Þjóðviljinn - 31.05.1949, Page 4
ÞJÖÐVILJINN
. feriðjudagur- 31.. 'tnaá- 1949.
PIÓÐVHJINN
DteelaniU: Samelnlngarfloklr.ur alþýOu — Sóaíallataflokkuilnn
Bitatjórai: lÆagnúa Kjartanason. Sigurður Guðmundsson (S,b>,
Fróttaritatjóri: Jón Bjarnason.
SlaSam.: Ari K&rason, Magníia Torfi Úlafason. Jónaa Árnaaon.
EUtatjórn, afgrelðsla, auglýalngar, prentamiOJa, SkótavörðU’
atig U — Síml 7600 (þrjár Unu r)
Áakrií'arvarð: kr. 12.00 & m&nuCl. — LauaaaöiuvarO 50 aur. alnt,
PrentamlCJa ÞJóBvilJana b. t.
öóalaiiataflokkurtnn, Þórsgötu 1 — Simi 7510 (þrjár linur)
Hefði það getað gerzt hér?
Mál Gerharts Eislers hefur að vonum vakið mikla
athygli um allan heim, og beinist athyglin einkanlega að
þrem atriðum: ofsóknaræði bandarísku stjómarinnar, sem
beitir nákvæmlega sömu aðgerðum og nazistar Þýzkalands
er Eisler flýði 1933, þýlyndi brezku sósíaldemókratastjórn-
arinnar, sem lét taka Eisler nauðugan, samkvæmt skip-
unum Bandaríkjastjórnar, um borð í pólsku skipi og draga
hann á land með lögregluvaldi, og sjálfstæði þess brezka
dómstóls sem lét Eisler lausan þrátt fyrir hótanir og ofur-
vald beggja engilsaxnesku ríkisstjórn.anna. Sé sá dómstóll
einkennandi fyrir brezkt réttarfar stendur það vissulega
á háu stigi, eða öllu heldur á því sjálfsagða stigi sem
felst í orðunum lög og réttur.
Andspænis þessum athyglisverðu viðburðum mim
mörgum íslendingum hafa komið í hug spurningin: Hefði
þetta getað gerzt hér? Og það er hollt að spyrja sig
þeirrar spurningar. Hugsum okkur að skipið sem flutti
Gerhart Eisler hefði komið við í Reykjavík og bandaríska
stjórnin hefði sent þeirri íslenzku þá fyrirskipun sem
brezki sósíaldemókratinn Ede lét framkvæma af hvað
mesta offorsi í heimalandi sínu. Enginn efast víst um að
Bjarni Benediktsson hefði reynzt alger jafnoki hans að
þýlyndi og lubbaskap, og þá hefði ekki staðið á lögi’eglu-
stjóranum, nazistanum Sigurjóni Sigurðssyni, að senda sér-
staklega valda lögregluþjóna til að framkvæma ofbeldis-
verkið. En hvað hefðu dómstólarnir gert?
Nú er það ekki einusinni víst að Bjarni Benediktsson
hefði ómakað dómstólana í slíku máli. Mjög sennilegt er
að hann hefði látið flytja flóttamanninn beina leið suður
á Keflavíkurflugvöll og afhenda hann herraþjóðinni þar,
því hér á landi ríkja ný sem kunnugt er tvenn lög og
lög herraþjóðarinnar eru rétthærri. En jafnvel þótt dóm-
stólarnir hefðu fengið að fjalla um málið, má ganga að
því sem v.'su að niðurstaða þeirra hefði orðið í fullu sam-
ræmi við kröfu Bandaríkjastjórnar og íslenzkra leppa henn-
a.r. Sú ályktun er dregin af reynslu undangenginna ára,
en á þeim tíma hefur þróunin sem kunnugt er orðið sú
að dómsstólarnir hafa í æ ríkara mæli orðið pólitískt verk-
færi ríkisstjórnarinnar, og var þó vissulega ekki á aftur-
haldssjónarmið þeirra bætandi. En það hefur sem kunnugt
er keyrt um þverbak hftir að Bjarni Benediktsson varð
dómsmálaráðherra og eru ýms dæmi þess í fersku minni,
t.d. hið ömurlega mál um stálþráðstækin þegar sakadómari
Iét nota sig til einhverra lítilmannlegustu falsana, blekk-
inga og ofsókna sem um getur í pólitískri sögu íslands.
