Þjóðviljinn - 02.07.1949, Side 6

Þjóðviljinn - 02.07.1949, Side 6
ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 2. júlí 1949. — Útsvör Reykvíkinga Framh. af 1. sí§u. ejálft sig allt skraf borgarstjór- ans og Morgunblaðsins um lækkun útsvara. Þá er það eftlrtektarvert að hlutur almennings í útsvars- byrðinni hækkar stöðugt, en hiutur fyrirtækja og atvinnu- rekenda lækkar eða stendur í stað. Eða með öðrum orðum. Máttarstoðir bæjarins eru bil- aðar. Það er almenningur sem verður að taka á sig byrðam- ar. Þetta er líka sönnun þess að tillögur okkar um breyting- ar á útvarpsstiganum voru rétt ar, útsvarsbyrðin hvilir of þungt á miðlungstekjumönnum. En allar tillögur til lækkunar hafa verið felldar af íhaldinu og mun svo verða meðan íhald- ið heldur völdum í bænum. Eftirtaldir greiða 30 þús. kr. og þar yfir: Olíufcl. H.F. 150 þús. Sam- band ísl. samvinnufél. 150 þús. Olíuverzlun Islands h.f. 125 þús. Vélsm. Héðinn 110 þús. Shell á lsiandi 100 þús. Mjólkursam- salan 95 þús. Sláturfélag Suð- urlands 85 þús. Egill Vilhjálms son h.f. 80 þús. Slippfélagið 70 þús. Eggert Kristjánsson 70 þús. Lýsi h.f. 68 þús. Hið ísl. Steinolíuhlutafélag 65 þús. Jó- hannes Jósefsson 65 þús. Völ- undur 65 þús. Steindór Einars- son 65 þús. Mjólkurfél. Rvíkur 60 þús. Ásbjörn Ölafsson 60 þús. Garðar Gíslason h.f. 60 þús. Almenna byggingafél. 60 þús. Garðar Gíslason h.f. 60 þús. H.F. Freyja 60 þús. Egill Skallagrímsson 58 þús. Verzl. Eilingsen 55 þús. Nýja bíó 55 þús. Krcn 55 þús. Isafoldar- prentsmiðja 50 þús. Harpa Málningarverksmiðjan 50 þús. Klæðaverzlun Andrcsar And- réssonar 50 þús. Kol og Salt 50 þús. Sch. Thorsteinsson 50 þús Alliance 50 þús. Jupíter h.f. 50 þús. Kveldúlfur 50 þús. Harald- arbúð 50 þús. Geysir 50 þús. Sanitas h.f. 50 þús. Haraldur Árnason h.f. 40 þús. Raftækja- salan h.f. 40 þús. Fálkinn 40 þús. Sigurður Skjaldberg 40 þús. Ræsir h.f. 45 þús. Flug- félag Isl. 45 þús. Smjörlíkisgerð in h.f. 40 þús. Trésmiðja Sveins M. Sveinssonar 40 þús. Hamar h.f. 44 þús. Húsgagnaverzlun Kr. Siggeirssönar 40 þús. Kaffi brennsiá Ó. J. & Kaaber 45 þús. Feldur h.f. 40 þús. Austur- bæjarbíó 45 þús Sigurliði Krist- jánsson 40 þús. Valdimar Þórð arson 40 þús. Sölumiðstöð Hrað frystihúsanna 45 þús. Hús- gangaverzlun Austurbæjar 36 þús. ísaga h.f. 30 þús. Þorlákur Jónsson 30 þús. Vinnufatagerð Islands 38 þús. Skógerðin h.f. 36 þús. Lárus LnðvíksSon skóverzlun 30 þús. Smjörlík- ísgerðin Ljómi 30 þús. Bygging arvöruverzl. Sveins M. Sveinss. 30. þús. Edinborg 35 þús. Mar- teinn Einarsson 32 þús. Stál- smiðjan 36 þús. Guðlaugur V. Þorsteinsson 30 þús. Bjarni J. Pétursson 33 þús. Kristinn Pét- ursson 33 þús. Alþýðubrauðg. 35 þús. Björnsbakarí 30 þús. Vífilfell 32 þús. Byggingafél. Brú 35 þús. G. Þorsteinsson & Johnson 30 þús. Hekla h.f. 30 þús. Kristján G. Gíslason 30 þús. Hallgr. Ben. 36 þús. Edda Heildverzlun 35 þús. Gísli J. Johnsen 35 þús. Bernhard.Pet- ersenr33 þús. Ólafur Magnús- son. 30 þús. asft 55. DAGUR. EVELYN WAUGH: KEISARARIKIÐ AZANIA ÁSM. JÖNSSON þýddi. — Skákkeppni Framhald af 8. síðu. vann Aðalstein Halldórsson, Gunnar Gunnarsson vann Þórð Jörundsson, Kári Sólmundarson vann Ingimund Guðmundsson, Baldur Möller gerði jafntefli við Bjarna Magnússon, Friðrik Ólafsson vann Sigurgeir Gísla- son, Kristján Andrésson vann Ingvar Ásmundsson, Björn Jó- hannesson gerði jafntefli við Guðmund