Þjóðviljinn - 04.05.1950, Blaðsíða 8
1. maí hátíðahöld verkalýðsias úti á landi
Þrátt fyrir hríðarveöur 1. maí og hálfófærar götur
af snjó og krapi fór verkalýður Siglufjarðar í kröfugöngu
þennan dag um nokkrar götur Siglufjarðar, en að kröfu-
göngunni lokinni var fundur í Alþýðuhúsinu, þar sem
ckki ver h,ægt að halda útifund vegna veðurs.
ÞJÓÐVILIINN
Fyrirhyggja gengislækkunarstjórnarinnar:
Saltlaust og vinnuvettlinga-
Eaust á Norðurlandi
Fyrirhyggja stjórnarvaldanna er söm við sig í einu
og öllu. Nú þegar valdmennirnir kveina um að saltfisk-
ur sé eina vonin, nú sé aðeins hægt að selja saltfisk, —
þá er saltlaust á öllu Norðurlandi!
Jafnhliða ætlast víst gengi lækkunarstjórnin til
þess að verkamenn og sjómenn nyrðra vinni vettlinga-
ia'usir því vinnuvettlingar eru þar ófáanlegir og hafa
verið það lengi!
Þyngdarmæiingar um Suðvesturland
Samvinna íslenáinga og Frakka. Mælt á 30 stöðum
Eitt af verkefnum franska Grænlandsleiðangursins,
undir stjóm Paul-Emile Victors, sem hér kom við á leið
sinni til Grænlands, eru þyngdarmælingar. Hefur leið-
angurinn meðferðis tvö nákvæm tæki til slíkra mælinga.
Meðan leiðangurinn stóð hér við fóru íslenzkir vís-
indamenn fram á samstarf við Frakkana um þyngda:--
mælingar hér á landi. Frakkarnir tóku þeiri'i málaleitan
mjög vel og á föstudaginn og laugardaginn var eftir
óskum íslenzku vísindamannanna. mælt á svæðinu frá
Reykjavík austur í Þykkvabæ og frá Keflavík til Grinda-
víkur, eða alls á um 30 mælistööum.
Bjarni Þorsteinsson setti
hátíðahöldin en ræður fluttu á
fundinum Jón Jóhannesson vara
formaður Þróttar og Ásta Öl-
afsdóttir formaður verkakvenna
félagsins Brynju. Kl. 5 var
kvikmyndasýning. Um kvöld-
ið var skemmtun í bíóhúsinu.
Kristinn Sigurðsson, Ebert Ell-
ertsson og Gísli Sigurðsson
fluttu ræður. Gunnlaugur
Hjálmarss. las irumort kvæði:
1. maí og Kristinn Guðmunds-
son las kvæði eftir Jóhannes
úr Kötlum. Karlakórinn Vísir
söng. Síðan var dansað.
1. maí á Akureyri
Akureyri í fyrrad. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
1. maí-hátíðahöld verkalýðs-
félaganna á Akureyri hófust
með útifundi við Verkalýðshús-
ið kl. 1 e. h. Lúðrasveit Akur-
eyrar, undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar lék nokkur lög,
en ræður fluttu Guðrún Guð-
varðardóttir ritari verkakvenna
félagsins Einingar, Þórsteinn
Svanlaugsson form. Bílstjóra-
félags Akureyrar og Bjöm
Jónsson form. Verkamannafé-
lags Akureyrarkaupstaðar.
Lúðrasveitin lék milli ræðn-
anna. Að fundinum loknum var
farið í kröfugöngu undir fán-
um verkalýðsfélaganna og
kröfuborðum. Mörg hundruð
manna tóku þátt í göngunni.
— Ágætt veður var meðan fund
urinn og gangan fóru fram,
en snjóaði bæði á undan og eft-
ir.
Kl. 3 var bamaskemmtun í
Nýja Bíó. Jón Þorsteinsson
flutti ávarp, síðan var kvik-
mynd. Kl. 5 var samkoma í
bíóhúsinu. Hersteinn Halldórs-
son flutti ávarp, síðan var
sýnd kvikmyndin Óður Síber-
íu. Kl. 8 um kvöldið var sam-
koma í samkomuhúsi bæjarins.
Jón Ingimarsson form. Iðju, fé-
lags verksmiðjufólks flutti
ræðu, Karlakór Akureyrar söng
undir stjórn Áskels Jónssonar,
síðan var dansað til kl. 2 e.m.n.
