Þjóðviljinn - 03.05.1949, Blaðsíða 4
'4
ÞJÓBVILTINN
Þriðjudagtir 3, maí 1949.
VILJINN
íjtxefandJ; Samelningarflokkur alþýöu — SósiaUstaflokkminn
Ritatjórai: Magnú±> Kjartansson. Slgurður Guðmundsson (áb>.
Fréttaritstjórl: Jón Bjarnason.
BlaSam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólaíaaoo, Jónaa Árnasoa,
Rftstjórn, afgreiSsla, augiýsíngar, prentsmiSja, SkóiavörSu’
stig JB — Sími 7500 (þrjár iínu r)
Áskrií'arverS: kr. 12.00 á mánuCl. — LauaaaðluvarS 50 aur. siat
Prantscnlðja ÞjóðviIJana h. I,
Sódalistafiokkurian, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár línur)
,B r,.J\llF0STIISI\\
Hrakfarir þríflokkanna —
sigur alþýðusamtakanna
Enn einu sinni svaraði reykvísk alþýða hræsnisáróðri
samstilltra afturhaldsblaða og trylltum æsingum þriggja
stjórnmálaflokka gegn verkalýðssamtökum og sósíalistum,
svaraði svo eftirminnilega 1. maí að lengi mun svíða undan.
Þrír stjórnmálaflokkar, Alþýðuflokkurinn, Sjálfstæðisfl. og
Framsóknarfl. urðu að athlægi Reykvíkinga 1. maí, og það
þola stjórnmálaflokkar þessir ekki, eftir áföllin sem þeir
hafa orðið fyrir undanfarið.
Högg þríflokkanna var hátt reitt, svo hátt að allir Reyk-
víkingar hlutu að taka eftir því. Þrír stjórnmálaflokkar,
sem hlotið hafa fyrir þremur árum um 17 þús. atkvæði
fullorðinna manna í Reykjavík, berja dag eftir dag bumbur
áróðurs og æsinga í fjórum dagblöðum bæjarins af fimm,
setja flokksvélar sínar í gang, allt í sama tilgangi að afla
þátttöku í útifundi í hjarta Reykjavíkur, Lækjartorgi.
Þessi staður er svo vel settur, að meira að segja Sigurður
Sveinbjarnarson og trúboðar Filadelfíusafnaðarins fá þar
álitlegan söfnuð áheyrenda, hvenær sem þeir boða þar til
fundar. Og ekki var nóg að þrír stjórnmálaflokkar, Alþýðu-
flokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur-
inn, með f jögur dagblöð og flokksvélar stefndu fylkingum
fylgjenda sinna í Reykja\tk að bezta fundarstað borgarinn-
ar þennan 1. maí. Þríflokkarnir höfðu háspil á hendinni,
flokkur Éggerts Claessen og Thorsarahyskisins og flokkur
Vilhjálms Þórs og Jóns Ámasonar voru komnir í þa að-
stöðu að geta flaggað með nafni Alþýðusambands Islands,
nafni sem er íslenzkri alþýðu kært og dýrmætt þó oft hafi
það verið misnotað.
Höggið var reitt hátt, svo hátt að allir Reykvíkingar
voru farnir að fylgjast með því hvað úr þessu yrði, og
ekki einungis þær þúsundir manna sem gengu tvisvar yfir
Lækjartorg meðan fundur þríflokkanna stóð, heldur margir
aðrir gerðu sér ferð að Lækjartorgi til að sjá árangurinn
af herútboði þriggja stjórnmálaflokka sem fyrir þremur
árum höfðu um 17 þús. fullorðna fylgismenn í Reykjavík.
Árangrinum þarf ekki að lýsa fyrir Reykvíkingum. í
gær brostu þeir að klámhöggi þríflokkanna og það bros
verður sjálfsagt að skellihlátri í dag er þeir sjá tilburði
'hinna burðamiklu flokka að hagræða staðreyndum um
fundinn á Lækjartorgi og þátttöku í 1. maí-hátíðahöldum
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, eijtir fordæmi Jóns
sterka: Sáuð þið hvernig ég tók hann!
