Þjóðviljinn - 29.06.1950, Page 5

Þjóðviljinn - 29.06.1950, Page 5
Fimmtudagur 28. júní 1950. ÞJÖÐVILJ%XN B ÖryggisráSiS gerf að verk- fœri bandariska auSvaldsins - láfiS jbverbrjófa sáffmála sameinuSu þjóSanna og sam- þykkja lögleysu ákvarSanir um hernaSaraSgerSir Samkvæmt 27. gr. sáttmálans er öryggisráðið að- eins ályktunariært um fundarsköp, eins cg það er skipað nú Þau ummæli Trygve Lie, aðalritara sameinuðu þjóðanna, að atburðirnir í Kóreu séu bein afleiðing hins svor.efnda kalda stríðs og yrðu eklti greindir frá hinu almenna ástandi í alþjóðamálum munu vekja alla þá til umhugsunar um undan- fara þessara atburða, sem ekki láta hella eyru sin full af ómeltum áróðri Bandaríkjaauðvaldsins, sem r.ú þegar hafa gert Bandaríkin að stríðsaðila og misnotað sameinuðu þjóð- irnar svo að ein aðalstofn'un þeirra, öryggisráðið, eða réttara sagt hluti þess, hagar nú störfum eins og sáttmáli sam- einuðu þjóðanna sé einskisvert pappírsgagn. Staðzeyndir vikja fyrir áréðri í öllum málatilbúnaði Bandaríkjanna fyrir öryggisráðið er það algert aukaatriði hvað gerzt hefur á Kóreu sunnu- dagsnóttina. Öryggisráðið kvatt saman (án þátttöku Sovét- ríkjanna og með fulltrúa stjórnar yfir Formósu, sem mörg ríki, þar á meðal ríki úr öryggisráðinu, hafa svipt viðurkeim- ingu löglegrar ríkisstjómar, í sæti Kínaveldis). Felld er til- Iaga frá Júgóslavíu að hlýða á framburð fulltrúa alþýðustjórn- arinnar, óljós símskeyti bandaríska sendiherrans, þar á meðal þvættingur um útvarpaða „stríðsyfirlýsingu“ alþýðustjórnar- innar, eru „staðreyndir“ þær sem öryggisráð sameinuðu þjóð- anna á að Ieggja til grundvallar örlagaríkustu ákvörðunum varðandi frið og stríð í heiminum. Skýlaus ákvæði 27. greinac En það sem öryggisráðið er talið hafa gert í þessu máli, er beint og skýlaust brot á sáttmála sameinuðu þjóðanna, og þri alger lögleysa. Sameinuð’u þjóðirnar og öryggisráð þeirra hafa engar aðrar reglur að starfa eftir, það sem gert er þvert ofan í sáttmálann, er því ekki gert af sameinuðu þjóð- unum eða öryggisráði þeirra, heldur er það ósvífin misnotk- un þessara alþjóðasamtaka. Enda hafa stríðsæsingamenn Banda- ríkjanna ekki farið dult með það að þeir teldu sáttmála sameinuðu þjóðanna hindrun í vegi. I 27. grein sáttmála sameinuðu þjóðanna segir orðrétt: „Til ákvarðana öryggisráðsins í márum UM FUNDARSKÖP þarf jákvæð atkvæði sjö meðlima. TIL ÁKVARÐANA I ÖLLUM ÖÐRUM MÁLUM þarf já- kvæð atkvæði sjö meðlima, AÐ MEÐTÖLDUM ATRVÆÐUM HINNA FÖSTU MEÐLIMA, þó með því sldlyrði að í ákvörð- unum mála, sem nefnd eru í VI. kafla og í 3. lið 52.* gr. skuli deiluaðili sitja hjá við atkvæðagreiðslu.“ (Þau undantekningaratriði sem vitnað er til eru um mál þar sem meðliniir öryggisráðsins eru deiluaðilar). % MísEöikim saKf.eÍEiuðu þjéðanna Nú eru samþykktir öryggisráðsins gerðar með atkvæði Formósustjórnar í stað stjórnar Kínaveldis enda þótt t.d. Bretar, Norðmenn, Júgóslavar og Indverjar sem sæti eiga í ráðinu, hafi svipt stjórn Sjang Kai Sék viðurkenningu sein löglegri ríkisstjórn. Og vegna fjarstæðunnar um setu Formósastjórn- ar í öryggisráðinu telja Sovéfríkin ekki rétt að