Þjóðviljinn - 19.10.1951, Síða 8
Gnðmnndur-Yigfðsspn íegejur íií a8
yfir þsat? félk @r ekki geisiF af elgtn ram-
leik kemlzt i !§©élegi ItasiiæM.
BhaldM rí&aM tiMöguumtu tíi bæjjarréðg*
Guðmundur Vigfússon flutti eftirfarandi tillögu á fundi
bæjarstjórnar í gær:
„Þar sem bæjarstjórn telur brýna og aðkall-
andi nauðsvn bera til þess, að hafin verði fyrir for-
göngu bæjarfélagsins skipuleg sókn að því marki
að útrýmt verði braggaíbúðum og öðru heilsuspill-
andi íbúðarhúsnæði í bænum, ákveður bæjarstjórn
að leita eftir leyfum til að hefja smíði eigi færri en
200 íbúða árið 1952. Fáist leyfi til þessara bygg-
ingaframkvæmda ákveður bæjarstjórn að gera allt
sem auðið er til að íbúðirnar komist sem allra fyrst
upp og verði síðan leigðar þeim, sem búa í bröggum
eða öðru heilsuspillandi húsnæði. Heimilar bæjar-
stjórnin borgarstjóra nauðsynlegar lántökur 1 þessu
skyni."
Ennfremur flutti Guðmundur eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur skorar á alþingi að samþykkja
framkomið frumvarp um að lög frá 1946, um aðstoð ríkisins
við bæjar- og sveitarfélög til að útrj'ma heilsuspillandi íbúðum,
komi þegar til framkvæmda.“
1 ’framsöguræðu sinni kvaðst
Guðmundur' telja húsnæðis-
vandræðin í bænum eitt mesta
vandamálið er bæjarstjórn
þyrfti að leysa. Meginorsakir
þess hvernig komið væri kvað
hann öra fólksfjölgun í bænum
og algera vanrækslu íhalds-
meirihlutans á nauðsynlegum
aðgerðum til að leysa húsnæð-
ismál bæjarbúa. Tillcigur Scsíal-
istaflokksins í húsnæðismálum
hefði íhaldið ymist fellt, eða vís
að frá og þegar það hefði
neyðzt til undanhalds, neyðzt
til aðgerða hefðu þær verið of
eeint gerðar cg í of smáum' stíl.
Gucmundur vitnaði í skýrslu
hagfræðinge bæjarins 1948, en
samkvæmt henni bjuggu þá
2114 manns í bröggum, þar af
836 börn. Þetta ástand kvað
hann sízt ha.fa batnað síðan, þá
minntist hann á að afnám
húsaleigulaganna hefði gert
okrurum fært að bera fólk út
úr liúsnæði eða láta það sæta
afarkostum.
Þótt nú hefðu verið gefnar
frjálsar smáíbúðabyggingar í
orði ik.véðnu myndi það ekki
leysa vandann, því mikið af þvi
fólki er byggi í versta húsnæð-
inu hefoi hvorki efni á því að
byggja yfir sig kaupa í-
búðir né borga leigu einr
og hún er nú almennt fyr-
ir boðlegt húsnæði. Til þessi að
rýma braggana og aðrar verstu
vistarverurnar þyrfti bærinn að
byggja íbúðir einmitt í því
augnamiði að leigja þær þessu
fólki gegn vægri leigu.
Borgarstjóri hélt langa hól-
ræðu um sjálfan sig og Ihaldið
fyrir framúrskarandi forsjálni
og dugnað við að ráða fram úr
húsnæðisvandræðunum. Þessi
ræða hans, sem flutt var af
talsverðum belgingi, var svo au-
virðilegur loddaraleikur að
trúðurinn Truxa myndi hafa
roðnað niður á tær.
Guðmundur Vigfúoson benti
borgarstjóra á að Ihaldið hefði
komið á þeim höftum er það
þættist nú vera að afnöma. I-
haldið hefði beitt sér hér fyrir
marshallstefnunni er bannaði
Islendingum að byggja yfir sig.
Ihaldið hefði verið stærsti flcfck
urinn í bæjarstjórn og ríkis-
stjórn á þessum árum og bæri
því alla meginábyrgðina.
Eftir seinni ræðu Guðmundar
var borgarstjórinn lágmæltur
og sagði fátt, beið auðsjáanlega
með óþreyju þeirrar stundar að
brúðuhendurnar legðu þetta
mál í líkkistu bæjarráðs. Brúðu
hendur íhandsins brugðust lion
um heldur ekki. Tillögum Guð-
mundar var vísað til bæjarráðs
með 8 atikvæðum gegn 7.
kemiir í dag
Drottningin er væntan-
leg til Reykjavíkur um
hádegi í dag og hefur inn-
anborðs sirkus Zoo. flokk
dýra og skemmtikrafta
sem aldrei hafa gist ís-
land áður en koma nú
hingað á vegum S.I.B.S.,
eins og áður hefur verið
skýrt frá hér í btaðinu.
