Þjóðviljinn - 02.07.1949, Blaðsíða 1
VILJIN N
i>
ff.F.R."
Farið verður í. Skíðaskálann
í dag klukkan 2frá Þórsgötu 1
e/ w ö i
Skálastjórn
14. árgangar.
Laugardagur 2. júlí 1949.
142. tölublað.
Reykvlklngar greiða 56,5 millj. í úfsvör
Jafnt og metálagningin í fyrra — Fullyrðingar Sjálf-
stæðisfl. iiin lækkuð útsvör farnar veg allrar veraldar
Eftirsóttasta bók ársins hér í Reykjavík — skatta-
skrá Reykjavíkur — kom út í gær.
Útsvörin sem Reykvíkingum er gert að greiða á
þessu ári eru samtals 56 millj. og 500 þús. éða h. ú.
b. jafnhá og í fyrra, en þá voru þau 56 millj. 750
þúsund. Ern þar með farnar veg allrar veraldar hin-
ar miklu fullyrðingar borgarstjórans og Morgunbl.
nm stórkostlega lækkun útsvara á þessu ári.
Tillögur fulltrúa Sósíalistaflokksins um að ekki
væri lagt á árstekjur undir 9000 þús. kr., að útsvör
á launafólk væru lækkuð, að frádráttur vegna barna
á framfærslualdri yrði eigi lægri en 450 kr. og að
tekið væri tillit til húsaleigugreiðslu við útsvarsá-
lagningu — voru allar felldar.
Það er eftirtektarverðast við útsvörin nú að hlut-
ur almennings hækkar stöðugt, en hlutur fyrirtækja
lækkar eða stendur í stað.
Varð dauðaslys
Hlöðver Bjarnason, Hofsvalla
götu 21, annar þeirra sem slös-
uðust mest í bifreiðaárekstrin-
um fyrir ofan Lágafell s.l.
1 þriðjudagsmorgun, lézt af völd-
um meiðslanna í Landspítaian-
um í fyrrinótt.
Hlöðver heitinn var farþegi
Borgarnesbifreiðarinnar M-88,
sem kom að austan er árekstur-
inn varð.
Hlöðver var 24 ára gamall.
Þegar fjárhagsáætlun bæj
arins var til umræðu í vetur
reyndi Morgunbiaðið að halda
því fram að útsvörin lækkuðu
frá árunum áður. Staðreynd-
irnar voru samt þær að fjár-
hagsáætlunin ákvað útsvarsupp
hæðina kr. 50322,000 fyrir ár-
ið 1948. En þegar sýnt þótti
að nást mundi hærri upphæð en
áætlað var með þeim stiga sem
notaður var, var gerð auka-
fjárhagsáætlim svo alls varð
útsvarsupphæðin 56 750,000.
Fjárhagsáætlunin í ár skipar
svo fyrir að jafna skuli niður
52 070,000 að viðbættum 5—
10%.. Niðurstöðutölur í þetta
skipti eru rúmar 56 500,000 eða
næstum því sama tala og var í
fyrra.
Bæjarfulltrúar sósíalista
lögðu fram eftirfhrandi tillög-
ur varðandi útsvörin:
„Bæjarstjómin beinir því til
niðurjöfnunamefndar að at-
huga sérstaklega eftirfarandi
ákvæði við ákvörðun útsvars-
stiga við niðurjöfnun útsvara
á árinu 1949.
1. Að árstekjur undir 9000
verði ekki útsvarsskyldar.
2. Að útsvarslækkun fjöl-
skyldna verði eigi minni en
450 kr. fyrnr hvern ómaga á
framfærslualdri enda komi
sú lækkun jafnt til greina á
lægri tekjum sem hærri.
3. Að útsvör á launafólki
verði ákveðin lægri en und-
anfarin ár miðað við útsvars
skyldar tekjur, þar sem op-
inberlega er viðurkennt að
að launagreiðslur haldist ekki
einu sinni í hendur við
skráða verðlagsvísitölu, hvað
þá við raunverulega dýrtíð í
landinu.
4. Að tekið verðl tillit til
Msaleigugreiðsíu útsvars-
gjaldanda við ákvörðun út-
svarsins."
Þessar tillögur lagði fulltrúi
flokksins í niðurjöfnunarnefnd
fram í nefndinni, en þar voru
þær allar felldar, og samþykkt
að nota sama útsvarsstiga og
árið áður. Útkoman verður því
sú að útsvarsupphæðin er
næstum því alveg sú sama og í
fyfra, svo þar með er fallið um
Framhald á 6 síðu.
Lestirnar fara af
stað
1 gærmorgun fór frá Berlín
fyrsta jámbrautarlestin eftir
að járnbrautarverkfallinu lauk.
Var þetta bandarísk herflutn-
ingalest, sem fór til Bremer-
haven. — Eftir því sem á dag-
inn leið jukust jámbrautarsam-
göngur þarna, og í gærkvöld
gáfu sovétyfirvöldin í borginni
út tilkynningu þess efnis, að
járnbrautarsamgöngur við Ber-
lín væru aftur komnar í eðli-
jlegt horf.
Bandarískt auðvald fagnar árangri
á Marshaiilandaráðstefnunni f
Samkomulag hefur náðst milli fulltrúanna frá Mars-
halllöndunum 19, sem verið hafa á ráðstefnu í París að
undanfömu til að ræða ný ákvæði varðandi innbyrðis
greiðslur milli þessara landa. Samkomulag þetta var gert
á grundvelli þeirra tillagna, sem Belgir báru fram að undir-
lagi Bandaríkjanna.