Þorláksson. Næsta, umferð verður tefld á mánpdaginn og hefst kl. 8. Þá tefilir sveit Guðmundar S. Guðmundssonar við sveit Guð- mundar Pálmasongr og sveit Eggerts Gilfer við sveit Hafn-j firðinga. Sveit Baldurs Möller situr hjá. BÆJARFRÉTTIR Framhald af 4. síðm Andrew. Murray, yfirborgarstjóri, Edinborgar. Væntanlegur aftur um kl. 17 í dag. Fer kl. 8 í fyrramálið til London. Væntanlegur aftur um kl. 11 annað kvöld. Hekla fór í gærkvöld til parís fullskipuð far- þegum. Voru það aðallega banda- rískir starfsmcnn á Keflavíkur- flugVelli, sem ákveðið höfðu að dvelja í París um helgina. Bíður Hekla þeirra i París, en er væntan leg aftur hingað með þá á mánu- dag, en þá er 4. júlí, þjóðhátíðar- dagur Bandaríkjamanna. iiiiiiiiiiuiimimmiiiiumiiiiiiiiHii*" Til liggur leiðin iimmmmmiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiuii Gagníræðaskóli Rvíkur Framhald af 8. síðu. haft neitt eigið húsnæði. Nú er líklegt, að skólinn geti tekið til starfa með haustinu í nýja skólahúsinu við Barónsstíg. Er þar að vísu margt enn ógert, cn væntanlega tekst að ljúka því í sumar, éf engar sérstakar tafir verða á verkum. Vegna þessara tímamóta í sögu skól- ans eru þeir kennarar og nem- endur hans; eldri og yngri, scm kynnu að eiga góðar myndir af einhverjum atriðum úr skóla- starfinu, vinsamlega beðnir að lána þær skólastjóra til athug- unar fyrir næsta haust. Næsta vetur verður farið að framkvæma nýju lögin um gagnfræðanám. Nemendur, sem fyrir eru í skólanum, halda á- frarn eftir eldri fyrirkomulag- inu, en auk þess verða teknir inn nemendur 13 og 14 ára í 1. og 2. bekk eftir nýja kerf- inu. Skrásetniiig þeirra mun fara fram í byrjun september, og verður það nánar auglýst þá. sem hr. Youkoumian hafði klætt yzt og innst samkvæmt fyrirskipuninni. Þeir voru í kjól, með hvíta hanzka og í stífuðum skyrtum með skel- plötuhnöppum í, og það voru ekki nema örfáir þeirra, sem vantaði skó og sokka. Þeir v.oru óvanir þessum klæðnaði, en hann gaf þeim þá talsvert virðulega reisn. Konumar höfðu yfirleitt valið kjóla í — vægast sagt — dálítið áberandi litum: Sterkgrænum og fjólubláum og skreyttum strútafjöðrum og axlaskrauti. Frú Bóazas baróns var í baklausum kíól, nýkomnum frá Kairo, og bar svo auðvitað þar að auki alla erfðaskrautgripi ættarinnar, hertogafrúin af Mhomala bar á hrokknum kollinum þriggja punda páfamítur úr gulli og granatsteinum, Batulle barónessa var nakin um herðar og bak, svo hin tilkomumikla tattovering sæist, sem var snúin í fagurlegum bogum og hlykkjum svo langt, sem séð varð. Samanborið við alla þess dýrð, varð harla lítið úr klæðnaði heiðursgestanna, sem yfirkammer- herrann leiddi aftur og fram um salinn og kynnti þær á frönsku, sem var lítið skárri en franska Porch etatsráðsfrúar sjálfrar. Tveir þrælar gengu um og buðu konjak. Ensku konurnar afþökkuðu. Yfirkammerherrann lét í Ijós, hvað honum þætti leitt, að þeim þóknaðist ekki konjakið. Ef þeim þóknaðist betur whisky, þá væri eflaust hægt að ná í einhverja lögg — eða kannski öl? „Mon bon homme“, sagði etatsráðsfrúin í ströngum tón, „il vous faut comprende que nous ne buvons rien de tout, jamais“. Við þessar upplýsingar hækkuðu þær stórum í augum við- staddra. Óneitanlega litu þær ekki út fyrir að vera miklar fyrir sér, en samt urðu menn að viður- kenna, að þær kunnu hitt og þetta, sem Azaníar höfðu ekki tileinkað sér enn sem komið