Hátíðahöldin 1. maí 1949 urðu enn ein staðfesting þeirr-
ar dýrmætu reynslu að reykvísk alþýða fyrirlítur tilraunir
afturhaldsins að lama verkalýðssamtökin, fýrirlítur fimmtu
herdeildarstarfsemi Alþýðuflokksbroddanna sem reynt
hafa að afhenda flokki Eggerts Claessens og Thorsara-
hyskisins áhrifaaðstöðu innan samtaka alþýðuimar. Þau
urðu staðfesting þeirrar reynslu að reykvísk alþýða fylkir
sér fast um hagsmunakröfur sínar. Þeirrar reynslu að hún
notar hvert tækifæri til að sýna andúð og fyrirlitningu
flokkum þeim og mönnum sem ófurselja ísland herveldi
Bandaríkjanna, hvert tækifæri til að votta fylgi sitt sjálf-
stæðis- og framfarastéfnu vjrkálýðshreyffngarinnar.
Þróttmiklar fylkingar reykvískrar alþýðu 1. maí undir
merkjum Fulltrúaráðs vjrkalýðsfélaganna og hrakfarir
þríflokkanna ekki síður, sýná eitls skýrt óg verða má að í
Reykjavík liggur þungur straúmur til vinstr'f, til Skilnings
á því að í Reykjavík á alþýðan að ráða en ekki duglausar
Og fylgisrýrar broddaklíkur hitls þríéina afturhálds.
Glæsilegm* áagur.
Oft hefur 1. maí orðið
glæsilegt tákn urn félagslegan
þroska reykvísks verkalýðs, oft
hefur afturhaldið mátt skelfast
fyrir þeim samtakamætti sem
dagurinn leiddi í ljós. Samt er
það svo að í þetta sinn
reyndist 1. maí stórfenglegra
tákn um styrk og þroska
verkalýðsins en nokkurn tíma
fyrr. Annað getur ekki orð-
ið álit þeirra sem sáu kröfu-
göngu Fulltrúaráðsins í fyrra-
dag og fund þess við Miðbæjar-
skólann, hafandi til samanburð-
ar hiná ömurlegu halelújasam-
kundu stjórnarflokkanna
þriggja á Lækjartorgi.
★
Ömögulegt annað én
brosa.
Það er auðvitað ekki gustuk
að skopast að óförum náung-
ans, en hvernig gat maður kom-
izt .hjá að brosa, þegar hin
mikla kröfuganga Fulltrúaráðs-
ins fór framhjá Lækjartorgi,
þar sem örfáar manneskjur
stóðu á fundi, sem haldinn var
að tilhlutan heilla þriggja
stjórnmálaflokka, fundi sem
undirbúinn hafði verið með
margra daga æsingafullum á-
róðri í öllum blöðum íslenzku
ríkisstjórnarinnar. Það er satt,
sem maður nokkur sagði í þessu
sambandi: ..Jafnvel skilnings-
sljóustu ráðherrunum ætti nú
að vera ljóst, að þjóðin hefur
á þeim mégnustu óbeit og fyrir-
litningu. Það er ótrúlega smekk
laus ríkisstjórn sem leyfir sér
að sitja við völd eftir slíka út-
reið.“
Aftur deyfð í æskulýðs-
Iiallarmáliiiu.
„Unglingur" skrifar:
„.. Snemma í vetur færðist mik-
ið fjör í æskulýðshallarmálið.
Öll æskulýðsfélög bæjarins virt
ust vera að ganga í það með full
um krafti. Söfnunarlistum var
dreift út um allt, og gátu menn
ýmist skráð sig fyrir fjárgjöf-
um eða loforoum um vinnu við
byggingu hallarinnar. Áróður
mikill var rekinn í biöðum og
útvarpi. Sem sagt, allt virtist
benda til þess, að málinu yrði
nú loks fylgt fram til sigurs
með kraftmiklu, sameiginlegu
átaki æskunnar í bænum. En
síðan ekki söguna meir.
