Þjóðviljinn - 29.06.1950, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 29.06.1950, Blaðsíða 7
3$;. jújlV ..*... n' ■ lí i I'.n1i..i tti.tiiii iMÍi.-iUr.iéi-iii «... Á þessum stað tekur blaðiö til birtingar smáauglýs ingar um ýmiskonar efni. Þær eru sérstaklega hentugar fyrir allskonar smáviðskipti, og þar sem verðið er aðeins 70 aurar oröið eru þetta lang- samlega ódýrustu auglýsingarnar sem völ er á. Ef þér þurfið að selja eitthvað eða kaupa, taka á leigu eða leigja, þá auglýsið hér. rfii ~s I I KETlTlSla Bréfaskóli Sósíalistaflokksins sr tekinn til starfa. Fyrsti bréfaflokkur f jallar um auð- raldskreppuna, 8 bréf alls ja. 50 síður samtals. Gjald JO.OO kr. Skólastjóri er Haukur Helgason. Utaná- skrift: Bréfaskóli Sósíalista- j flokksins Þórsgötu 1, Reykja vík. Daglega Ký egg soðin og hrá Kaffisalan Hafnarstræti 16. Fasteignasölu- miðstöðin, Lækjargötu 10 B, sími 6530, annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða o. fl. Ennfremur allskonar tryggingar o. fl. í umboði Jóns Finnbogason- ar, fyrir Sjávátryggingarfé- lag Islands h.f. Viðtalstími alla virka daga kl. 10—5, á í öðrum tímum eftir samkomu lagi. Munið kaflisöluna í Hafnarstræti 16. SamúðaTkcst Slysavarnafélags íslands kaupa flestir, fást hjá slysa- varnadeildum um allt land. ) 1 Reykjavík afgreidd í síma : 4897. Kaupum hreinar f Ullariuslmr Baldurgötu 30. Stofuskápar — Armstólar — Rúmfata- skápar — Dívanar— Komm- óður — Bókaskápar — Borð stofustólar — Borð, margs- konar. Húsgagnaskálinn, Njálsgötu 112. Sími 81570. Kaup-Sala Kaupum ? húsgögn, heimilisvélar, karl- j mannaföt, útvarpstæki, sjón- j auka, myndavélar, veiði- j stangir o. m. fl. Vöruveltan Hverfisg. 59. — Sími 6922. Karlmannaföt — Húsgögn Kaupum og seljum ný og notuð húsgögn, karlmanna- föt og margt fleira. Sækjum — Sendum, Söluskálinn Klappastíg 11. —Sími 2926 Vinna Ragnar Ölafsson hæstaréttarlögmaður og lög- i giltur endurskoðandi. Lög- j fræðistörf, endurskoðun, j fasteginasala. — Vonar- j stræti 12. — Sími 5999. j Sanmavéiaviðgerðir — Skrifstofuvélaviðgerðir. Sylgja, Laufásvegi 19. — Sími 2656, j Nýja sendibíiasföðin Aðalstræti 16 Sími 1395 Lögfræðistörf: Áki Jakobsson og Kristján Eiríksson, Laugaveg 27, 1. hæð. — Sími 1453. ÐIVANVIÐGERÐII. Vönduð vinna. — Sann- gjarnt verð. — Coca-eola- verltsmiðjan. (Útbygging). ATBURÐIRNIR I KÓREU SKIP/tUTG€Ri> RIKISINS Reyðarfja bátur Framhald af 5. slðu. þingmönnum fengust til að greiða þeirri tillögu atkvæði. Acheson segir írá samhengi Syngmans Rhee og Bandaríkjastjórnar t orðsendingu til Bandaríkja- þings 7. júní í fyrra, 1949, skorar Truman forseti á þing- ið að veita lágmarksupphæð 150 milljónir dollara til stjórn- ar Syngman Rhee á fjárhags- árinu sem lýkur 30. júní 1950. Daginn eftir mættu Hoffmann framkvæmdastjóri marsjall- hjálpar og Webb, varautanrík- isráðh. fyrir utanríkismálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings til að sannfæra þingmenn um nauðsyn hjálparinnar. Webb lét svo um mælt