Hámarki sínu náði þessi þróun þó eftir atburðina 30.
marz. I stað þess að framkvæma heiðarlega rannsókn á
grundvelli laga og réttar var sakadómáraskrifstofan notuð
til flokkspólitískra ofsókna. Eftir ábendingum $jálfstseðís-
flokksins voru menn yfirheyrðir og fangelsaðir án hokkurs
tilefnis og nokkurra saka. Eini tilgangur „rannsóknarinn
ar“ var auðsjáanlega sá að búa til mál gegn einhverjum
forustumönnum verkalýðshreyfingarinnar og Sósialista-
flokksins, en hinir raunverulegu sakamenn hafa verið látn-
ir ósnertir. Málatilbúningurinn hefur hins vegar gengið
illa, eins og vonlegt var, þótt söm sé gerðin.
Hefði þetta getað gerzt hér? spyrja menn, þegar
talað er um mál Eislers. Svarið hlýtur að verða neikvætt
samkvæmt reynslu þeirri sem fengin er. Sú niðurstaða er
ömurlegur vottur um réttarfarið á fslandi undir yfirstjóm
fcandaríkjaleppsins og nýfasistans Bjarna Benediktssonar.
Erindi: Sjóveidi Breta og- Amerílr.n
manna; siðara erindi (Baldnr
Bjarnason magister). 21.05 Tón-
leikar (plötur). 21.15 Upplestur:
„Á bekk með skáldum á hvítu
torgi,“ smásaga eftir Elías Mar
(höfundur les). 21.40 Tónleikar:
Norrænir kórar syngja (plötur).
Gamall maður hefur
kindur.
Hér vesturí bæ býr gamall
maður sem hefur kindur; Þetta
eru snemmbærur, og þao erú
uppundir -sex vikur síéa:i a'.J
fyrsta ósjálfbjarga jarm nýrra
kynslóðar heyrðist útúr kofan-
um þeirra. Og eftir örfáa daga
var þ'arna fæddur fullskipaður
kór nýrra kynslóðar.
En það er ekki heppilegt að
fæöast snemma á hörðu vori.
Tílvera litlu lambanna í litla kof
nnum hefur hingaðtil varla ver-
iIS annað en konsert innanhúss,
— sex vikna konsert innanhúss.
Gamii maðurinn er reyndur
bóndi, sem veit hvað litlum
lömbum er fyrir beztu, og hann
hleypir þeim ekki út nema helzt
að heiðskírt só og sól og hlýtt
í veðri. Og það hefur svo sjald-
an verið sól og hlýtt í veðri á
þessu vori.
★
Heyið hrcigur saman.
Fyrir hálfum mánuði var
heyið gamla mannsins — stóra
heyið í haust — hnigið saman
í sátustærð. Eg spurði hann þá,
hvort það mundi endast unz
hann sleppti fénu uppí afrétt.
Já, hann var vongóður: „Þessi
tugga endist rúma viku ennþá,
og fyrir þann tíma hlýtur tíðin
mætt yfir kulgráan Hljómskála
gárðinn, þar sem hún, um sama
leyti í fyrra, tindi af túni
fífla og sóleyjar handa mömmu
sinni.
★
Það vantar gamla bíla
22.05 Ávarp frá Bálfarafélagi Is-
lands (Björn Ólafsson alþm.). 22.15
Vinsæl lög (plötur). — 22.30 Dag-
skrárlok.
