Þjóðviljinn - 28.04.1950, Side 8
Reykjavikiiríhaldið ætlar að af-
neia husaleigulögin á næstn
tveimur ánun
Húsaleigufrumvarp það sem ríkisstjórnaríhöldin hafa
samið um kom til annarrar umræðu í neöri deild í gær.
Samkvæmt því á aö fella húsaleigulögin úr gildi, í áföng-
um á næstu þrsmur árum og endanlega 14. maí 1952
— ef bæjarstjórnir viðkomandi bæjarfélaga ákveöa það.
Reykj avíkurihaldiö stendur aö frumvarpinu og ætlar
þannig aö fullkomna stefnu sína í húsnæðismálum á
þennan hátt.
Frumvarp þetta er beint á-
framhald af gengislækkunar-
lögunum, en þar var svo fyrir
ðeðlilegur
dráttur á af-
greiðslu togara-
vökulaganna
Áki Jakobsson beindi í
gær þeirri beiðni til for>-
seta neðri deildar að frum-
varpið um ný Cogaravökulög
yrði teltíð á dagskrá deildar-
innar. Hapn benti á að mál-
ið væri það 18. sem lagt
hefði verið fyrir alþingi og
það hefði verið afgreitt úr
nefndinni fyrir mánuði. Meiri
hluti nefndarinnar, íhald og
Framsókn, hafa hins vegar
ekki enn séð áulæðu til að
skila skriflegu áliti, enda
hafa þeir lýst afstöðu sinni
á fyrri þingum.
Forseti deildarinnar lof-
aði að athuga málið.
mælt að aðeins skyldi reiknað
með leigu í húsum sem byggð
eru eftir 1945 í vísitölunni.
Upp í þá leigu á öll önnur leiga
sem sagt að hækka.
Ári Jakobsson og Einar OI-
geirsi'on mótmæltu frumvarp-
inu harðlega í gær sem einhliða
árás á leigjendur, þar sem
engar ráðstafanir væru gerðar
til að bæta úr húsnæðisskort-
inum, sem sífellt færi í vöxt.
Var ræðu Einars ekki lokið
þegar fundi var slitið.
Hnefaleikameistaramót ís-
Iands verður háð í kvöld í
íþróttahúsinu við Hálogaland.
Keppt verður í 6 þyngdarflokk-
um.
Keppendur eru frá þrem fé-
lögum, KR, Ármanni og IR. I
léttþungavigt keppa þeir Grét-
ar Árnason IR og Alfons Guð-
mundsson Ármanni. Leikur
þessi verður að öllum líkindum
mjög jafn og harður, því báð-
ir eru þeir í góðri æfingu. I
Radíð-talþjóniista á stnttbylgjum
lilli IsUs og skipa á hafi úti
-I gær var í fyrsta sinn hafin bein radió-talþjónusta á stutt-
bylgjum milli íslands og skipa í hafi, án milligöngu nokkurrar
erlendrar stöðvar, en hingað til hefur slík þjónusta eingöngu
farið fram á svonefndum miðbylgjulengdum, sem liafa mun
minna langdrægi og ná því ekki til skipa í fjarlægum höfum.
Vélskipið „Elsa“
sekkur
Vélskipið „EIsa“ sökk í fyrri-
nótt suðaustur af Malarrifi.
Var skipið á leið til Vestfjarða
með vörur er leki kom að því.
Skipverjar björguðut'i.
Um eitt leytið í fyrradag
barst neyðarskeyti frá „Elsu“,
en mikill leki var þá kominn
að skipinu. Var hún stödd suð-
ur af Arnarstapa. „Víðir“ frá
Akranesi, sem einnig var á
þeim slóðum, kom „Elsu“ til
hjálpar. Um 100 tunnum af
olíu og benzíni, er voru á þilfari
,,Elsu“, var skipað um borð
í „Víði“, er síðan ætlaði að
reyna að draga „Elsu“ hingáð
til Reykjavikur. Ekki tókst að
draga úr lekanum, og fyrir mið
nætti slitnuðu dráttarvírarnir.
Sökk skipið nokkru síðar.