★
S, I. B. S.
til fyrirmyndar.
„Því það er saiinast mála, að
hugmyndin um byggingu æsku-
lýðshallar virðist aftur vera að
gleymast, ganilá déýfðin leggst
enn á ný yfir fra'mkvæmd henn-
ar. Og þetta héfur orðið: mér
og fleirum mikil vonbfigði....
En hver er nú á’stæðan? Getur
þáð húg3azt, að æskulýðiir bæ-j-
arins sé svona dáðlaus......
Mega ekki öll hin stóru æsku-
lýðsfélög skammast sín, þegar
þau gera samanburð á atorku-
semi sinni í þessu efni og dugn-
aði annarra samtaka, sem berj-
ast fyrir skyldum hugsjónum.
Tökum t. d. S. I. B. S. Hvenær
verður lát á elju þess félags-
skapar, þegar hann er að
hrinda í framkvæmd áhugamál-
um sínum?.......Já, svo sann
ariega mætti reykvískur æsku-
lýður taka sér til fyrirmyndar
kjark og dug þess fólks, sem
í heilsuleysi vinnur hvert af-
rekið á fætur öðru, og það svo
að menningarstarf þess er orðið
frægt víða um lönd. Unglingur.“
Brezki áróðurinn nægir
ekkl.
1 gærmorgun hitti ég á götu
mann nokkurn, sem sagði, að
frétt.ástofa ísl. útvarpsins ætti
það til að auka frá eigin brjósti
áróðursgildi brezku útvarps-
fréttanna gegn framfaraöflúm
heimsins. Nefndi hann nærtækt
dæmi. I fyrradag hefði brezka
útvarpið sagt frá kröfugöngu
kommúnista í London 1. maí
„sem lögreglan var látin
tvistra." í kvöldfréttum ísl. út-
Várpsins hljóðaði þessi sama
frétt hinsvegar svona: „Komm-
únistar reyndu að efna til kröfu
göngu inn á Trafalgar Square,
en mikill mannfjöldi, sem þar
var fyrir, aftraði því.“ — Þann-
ig segist maðurinn oft hafa
veitt því áthygli, að ísl. útvarps
fréttamönnum þyki ekki nóg
um áróðursgildi brezku frétt-
anna, og geri þeir sér þá lítið
fyrir að skálda inn í frá eigin
brjósti.
SkjaldbreiS fer frá Reykjavík á
morgun til Húnaflóa- Skagaf ja.rðar
og Eyjafjarðarh.afiia. Þyrill var
• í Hvalfirði í gær.
E I M S K I P :
Brúarfoss fór frá Antwerpen
29.4. til Reykjavíkur. Dettifoss cr
í Reykjavík. Fjallfoss er í Antwerp
en. Goðafoss fór frá N. Y. 29.4. til
Reykjavíkur. Reykjafoss fór frá
Kaupmannahöfn 30.4. til Reykja-
víkur, Selfoss kom til Reykjavíkur
í fyrrad. frá Leith. Tröllafoss e'r
t Reykjavík. Vatnajökull fór frá
Vestmannaeyjum 30.4. til New
Castle-on-Tyne. Laura Dan kom til
Reykjavikur x fyrrad. frá Antv/erp
en.
Heklá fór tií Prest
víkur og Kph. kl. 8
í gærmorgun, meö
ca. 30 farþega.
Kemur hingað á
morgun. Geysir er í Reykjavík.
Flugvélar Loftleiða fóru til Akur-
eyrar, Vestmannaeyja og Vest-
fjarða í gær. Gullfaxi fór í gær-
morgun til Préstvíkur og London.
Væntanlegur kl. 5—6 í dag. Vélar
F. 1. fóru í gær til Akureyrar, Ve'st
mannaeyja og Austfjarða.
19.00 Barnatími:
(frú Solveig Pét-
ursdóttir). 19.30
Þingfréttir. 20.20
Tónleikar Tónlist-
arskólans. 20.45 Er
indi: Greind og frjósemi; fyrri
hluti (dr. Simon Jóh. Ágústsson).
