Þjóðviljinn - 19.10.1951, Page 4

Þjóðviljinn - 19.10.1951, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 19. október 1951 þJÓfiWiBJIfiii Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjóri: Jón Ejarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: JóiAteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Simi 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Þetta er hægt! Um þessar mundir gerast miklir og merkir atburðir í Arabalöndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Ein af annarri rísa þjóðirnar upp, hrista arðránsklafa brezka hsimsveld- isins og heimta að fá að búa einar að löndum sínum og auðlindum. Þetta eru ekki voldugar þjóðir, samkvæmt mælikvarði stórvelda og hernaðarmáttar, en þær eru ein- huga um rétt sinn gegn hinu erlenda valdi. Það athyglisverða og táknræna um heimsástandið er það að uppreisn þessara valdalitlu þjóða ber árangur. íransbúar hafa þegar hrakið Breta úr landi sínu, þeir hafa þegar þjóðnýtt olíulindirnar og tekið stjórn þeirra alger- lega í sínar eigin hendur. Þeir lýsa yfir því skýrt og skorinort að Haagdómstóllinn hafi ekkert um írönsk inn- anlandsmál að segja, og dómstóllinn stendur uppi ráða- iaus. Þeir lýsa yfir því að Öryggisráðið hafi ekksrt um írönsk innanlandsmál að segja og Öryggisráðinu fallast hendur. Stórveldi engilsaxa standa eins og ráðleysingjar andspænis valdasnauðu og fátæku ríki — sem hefur að vopnum skýlausan rétt sinn, einbeitni og kjark. Ástandið er nú þannig í heiminum aö engilsaxnesku veldin þora ekki að beita smá,þjóðir þessar valdi, þora ekki að kæfa réttarbaráttu þeirra í blóði, þótt það væri aðeins fárra daga verk. Þessir atburðir mættu verða íslendingum lærdóms- ríkir. Andspænis ríkjum eins og Bandaríkjunum og Bret- landi er íran ekkert valdameira en ísland. Einnig hér væri hægt að gæta-réttar þjóðarinnar með fullum ár- angri, ef valdhafarnir ættu til manndóm og ættjarðarást. Þannig væri hægt að haga íslenzkum utanríkismálum, ef í valdastólum væru ekki leppar Bandaríkjanna, menn sem ekki eiga lengur til neina íslenzka hugsun og hafa það eitt hlutverk að beygja sig fyrir hverju erlendu vald- boði af fullkominni auðmýkt. 21.20 Upplestur: Úr sjálfsœvisögu Ágústs i Birtingaholti (séra Sig- urður Einarsson). 21.35 Tónleikar: Eiléen Farrell, Hays Gordon og Jane Froman syngja. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Vinsæl lög. 22.30 Dagskrárlok. 15 ára Gótur árangur. Eins og vænta mátti hafa vinir Þjóðviljans brugðist vel og rösklega við áskorunum Sós- íalistafélags Reykjavíkur um söfnun nýrra áskrifenda að blaðinu í tilefni 15 ára afmælis- ins. Þetta kemur þeim sem til þekkja eikki á óvart. í hvert sinn sem leitað hefur yerið til flokksmanna og velunnara um stuðning við Þjóðviljann hefur þeim tilmælum verið mætt af vakandi áhuga og tekið til ó- spilltra mála. Svo hefur einnig reynzt í þetta sinn. Takmarkið feem Sósíalisáfcilagið setti sér var að, safna 150 nýjum káun- endum að blaðinu fyrir afmælis- daginn, 31. okt. n. k. Útkoman er sú að 173 áskrifendur eru komnir hálfri annarri viku fyr- ir afmælið. ★ Áfram verður haldið. En þótt svona duglega hafi verið tekið á þessu verkefni og takmarkinu náð löngu fyrir tím- ann verður söfnun áskrifenda haldið áfram af fullu happi fram til afmælisins. Reynslau sem þegar er fengin sýnir að möguleikarnir eru miklir og að blaðið á þeim vinsældum að fagna hjá almenningi að auð- velt er að fjölga stórlega kaup- endum þess. Þessa mi%uleika verða flokksmenn allir og vinir Þjóðviljans að nýta eftir föng- um. Verði nú ekki slakað á söfnuninni eru fullir möguleikar á að tvöfalda hina uppruna- legu tölu sem