Þjóðviljinn - 29.09.1949, Síða 8

Þjóðviljinn - 29.09.1949, Síða 8
Slasaður maður fmust í skurði við Múlaveg Ekki viiað hvecnig slysið hefur borið að höitáEm — Lá í skurðimim hálfait sóIarhEÍng? S.l. þriðjudagsmorgun fannst maður í skurði við Múlaveg. Var hann mjög mikið slasaður og meðvitundarlaus er hann fannst. Lýkur benda til að hann hafi legið þarna ósjálfbjarga síðan á mánudagskvöld. Mað'ur þessi er Júníus Ólafsson, sjómaður og á heima við KJeppsveg. Hann liggur nú á Landsspítalanum. Dr. Hermanni Einarssyni vei styrkur úr Nansenssjéði Június hefur ekki enn getað gert grein fyrir hvernig hann hefur orðið fyrir þessu áfalli, enda þungt haldinn af meiðsl- um. Hann fór að heiman á mánudagskvöldið, en síðan er ekkert um ferðir hans vitað fyrr en kl. tæplega 7 á þriðju- dagsmorguninn, að hringt er á lögreglustöðina og tilkynnt að maður hafi fundizt í skurði við Múlaveg. Við læknisskoðun kom í ljós að Júníus var siðubrotinn og lærbrotinn. Skurðurinn, sem Júníus fannst í er lijá hinu fyrirhug- aðp íþróttasvæði í Laugardaln- um og liggur rétt við veginn. Hann er 3.5 m djúpur og ó- varinn. Engin ástæða mun vera til að ætla, að Júníus hafi verið ölv- aður er slysið vildi til, og er ekkert vitað um hvernig hann hefur komizt í skurðinn. (Biður rannsóknarlögreglan þá sem kynnu að geta gefið einhverjar upplýsingar er leitt gætu í ljós hið sanna um benn- an atburð, að láta þær strax í té. 17 og 16 ára piltar dæmdir í fangelsi í fyrradag voru kveðr.ir upp tveir dómar í Aukarétti Reykja víkur. Voru tveir piltar dæmdir í fangelsi, skilorðsbundið, fyrir dýnaraitsprengingar. Annar pilturinn var 17 ára og hafði sett tvær dýnamit- túpur í rör af umferðaskilti við Alþingishúsið á gamlárskvöld. Varð af þessu mikil sprenging cg skemmdist bíll sem fram- hjá fór og stúlka meiddist sem var þar á gangi. Pilturinn var dæmdur í þriggja mánaða varð- hald, skilorðsbundið, 4.955 kr. sekt og greiðslu alls málskostn aðar. Tveir piltar aðrir sem við málið voru riðnir fengu aðvör- un. Hinn pilturinn, 16 ára, sprengdi dýnamitssprengjur að kvöldi þess 30. marz. Sprengdi hann aðra á Austurvelli, en hinni kastaði hann á svalir Sjálfstæðishússins, þar sem hún ( sprakk, og brotnuðu allir glugg ar. Pilturinn var dæmdur í 2 mánaða varðhald, skilorðsbund- ið og til þess að greiða allan málskostnað. Skemmti- og fræðslukvöld Eins og skýrt var frá í Þjóð- viljanum í fyrradag, er KRONj að hefja almennt skemmti- ogl fræðslustarf fyrir félagsmenn sína. í kvöld kl. 8,30 verður fyrsta samkoman í Tjarnarcafé (Odd- fellowhúsinu). Þar verður sam- eiginleg kaffidrykkja, Nína Sveinsdóttir sýngur gamanvís- ur, Sigfús Sigurhjartarson held ur ræðu, Lárus Pálsson les upp, og loks verður dansað. Félagsmönnum KRON er heimilt að taka gesti með sér á samkomuna. Það er vel, að KRON beitir sér fyrir samkom- um eins og hér er um að ræða, og er þess að vænta, að félags- menn noti tækiíærið og fjöl- menni. * 1 samráði við háskólaráð hef ur menntamálaráðuneytið lagt til, að dr. Hermann Einarsson hljóti styrk þann, að fjárhæð 3000 norskar krónur, er