að yrði ekki veitt hjálp til eflingar atvinnu- lífi Suðúr-Kóreu yrðu íbúamir auðveld bráð áróðri kommún- ista, en atvinnulíf landsins var allt í kaldakoli undir harðstjórn Bandaríkjavinanna í Seoul. Og 23. júní 1949, fyrir réttu ári, var sjálfum Acheson teflt fram sem lýsti því hreinskilnislega yfir að án aðstoðar Bandarikj- anna hlyti Suður-Kóreustjóm- in að hrynja innan tveggja til þriggja mánaða. Skildu þá þingmenn Bandaríkjanna hver nauðsyn var á hjálp til þessar- ar glæsilegu lýðræðisstjómar Bandaríkjavinarins Syngman Rhee, og var „hjálpin“ sam- þykkt. Kim Koo myrtur Um sama leyti var Syng- man Rhee svo stálheppinn að losna við skæðasta stjómmála andstæðing sinn í Suður-Kóreu stjórnmálaleiðtogann Kim Koo sem áður getur ,og var þátt- takandi samfylkingarinnar í Pyongyang. Kim Koo var myrt ur í Seoul 26. júní 1949, og var morðinginn liðsforingi úr her Suður-Kóreu, játaði hann að hafa framið morðið af „persónulegum og pólitískum" ástæðum. Bandaríkjastjórn tilkynnti brottflutningi hersins lokið í fyrrasumar, 29. júní, en eftir hefðu verið skildir 500 foringj- ar og liðsmenn til að þjálfa her Suður-'Kóreu. og honum afhent hergögn af birgðum P , hernamsliðsins. Innrás írá Suður-Kóreu í íyrrasumar Skærur á landamærum Norð- ur-Kóreu og Suður-Kóreu, 38. breiddarbaugnum, hafa verið mjög tíðar en einkum þó færzt í aukana frá þvi í fyrrasumar. Hefur ekki verið farið dult með þær af hvorugum deiluaðila. þannig tilkynnti Suður-Kóreu- stjórnin í fyrrasumar að her hennar hefði farið yfir landa- mærin og hemumið hæð eina í Kaeseng-héraði norðan landa- mæranna 25. júlí 1949. Stóð þar öðru hvoru stórskotahríð milli herjanna alla síðustu vik- una af júlí og til 3. ágúst. Þarna hefur með öðrum orð- um gerzt nákvæmlega hliðstæð- ur viðburður því sem alþýðu- stjórnin heldur fram að gerzt hafi s. 1. sunnudagsnótt, nema hvað afleiðingar virðast nú hafa orðið þær sem meira að segja Kóreunefndin hafði lát- ið sér koma til hugar fyrir ári: úr hernaðarögrunum S.-Kór- euliðsins verður almenn gagn- sókn norðurhersins. Kóreuneíndin skýrir frá „hernaðarögrunum” báðu megin 38. baugsins er leitt geti til stríðs I skýrslu sem hin alræmda Kóreunefnd, sem kennir sig við sameinuðu þjóðirnar, sendi og birt var í Lake Suecess 8. sept. 1949 er rætt um landa- mæraóeirðir þessar, og enda þótt nefndin haldi fram hlut Suður-Kóreu hefur hún þar ekki séð sér fært annað en leggja sökina á landamæraó- eirðum á herðar beggja aðil- anna, og segir að „hernaðar- ögranir báðu megin 38. breidd- arbaugsins“ þýði „alvarlega hættu á egningu til almennra hernaðarátaka“. í skýrslu þéssari, frá aðila sem sízt verður vændur um hlut drægni í garð afturhaldsstjórn- ar Suður-Kóreu, er sú stjórn einnig gagnrýnd fyrir það að liafa ekki gert neitt átak til að lækna pólitískar erjur innan sinna eigin raða, svo hún „sýni sig við 38. breiddarbaugiim sem stjórn sundurþykks fólks“. Einnig gagnrýnir nefndin að ríkjandi tortryggni hafi að vissu marki „gert hörkulega" („brutalized") framkomu Suð- ur-Kóreustjórnar (mjög vægi- lega að orði komizt um þá fas- istísku harðstjórn sem komið hefur verið á í Suður-Kóreu, í skjóli Bandaríkjanna) og hafi það „vakið tortryggni þeirra sem liafa haldið sér sjálf stæðum og gagnrýnum í anda“, og ennfremur hafi stjórn S.