Opnun þessarar stuttbylgju-
talþjónustu við skip hófst í gær
með símtölum við Gullfoss í
reynsluför hans við strendur
Danmerkur, en hann er fyrsta
íslenzka farþegaskipið, sem hef-
ur stuttbylgju-talstöð. Fór
fyrsta samtalið fram milli póst-
og símamálastjóra í Reykjavík
og forstjóra Eimskips á Gull-
foS:i og því næst milli forstjór-
ans og stjórnarformanns Eim-
skips í Reykjavík og heyrðist
ágætlega. Þá lét póst- og síma-
málastjóri að tilhlutun ríkis-
útvarpsins einnig fara fram
móttöku á segulþráð á útvarpi
frá skipinu á því, sem fram
fór í reynsluförinni.
Stuttbylgju-talþjónustan við
Ekip er opin fyrst um sinn alla
virka daga kl. 10.00—16.00.
Frekari upplýsingar verða gefn
ar á afgreiðslu talsambands við
útlönd -(sími 6443).
Kristján Pálsson
millivigt keppa þeir Birgir Þor
valdsson KR og Kristján Páls-
son KR. Birgir er einn af beztu
hnefaleikamönnum okkar, sem
jafnan hefur sýnt góða leiki.
Kristján er ungur hnefaleika-
maður, sem er bæði harður og
fljótur ,og má búast við að
Birgir fái nóg að gera, ef hann
ætlar að ná í titilinn. I létt-
millivigt keppa þeir Jón Norð-
fjörð KR og Björn Eyþórsson
Ármann. Þeir eru báðir vel
þekktir hnefaleikamenn. Þetta
verður að öllum líkindum mjög
harður leikur, sem gæti jafn-
vel endað með K.O., en hvor
þeirra sigrar er erfitt að segja
um, svo jafnir eru þeir taldir.
I öllum hinum flokkunum koma
fram keppendur bæði frá Ár-
manni og KR og má búast þar
við góðum leikjum.
„Sjón er sögu
ÍL
Á laugardaginn kemur verð-
ur byrjað að sýna í Gamla bíó
nýja kvikmynd er Loftur hefur
gert. Er þetta safn stuttra
mynda og nefnist Sjón er sögu
ríkari.
Lengsti hluti myndarinnar er
frá dýragarðinum í Kaupmanna
llöfn, annars aðallega stuttir
kaflar af íslenzkum söngvurum
og hljómlistarmönnum, enda er
myndin að því leyti tilrauna-
mynd að kvikmyndað er með
hljómlist, en hljómlistin ekki
tekin upp af stálþræði. Kaflar
myndarinnar eru 20 af kunn-
um skemmtikröftum, svo að
segja má að eitthvað sé fyrir
alla — ,,og verða bíógestir að
láta sér það vel líka, þótt ekki
sé um slagsmál eða ástarbrall
að ræða í þessari mynú“ eins
og Loftur segir í efnisskránni.
blÓÐVIUINN
Listamesm ísá Kenunglegu ópemnni í Stokkhólmi
sýna
Bréðkaup Figaros
i Þjéðlelkhóslim í jóní n.k. — Næsta leiknt:
Övænf heimsékn
Næsta leikrit Þjóðleikhússins verður: Óvænt heimsókn,
eftir Priestley. Væntanlega verður byrjað að sýna það um
mánaðamótin maí og júní. Leikstjóri verð'ur Indriði Waage.
Guðlaugur Rósinkranz þjóð-
leikhússtjóri skýrði blaða mönn
um frá þessu í gær. Gert er
ráð fyrir að fyrsta sýning á
Brúðkaupi Figaros verði 12.
júní og að sýningarnar verði
10. 11 söngvarar eru í hópn-
um, þ. á. m. Joel Berglund,
forstjóri Konunglegu óperunn-
ar og frægur söngvari, hefur m.
a. verið 3 ár við Metro-Polit-
an óperuna í New York. Kór-
söngvarar koma ekki nema
nokkrir forustumenn í hverri
rödd og er ætlunin að fá ís-
lenzkan kór með þeim. Hljóm-
sveitarstjóri kemur einnig, en
Sinfóniuhljómsveitin' á að leika
undir stjóm hans. Robert Abra.
ham æfir hana þar til sænski
hljómsveitarstjórinn kemur. Þá
er ennfremur ballettflokkur.
Þjóðleikhúsið þarf ekkert
kaup að greiða þessum góðu
gestum, aðeins fargjöld og uppi
hald meðan þeir dvelja hér.
