Þjóðviljinn - 15.06.1950, Síða 1

Þjóðviljinn - 15.06.1950, Síða 1
Undanrásir varu tefldar ! gærhvötd í fjóvum riÓ.'jín. — I kvöld verður keppt til úrslita MLJÍNN 15. árgangur. FimnJiudagur 15. júní 1950. 128. tölublað. Dagsbrúnarfundurinn i ISnó i fyrrakvöld: ATVINNUHORFUR VERKAMANNA GEIGVÆNLEGRI nu en ellan árafug - Verka nægrí atvinnu, ia a bvi Dagsbrúnarfundurinn í fyrrakvöld samþykkti einróma eftirfarandi: „Fundur í verkamannafélaginu Dagsbrún, haldinn 13. júní 1950, telur að ásiand og horfur í atvinnumálum verkamanna séu nú uggvæn- legri en verið hefur um sama leyti árs í nærri heilan áratug. Fundurinn vill leiða athygli allra hugsandi manna að þeim voða sem er fyrir dyrum, ef atvinfculeysi verður hlutskipti verkalýðsins í þeirri geigvænlegu og vaxandi dýrtíð, sem nú er í lamdinu. Fundurinn telur, að valdhafar þjóð- arinnar, sem tekið hafa að sér að stjórna málefnum hennar, séu ábyrgir fyrir því að hver vinnufær maður hafi næga atvinnu. Til að ráða bót á atvinnuástandinu, samþykkir fundurinn eftirfarandi: MEIRI BYGGINGAFRAMKVÆMDIR VERÐI LEYFÐAR 1. Að skora á ríkisstjórnina, að leyfa mun meiri b.vgginga- framkvæmdir en nú er og beita sér fyrir slíkum fram- kvæmdum og stuðla að því að lánsfjárstofnanir þjóðarinnar styðji þær með hagkvæmum lánum. Ennfremur að öðrum atvinnuvegum verði séð fyrir nægum innfíutningi svo at- \innuleysi verði ekki af þeim sökum. Bretar skammað- ir í USA og Vest- ur-Evróp« Blöð og stjórnmálamenn í Bandaríkjunum og á megin landi Vestur-Evrópu ráðast ó- vægilega á stefnuyfirlýsingu brezka Verkamannaflokksins, þar sem þáttöku Bretlands í samandsríki Vestur-Evrópu er hafnað. Þingmenn í Washington kröfðust þess í gær hver um annan þveran, að Bretland yrði svipt allri bandarískri aðstoð. Sósíaldemókrataflokkur Frakklands ávítir í yfirlýsingu í gær ■ miðstjórn Verkamanna- flokksins, en lýsir yfir að hann geti ekki stutt neina þá stef-nu, sem beint sé gegn Bretíandi. Brezk blöð leggja mörg á- herzlu á, að yfirlýsing Attlee á þingi. hafi sýnt, að stefna Verkamannaflokksstjómarinn- ar sé allt önnur en stefna Verkamannaflokksins! Utanríkismálanefnd franska þingsins samþykkti í gær með 48 atkv. gegn 2 að þingið skyldi ræða Schumanáætlunina um þungaiðnaðarsamsteypu í Vestur-Evrópu áður en rikis- stjómin geri nokkuð í málinu. Fréttaritarar segja að and- staða gegn áætlun Schumans utanríkisráðherra fari vaxandi í öllum frönsku stjómarflokk- unum. LANDSMENN FAI MEIRA VERZLUNARFRELSI Að svo miklu leyti sem ríkisstjórnin treystir sér ekki til slíkra framkvæmda af gjaldeyrisástæðum, telnr fundur- inn rétt að veita landsmönnum meira frjálsræði en nú er til sölu á útflutningsvörum og innkaupa á efnivömm til atvinnuframkvæmda. SOGSVIRKIUNIN VERÐI HAFIN 2. Að skora á bæjar- og ríkisstjóm að beita sér fyrir því, að þegar í stað verði hafnar framkvæmdir við Sogs- virkjunina. BÆRINN FJÖLGI í UNGLINGAVINNUNNI 3. Að skora á bæjarstjórn Reykjavíkur, að fjölga til mikilla muna í unglingavinnu bæjarins, þar sem atvinnuleysi ungl- inga er nú mjög alvarlegt. 4. Fl. MÖTIÐ í gærkvöld héit áfram keppni í 4. fl. vormótinu. KR vann Víking með 1:0. BÆJARSTJÓRNIN ÞARF ÞEGAR AÐ UNDIRBÚA ATVINNU NÆSTA VETUR 4. Að beina því til bæjarstjómar, að gera nú þegar nauð- synlegar ráðstafanir með undirbúning verkefna handa at- vinnulausuni verkamönnum á komandi hausti, þar sem ekki er annað sjáanlegt en að hér verði alvarlegt atvinnu- leysi, ef áfram heldur eins og nú horfir. BDRT WFB STLENDA VEBKAMENN AF KEFLAVIKUBFIUGVELLI! 