-Kóreu andstætt N.-Kóreustj. vanmetið áhrifin á hugl fólksins af hugmyndinni um lausn á erfiðleikum Kóreu með því að leiðtogar Norðurs og Suðurs settust að sama borðí og leituðu sameiginlegrar lausnar vandans. „ >v Staðreyndirnar 1 þessum ummælum nefndar sem fyrr og nú hefur komið fram sem óvinur Norður-Kóreu- stjórnar felast mikilsverðar bendingar um staðreyndirnar í stjórnmálaástandinu á Kóreu, bendingar um þau aðalatriði að alþýðustjórnin í Pyongyang, stjórn víðtækrar þjóðfylkingar sem berst fyrir einingu lands- ins og algeru sjálfstæði, er sfi stjórn sem túlkar vilja þjóðar- innar, eða yfirgnæfandi meiri- hluta hennar. Hins vegar sé Suður-Kóreustjórnin svo langt frá því að hafa verið eða vera lýðræðisstjórn frjálsrar þjóðar, að hún er óvinsæl harðstjórn, tylL upp ai erlendu valdi, og sjálfur Acheson bar það fvrir ári síðan að hún „hryndi“ ef Bandaríkin héldu ekki áfram að ausa í hana peningum. Þannig eeitlar mál staðrevnd anna gegnum áróðursfroðu Bandaríkjaauðvaldsins. Og þess ar fáu staðreyndir sem 'hér hafa verið tíndar til eru nauð- synlegar til skilnings á því sem er að gerast í Kóreu. Kjalvegur orðinn bílfær Um síöustu helgi fóru þeir Magnús Einarsson og Árni Guðmundsson í jeppa frá Blönduósi til Hveravalla og á- fram yfir Kjöl til Suðurlands. Þeir lögðu af stað á laugar- daginn og voru 7 tíma til Hveravalla. Segja þeir veginn góðan og þurran að öðru leyti en því að moka þurfti skafl á einum stað á Bláfellshálsi. ií j M.b. Ilekla annast í surnar ! ferðir á miili Búðareyrar, Eski- { fjarðar og Hafranesg í sam- j bandi við ferðir áætlunarbif- I reiða. Ferðir bátsins veroa á j mánudögum, fimmtudögum og I laugardögum. Innilegt þakklæti til allra, sem sýndu samúð og vinarhug við fráíall og jarðarför &ÓRUNNA1 SVEINSDÓTTUR. frá ísafirði, sem lézt 9. þ. m. Börn, tengdabörn og barnabörn. Matreiðslumenn og Fram- reiðsi’umenn líepptu í knatt- spyrnu nýlega, og hófst lcikur- inn kl. 1 efíir miðnætti. Leikn- um lauk með sigri matreiðslu- manna sem skoruðu 3 mörk gegn engu. 1 lok leiksins afhenti Böðvrr Steinþórsson formaður Sam- bands matreiðslu- & fram- reiðslumanna sigur.vegurun bikar er Egili Benediktsson fyr ir hönd h.f. Tjarnarcgfé hefur gefið til þessarar keppni. I ræC-x sinni við þetta tækifæri þakk- aði Böuvar þessa gjöf, svo og það hugarfar er bakvið stæui. Um þennan bikar skal keppt ár leg, og vinnst liann til eignar sé hann unninn þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. Er nú keppt um bikarinn í fyrsta sin:i Áhorfendur voru á þriðja hundrað, þótt um hánctt væri keppt. . Dómari var Vilberg Skarp- héöiiisson viðskiptafræðingur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.