Þjóðviljinn - 07.09.1949, Side 4

Þjóðviljinn - 07.09.1949, Side 4
4 ÞJÓÐVILJTNN Miðvikudagur 7. sept. 1949. Þióðviuinh Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason Blaðam.: Arl Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason 'Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu- Btíg 19 — Síml 7500 (þrjár línur) Áskriftar verð: kr. 12.00 á már.uði — Lausasöluverð 50 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviijans h.f. Sósíalistaflokicurlnn, Þórsgötu 1 — Símt 7519 (þrjár llnur) Loddaraleikur Framsóknar „Það ðr athyglisverfc, að í þessari tryllingslegu baráttu eelstöðubraskaranna beinist aðalsókn þeirra mest gegn ein- um manni.... það er gegn fyrirliða Framsóknarflokksins, Hermanni Jónassyni, sem þessi sókn beinist sérsfcaklega. Það sýnir að selstöðubraskararnir telja Framsóknarflokk- inn róttilega aðalandstæðing sinn og því sá formaður bans skæðasti andstæðingtu* þeirra. Þess vegna ofsækja þeir bann nú og ófrægja á alla lund og láta hvargi skína skær- ara á heildsalagullið en í kjördæmi hans.“ Þannig kemst Tímmn að orði í gær, og þessi tilvitn- un er mjög gott dæmi þess hvernig Framsóknarflokkurinn ætlar sér að heyja kosningabaráttu sína í orði. I hálft þriðja ár hefur formaður FramsóknarfJokksins, Hermann Jónasson, verið valdalaus maður í flokki sínum. Hann hef- ur verið einangraður maður meðal foringjaliðsins og átt erfitt með að fá að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í Tímanum. Eysteinarnir hafa öllu ráðið, og ráð þeirra þekkir almenningur nú af sárri raun. Hins vegar hefur Hermanni Jónassyni, hinum valdalausa manni, verið leyft að hafa sig allmikið í frammi meðal óbreyttra Framsóknar- manna, ef sérstaða hans kynni að geta friðað þá og beizlað óánægjuna. Þannig hefur þetta gengið í hálft þriðja ár. En svo koma kosningar, og þá verða snöggleg hlut- verkaskipti. Nú er Hermann Jónasson allt í einu orðinn hinn mikli maður Framsóknarflokksins en Eysteinn Jóns- son og hans nótar fela sig í skugga hans. Skoðanir Her- manns flæða yfir allar síður Tímans, og ritstjóri blaðsins hamrar á þvi dag eftir dag að Hermann og flokkurinn séu eitt. Eysteinn Jónsson, Vilhjálmur Þór og Jón Ámason, þetta eru menn sem Þórarinn tímaritstjóri þekkir rétt af afspum, einh\'erjir utanveltubesefar sem engu máli skipta! Það á sem sagt að reyna að nota Hermann Jónasson til að hressa upp á kjörfylgi Framsóknar, beita því að hahn hefur verið í hálfgildings stjómarandstöðu og her aðeins takmarkaða ábyrgð á hegðun flokksins í afturhaldsflat- sænginni. Það er nákvæmlega sarna aðferðin og Alþýðu- flokkurinn hefur beitt í undanfömum kosningum; nokkrum vikum fyrir kosningar, hefur Alþýðublaðið jafnan breytt um svip og róttækari menn flokksins, sem að jafnaði eru hunzaðir, hafa þá verið látnir leika aðalhlutverkin á kosn- ingasviðinu. Aiþýðuflokkurinn getur ekki leikið þennan leik nú, þar em engir óspjallaðir merm. eftir sem láta nota sig til slíkra hluta, en Framsókn þykist enn geta notað þetta gamalkunna ráð og þar lætur Hermann Jónasson enn nota sig. w mi Hins vegar mun þetta sjónarspil Framsóknarflokksins engan villa sem nokkurn skilning hefur. Hermann Jónas- son hefur ekki fengið nein ný völd í flokknum og eftir kosningar er ætlunin að hunza hann á nákvæmlega sama hátt og fyrr og hlæja upp í opið geðið á þeim kjósendum sem hafa látið blekkjast. Eysteinamir hafa eins og allir vita ekki rofið stjórnarsamstarfið, og vilja torvelda sem minnst áframhaldandi aftúrhaldssamvinnu. Þeir myndu gráta þurrum tárum, þótt Hermann Jónasson félli í Strandasýslu, sem engar Iíkur em raunar á, og þá myndi vissulega ekki klígja við að skríða í nýtt stjórnarsam- starf þar sem „seistöðubraskararinn" Eggert