Þjóðviljinn - 04.05.1949, Side 5
ÞJÓÐVILJINN
\
Miðvikudagur 4. maí 1949.
• U HU
5
Frá og með deginum í dag, mun verzlunin gera íólki auðveldara að prýða heimili sín með hinum glæsi
legu húsgögnum, sem hún ávallt heíur á boðstólum, með því að selja húsgögnin
Eftirtalin húsgögn eru ávallt fyrirliggjandi
Innskotsborð.
Skrifborð.
Eitvélaborð.
Borðstofustólar.
Eldlmsstólar, margar teg.
Garðstólar..
Garðsett.
Píanóbekkir.
Straubretti.
Ermabretti.
Kamínur.
Baðspeglar.
Barnabaðker.
Barnapúlt.
Kommóður, margar te:
Standlampar.
Vegghillur.
Blómasúlur.
Stofuborð.
Borðstofuborð.
Sófaborð
Spilaborð.
Eldhúsborð.
Útvarpsborð.
Borðstlofuskápar, margar teg.
Bókaskápar, margar teg.
Sófasett.
Svefnsóffar.
Armsóffar
Armstóiar.
Dívanar.
Svefnlierbergissett.
Klæðaskápar, margar teg.
Barnarúm, með eða án dýnu.
Rúmfatakassar.
Barnagrindur.
Laugaveg 118—Kiapparstíg 26 — Vestusgöiu 21 — Símai 4577 — 5867
Réttvisin I þ’iónustu lyginnar:
bann
menningi verði sýndar kvikmyndir af
lunum 30. man.
í Bandaríkjunum eru hinsvegar sýndar falsaðar kvik
myndir af þessum sömu atburðum
Atburðirnir á Austurvelli 30.
inarz lifa ekki aðeins í endur-
minningu þúsundanna sem tóku
þátt í þeim og blaðaskrifum
þeim og umræðúm, sem síðar
hafa orðið, heldur voru þeir
festir á kvikmyndir. Kvik-
myndir þéssar eru einstæð
sönnunargögn um það, hvað
raunverulega ' gerðist þennan
dag, hvernig það gerðist og
hvar sökudólganna er að leita.
Nokkrar þessara kvikmynda
éru nú tilbúnar til sýninga, og
hafa þegar verið sýndar völd-
um einstaklingum. Þegar um
það fréttist kröfðust lögreglu-
stjóri og sakadómari þess að
fá að sjá þær og var að sjálf-
sögðu látið að kröfum þeirra.
Myndirnar höfðu slík áhrif á
þessa yfirmenn réttvísinnar að
þeir lýstu yfir þvifi að myndir
þessar mættu alls ekki koma
fyrir almenningssjónir og lög-
reglustjóri gekk svo langt að
hann kvaðst myndu banna það
í krafti embættis sins að þessar
myndir yrðu sýndar. Höfðu
myndir þessar þá verið boðnar
kvikmyndahúsum hér til sýn-
inga, en væntanlega verður því
boði ekki tekið nema lögreglu-
stjóri heykist á ný á banni
sínu.
Hins vegar hafa Bandaríkja-
menn komist yfir kvikmynd hjá
einum islenzkum ljósmyndara,
klippt hana sundur, skeytt
hana saman og falsað hana og
sýna hana nú ásamt fleiri
fréttamyndum fyrir vestan haf.
Ástæðan til þess að lögreglu-
stjóri hefur lagt bann við sýn-
ingu kvikmyndanna er að sjálf-
sögðu sú, að þær sýna atburð-
ina eins og þeir gerðust í raun
og veru. Þær sýna hinn frið-
sama, rólega mannfjölda sem
vottar andstöðu sína við land-
ráðin með því einu að hrópa í
kór: þjóðaratkvæði, þjóðarat-
kvæði. Eina „ólöglega" athæfið
sem gerist er að nokkrir
stráklingar sjást henda eggjum
og ganga um með spýtur og
að lögregla ,,afvopnar“ þá með
friðsemd og spekt. En annars
er mannfjöldinn fyllilega róleg-
Oir, karlmenn sjást reykja píp-
ur sínar í makindum og lesa
Vísi!
Því næst sést hvernig hvít-
liðarnir geysast út í þennan
mannfjölda, óðir og lemja á
'báða bóga. TrjHingur þeirra er
sannaður þarna á þann hátt,
er ekki verður hrakinn og hin
sneypulegu bardagalok þeirra
sjást einnig fullvel. Það sést
einnig, hvernig a. m. k. tveir
lögregluþjónar missa alla
stjórn á sér eins og versti liluti
hvítliðaskrílsins. Þá sanna kvik-
myndirnar að gasárásin var
framkvæmd í því skyni einu,
að bjarga hvítliðunum þegar
þeir voru komnir í algera sjálf-
heldu, afvopnaðjr og frá sér af
skelfingu.
Það er þetta sem Rej'lcvík-
ingar mega ekki sjá, sannleik-
urinn um atburðina 30. marz.
Enda er það eðlilegt. Þessi sam-
tímagögn hrekja á óvéfengjan-
legan hátt það lygakerfi, sem
stjórnarliðið hefur byggt úpp
undanfarinn mánuð með súrum
sveita. Þau sanna að yfirheyrsl-
urnar og fangelsarnirnar eru
ofsóknir og ekkert annað en
ofsóknir, að sökudólgana er að
finna í hópi hvítliðanna og lög-
regluliðsins og þeirra manna,
sem æstu þennan lýð til hryðju-
verka sinna.
Afstaða lögreglustjórans er
því mjög vel skiljanleg, þótt
hún varpi einnig skýru ljósi á
réttarfarið í landinu á því
herrans ári 1949. Hitt er svo
annað mál, hvort lögreglustjór-
inn hefur nokkra heimild til að
banna kvikmyndasýningar eins
og þessar. Að minnsta kosti
virðist það ekki samrýmast vel
fréttafrelsi í landinu, þótt það
sé í algeru samræmi við frelsis-
hugmyndir þær sem Banda-
ríkjalepparnir framfylgja.
Drengjaglíma
Ármanns
Einar Einarsson vinmir
„Sigurjóns-skjöldinn"
Föstudaginn 29. apríl var
háð Drehgjaglíma Ármanns í
húsi Jóns Þorsteinssonar. Kepp-
endur voru 13 og þeim skipt í
tvo flokka, eftir þyngd.
Úrslit urðu þessi:
I. flokkur, drengir 60 kg og
þar yfir: 1. Einar Einarsson 5
vinningar; 2. Gauti Arnþói’s-
son 4 viriningar; 3. Yngvi Guð-
mundsson 3 vinningar.
II. flokkur, undir 60 kg: 1.’’
Baldvin Þórir Þorsteinsson 6
vinningar; 2. Haraldur Elling-
sen 5 vinningar; 3. Kristían
Karlsson 3^4 vinningur.
Einar Einarsson vann að
þéssu sinni Sigurjónsskjöldinn,
sem gefinn var af Þórði Helga-
syni fyrir mörgum árum. Þátt-
takendur voru flestir drengir,
sem sótt hafa glímunámskeið
félagsins í vetur og sýndu þeir
furðanlega mikla kunnáttu, eft-
ir ekki meiri æfingu. Námskeið-
ið var að þessú sinni mjög vel
sótt. Kennari drengjanna er
Þorgils Guðmundsson frá
Reykholti.