5. Að allir útlendingar i vinnu á Keflávíkurflugvelli verði tafarlaust látnir víkja þaðan og íslendingum fengin störf þeirra. Skorar fun<furinn á stjóm Aiþýðusambands- ins að hefjast handa um að fylgja þessari kröfu verka- lýðssamtakanna fast eftir.“ Dagsbrúnarmenn héldu fund í fyrrakvöld og ræddu atvinnumálin. Siguröur Guðnason formaöur Dagsbrúnar talaöi fyrst nokkuö um dýrtíðarmál en síðan Eðvarð Sig- urðsson, ritari félagsins, um vlðhorfin í atvinnumálum hjá verkamönnum. Útlitið í atvinnumálum er uggvænlegra nú en það hefur nokkru sinni verið í sumarbyrjun í heilan áratug. Mikill fjöldi verkamanna hefur stopula og lélega vinnu. > Þeir sem enn vinna á svokölluðum föstum vinnu- stöðum búa við stöðugt öruggisleysi um að vera sagt upp þá og þegar. Atvinnuleysi er mjög stórfellt meðal unglinga. "yinna við byggingar er nú aðeins orðin svipur hjá sjón. Vinna við fjölda húsa hefur nú stöðvazt vegna efnisskorts og vinnu er ekki hægt að hefja við fyrirhugaðar byggingar af sömu orsökum, og yfir vofir að byggingavinnan stöðvist algerlega, þar sem stjórn- arvöldin hafa ekki leyft nema byggingu 60 íbúða í Reykja vík á þessu ári — og óvíst er hvenær efni verður fáanlegt. ■yinna í iðnaðinum hefur einnig dregizt saman og vofa yfir uppsagnir og stöðvanir sökum efnis- skorts og synjana á innflutningsleyfum til framleiösl- unnar. ^inna á vélaverkstæðunum er einnig minnkandi og er táknrænt í þeim efnum að Héðinn, einmitt það verkstæðið er mest stóð undir nýsköpunarfram- kvæmdunuw á árunum sem einokunarafturhaldið var ekki einrátt um stjórn landsins — hefur nýlega sagt upp 20 mönnum, og fleiri uppsagna má vænta hjá vél- smiðjunum. ♦* ■yinna við höfnina hefur verið sæmileg undanfarjð, aðallega vegna veiða togaranna í salt og innflutn ings á áburði, en nú er honum lokið og þegar vinnan við saltfisksuppskipun minnkar er alger ÓVISSA FRAM- UNDAN VIÐ HÖFNINA. y/inna hjá bænum er í svipuðu horfi og undanfarin ár, en gatnagerð verður þó væntanlega minni en undanfarin ár sökum skorts á malbiki o. fl. Verkamönnum er það fullljóst aö ofan á þann sam- drátt er orðið hefur í verkamannavinnu bætist aukið framboð vinnuafls frá iðnaðinum og fl. greinum vegna stöðvunar og uppsagna. FRAMUNDAN ER ÞVÍ VAXANDI ATVINNULEYSI. Þetta er afleiðingin af stjórnarstefnu þríflokkanna, ríkisstjórnar auðmannastóttarinnar, á undanfömum ár- um. Með því að binda viöskipti landsins við auðvalds- löndin, kreppulöndin. er auk þess keppa um framleiðslu samskonar vara og íslendingar, hefur auðmannastétt- inni loks tekizt að skapa hér atvinnuleysi, — og er þetta þó aðeins upphafið á enn verra ástandi. Allar framkvæmdir hafa verið fjötraðar í einokunar- viðjar fámennrar auðmannastéttar. En þegar þríflokk- arnir vom að smeygja fjötrunum á þjóðina lofuðu þeir allt öðru. Með lögunum um fjárhagsráð — þetta ráð er bannar íslendingum að byggja yfir sig hús — er því fengið það verkefni að skipuleggja AÐ ÖLL FRAM- LEIÐSLUGETA SÉ HAGNÝTT TIL FULLS OG ÖLLUM VERKFÆRUM MÖNNUM TRYGGÐ NÆG ATVINNA. Verkamenn heimta nú efndir þeirra loiorða.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.