safna átti. Og allar horfur eru á að það tak- ist. Margir vinir Þjóðviljans eiga eftir að svipast um bekki í sínum kunningjahópi og láti þeir það ekki undir höfuð leggj- ast þarf ekki að efa að sú áskrifendatala . sem safna átti verður tvöfölduð áður en af- mælisdagurinn rennur upp. að því af vaxandi kappi að heimska þjóðina og svæfa á mestu hættutímum, sem gengið hafa yfir íslenzkt þjóðlíf. Ein- mitt þessvegna ber nú brýna nauðsyn til að efla og auka um allan helming útbreiðslu og áhrif eina dagblaðsins sem stendur á verði um hagsmuni þjóðarinnar, sjálfstæði hennar og menningu. Starfið að út- breiðslu Þjóðviljans mun því skila verðmætum ávöxtum um langa framtíð. Sklpadeild S.l.S. Hvassafell lestar kftl í Gdansk. Arnarfel! lestar salt í Ibiza. Jök- ulfell kom við í Esmeraldas 17. þm., á leiðinni til New Orleans. Ríkisskip Hekla er væntanleg til Reykja- víkur í dag að austan úr hring- ferð. Esja er á Austfjörðum á norð urleið. Herðubreið er í Reykja- vík. Skjaldbreið er á Vestfjörðum á norður’eið. Þyrill er í Reykjavik. Ármann fór frá Reykjavík í gær- kvöld til Vestmannaeyja. Eimskip Brúarfoss kom til Amsterdam 17. þm. fer þaðan til Hamborgar. Dettifoss kom til Reykjavíkur 13. þm. frá Leith. Goðafoss kom til N.Y. 9. þm. frá ReykjaVík. Gull- foss fór frá Leith 17. þm. til Kaupmannahafnar. Lagarfoss er væntanlega á Kópaskeri. Reykja- foss er í Hamborg. Selfoss er í Reykjavik. Tröllafoss fór frá N.Y. 15. þm. til Halifax og Rvik- ur. Bravo er í Hull fer þaðan til Reykjavíkur. Vatnajökull fór frá Antverpen 17. þm. til Reykjavík- Nýlega opinberuðu trú’ofun sína ung-- frú Sigrún Þor- steinsdóttir, Hlið, Grafningi og Dag- ■ ' bjartur Hannesson Úlfljótsvatni. Bláa ritið, 6. hefti 1951, er komið út. Efni: m. a. Laumu farþeginn, eftir Jacques Gi'lies. Rauðar rósir, eft- ir Rose Jell.Áhætta, eftir Lénard. Tvíburalæknarnir (framh.-saga). Betri maður, eftir Viktor Bailey. Úr öllum áttum. — Árbók iandbúii- aðarins, 3. hefti þ. á., er komið út. Efni: Verðlagsgrundvöliurinn 1951, eftir Sverri Gíslason. Sand- græðsla. eftir Runólf Sveinsson. Hvernig á að reka búskap á Is- landi? Aðalfundur Stéttarsamv bands bænda. Hve mikil er ís-' lenzka u'lin? Kláðaböðun og fjár- tala. Smáþættir úr búnaðarsög- unni. Frá útlöndum. —• Ritstjóri Árbókarinnar er Arnór Sigurjóns- son, bóndi á Þverá. SVÍR í greinargerð fyrir tillögu sinni um byggingu Æsku- iýðshallar í Reykjavík skýrir Jónas Árnason frá viðtali sem hann hefur átt við Þorkel Kristjánsson, eftirlitsmann barnavei'ndarnefndar. Þorkell skýrir m. a. svo frá „að iyrir skömmu yfirheyrði hann 15 ára gamla stúlku, sem verið hafði með hermönnum á Keflavíkurflugvelli, og kvaðst hún ekki hafa orðið vör við aðrar hömlur á að- gangi að hermannaskálahverfinu fyrir sig og sínar stall- systur en þá eina, að þær yrðu að tilgreina einhvern her- mann, sem þær hygðust heimsækja.“ Allir vita að þessi 15 ára stúlka er ekkert einsdæmi; það eru einmitt ekki sízt stúlkubörn á þeim aldri, nýfermdar og jafnvel ó- íermdar, ssm hinar erlendu stríðshetjur leitast við að tæla til sín. Og erindi þeirra við stúlkubörnin vita einníg aliir. Reglurnar um heimsóknir á völlinn eru settar af Bjarna Benediktssyni, dómsmálaráðherra, og af því sem að framan er sagt er ljóst að ráðherrann vill hafa sem rýmst um heimsóknirnar, enda hefur eflaust verið eft.ir því sótt af McGaw og öðrum yfirmönnum hins erlenda liðs. Þó skai enginn láta sér detta í hug að fyrrverandi prófessor í lögum hafi gleymt 200. grein hinna almennu hegningarlaga, en hún hljóðar svo: „Hver sem á samræði við barn. yngra en 14 ára, skal sæta fangelsi allt að 12 árum. — Hver, sem tælir stúlku- barn, sem er á aldursskeiði frá 14—16 ára, tii samræðis, skal sæta fangelsi alit að 4 árum.