Kristjánsson yrði f jármálaráðherra, eins og nú er fyrirhugað af íhaidinu. iiniwbhmhwwwhmbbi BÆJAlPOSTl'KaNN skrifa þér, þá dettur mér ann- að í' hug sem gjarnan mætti líka minnast á opinberlega. Það er með gulu strikin sem liggja ýfir akbrautirnar í námunda við gatnamótin hér í bænum. Þessi strik eru óþarflega langt frá hornunum, og veldur þetta því að miklu færri vegfarendur ganga á milli þeirra, sem þó öllum ber að gera, en vera mundi ef þau yrðu höfð nær homunum. Eg nefni þetta að- eins til vinsamlegrar athugunar fyrir þá menn sem stjórn um- ferðarmálunum. — Kálfdán." Kosningaeplin voru • ónýt. Jón Helgason, fréttastjóri Tímans, skýrir frá því í gær, að þeir 7200 eplakassar, sem hing að hafa verið keyptir frá Italíu, innihaldi mjög lélega vöru, sem sé að stórum hluta skemmd. — Kosningaepli ríkisstjórnarinnar hafa sem sé reynzt ónýt, þeg- ar öllu var á botninn hvolft. Má með sanni segja, að þetta sé táknrænt fyrir allt tilstand þessarar merkilegu stjórnar út af komandi alþingiskosningum. □ Frumvarp Katrínar Thoroddsen. Ar.nars gefur þessi saga um kosningaepli ríkisstjórnarinnar tilefni til ýmissa upprifjana í sambandi við ávaxtamál hér á íslandi. Það var til dæmis hið ágæta frumvarp sem Katrín Thoroddsen bar fram á alþingi árið 1948. I því frumvarpi var svo ákveðið að ríkisstjórn Is- lands skyldi sjá um að alltaf væri til nóg af nýjum ávöxtum í landinu. Frumvarpið var rök- stutt vel og greinilega, enda samþykkt með öllum atkvæðum allra þingmanna. Um viðbrögð stjórnarinnar við fyrirmælum frumvarpsins vitum við svo öll. Það hafa kannski komið tvö — þrjú epli á mann í kringum jól, og svo þessi kosningaepli frá Italíu um daginn, „litlir græn- jaxlar,“ að miklu leyti stórlega skemmd og ónýt. □ Óskiljanlegt ástand. Og þessi eymdarstefna ríkis- stjórnarinnar í ávaxtamálum er jafnvel enn verri en sú sem rek- in var í öllu volæði kreppuár- anna fyrir stríð. Þá fengust þó oftast þurrkaðir ávextir í verzl unum, en nú eru þeir alveg hættir að fást. Yfirleitt er á- stand þessara mála með öllu óskiljanlegt. En á því mun þjóð in m. a. byggja þann dóm sem hún fellir yfir afturhaldsstjórn- inni þann 23. október næstkom- andi. □ Langir mean reka sig uppundir vinnupalla. „Hálfdán skrifar: — „Það getur verið hættulegt fyrir okk ur þessa löngu menn að ganga þar um sem verið er að vinna á pöllum við hús. Neðsta „hæð- in“ á þessum vinnupöllum er víða svo nærri jörðu að við verð um að beygja okkur til að kom- ast undir; ef við ekki beygjum okkur, þá rekum við hausinn í. Þetta vildi ég gjarnan biðja þig að minnast á í dálkunum þínum, Bæjarpóstur góður. Eg treysti því að þú sért mér sam- mála um að langir menn skuli geta gengið um göturnar án þess að eiga nokkuð meira á hættu með höfuðhögg en þeir sem styttri eru vexti? □ Gulu strikin hjá hornunum. „Og úr því ég er nú farizm að EINARSSON&ZQfiGA: Foldin kom í gærkvöld til Aber- deen. Lingestroom er í Reykjavík. EIKISSKIP: Hekla er á leið frá Glasgow til Reykjavíkur. Esja er I Reykjavík. Herðubreið var á Akureyri í gær. Skjaldbreið var væntanleg til Akur eyrar í gærkvöld. Þyrill er í Faxa flóa. EIMSKIP: Brúarfoss kom til Reykjavíkur 5.9. frá Leith. Dettifoss er I Kbh. Fjallfoss kom til Reykjavíkur 5.9. frá London. Goðafoss fer frá Ant- werpen í dag, 6.9. til Rotterdam og Hull. Lagarfoss kom til Reykja víkur 1.9. frá Hull. Selfoss fór frá Raufarhöfn 5.9. til Isafjarðar og Reykjavíkur. Tröllafoss kom til N. Y. 27.8., fer þaðan 7.9. til R- vikur. Vatnajökull fór 2.9. frá Djúpavogi til London. LOFTLEIÐIR: 1 gær var flogið til Vestmannaeyja 2 ferðir, tsaf jarðar, Akureyrar, Pat- reksfjarðar. 