I ^ Hjónunum Matt-
f heu Guðmundsdótt
ur og Ingimar Ein-
arssyni, Rauðarár-
stíg 5, fæddist 13
marka dóttir laug-
ard. 28. maí.
R. T. skrifar: — „Eins og all-
ir vita tolla börnin illa á leik-
völlunum .... Og það hefur
fyrir löngu verið bent á hvers
vegna þau vilja heldur leika sér
annarsstaðar. Ástæðan er sú, að
á leikvöllunum er ekki nógu
mikið af þeim tækjum sem börn
in sækjast fyrst og fremst eftir.
.... Það á að koma þar fyrir
gömlum bílum, bátum og jafn-
vel flugvélaflökum fyrir strák-
ana. Þar geta þeir gefið ímynd-
unaraflinu lausan tauminn. En
þessar eilífu rólur og sölt full-
nægja ekki leikþörf þeirra
nema skamma stund.. . Og
fleira mætti nefna... Hvað lengi
eigum við að bíða eftir því, að
leikvellirnir séu gerðir svo úr
garði að börnin fáist til að
vera þar? R.T.“
Söfnin: Landsbókasafnið er opið
kl. 10—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga nema laugardaga, þá kl. 10—
12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 1.
—7 alla virka daga. Þjóðminjasafn-
ið kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga. Listasafn Einars
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu-
dögum. Bæjarbókasafnið er op-
ið alla virka daga kl. 10—10, út-
lán þá frá kl. 2, nema á laugar-
dögum en þá er safnið opið kl. 1-4.
Hekla er í Kph.
Loftleiðir sendu
flugvélar til Vest-
mannaeyja og Ak-
ureyrar í gær. Gull
faxi fór í morgun til Prestvikur og
London með 31 farþega. Væntan-
legur hingaö annað kvöld. F. X.
sendi flugvélar í gær til Vest-
mannaeyja og Akureyrar.
G E N G I Ð:
Sterlingspund 26,22
100 bandarískir dollarar 650,50
100 svissneskir frankar 152,20
100 danskar krónur 135:57
100 norskar krónur 131,10
1000 franskir frankar 24.69
100 sænskar krónur 181,00
Næturvörður er í lyfjabúöirmi
Iðunn. — Sími 79il.
Næturakstur í nótt annast Litla
bílstöðin. — Sími 1380.
að hafa skánað svo að maður n ö F N I N.
geti sleppt skjátunum. En langt
er nú síðan ekki hafa verið nein
ar fyrningar hjá mér.“ — Vik-
an er sem sagt liðin, og önnur
til, og það hefur ennþá ekki
komið neinn vörubíll til að
flytja féð bóndans uppað Lög-
bergi, þar sem hann er vanur
að sleppa því. Og heyið hans
. —• stóra lieyið í haust -— hefur
nú hnigið saman í svolitið dríli.
Og konsertinn í kofanum litla
heldur áfram. — Eg veit ekki
hvernig þetta kann að fara.
Búðanes kom af veiðum í gær-
morgun og skipaði aflanum hér á
land. Bjarnarey kom hingað í gær
til að taka ís.
ISFISKSALAN:
Kaldbakur seldi 4978 kits fyrir
10706 pund, 27. þ. m. í Grimsby.
Gylfi seldi 279 smálestir, 28. þ. m.
í Hamborg.
EINABSSON&ZOEGA:
Foldin hefur væntanlega komið
til Nevvcastle á sunnudag. Linge-
stroom er í Hamgorg.
Umferðakennsia við Melaskólaun.
Að tilhlutan Slysavarnafélags Xs-
lands og götulögreglunnar í
Reykjavík, hefst umferðakennsla
fyrir skólabörn í Melaskóla kl. 2
e. h. í dag á leikvangi skólans.
Skólastjórinn mælist til þess að
skólabörnin mæti á leikvangi á til
settum tíma.