21.10 Tónleikar: „Svanavatnið,"
balletmúsik op. 2Ö eftir Tschai-
kowsky. 21.45 Upplestur: „Vegir
mætast,“ smásaga eftir Soffíu Ing
vardóttur (höftjndur les). 22.05 Vin
sæl lög. 22.30 Dagskrárlok.
Aðalfundur Þjóðvarnarfélagsins
veröur haldinn í kvöld 1:1. 8.30 í
Breiðfirðingabúð. Flutt verður
skýrsla um störf stjórnarinnar,
rætt framtíðarstarf félagsins og
kosin ný stjórn.
Hallgrímskirkja. Kvöldbænir og
Passíusálmasöngur í kvöid kl. 8.
tt O F N I N.
í gær kom Skúli Magnússon frá
útlöndum og Isólfur af veiðum.
Katla kom frá útlöndum og fer til
Borgárness. Þá komu hingað:
Grimsö, tveir enskir togarar, L,aura
Dan, nokkrir færeyskir togarar,
einn hollenskur togari og annar
pólskur. Einn færeyskur togari fór
héðan.
ÍSFISKSALAN:
Göðanes seldi 29. f. m. 4021 kits
fyrir 9835 pund í Hull. 26. seldi
Geir 291 lest í Bremenhaven. 27. f.
m. seldi Elliðaey 272,5 lestir í
Bremenhaven.
Einarsson & Zoega:
Foldin fór frá fteykjavík á laug
ardagskvöld til Hull, fermir í Hulí
þann 6. Spaarnestroom fór frá
Akranesi kl. 14.00 á laugardag til
Amsterdam. Lingestroom er í Fær-
eyjum.
RIKISSKIP:
Esja er í Reykjavík. Hekla fer
frá Reykjavík í kvöld austur um
land í hringferð. Herðubreið éV
vaéhtanlég til Reykjavikur' i dag.
Hjónup.um Elísa-
, ■ % - betu Þorkelsdóttur
^ /jj ^ og Bjarná Einars-
í jri\ \ syni, Bjarnarst. 12
, & v fæddist 18 marka
sonur í gær. Hjón-
unum Guðríði Einarsdóttur og
Jóni Þorkelssyni, Grenimel 8 fædd-
ist 15 marka sonur 29. apríl. Hjóii
unum Rakel Guðmundsdóttur og
Garðari Þorsteinssyni, Korpúlfs-
stöðum fæddist 20 marka sonur 26.
apríl.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband, ung
frú Þóra Stef-
ánsd. sauma-
kona og Alfreð
Sæmúndsson iðnnemi. Heimili
ungu hjónanna er íMeðalholti 4.
0_/
Hvöt, málgagn
bindindisfélaga
í skólum, 2.
hefti þ. á. er
komið út. í heft
inu er þetta
efni m. a.: Ferðasaga (Ingólfur A.
Þorkelsson). Góður vinur (saga,
Guðrún Kristjánss.). Ræða (Snorri
Jónsson). Requiem of past and
future (kvæði, Ásta Sigurðardótt-
ir). Endurminning (Sigurð Guð-
mundsson). Úr skólalífinu. Tvö
kvæði (Högni Egilsson). Iþróttá-
kennarinn og áfengið (Hjörtur Þór
arinsson) Handknattleiksmót S. B.
S. (Björn Önundarson Ávarp (1. B.
Þ.) Leggjum hönd á plóginn (Jón
Norðdahl). Skákþáttur (Jóri Böð-
varssori). Saintíöin, 4. hefti þ. á,
er komin út. Efni: Misnotum ekki'
Útvarpið. Athafnasamur Armeníu-
riiaður í Bandaríkjunum, samtal
við A. E. Papazian forstjóra. Útvál
in þjóð, eftir Loft Guðmúndssóri.
Raddböndin kvikmynduð, (tækni
þáttur). Meðan húsið svaf. /Steop-
Sögur o. fl.