ígreiningnr m afstöðu til mála
varðandi þjóðemisminnikluta í
Austurríki
V
Fulltrúar utanríkisráðherra f jórveldanna komu saman
á fyrsta fund sinn í London í gær til að ræða friðarsamn-
ingana við Austurríki á grundvelli þess samkomulags, sem
utanríkisráðherrarnir gerðu með sér á Parísarfundinum.
Hinir bandarísku ráðamenn
Marshalláætlunarinnar fagna
að vonum mjög samþykkt hinna
bandarísk-belgísku tillagna
Eftir þeirra skilningi eiga hin
nýju greiðslujafnaðarákvæði
Marshalllandanna að verða til
að „frelsa evrópska verzlun”,
eins og Averell Harriman, erind
reki áætlunarinnar, orðaði það
við blaðamenn í gær.
I Sir Stafford Cripps, fjár-
málaráðherra Bretlands, hefur
ekkert sagt opinberlega um
þetta mál ennþá. Gaf hann
Gagnráðstafanir
ástralskra
verkfallsmanna
Verkfall áströlsku kolanámu-
manna hefur nú staðið í sex
daga, og enn er ekkert útlit
fyrir lausn þess. — Svo sem
áður er frá sagt í fréttum, hef
ur ástralska þingið samþykkt
lög, sem banna verkalýðsfélög-
unum að veita verkfallsmönn-
um styrk úr sjóðiun sínum. —
Þessum ráðstöfunum stjórnar-
valdanna hafa verkfallsmenn-
irnir svarað með gagnráðstöf-
unum. Lýstu þeir því yfir í
gær, að þeir mundu sjá um, að
allri öryggisgæzlu við kolanám
urnar yrði hætt.
brezku stjórninni skýrslu um
ráðstefnuna í gær, en í næstu.
viku er búizt við að . hann
skýri frá árangri hennar í neðri
málstofu brezka þingsins.
Vörkföllin
Englandi
~P)
Ágreiningur varð milli full-
trúa Sovétríkjanna annarsveg-
Gifíingin talin
gefa slæmt for-
dæmi
Svertingjaprins einn í Suð-
urafríku hefur nýlega gengið
að eiga enska stúlku, Rutli
Williams að nafni. En hjóna-
band þetta hefur ekki komizt
hjá opinberum afskiptum hvítu
valdhafanna. — Ráð það, sem
fjallar um sambúð hinna ýmsu
kynþátta í landinu, hefur lýst
vanþóknun sinni á ráðahag
þeirra prinsins og ensku stúlk-
unnar á þeim grundvelli að
blóðblöndun þeirra mundi gefa
mjög slæmt fordæmi þar um
slóðir!
ar og fulltrúa Vesturveldanna
hinsvegar varðandi ákvæði um
framtíð slóvensku og króatísku
þjóðernisminnihlutanna í Aust-
urríki. Var það álit Sovétfull-
trúans að samkomulag utaiirík-
isráðherranna hefði falið í sér
þau fyrirmæli, að á þessari
Lundúnaráðstefnu skyldi sam-
in fastákveðin fyrirmæli til
Austurríkisstjórnar um að
virða sérmál þessara þjóðernis-
minnihluta, en hinir fulltrúarn-
ir lögðu þann skilning í sam-
komulag utanríkisráðherranna,
að Lundúnafundurinn ætti ein-
ungis að lýsa því yfir sem vilja
f jórveldanna, að Austurríkis-
stjórn tæki tillit til sérmála
þjóðernisminnihlutann. Þess
ágreiningur hafði ekki verið
jafnaður, þegar fundinum lauk.
Næsti fundur fulltrúanna
verður á mánudaginn kemur.
Hafnarverkfallið í London.
breiddist enn út í gær. Komst
tala verkfallsmanna upp í 8000,
og tala skipa, sem biðu af-
greiðslu komst upp í 90. —
Stjórninni hefur hinsvegar
tekizt að fá járnbrautarmenn
til að fresta framkvæmd ákvörð
unar þeirra um að fara
sér hægt við vinnu. Átti sú á-
kvörðun að koma til framkv. á
miðnætti á morgun, en járn-
brautai-mennimir hafa falfizt
á að veita verkamálaráðherr-
anum nokkum frest til að
reyna að miðla málum í deilu.
þeirra.
Pallante dæmdur
I gær var kveðinn upp í rétt-
inum í Róm dómur yfir manni
þeim, sem fyrir tæpu ári reyndi
að myrða Palmiro Togliatti,
foringja ítalskra kommúnista.
Maður þessi, sem er á þrítugs-
aldri og heitir Antonio Pallante,
var dæmdur í 18 ára fangelsi.
Ekkja Sun-Jat-sens
árnar kommúnist-
um heilla
Kommúnistaflokkur Kína á 28 ára afmæli um þessar
mundir. Var afmælis þessa og hinna miklu sigra flokksins
minnzt með mikilli samkomu í fýrradag. Meðal þeirra, sem
fluttu flokknum árnaðaróskir við þetta tækifæri, var ekkja
Sun-Jat-sens, fyrsta forseta kínverska lýðveldisins og
frelsishetju Kínverja. Kvaðst hún fagna innilega hinum
glæsilega ferli flokksins og miklu sigrum hans til aukins
frelsis og velmegunar fyrir kínversku alþýðuna. — Ekkja
Sun-Jat-sens er mágkona Sjang Kaiséks, en hún er löngu
/ búin að fordæma stefnu hans og lýsa hann svikara við
jhugsjónir manns hennar.