Þjóðviljinn - 03.05.1949, Page 3
Þrið'judagur 3. maí 1949.
ÞJÓÐVILJINN
3
ÍPRÓTTIR
Ritstjóri: Frímann Helgason
Lærðum mikið og sáum ú við
ttþji’óttasíðan hefur náð
tali af Guðmundi Guðjóns-
syni, fimleikamanni úr för
K. R. á 50 ára afmælismót
Dansk Gymnastik forbund.
Guðtnuúd'ur ’hefur stundað
leikfimi frá því hann var 8
ára og til þessa dags, en
hann er nú 27 ára. Þó féllu
4 ár úr en þá stundaði hann
sund með góðum árangri,
sem sigursæll keppandi fyr-
ir Ármann. Guðmundur seg-
ir frá förinni á þessa leið:
Flokkurinn sýndi fyrst
daginn sem hátíðin var opn-
uð, og tókst sú sýning eftir
ástæðum vel.
iSíðasta dag miótsins var
sýnt á sérstakri sýningu það
helzta og það sem ibezt þótti
hjá hverjum flokki fyrir sig.
þar vorum við beðnir að sýna
sökk á hesti.
Þá var okkur boðið að
sýna í Nyköbing á Falstri og
fórum við þangað ásamt
finnsku kvenna- og karla-
flokkunum og meisturum
Kaupmannahafnar. Tókst
setningin vel þótt aðstæða
væri slæm því sýnt var á
leiksviði sem hallaði. Þarna
var okkur skipt niður á
bóndabæi og tókust þar góð
kynni, og voru móttökurnar
þar og alstaðar hinar prýði-
legustu. Danskir fimleika-
menn létu þá skoðun í Ijós
að miðað við þann stutta
tíma, sem flokkurinn hefði
æft þennan tímaseðil, væri
árangurinn undra góður og
dýnustökk þau er við sáum
hjá fimleikamönnum á mót-
inu eru ekki betur gerð en
hjá okkar mönnum. Eigi að
síður lærðum við mikið á
þessari ferð.
GLÆSILEGAR SÝNINGAR
OG KEPPNI
Segja má að sænski
kvennflokkurinn „Sofiaflick-
orna”, sem sýndi fyrsta dag-
inn hafi sett allar aðrar
sýningar í skuggann, svo
glæsileg var sýning þeirra.
Þó fannst mér að heljar-
stökkin hjá þeim og fleiri
stökk sem þær sýndu, væru
full, „karlmannleg”.
Einn aðalþátturinn í þessu
móti var Norðurlanda-
keppni í 4 og 6 manna sveit-
um, og gafst okkur þar að
líta það bezta sem völ er á
Var leikni þeirra, sérstak-
lega Finnanna, alveg ótrú-
leg enda unnu þeir þessa
keppni.
SÁUM OG LÆRÐUiM
Fyrir okkur var það mikil-
vægt að sjá að tímaseðill
þessara manna var byggður
upp eins og okkar. Það var
okkur líka ljóst að við stönd-
um að flestuleyti langt að
baki þessum mönnum hvað
leikni snertir, en við erum á
sömu leið og þeir: Með hreif-
anlegar æfingar og áhöld.
Æfingar okkar á tvíslá eru
svipaðar þeirra en leikni
þeirra er meiri og æfingar
■ fleirri. Þessi keppni mun
koma okkur að notum þeg-
í staðæfingum þeiua var förum að æfa á þeim
mikil hreifing, tilbreitni, líf^ áhöldum sem notuð eru
og kraftur. ■ Inn á milli var milli.
Þessi mynd er af Finnunum þremur, sem urðu nr. 1, 2
og 3 á fimleikamótinu í Höfn. Lengst til hægri er Aimo
Tanner, sem varð nr. 1. Lengst til vinstri er Olavi Rove nr.