“ Auövitaö þekkir dómsmálaráðherra íslands þessa lagagrein. En honum dettur ekki í hug að láta fram- fylgja henni þegar hinir erlendu menn eiga í hlut. Hon- um dettur ekki í hug að láta framfylgja neinni lagagrein þsgar árásarherinn er annarsvegar. Frá dómsmálaráðherra íslands er einskis frumkvæöis að vænta í viöskiptum viö hei'námsliðið. Hins vegar getur almenningur meö nógu öflugri fordæmingu og nógu al- mennum kröfum neytt jafnvel Bjarna Benediktsson til aö ‘sksyta eitthvaö um íslenzk lög. Og viðskipti hermann- anna viö íslenzk stúlkubörn vill þjóð.in ekki þola degi -lengUr, Reykjavík og landið. Það er ekkert leyndarmál að söfnunin hefur fram til þessa svo að segja einvörðungu farið fram í Reykjavík. Það má því eegja að hlutur kaupstaðanna og kauptúnanna úti um land sé enn að mestu eftir. Enginn ef- ast um að einnig þar eru miklir möguleikar til aukinnpr út- breiðslu Þjóðviljar.s. Scfnunin þarf nú að komast í fullan gnng án frekari tafar, því tíminn fram að 15 ára afmælinu stytt- ist óðum. Á þeim hálfum mán- uði sem eftir er má gera mikið átak samstilli vinir Þjóðviljans krafta sína og gangi.að því af atorku og dugnaði að safna kaupendum og afmælisgjöfum. Og hver vill að afmælisdagur Þjóðviljans renni upp án þeso að hann hafi gert sína skvldu í söfnuninni, komið með nýjan kaupanda eða fært blaðinu pen- ingagjöf af tilefni þessara tíma- móta í starfi iþess og baráttu? ★ Mikilsvert hlutverk. Aukin útbrciðsla Þjóðviljans og bættur f járhagur er nú mikið nauðsynjamál, og meira nauð- synjamál nú en noldcru sinni áður. Einn íslenzkra dagblaða er hann málsvari íslenzkrar verkalýðshreyfingar, scsíalisma og sjálfstæðisbaráttu. Gegn þessum málstað, cem, þegar betur ér að gáð, er málstaður yfirgnæfandi meirihluta ís- lenzku þjóðarinr.ar, stendur hersing marsjalJblaðanna allra, s&m hafa það að höfuðmarkmiði að þjóna erlendu og innlendu auðvaldi og afturhaldi og vinna yff' ^ 20.30 Útvarpssag- an: „Eplatréð" eft ir John Galswor- thy; II. (Þórarinn Guðnason læknir). 21.00 Sinfóníu- hijómsveitin; Albert Kiahn stjórn- ar: a) „Mignon", for’eilcnr eftir Thomag. b) Vals eftir Johann Strauss. c) Mars eftir Leopold. Edduhúsinu við Lindargötu. Stúlkur mæti kl. 8, en karlar kl. 8.30. Loftleiðlr 1 dag verður flogið til Akureyr- ar, Sauðárkróks, Siglufjarðar og Vestmannaeyja." ■—• Á morgun verður flogið til Akureyrar, Isafj. og Vestmannaeyja. LESSTOFA B 82 Þing- holtsstræti 27, opin daglega frá kl. 5—7 og 8—10 e. h. Fréttatilkynning frá flugvalla- stjóra: f ágústmánuði var umferð um um Reykjavikurflugvöll sem hér segir: Millilandaflug 39 lendingar. Far- þegaflug, innanlands 428 iendingv ar. Einka- og kennsluflug 215 ,sam tals 682 lendingar. Með millilanda flugvélum fóru og komu til Reykja vikurflugva’lai: 539 farþegar, 11.717 kg. farangur, 30.397 kg. vöru flutningar og 1572 kg. póstur. Með farþegavélum í innanlands- flugi fóru og komu 7654 farþeg- ar, 71.961 kg. íarangur. 68.620 kg vöruflutningar og 5578 kg. póstur. Næturvörður er í lyfjabúð Iðunn- ar. — Simi 7911. Næturlæknlr er í læknavarðstoí- unni, Austurbæjarskólanum. — Sími 5030. Tvær glæsilegar þriggja herbergja íbúðir í Klepps- holli. — Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar. Nánari upplýsingar gefur MÁLAFLÚTNINGSSKRIFSTOFA Áka Jakobssonar og Kristjáns Eiríkssonar. Sími: 1453. Aðalfundur Loftleiða Lf. verður haldinn í Tjarnarcafé, uppi, 16. nóvember 1951 kl. 2 e. h. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingár. STJÓRNÍN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.