Á uppstigningar-
dag opinberuðu
trúlofun sína,
Birna Benediktsd.
og Andrés Jón
Bergmann Ásgeirs
son, Ægisgötu 10.
Euginn er ósnortinn.
En það eru fleiri en bændur
sem finna nú sárt til sólarleysis
og kulda. Enginn er ósnortinn
af tíðarfarinu. — Fyrir fáum
dögum gekk ég t. d. með lítilli
telpu gegnum Hljómskálagarð-
inn. Hún var þungbúin, áhyggju
full, og breytti ekki um svip,
hversu sem ég gerði ,að gamni
mínu við hana. Og þegar ég
spurði, hvað kæmi til að hún
gæti ekki htegið eins og venju-
lega, svaraði-telpan með annari
spurningu: ,,Af hverju eru ekki
blóm einsog í fyrra."
★
Já, það bregðast margar von-
ir í liörðu vori. Gamall bóndi.
sem er vanur að eiga miklar
fyrningar, horfir á hey sitt
hníga að jafnsléttu meðan enn
eru frost. Lítil telpa sem er vön
að hlæja mikið, horfir rautta-
BIKISSKIP:
Esja fór frá Reykjavík kl. 18.00
í gærkvöld áieiðis til Þýzkalands.
Hekla er væntanieg til Reykjavík--
ur í dag að vestan úr hringferð.
Herðubreið er i Reykjavík. Skiald-
breið var á Akureyri í gær. Þyrill
er í Reykjavík. Oddur var í Stykk-
ishólmi í gær.
E I M S K I P :
Brúarfoss er í Reykjavík, fer það
an í kvöld 31.5. til Gautaborgar og
Kaupmannahafnar. Dettifoss kom
til Reyykjavíkur 29.5. frá Leith.
Fjallfoss er í Antwerpen. Goðafoss
fór frá Reykjavík 28.5. til Gauta-
borgar og Kaupmannahafnar. Lag-
arfoss fór frá Reykjavík 28.5. til
Leith. Reykjafoss hefur væntan-
lega farið frá Hamborg 28.5. til
Hull. Selfoss er í Antwerpen.
Tröllafoss fór frá New York 25.5.
til Reykjavíkur. Vatnajökull fór
frá Akureyri 25.5. til Grimsby og
London.
20.20 Tónleikar
Tónlistarskólans:
Tríó op. 11 í B-dúr
fyrir pianó, klarí-
nett og celló eftir
Beethoven (Rögn-
vaidur Sigurjónsson, Egill Jóns-
son og dr. Heinz Edelstein). 20.40
Helgadóttir
Leiðrétting. 1 ritdómnum um
Dauðsmannsey hefur, í prentun,
fallið niður orð úr einni setningu,
og er hún þar með þveröfugrar
meiningar við það sem vera á.
Rétt er setningin þannig: En lýs-
ing hins afbrýðisama eiginmanns...
þarf ekki að vera ýtariegri ......
o. s. frv. B. B.
Á morgun 1.
júní verða gef-
in , saman í
hjónaband í
Flatey á Breiða
firði: Herdís
Styrkar Svein-
björnsson. Ennfremur: Birna Jóns
dóttir og Ásbjörn Sveinbjörnsson,
öll til heimilis í Reykjavík. ----
Sama dag eiga silfurbrúðkaup for
eldrar brúðgumanna, hjónin Már-
grét Guðmundsdóttir og Svein-
björn Guðmundsson, kennari í
Flatey.----Nýlega voru gefin sam
an í hjónaband ungfrú Kristbjörg
Sigvaldadóttir, Snorrabraut 65 og
Ásgeir Sigurðsson, stýrimaður,
Lindargötu 42. Heimili ungu hjón-
anna verður á Snorrabraut 69.
Veðrið í dag: Norðaustan
kaldi eða stinningskaldi, víðast
léttskýjað.