1 dag verður flogið til Vestmannaeyja 2 ferðir, Akureyr ar, Isafjarðar, Siglufjarðar, Kirkju bæjarklausturs, Fagurhólsmýrar, Hellu. Á moigun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja 2 ferðir, Akureyrar, Isafjarðar, Sands Bíldu dals og Patreksfjarðar. Geysir millilandaflugvél Loftleiða kom frá Faris í nótt, fór í morgun til N. Y. og Caracas með 40 farþega. Hekla er væntanleg frá Stokk- hólmi og Kaupmannahöfn milli kl. 17.00 og 18.00 í dag. FLUGFÉLAG ISLANDS: Innanlandsflug: í dag verða farn ar áætlunarferðir til Akureyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja, Fáskrúðs- fjarðar, Neskaupstaðar, Seyðis- fjarðar, Blönduóss, Isafjarðar og Hólmavíkur. Frá Akureyri verður flogið till tsafjarðar og Austfjarða. Á morgun mun verða flogið til Akureyrar (2 ferðir), Vestmanna- eyja, Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarð ar, Siglufjarðar og Ólafsvikur. t gær var flogið frá Flugfélagi ts- lands til Akureyrar (3 ferðir), Kópaskers, Siglufjarðar og Vest- mannaeyja. Millilandaflug: Gull- faxi er væntanlegur frá Prestvík og London kl. 18.30 í dag. Flugvel in fer tii Osló kl. 8.30 í fyrramálið. 19.30 Tónleikar: Óperettulög. 20.30 Útvarpssagan. 21.00 Tónleikar (plöt- ur): a) Ballettsvíta eftir Hándel. b) Svíta nr. 1 í C-dúr eftir Bach. 21.35 Erindi: Fiskur og fornleifar, 1L (Hendrik Ottósson). 22.00 Frétt ir og veðurfregnir. 22.05 Danslög. 22.30 Dagskrárlok. Félag Vestur-tslendinga hsídur skemmtifund fimmtudaginn 8. sept. 1949 lcl. 8.30 s. d. í Tjarnar- kaffi (Oddfellowhúsinu). Þeir Vest ur-lslendingar, sem hér eru á ferð, eru sérstaklega boðnii-. Aðgöngu- miða sé vitjað í Verzlunina „Kjöt og Fiskur" fyrir hádegi á fimmtu- daginn. Ungbamavernd LÍKNAR, Templ- arasundi 3 er opin þriðjudo,ga, fimmtudaga og föstudaga kl. 3.15---4. Næturvörður í Laugavegs- apóteki. — Sími 1616. M U NI Ð að lesa smáauglýsingarnar, þær eru á 7. síðu. Næturlæknir er I læknavarðstoí unni, sími 5030 Næturakstur í nótt annast Hreyfill, simi 6633. — Eignakönmiiiin Framhald af 8. síðu. Nefndin hóf þegar starf sitt, og varð þegar sýnt að töluvert langan undirbúning þurfti til að hinum margbrotnu ákvæðum laganna yrði fullnægt. Má þar til nefnaö útgáfu og prentun nafnskírteina, eyðublaða, í sam bandi við peningaskiptin og hin ýmsu form varðandi skráning innstæðna og verðbréfa að ó- gleymdum eignakönnunarfram- talseyðublöðunum. Þegar þess er gætt að þetta þurfti allt að reisa frá grunni, samgöngur við landsbyggðina í skammdeginu strjálar og óhent ugar, og þar að auki á tímabili skortur á hentugum pappír í sum eyðublöðin, þá verður að játa að betur rætist úr en á horfðist að allt skyldi vera kom ið á sinn stað 31. des. 1947, en við þann dag er eignakönnunin mióuð. Innlausn gamalla peninga var lokið 10. jan. 1948 og skráning innstæðna og verðbréfa lauk 31. marz 1948. Vöni- og birgðatalningar voru framkvæmdar, og hús í smíðum metin til kostnaðarverðs af sér- stökum matsmönnum og tók það alllangan tíma snmsstaðar. Fram yfir mitt árið 1948 var svo unnið að ýmiskonar sam- anburði og rannsóknum, undir skattlagningu eftir eignakönn- unarlögunum. En framtölin fóru sína venju- legu leið frá undirskattanefnd- unum til. yfirskattanefnda og síðan til framtalsnefndar. Framtölin úr Norður-Múla- sýslu bárust nefndinni fyrst, en það var i sept. 1948, og 15. sept. s. á. hófst skattlagningin. Hefur verið unnið sleitulaust að þessu síðan, skattlagning á öllu landinu utan Reykjavíkur var að fullu lokið í febrúar 1949, en í Reykjavík var út- reikningum og skattlagningu lokið 26. ágúst s.I., en kæru- frestur yfir ákvörðun skatts- ins þar rennur út 16. þ. m. Ber að senda kærur til framtals- nefndarinaar fyrir þann tíma, en úrskurðum nefndarinnar má síðan áfrýja til fjármálaráðu- neytisins.“

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.