stjóm Nansenssjóðsins í Oslo ætlar íslenzkum vísindamanni á þessu ári til dvalar i Noregi. Dr. Her- mann mun stunda cg kynna sér síldarrannsáknir. Þetta er í þriðja skiþti sem stjómendur . Nansenssjóðsins gefa IsJendingi kost á styrk úr sjóðnum, og er sú ráðstöfun gerð í þakklætisskyni fyrir stuðning, er þeir tslja Islend- inga hafa veitt norskum visind- um á árum siyrjaldarinnar, (Frétt frá menntamálaráðu- neytinu.) emnig ósannindi á sjáiía sig Eins og Þjóðviljinn rakti í gær hefur ríkisstjórnin lýst Paul Hoffman ósann- indamann og fleiprara. En sú fáheyrða ásökun hittir ekki aðeins Paul Hoffman sjálfan, heldur hittir hún einnig ráðherrana Emil Jóns son og Stefán Jóhann Stef- ánsson, en þeir hafa báðir lýst yfir sömu atriðum og Hoffman á undan honum. Hoffman sagði eins og rak- ið var í blaðinu í gær að rík- isstjórnin hefði sótt um 2,9 milljón dollara marsjallhjálp til að kaupa togarana en su umsókn væri nú úr sögunni — eftir ao brezka lánið er fengið. í ræðu sem Emil Jónsson flutti á Alþingi fyrfr 11 mán úðum og birt var í Alþýðu- blaðinu 21. október 1948 tal aði hann um hina miklu fjögurra ára áætlun í sam- bandi við marsjalláætlunina. Þar sagði hann að heildar- hallinn á greiðslujöfnuðinum við Bandaríkin væri áætlað- ur 6,6 milljónir dollara eða 42,09 millj. króna. Síðan sundurliðaði hann greiðslu- hallann „vegrta sérstakra framkvæmda og innflutnings á framleiðslutækjum“ og taldi fyrst „Togara (10)....... 2,900. 000 dollarar“ Er það nákvæmlega sama upphæðin og Hoffman segir að sótt hafi verið um! Stefán Jóhann hélt ræðu við sama tækifæri og sagði að ríkisstjórnin ynni að því að fá hluta af andvirði tog- aranna sem bráðabirgðalán í Bretlandi og bætti við: „Ríkisstjórnin vinnur einnig að fjáröflun eftir öðrum leiðum og þá fyrst og fremst, í sambandi við MarshaIlaðstoðina.“ Þarna ber öllu saman. Fyrri yfirlýsingar þeirra Al- þýðuflokksráðherranna eru í algeru samræmi við þau ummæli Paul Hoffmans sem rakin voru hér í blaðinu í gær. Ríkisstjórnin ætlaði að fá 2,9 milljónir dollara af marsjallfé og sótti um það. Sú upphæð var reiknuð með í áætluðum greiðsluhaUa við dollarasvæðið. En síðan kom babb í bátinn, Marsjall- stofnunin lagðist gegn tog- arakaupunum, og ríkisstjóm in neyddist til að taka hneykslislánið í Erellanu. Yfirlýsing ríkisstjórnar- innar í fyrrada.g hit.tir ig ekki aðeins Paul Hoffman heldur einnig Steíán Jchann Stefánsson og Emií Jónsson. Þeir eru allir stimplaðir sem ósannindamenn, og skýrslur þeirra og ræður bull og fleipur. Ætli að það væri ekki ráð að ríkisstjórn in sendi frá sér nýja yfir- lýsingu ? lÓÐVIUVNM 1. þmg Eðaaentasambands Isiands: Easp nema verði í Matfalli við sveinakanp 7. þingi Iðneemasatíibands Islands lauk s.l. sunnudagskvöld Helztu samþykktir sem gerðar voru eru þessar: 1. A5 fast yrði haldið við fyrri krðfur sambandsins um að bóklega námið fari fram 5\ dagskólum og komið verði á verknámsskólum sem starfrækt ir verði af rikinu. 3. Að ka.up nema verði sam- ræmt og aidrei lægra en hér segir: 1. ár 30%, 2. ár 40%, 3. ár 55% og 4. ár 70% af kaupi eveina í viðkomandi iðn- greinum. 