2 og við hfið hans Esa Seeste nr. 3. Fjórði maðurinn (ber-
höfðaður) er Ágúst Ingvarsson úr flekki K. R. — Finnar
þessir koma allir með fimleikaflokknum, sem kemur hingað
í boði Ármanns um miðjan þennan mánuð.
‘ y ** v ** « p ** v ** ** v** w » s * ft' ** $ v »•’
svo komið fyrir mjög erfið-
um æfingum . Áhalda-
æfingar þeirra voru ekki
síðri. Leikni þeirra á tvíslá,
svifrá og í hringjum var
mikil, og jafnvægislist
þeirra var unun á að horfa.
Þá sýndu þeir æfingar á sér-
stökum hesti sem við höfum
aldrei séð eða notað, ag voru
það skemmtil|egar œfingar.
Þessi keppni verður okkur
lærdómsrík og ógleymanleg.
Kvennaflokkarnir sem þarna
sýndu hafa svipaðar æfingar
og t. d. Ármannsstúlkurnar
hér sýna og virðist mér þær
fyllilega sambærilegar við
flokkana sem komu fram á
þessari hátíð.
við látið
sem ég
Vonandi getum
búa til hestinn
nefndi áðan.
Við höfum séð og lært að
það þarf líf og f jölbreitni' í
æfingarnar. Ungir menn þrá
það, og þeir eiga að byrja
snemma, fyrst sem leik og
síðar með markvissri þjálfun.
Ég trúi því að hér sé nóg'
ur efniviður ef æskunni eru
gefin þau tækifæri sem
vekja hana til Istarfa, og
þessi nýju kynni mín af
leigfimni sannfææra mig um
að þessir möguleikar eru til
Satt, að segja finnst mér að
eg vera að byrja upp á nýtt
en þó er ég því miður orðinn
27 ára.
Fram vann K.R.,
Eins og sagt hefur verið frá,
áttu leikir fyrri umferðar
Reykjavíkurmótsins að byrja
19. apríl en vegna tiðarfarsins
varð að fresta tveim fyrstu
leikjunum. Síðastliðinn fö'átud.
fór sv’o fyrsti leikurinn fram,
og voru það KR og Fram sem
áttust við. Leikskilyrði voru
fremur slæm, suðvestan storm-
ur og mjög kalt í véðfi. Á veðr-
ið sjálfsagt nokkurn þátt í því
að fremur lítil knattspyrnutil-
þrif komu fram í þessum leik.
Þó brá þeim fyrir í báðum lið-
um. Fyrstu 10—15 mínúturnar
hjá KR, móti vindi, lofuðu nokk
uð góðu, en það var; eins og
hraði og ákafi Framaranna
setti KR-inga úf af laginu og t.
d. var síðari hálfléikur' riokkuð
jafn, þó Fram sækti móti vindi,
en þar stóð meira dugnaður á
bak við en skipulegur leikur.
Untantekningarlítið má í fullri
vinsemd benda þessum 22 mönn
um, sem þarna lcepptu á, að
mikill hluti knattspyrnunnar er
hugsun og aftur hugsun, og það
er hægt að hugsa þótt kalt sé
í veðri. Fyrri hálfléikinn lá
mjög á KR og voru Framarar
oft nærgöngulir marki KR. Má
þar nefna skot Rikarðs af 20
| m. færi, leiftur snöggt og fast,
er kom í stöngina og skall nið-
ur rétt framan við marklínuna.
Með löglegum marksúlum hefði
Eram sett þarna mark, en súl-
ur og þverslá eiga að vera
i hringlagaðar, sú hliðin sem
veit að vellinum og verður
sennilega ekki langt að bíða að
þetta verði lagað. Það var ekki
fyrr en 10 mín. voru eftir af
leik að Fram gerir fyrsta mark
sitt, og litlu fyrir leikslok gerir
Magnús Ágústsson annað mark
ið.