Ekki hægt
Guðlaugur Rósinkranz þjóð-
leikhússtjóri ræddi þetta mál
við forstjóra' óperunnar á leik-
hússtjórafundinum í fyrra. Þá
ræddi hann einnig við leikhús-
stjóra Konunglega leikhússins
í Kaupmannahöfn um að fá
hingað danskan ballettflokk,
en hann taldi kostnaðinn við
það svo mikinn að það væri
“kki kleift. Er það ástæðan ti)
þess að það eru Svíar en ekki
Danir, sem koma hér fyrst fram
sem gestir í þjóðleikhúsinu.
Boð frá Edinborg
Þjóðleikhússtjóri skýrði einn-
ig frá því að þjóðleikhúsinu
hefði borizt boð frá Edinbofg
um að senda þangað leikara-
flokk á hljómlistarhátíðina, er
verður í ágúst í sumar, og leika
þar lielzt einþáttung ■— og á
ensku. Þetta boð hefur verið
afþakkað vegna kostnaðar og
jafnframt kvað þjóðleikhús-
stjóri það ekki viðeigandi að
þjóðleikhúsið sendi leikara sína
til að leika á erlendar tungur.
Yeitingar í kjall-
aranum
Á leikskrám þeim er út eru
komnar hefur verið auglýst að
kaldar veitingar séu í kristal-
sal. Þessu hefur verið breytt
og veitingarnar fluttar í kjall-
arann þar sem þjóðleikhússtjóri
telur óviðeigandi að hafa gos-
drykkjasölu í viðhafnarsal þjóð
leikhússins.
Kimningsskapur
stoðar ekki
Þjóðleikhússtjóri kvað nokk-
uð hafa kveðið að því að menn
væru að hringja til sin og biðja
sig að „taka frá“ fyrir sig
miða. Bað þjóðleikhússtjóri
blöðin að skila því að það
stoðaði ekki þótt kunningjar
ættu í hlut, þeir yrðu að snúa
sér til stúlknanna þriggja sem
Framhald á 7. síðu.
duilfoss afhentur
r
i
Gullfoss, hið nýja farþega-
skip Eimskipafélags íslands fór
í reynsluför í gær og var þá
afhentur Eimskipafélaginu.
Gullfoss er stærsta og vand-
aðasta farþegaskip íslendinga,
3858 lestir og hefur rúm fyrir
218 farþega, þar af 112 á 1.
farrými. Ganghraði á að vera
17 mílur, en í reynsluförinni
komst hann upp í rúmar 18
mílur. Aðalvél skipsins er 5000
hö. Skipstjóri er Pétur Björns-
son. Áhöfn er 64 menn. Gull-
foss á að fara frá Kaupmanna-
höfn 14. þ. m., koma við í
Leith og er væntanlegur hingað
20. maí. Fyrsta ferð hans héð-
an á að vera 3. júní til Kaup-
mannahafnar. •— Gullfoss er 4.
skipið sem Burmeister og
Wain smíðar fyrir íslendinga
síðan eftir stríð.
Almennarj fögnuður
fyrir 25 árum
Eins og frá er sagt á öðrum
stað hófst radíósambandið
við skip á höfum úti, sem
Landssíminn opnaði í gær, með
sambandi við Gullfoss og tók
Ríkisútvarpið upp afhendingar-
athöfnina og útvarpaði henni.
í gærkvöldi.
Þjóðviljinn hafði tal af Gunn
ari Jónssyni veitingamanni en
hann var einn af áliöfn „gamla.
Gullfoss" fyrir 35 árum. Fór
hann hinum lofsamlegustu orð-
um um glæsileik þessa nýja
Gullfoss -—- „en það var al-
mennari fögnuður með gamla
Gullfoss því þá beið öll þjóð-
in komu hans með eftirvænt-
ingu, þá fagnaði öll þjóðin".
mgm s
Þriggja ára drengur verð fyr-
ir loftpressu eða einhverju því
líku á Skúlagötu í gær kl. 14
til 15 og ristarbrotnaði.
Tæki þetta virðist hafa ver-
ið, eftir meiðstlum drengsins að
dæma, á gúmmíhjólum, og
Framhald á 4. síðu.