Hafnarfjörður
FuIItrúaráð verkalýðsfclag-
anna í Hafnarfirði, Starfs-
mannafél'ag Hafnarfjarðar og
Iðnaðarmannafélag Hafnarfjarð
ar gengust fyrir sameiginleg-
um hátiðahöldum 1. maí og
var kröfugangan sú stærsta
sem farin hefur verið í Hafn-
arfirði og úCifundurinn sá fjöl-
mennasti.
Kröfugangan hófst kl. 2 e. h.
frá verkamannaskýlinu og
voru farnar nokkrar götur bæj
arins og staðnæmzt við Vestur
götu 6 og útifundurinn haldinn
þar. Sigurrós Sveinsdóttir vara
formaður fulltrúaráðsins setti
fundinn en ræður fluttu Her-
mann Guðmundsson, Kristján
Eyfjörð, Guðmundur Gissurar-
son og Helgi Hannesson. Lúðra
sveit Hafnarfjarðar lék fyrir
göngunni og milli ræðnanna.
Kl. 5 var bamaskemmtun í Bæj
arbíó. Um kvöldið var dansleik-
ur í Góðtemplarahúsinu. Aðilar
að hátíðahöldunum gáfu út
blað með ávarpi og greinum frá
formönnum stéttarfélaganna og
var því dreift ókeypis um bæ-
inn.
Norðfjörður
Á Norðfirði var barnaskemmt
un í bíóhúsinu kl. 2 e. h. 1.
maí. Ræður fluttu sr. Guðmund
ur Helgason og Jóhannes Stef-
ánsson. Bjarni Þórðarson las
upp. Síðan var sýnd kvikmynd.
Um kvöldið var dansleikur.
Vestmannaeyjar
I Vestmannaeyjum var kvöld
skemmtun í samkomuhúsinu.
Ræður flutti sr Halldór Kol-
beins og Karl Guðjónsson og
Stefán Árnason lásu upp.
Karlakór Vestmannaeyja söng.
Selfoss
Á Selfossi var haldinn fjöl-
menn 1. maí-hálið í Selfossbíó.
Hátíðin liófst kl. 4 með ávarpi,
sem formaður iðnnemafélags-
ins, Sigurður Guðmundsson,
flutti.
Síðan var sýnd kvikmynd, og
því næst komu ö'- nur skemmti-
atriði: Fjórar ungar stúlkur
sungu, Jónas Árnason flutti
ræðu, karlakórfnn „Söngbræð-
ur“ söng undir stjórn Ingimund
ar Guðjónssonar og loks las
Kolbeinn Guðnason upp kvæði.
Formaður 1. maí-nefndar var
Vigfús Guðmundsson.
Engar uppbætur
greiddar á
eftirlaun
Ásmundur Sigurðsson
spurðist, fyrir um það á AI-
þingi í gær hvort ríkisstjórn
in hefði greitt eftirlauna-
mönnum uppbætur á laun,
eins og Alþingi gaf heimiid
til í vet'ur samkvæmt tillögu
sósíalista, og af hverju það
stafaði ef heimildin hefði
ekki verið notuð.
Eysteinn Jónsson lýsti
yfir því að heimildin hefði
ekki verið notuð og kvað
ríkisstjórnina ekki enn hafa
ákveðið hvort hún yrði not-
uð. Um ástæðuna fyrir þess-
ari meinbægni við eftirlauna
fólk sagði ráðherrann ekk-
ert, en hún er í fullu sam-
ræmi við framkvæmdina við
ellilaunafólk og öryrkja.
Þorvaldur
Jakobsson
níræður
Þorvaldur Jakobsson, pastor
emer‘‘jus, er níræður í dag.
Þorvaldur fæddist að Staðar-
bakka í Miðfirði sonur Jakobs
prests í Steinnesi Finnbogason-
ar og konu hans Þuríðar Þor-
valdsdóttur prófasts í Holti
Böðvarssonar. Stúdent varð
Þorvaldur 1881 og cand. theol.
1883. Síðan var hann þjónandi
prestur um nærfellt fjörutíu
ára skeið, að Brjánslæk og
Sauðlauksdal. Árið 1921 fékk
Þorvaldur lausn frá prestsskap,
fluttist þá til Hafnarfjarðar og
var kennari við Flensborgarskól
ann fram til ársins 1934. Síð-
an hefur hann búið í Reykjavík
og sinnt fræðistörfum.
Hinir f jölmörgu nemendur og
samferðamenn Þorvaldar Jak-
obssonar munu senda honum
hugheilar árnaðaróskir í dag.