taka þátt í störfum þess nú. SAMKVÆMT SÁTTMÁLA SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA GETUR ÖRYGGISRÁÐIÐ ÞANNIG SKIPAÐ EINUNGIS TEKIÐ ÁKVÖRÐUN UM FUNDARSIÍÖP, sain- þykktir l>ess undanl'arið eru ekki gerðar samkvæmt sáttmála saineinuðu þjóðanna, en það eitt sem gert er samkvæmt honum, er gert af samtökum sameinuðu þjóðanna. Alþýðustjóm Kéreu nýtur fylgis og trausts alþýðu og sjálfstæðismaiina úr öllum landshlutum §nður»Móreustjórn er óvinsæl handarísk leppstjórn sesn beiti liefnr landslýé verstu kísguit I Bandaríkjaáróðrinum sem öii íslenzk blöð önnur en blöð sósíalista hella yfir landslýð, er lítið liirt um staðreyndir, að vanda. Auðvelt er þó að afla nokkurra fróðlegra staðreynda um það sem gerzt hefur í Kóreu siðustu árin, og skýra þann þátt atburðanna sem þar eru að gerast, — en með ákvörðun Bandaríkjastjórnar um hernað- araðgerðir um alla Austur- og Suðausturasíu er sjálft Kóreu- málið að hverfa í skugga þeirr- ar ógnunar að striðsóðu auð- vald Bandaríkj. takist sú ætlun s:n að hleypa heiminum í bál. Þjóðfrelsishreyfing Kóreu rayndar sterk - stjórnmálasamtök Fyrir rúmum tveimur árum, 23. apríl 1948 hófst í Pyongy- ang í Norður-Kóreu stjórn- málaráðstefna með fulltr. frá öllum landshlutum. Þá hafði verið afráðið að láta fara fram kosningar í Suður-Kóreu undir eftirliti hinnar svonefndu Kór- eunefndar sameinuðu þjóðanna, en nefnd þessi var upphaflega skipuð af „litla allsherjarþing- inu“ sem lýst var ólögleg stofn- un af Sovétríkjunum og fleiri bandalagsríkjunum, og hefur í einu og öllu rekið erindi Banda- ríkjamanna og leppstjómar þeirra í Suður-Kóreu. Á stjórnmálastefnunni í Py- ongyang var mynduð samfylk- ing til að vinna að sjálfstæði og einingu landsins, og náði sú samfylking frá kommúnistum til álirifamikilla og heims- kunnra stjórnmálamanna úr borgaraflokkum landsins, þar á meðal Kim Koo og dr. Kimm Kiusic. Kim Koo var íhalds- maður, hafði verið forseti út- lagastjórnar þeirrar er sjálf- stæðismenn Kóreu mynduðu í Kína eftir 1919, er uppreisn þeirra gegn kúgunarstjórn Jap- ana hafði verið bæld niður. Hvorugur þeirra stjórnmála- leiðtoga hafa nokkru sinni ver- ið kenndir við kommúnisma. Málefnagrundvöllur þjóðfylkingarinnar Dr. Kimm Kiusic lýsti yfir opinberlega áður en ráðstefnan hófst, að stjórnarvöld Norður- Kóreu hefðu samþykkt starfs- grundvöll hennar og -samkomu- lagsatriði þjóðfylkingarinnar í þessum atriðum: 1. Einræðisstjóm hafnað, þar á meðal alræði öreigalýðsins. — 2. Einokunarauðvaldi hafnað, en. viðurkenndur einkaeignarétt- ur. — 3. Stuðningur við eina stjórn allrar Kóreu myndaða eftir kosningar um allt lá&d. — 4. Unnið gegn herstöðvum erlendra ríkja. — — 5. unnið að brottflutningi herja Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna með tvíhliða samning- um. Á þessum forsendum starf- aði ráðstefna þjóðfylkingarinn- ar og mótmælti eindregið kosn- ingunum fyrirhuguðu í Suður- Kóreu sem lið í skiptingu lands- ins. Leppstjórn Syngmans Rhee hróflað upp Þær kosningar fóru fram 10. maí 1948 og urðu ákafar óeirð- ir víða um landið í sambandi við þær. Yfirvöldin beittu hvers konar