KR átti einstöku áhlaup móti
vindi og að marki Fram, en
flest voru þau hættulaus. Þó
náði Ölafur Hanness. góðu ská
skoti, en knöttupinn fór í þver-
slá og út á völl aftur. Síðari
hálfleikur var jafnari eins og
fyrr segir, og settu Framarar
þá þriðja markið (Rikarður) og
er 15 mín voru eftir af leik
gerði Hörður mark fyrir KR.
Framlína KR gat aldrei veru-
lega sameinast um verkefnið.
Ýmist voru þeir of langt liver
frá öðrum eða þrengdu hver að
öðrum, þeir fengu þó oft góða
aðstoð frá Óla B.
Lárus, miðframherji Fram
kom oft með óvæntar
skiptingar út á „kantana", scm
komu vörn KR oft í opna
skjöldu. Sérstakl. í síðari hálf-
leik'var Sæmundur oft þarfur.
Liðin voru svo að segja ó-
breytt frá því í fyrra og verður
— Sigurdagur
Framh. af 1. síðu.
Jafnvel hiniz 927
skráðu —
Þrátt fyrir niðurlægingu rík-
isstjórnarinnar sem birtist á
Lækjartorgi var það athyglis-
verð samkunda. Þar voru gaml-
ir nazistar mættir, á fund boð-
aðan í nafni Álþýðusambands
íslands — og glottu illkvittnis-
lega. Atvinnurekendur horfðu
ýmist á kröfugöngu alþýðunn-
ar eða eymd „sinna manna“ —
og svipur þeirra stirðnaði í
grettu. Hvítliðárnir hvimuðu
augum flóttalega. Afætulýður-
inn var fúll og niðurdreginn.
Uppskeran hafði brugðizt. Jafn
vel einkaher $jálfstæðisflokks-
ins, hinir 927 skráðu, neituðu
að láta stilla sér á Lækjartorg
1. mai. .
„Mvair er hitf merkið
afgreitt?"
Líklega hefur þó fátt sýnt
hug reykvískrar alþýðu þenna
dag, betur enl.maí-merkið.Hvar
vetna um allan bæinn var fólk
með merki Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna. Merki klofnings
'mannanna sást varla. Þegar
blessuð börnin höfðu reynt að
selja það nokkurn tíma spurðu
þau: „Hvar er hitt merkið af-
gi’eitt?“ Þau vildu fá að selja
merkið sem allir vildu kaupa. ,
Reykvísk alþýða
ksefst béfa fyrir
kjaraskerðingar
©g álögnr
Á fundinum við Miðbæjar-
skólann fluttu ræðumenn kröf-
ur reykvískrar. alþýðu. Ræðu-
menn voru: .Hannes Stephen-
sen, varaform. Dagsbrúnar, Jón
as H. Haralz, fulltrúi Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja,
Hallgrímur Jónasson kennari
(er talaði fyrst og fremst um
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn-
ar), Finnbogi Júlíusson fulltrúi
Iðnnemasambandsins, Stefán
Ögmundsson prentari, Inga H.
Lárusdóttir ritari Hárgreiðslu-
sveinafélagsins og Eggert Þor-
bjarnarson formaður Fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna.
1. maí sýndi vilja reykvískr-
ar alþýðu. Meginkrafa dagsins
var 'um fullar bætur fyrir launa
Iækkanir vísitölulaganna og
aðrar árásir sem ríkisstjórn
auðmanna hefur gert á kjör al-
mennings. Undir þá kröfu verka
lýðssamtakanna og fána þeirra
fylkti alþýða Reykjavíkur sér
þenna dag.
því að gera meiri kröfur til
þeirra. Vonandi hlýnar og lygn
ir og þá sjáum við til.
Dómari var Helgi Helgason.
Jarðarför niannsins míns,
Gaðmundar Matthíassonar
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 5. maí og
liefst með húskveðju að heimili hans, Lindargötu
23 kl. 1. e. h.
Blóm og kransar afbeðnir.
Jarðað verður I gamla kirkjugarðinum.
Sigurrós Þorsteinsdóttir.