Þjóðviljinn - 04.05.1949, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 04.05.1949, Qupperneq 5
ÞJÓÐVILJINN \ Miðvikudagur 4. maí 1949. • U HU 5 Frá og með deginum í dag, mun verzlunin gera íólki auðveldara að prýða heimili sín með hinum glæsi legu húsgögnum, sem hún ávallt heíur á boðstólum, með því að selja húsgögnin Eftirtalin húsgögn eru ávallt fyrirliggjandi Innskotsborð. Skrifborð. Eitvélaborð. Borðstofustólar. Eldlmsstólar, margar teg. Garðstólar.. Garðsett. Píanóbekkir. Straubretti. Ermabretti. Kamínur. Baðspeglar. Barnabaðker. Barnapúlt. Kommóður, margar te: Standlampar. Vegghillur. Blómasúlur. Stofuborð. Borðstofuborð. Sófaborð Spilaborð. Eldhúsborð. Útvarpsborð. Borðstlofuskápar, margar teg. Bókaskápar, margar teg. Sófasett. Svefnsóffar. Armsóffar Armstóiar. Dívanar. Svefnlierbergissett. Klæðaskápar, margar teg. Barnarúm, með eða án dýnu. Rúmfatakassar. Barnagrindur. Laugaveg 118—Kiapparstíg 26 — Vestusgöiu 21 — Símai 4577 — 5867 Réttvisin I þ’iónustu lyginnar: bann menningi verði sýndar kvikmyndir af lunum 30. man. í Bandaríkjunum eru hinsvegar sýndar falsaðar kvik myndir af þessum sömu atburðum Atburðirnir á Austurvelli 30. inarz lifa ekki aðeins í endur- minningu þúsundanna sem tóku þátt í þeim og blaðaskrifum þeim og umræðúm, sem síðar hafa orðið, heldur voru þeir festir á kvikmyndir. Kvik- myndir þéssar eru einstæð sönnunargögn um það, hvað raunverulega ' gerðist þennan dag, hvernig það gerðist og hvar sökudólganna er að leita. Nokkrar þessara kvikmynda éru nú tilbúnar til sýninga, og hafa þegar verið sýndar völd- um einstaklingum. Þegar um það fréttist kröfðust lögreglu- stjóri og sakadómari þess að fá að sjá þær og var að sjálf- sögðu látið að kröfum þeirra. Myndirnar höfðu slík áhrif á þessa yfirmenn réttvísinnar að þeir lýstu yfir þvifi að myndir þessar mættu alls ekki koma fyrir almenningssjónir og lög- reglustjóri gekk svo langt að hann kvaðst myndu banna það í krafti embættis sins að þessar myndir yrðu sýndar. Höfðu myndir þessar þá verið boðnar kvikmyndahúsum hér til sýn- inga, en væntanlega verður því boði ekki tekið nema lögreglu- stjóri heykist á ný á banni sínu. Hins vegar hafa Bandaríkja- menn komist yfir kvikmynd hjá einum islenzkum ljósmyndara, klippt hana sundur, skeytt hana saman og falsað hana og sýna hana nú ásamt fleiri fréttamyndum fyrir vestan haf. Ástæðan til þess að lögreglu- stjóri hefur lagt bann við sýn- ingu kvikmyndanna er að sjálf- sögðu sú, að þær sýna atburð- ina eins og þeir gerðust í raun og veru. Þær sýna hinn frið- sama, rólega mannfjölda sem vottar andstöðu sína við land- ráðin með því einu að hrópa í kór: þjóðaratkvæði, þjóðarat- kvæði. Eina „ólöglega" athæfið sem gerist er að nokkrir stráklingar sjást henda eggjum og ganga um með spýtur og að lögregla ,,afvopnar“ þá með friðsemd og spekt. En annars er mannfjöldinn fyllilega róleg- Oir, karlmenn sjást reykja píp- ur sínar í makindum og lesa Vísi! Því næst sést hvernig hvít- liðarnir geysast út í þennan mannfjölda, óðir og lemja á 'báða bóga. TrjHingur þeirra er sannaður þarna á þann hátt, er ekki verður hrakinn og hin sneypulegu bardagalok þeirra sjást einnig fullvel. Það sést einnig, hvernig a. m. k. tveir lögregluþjónar missa alla stjórn á sér eins og versti liluti hvítliðaskrílsins. Þá sanna kvik- myndirnar að gasárásin var framkvæmd í því skyni einu, að bjarga hvítliðunum þegar þeir voru komnir í algera sjálf- heldu, afvopnaðjr og frá sér af skelfingu. Það er þetta sem Rej'lcvík- ingar mega ekki sjá, sannleik- urinn um atburðina 30. marz. Enda er það eðlilegt. Þessi sam- tímagögn hrekja á óvéfengjan- legan hátt það lygakerfi, sem stjórnarliðið hefur byggt úpp undanfarinn mánuð með súrum sveita. Þau sanna að yfirheyrsl- urnar og fangelsarnirnar eru ofsóknir og ekkert annað en ofsóknir, að sökudólgana er að finna í hópi hvítliðanna og lög- regluliðsins og þeirra manna, sem æstu þennan lýð til hryðju- verka sinna. Afstaða lögreglustjórans er því mjög vel skiljanleg, þótt hún varpi einnig skýru ljósi á réttarfarið í landinu á því herrans ári 1949. Hitt er svo annað mál, hvort lögreglustjór- inn hefur nokkra heimild til að banna kvikmyndasýningar eins og þessar. Að minnsta kosti virðist það ekki samrýmast vel fréttafrelsi í landinu, þótt það sé í algeru samræmi við frelsis- hugmyndir þær sem Banda- ríkjalepparnir framfylgja. Drengjaglíma Ármanns Einar Einarsson vinmir „Sigurjóns-skjöldinn" Föstudaginn 29. apríl var háð Drehgjaglíma Ármanns í húsi Jóns Þorsteinssonar. Kepp- endur voru 13 og þeim skipt í tvo flokka, eftir þyngd. Úrslit urðu þessi: I. flokkur, drengir 60 kg og þar yfir: 1. Einar Einarsson 5 vinningar; 2. Gauti Arnþói’s- son 4 viriningar; 3. Yngvi Guð- mundsson 3 vinningar. II. flokkur, undir 60 kg: 1.’’ Baldvin Þórir Þorsteinsson 6 vinningar; 2. Haraldur Elling- sen 5 vinningar; 3. Kristían Karlsson 3^4 vinningur. Einar Einarsson vann að þéssu sinni Sigurjónsskjöldinn, sem gefinn var af Þórði Helga- syni fyrir mörgum árum. Þátt- takendur voru flestir drengir, sem sótt hafa glímunámskeið félagsins í vetur og sýndu þeir furðanlega mikla kunnáttu, eft- ir ekki meiri æfingu. Námskeið- ið var að þessú sinni mjög vel sótt. Kennari drengjanna er Þorgils Guðmundsson frá Reykholti.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.