bolabrögðum og ofsókn- um gegn vinstri mönnum, og verkalýðshreyfingu og voru úr- slitin höfð þau að tveir aftur- haldssömustu flokkarnir hefðu fengið yfirgnæfandi meirihluta, annar þeirra flokkur Syng- mans Rhee, aðal„trúnaðar- manns" bandaríska auðvaldsins meðal stjórnmálamanna Kóreu. ,,Eftirlitsnefndin“ lagði auð- vitað blessun sína yfir þess- ar fasistísku kosningar, og kom saman þing þannig kosið í Seoul 31. maí 1948. Samþykkti það stjórn- arskrá er gilda skyldi fyrir allt landið og 20. júlí 1948 var Rliee kosinn „forseti lýðveld- isins“, en hershöfðinginn Lee Bum Suk gerður „forsætisráð- herra“. Bandarikin og Sjang Kaisék sendu þegar „sendi- herra“ til þessarar stjórnar og 12. ágúst 1948 var J. J. Muccio, sá sem nú hefur hlotið heró- stratíska frægð fyrir hlutverk sitt i atburðum síðustu daga, gerður að ambassador Banda- ríkjanna í Kóreu, er veitti þar með leppstjórn Syngmans Rhee formlega og algera viðurkenn- ingu. Sama ár„ 11. des., var undirritaður í Seoul samning- ur um 300 milljón dollara hjálp Bandaríkjanna til stjórnar hans. Þing og stjórn allrar Kóreu Framhald stjórnmálaráðstefn unnar í Pyongyang varð það að þjóðfylkingin boðaði til kosn inga um alla Kóreu 25. ágúst 1948, og voru kosningarnar framkvæmdar í Suður-Kóreu af leynihreyfingu sjálfstæois- manna þar, sem taldi sig hafa náð til þriggja af hverjum fjórum kjósendum. Kosnir voru 527 þingmenn, þar af 360 frá Suður-Kóreu. Þingið lýsti yfir að það teldi sig eina löglega löggjafa allrar Kóreu, og mynd aði ríkisstjórn undir forsæti Kim 11 Sung, og samþykkti einróma áskorun til hernámsveldanna að flytja án tafar heri sína á brott. Sovétstjórnin svaraði játandi 18. sept. 1948 og tókust síðan þeir samningar að allur her skyldi fluttur burt úr landinu fyrir 1. jan. 1949. Hófst brott- flutningurinn í október og var lokið að fullu 31. des. 1948. Lét sovétstjórnin í Ijós það álit að Bandaríkjamönnum bæri einnig að flytja sinn her á brott. En Bandaríkin neituðu að viðurkenna stjórn Kim II Sung og brottflutningi hersins að svo stöddu. Hins vegar viðurkenndu Sovétríkin og alþýðulýðveldin alþýðustjórnina sem hina einu löglegu stjórn landsins. Hinn 17. marz 1949 var undirritaður í Moskva 10 ára sáttmáli Sovét ríkjanna og Kóreu um sam- vinnu í efnahags og menningar- málum. Seoulstjórnin óvinsæl herstjórn Háttsettir bandarískir em- bættismcnn hafa ekki farið dult með að stjórn Svngmans Rhee í Suður-Kóreu eigi alla sína tilveru undir ,,hjálp“ Bandarikjanna. í Suður-Kóreu hafa hvað eftir annað undan- farin ár blossað upp skairu- bardagar gegn yfirvöldunum sem beitt hafa fasistískum of- sóknum gegn verkalýðshreyfing unni og frjálslyndum mönnum. 20. okt. 1948 tilkynnti stjórn Syngmans Rhee uppreisn í Suður-Kóreu-hernum, og hefðu uppreisnarmenn náð á sitt vald tveimur borgum, Suchon og Yosh. Segir í tilkynningunni að uppreisnin hafi verið kæfð eftir mjög harða bardaga. Mán- uði seinna var samþykkt á þinginu í. Seoul sú einstæða beiðni hernumins lands að Bandarikjaherinn yrði áfram í landinu, en aðeins 88 af 200 Framhald 4 7. síðn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.