo að segja vera látinn taka ráðin í Alþing- ishúsinu dag eftir dag, láta und irmenn sína leggja hendur á þingmenn sósíalista og banna þeim loks útgöngu úr húsinu og stjórna þaðan árásum lögreglu og óðs Heimdallarskríls á frið- sama reykvíska borgara. Nazistinn Sigurjón Sig- urðsson hefur orðið: Bjarni Ben. þekkir sína. Hann var prófessor í háskólanum þeg ar Sigurjón Sigurðsson var þar að námi og starfaði opinberlega sem einn aðalleiðtogi nazista í skólanum, Sigurjón átti sæti í stúdentaráði sem opinber full- trúi nazista, var í ritstjórn naz- istablaðsins ,,Mjölnis“ og ritar þar margar greinar undir nafni, og kom þar fram sem fulltrúi nazista í útvarpsumræðum 20. apríl 1936. ' í greinum þessum er auðvelt að skyggnast inn í hugsanaheim þess manns sem stjórnaði lög- reglunni og heimdallarskrílnum á miðvikudaginn. Þar er hrúgað saman hreinræktuðum nazista- áróðri, en sérstaklega áberandi er fyrirlitningin á Alþingi. — 1 nazistablaðinu Mjölni segir Sigurjón Sigurðsson m.a. í jan,- febr. hefti 1936: „Árlega er kvödd saman sam- kimda sú, sem hefur sett ævar- andi hlett á hið forna Alþingi með þ\i að bera hið sama nafn. Svo algerlega er heiður Alþing- is þurrkaður út úr hugum manna, að lotning sú, sem lög- gjafarsamkundu ber, er ekki að eins þrotin, heldur henda menn dagsdaglega óspart gaman að því og einstökum þingmönnum þess.“ Nazistana dreymdi um að endurtaka meðferð Hitlers á verkalýðshreyfingunni. Sigur- jón Sigurðsson segir: Göbbelsbaráttan ,,gegn kommúnismanum“ „Það er í fremsta máta víta- vert að þing og stjórn skuli ekki nú þegar leysa upp þann pólitíska óaldarflokk, sem for- smáir og svívirðir trúarbrögð manna og góða siðu, lýsir opin- berri andstyggð sinni á lögum landsins og' hlýðir þeim í engu. Meirihluti þjóðarinnar veit um skaðsemi Kommúnistaflóhksins. Framh. á 5. síðu Eitt afrek lögreglustjórans: Ungt barn þungt haldið af gaseitrun Þegar livítliðaskríllinn var kominn á flótta á Austurvelli, kom lögreglan honum til hjálpar með því að kasta gassprengjum í allar áttir. Var þá enn mikið af börnum og konum eftir'á vellinum og komst margt í mikla hættu. M. a. lenti ein sprengjan við fætur ungs barns og gaus gasið framan í það. Það blindaðist alveg og varð að lijálpa því heim. Héfur }iað legið heima þungt baldið, með atokkbólgin angu og mjög sár- an verk í hnakkanum, þaimig að auðsætt er að gas- ið liefur liaft álirif á beilann. Er enn óséð livort barnið fær fulla sjón aftur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.