Hann er nú tii heimilis að
Öldugötu 55.
Áður en hægt er að sjá til
fulls niðurstöður mælinganna
verða að fara fram vissar hæða
mælingar og siðan reiknings-
ieg úrvinnsla, scm hér verð-
ur unnið að í sumar. En af mæl-
ingunum er þó þegar hægt að
sjá að það væri mikill feng-
ur fyrir frekari rannsóknir á
undirgrunni landsins að slikt
tæki sem þetta væri ,til hér
á landi, svo að unnt yrði að
færa út mælingarnar yfir aðra
landshluta. Hafa að undan-
förnu verið í gangi tilraunir
til að afla slíks áhalds og
ættu þessar mælingar að vera
hvöt til þess að tækisins yrði
aflað sem fyrst.
Þyngdaraflið er örlitið breyti
legt frá einum stað til ann-
ars og fer eftir byggingu jarð-
skorpunnar á bverjum stað.
Mælingar á þyngdarafli eru
því mjög víða framkvæmdar
erlendis bæði í sambandi við
olíuleit og málmleit, og yfir-
leitt til að fá upplýsingar um
ýmis atriði í byggingu undir-
grunnsins. Islenzkum jarðe$l-
isfræðingum hefur lengi lefkið
hugur á að geta ráðizt í slík-
ar mælingar hér, bæði í sam-
bandi við jarðhitann og eins
í sambandi við brotlínur og
almenna byggingu landsins, en
vöntun á tækjum hefur gert
það ókleift.
Þeir sem standa að samstarf
inu af íslendinga hálfu eru
Gunnar Böðvarsson yfirmaður
jarðborana ríkisins, Trausti
Einarsson prófessor og Þor-
björn Sigurgeirsson framkvstj.
Rannsóknarráðs ríkisins. 'Eru
þeir mjög ánægðir með árang-
ur verksins og róma mjög hve
Frakkarnir lögðu sig fram til
að hinn stutti tími er til um-
ráða var nýttist sem bezt.
En jafnframt því sem þann-
ig hefur unnizt verulega á í
mælingunum innanlands hefur
einnig, fyrir starf Frakkanna,
fengizt miklu nákvæmari teng-
ing en áður við grundvallar-
mælingu á þyngdaraflinu á meg
inlandi Evrópu.
Sumarið 1938 var þýzkur
leiðangur við mælingar á Norð-
urlandi eins og kunnugt er, og
framkvæmdi hann meðal ann-
ars þyngdarmælingar á línu frá
Ljósavatnsskarði til Gríms-
staða á Fjöllum. Hafa .það
fram til þessa verið einu mæl-
ingarnar af þessu tagi hér á
landi. Nú var lögð lína frá
Reykjavík að Hellu á Rangár-
völlum með afleggjurum niður
að Eyrarbakka og niður í
Þykkvabæ, og önnur lína var
lögð þvert yfir Reykjanes frá
Keflavík til Grindavíkur.
Landskeppni í
hæfnisglímu
Landskeppnj í hæfniglímu fer
fram að Hálogalandi næstkom-
andi föstudagskvöld. Keppt.
verður í þremur flokkum, af 21
keppanda frá 7 félögum víðs-
vegar á landinu.
------------1----------
Skotfélag stofnað
Hér í bænum er verið að
stofna félag áhugamanna um
skotfimi. Nefnist félag þetta
Skotfélag Reykjavíkur. Fram-
haldsstofnfundur þess verður
haldinn í kvöld í Tjarnarkaffi
og hefst kl. 20.00.
Uffl 20 nmsóknir um nýju
togarana
Forsætisráðherra svaraði í gær fyrirspurn
Einars Olgeirssonar um þaö hvernig nýju togur-
unum yrði ráðstafað. Skýröi ráöherrann frá því
að um 20 umsóknir og fyrirspurnir hefðu þegar
borizt og skiptast þær þannig: Bæjai’stjórn
Reykjavíkur 6—7, Húsavík 1, ísafjöröur 2, Siglu-
fjörður 1, Akx-anes 1, Hafnai'fjöröur 3, h.f. Venus
1, Verzlun Ólafs Jóhannessonar, Patreksfirði 2,
ennfremur hafa komið fyrirspurnir frá Akureyri
og Bolungarvík.
Sagði ráðherrann að ríkisstjórnin hefði á-
kveðið að fela trúnáðarmönnum sínum að ræða
nánar við umsækjendur og fyrirspyrjendur.