var: Yfirkammerherrann hugsaði, að það gæti svei mér verið þægilegt að hafa svona stálsleginn kvenmann með sér á ferðalögum, og spurði kurt- einslega, hvort hestarnir og úlfaldarnir í ættlandi þeirra væru svona þægilega innréttaðir. Samræðurnar trufluðust nú við komu keisar- ans. Einmitt á þessari stund gekk hann í salinn og settist í hásætið, sem til þessa hafði staðið tómt, og sett einhvern ómleikablæ á kynningarn- ar. Hirðsiðirnir voru enn sem komið var á byrj- unarstigi. Um stund kom dálítið hik á alla við stadda, og menn biðu þess, að einhver tæki að sér forystuna. Seth sagði eitthvað við einn ráðgjafa sinn, sem síðan gekk til heiðursgestanna og leiddi þær fyrr keisarann. Þær lutu honum og gengu síðan til hliðar. Gestirnir gengu síðan fyrir keis- arann í röð eftir metorðum. Flestir lutu honum djúpt að austUrlenzkum sið, og lögðu hönd á enni og brjóst sér. Samt höfðu nokkrir einstakl- ingar af báðum kynjum sett hneigingarnar vel á sig, og líktu nú eftir þeim. Gamall aðalsmaður, sem var af gamla skólanum, henti sér flötum til jarðar og stráði hnefa af ryki yfir höfuð sér að gömlum og góðum sið. Þegar allir höfðu heilsað keisaranum með ýmsu móti ,gekk Seth í broddi fylkingar inn í borðsalinn. Þar kom að nýjú svolítill ruglingur og hik á menn, og það kom til dálítið ónotalegra olnbogaskota hér og þar. Porch etatsráðsfrú og ungfrú Tin sátu sin til hvorrar handar keisaranum, og það var borðað og drukkið af miklum móði. * 15." marz (frh.). Kvöldverður í keisarahöllinni. Maturinn ákafl. viðbjóðsl. Réttur eftir rétt af allskonar kjöti, ofkryddað og fljótandi í feiti. Reyndi að pína svol. niður f. kurteisis sakir. Sarha borðaði ekk- ert. Keisarinn spurði margs þ. a. m. ýmisl., sem ég gat ekki svarað. Hvað átti kóngurinn í Eng- landi marga fatnaði? Fór hann í bað fyrir eða eftir morgunverð? Hvort var siðmenntaðra? Hvar hélt hún, að væri bezt að kaupa vatns- leiðslur? o. s .frv. Sarha ákafl. þögul. Sagði keisaranum frá skólum beggja kynja og frjálsu uppeldi. Hann var mjög hrifinn. Til borð fékk Porch etatsráðsfrú herramann- inn, sem hafði lagzt flatur á dagstofugólfið og ausið ryki yfir höfuð sér. Hann virtist.niðursokk- inn í að borða, en í rauninni var hann að magna sig með sjálfum sér (og æfa sig) í að hefja* við frúna viðræður, sem hann var búinn að brjóta heilann um allan daginn. Loksins tók hann kjark í sig. „Hvað marga uxa þú eiga?“ spurði hann og lyfti svörtu og skeggjuðu smettinu svolítið frá diskinum. „Hvað marga syni? Hvað margar dæt- ur? Hvað marga bræður? Hvað mörg systir? Faðir minn deyja í bardaga“. Frú Porch sneri sér við í sætinu og horfði svo- lítið óttaslegin á hann. Hér og þar í skegginu héngu klepmr af matarleifum. ,Ha-hva?“ sagði hún. En nú var þessi gamli heiðursmaður búinn með orðaforða sinn, og honum fannst hann hafa sagt allt, já, og jafnvel meira en góðir mannasiðir kröfðust, og var satt að segja svolítið undrandi og pinulítið óttasleginn yfir, hvað þetta hafði gegnði hrellingalítið. Hann brosti því bara hik- and til hennar, og gaf sig aftur óskiptur að matn- um, og reyndi ekki að fitja upp á samtali aftur. „Hvora hvítu kvennanna vildir þú frekar?“ „Þá feitu — annars eru þær báðar ljótar“. „Já — það hlýtur að vera hreinasta hörmung fyrir ensku karlmennina að verða að giftast enskum konum“. DAVÍÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.