3. 7. þing I.N.S.Í. skorar á næsta Alþingi að það afnemi fyrir næstu áramót lögin um bindingu vísitölurmar við 300 stig. Þingið telur að gengislækk un sú sem framkvæmd hefur verið skerði lífskjör almenn- ings það núkið að ekki verði lexigur við unað að ofangreind. lög haJaist. 4. 7. þing I.N.S.I. beinir því til stjórnar. sambands. IðnsJróla á Islandi að hún. beiti sér fyrir því: 1. að samxæmd verði próf- verkefni pg skólaseta við Iðn- skólana í landinu. 3. Að settar verði nú þegar lágmarkskröfur til kennslu í iðnskólum og jafn- framt verði tími nema við bók- lega námið auJrinn, sem ein- göngu fari fram í dagskólum. 5. Þingið lýsir ánægju sinni yfir hinni nýju iðnfræðslulög- gjöf sem samþykkt var sem lög á AJþingi i vetur, og teJur liana spor í rétta átt. Mikill áhugi rikti á þinginu fyrir hagsmunamálum iðnnema og einhugur og samstarfsviJji einJtenndu störf þingsins. I stjóra sambandsinsi voru kosnir þessir menn: Tryggvi Sveinbjörnsson bókbandsn. for- maður, Magnús Lárusson hús- gagnasmn. varaform., Magnús Nýtt söagvasafn smíðan. rdtari, allir úr ReyJrja- Komin er út bókin „Nýtt söngvasafn handa skólum og heimilum". Friðrik Bjarnason • og Páll Halldórsson hafa búið til prentunar. í formála segir, að þetta nýja söngvasafn sé fyrst og fremst ætlað til notkunar í skólum. Jafnframt er þess vænzt, að það geti orðið liðtækt heimilum, ssm hjálpa vilja til þess að sem flestir geti sungið og spil- að. I bók þessari eru alls 226 lög. M.a, eru þar lög við nær því öll þau Ijóð, sem e-ru í skóla- söngvum þeim, ex- Ríkisútgáfa. námsbóka gefur út. Lögin eru raddsett fyrir harmoníum og píanó. Söngvasafn þetta er prentað í Kaupmannahöfn og er vandað að frágangi. Það er gefið út fyrir atbeina fræðslumálastjórn. arimxar, en aðalútsölu þess annast Bókaútgáfa Menningar- sjóðs og Þjóðvinafélagsins. Tryggvi Sveinbjörnsson vik og Sigurður Ámason mxir- aran. frá Hafnarfirði meðstj. Á sunnudagskvöldið var haJd. ið samsæti í tilefni af 5 ára afmæli sambandsins í Tjarnar- café, auk fjölmargra iðnnema úr Reykjavík sátu það fulltrúar iðnnemafélaganna. utan af landi, er sæti áttu á þinginu, forseti Alþýðusambands Islands cg nokkrir af fyrstu frumherjum samtakanna. Fráfarandi form. sambandsins Tryggvi Gíslason setti hófið og stjórnaði því. Margar ræður voru fluttar og skeyti bárust frá Alþýðusam- bandi íslands o.fl. Jón Sn. Þor- leifsson afhenti frá Skólafélagi Iðnskólans í Reykjavík álitlega peningaupphæð að gjöf til sam bandsins. Karlakór Iðnskólans söng undir stjóm Jóns Isleifs- sonar söngkennara. Núverandi form. Tryggvi Sveinbjörnsson þakkaði hlýhug og góðar gjafir, en að lokum var stíginn dans og skemmtu menn sér hið bezta. 10: Ármanmpgarnir kepptu aitíir í fýrrakvöld við finnsku rneisí- arana, „Union“, og unnu þá með 10 mörkurn gegn 8. Á sunnudaginn var kepptu Jxeir fyrst við FSima og gerðu þá jafntefli 16:16. Æ. F. R. Farið verður í skálann á laugardag kl. 6 e. h. frá Þórsgötu 1. Félagar fjölmennið! Skálastjórn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.