Verður fyrsía sýningin
væntanlega á laugardags-
kvöld kl. 9, og verða mið-
ar seld'.r á tveim síöðum
í bænum. Nánar verður
tilkynnt um tilhögun sýn-
inganna í blaðlnu á morg-
uii.
Hnaplan sim á ferð
I gærmorgun var brotizt inn
í húsið Einliolt 2 hér í bænum
og stolið kr. 300 úr fötum sof-
andi manns. Ennfrcmur var
rafsuðuplötu stolið á sama
stað.
Koniir fi9 starfa í fögregSusisii
Sigríður Eiríksdóttir flutti á bæjarstjórnaríundinum í gær
tiliögu um að konur með sálfræði- kennara- effa hjúkrunarmcnní-
un yrðu ráðnar til starfa í lögreglunni.
Tillögu þessa kvaðst hún
flytja með tilliti til þess að
'íonum er lenda á einhvern hátt
í kasti við lögregluna færi
fjölgandi. Einkum taldi hún
nauðsynlegt að konur fjölluðu
um mál ungra stúlkna, og þá
ennfremur drengja. Væri þetta
sórstaklega aðkallandi nú með
tilliti til þess ástanda er hefði
skapazt við komu hersins. Á
fyrri hernámsárunum hefði
kona starfað í lögreglunni, en
síðan hefði það lagzt niður.
Benti hún á að í öllum raun-
verulegum menningarlöndum
fjölluðu kvenlögregluþjónar um
mál kvenna.
Guðrún Jónasson kvað það
nú ákveðið að hjúkrunarfcona
barnaverndarnefndar yrði við
yfirheyrzlur yfir ungum stúlk-
um. Sigríður Eiríksdóttir benti
á að hún myndi aðeins fylgj-
ast með málum kvenna er æsku
sinnar vegna heyrðu undir
starfesvið barnaverndarnefndar.
Borgarstjóri lagði til að vísa
tilKSgunni til bæjarráðs og sam-
þykktu 8 Ihaldshendurnar það,
gegn 7 atkvæðum allra hinna
flokkanna.
Föstudagur 19. október 1951 — 16. á-rgangur — 237. tölubiað
ekki 12 slsipia fevild
Hannes Stepliensen flutti eftirfarandi tillögu á bæjarstjórn-
arfundi í gær:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur skorar á Alþingi það er nú sit-
ur, að hraða afgreiffslu framkomins frumvarps uni 12 stunda
hvíldartíma togarasjómanna bæði í veiðiferðum og sigling’um,
og telur að það myndi auðvelda mjög væntanlega samninga við
togarasjómenn, að þetta réttlætismál næði fram að ganga nú
þegar.“
Hannes vék fyrst að því í
framsögu fyrir tillögunni, hve
sjáifsagt væri að sjómenn
fengju 12 stunda hvíld á sólar-
hring. Kvað hann þetta mál
snerta bæjarstjórn mjög mik-
ið, þar sem bærinn væri nú
aðili að togaraútgerð. Togara-
sjómenn hefðu nú samþykkt að
segja upp og þyrfti enginn að
efast um að sjómenn myndu
krefjast 12 stunda hvíldartíma
á öllum veiðum, burtséð frá
því hverjar kröfur þieirra vrð j
að öðru leyti. Krafan um 12
stunda hvíld hefði verið aðal-
deiluatriðið við síðustu samn-
inga og feldi hann rétt að bæj-
arstjórn stuðli að því að 12
stunda hvíld á togurunum yrði
lögfest, svo komizt verði hjá
langvarandi deilum út af því
atriði.
Borgarstjóri svaraði ræðu
Hannesar með lögspekingssvip
og eftirfarandi orðum: „Fyrir
Alþingi liggja tvö frv. um þetta
og legg ég því til að tillögunni
verði vísað til bæjarráðs“. —
Þeim er ekki hafa fvlgst með
þessu máli er rétt að segja það,
að frumvörpin á Alþingi um
togaravöku’ögin eru samhijóða.
Brúðuhendur Ihaldsins, 8 að
tölu, lyftust sarr tvæmt boði hús
bónda síns með því að kistu-
leggja till. í bæjarráði en full-
trúar hinna flokkanna allir 7,
greiddu atkv. gegn því.
8
geymslu véiasjéis
Eigmr hans váiryggSas: í
gænmoi'gtm
Tatsverðar skemmdir urðu í
gær í vöruskemmu Vélasjóðs
ríkisins við Elliðaárvog, er
eld'ur kom upp í einum klefa
skemmunnar þar sem varahlut
ir í landbúnaffarvélar voru
geymdir.
Slökkviliðið fékfc tilkynningu
um eldsvoða þennan kl. 12,42
og var töluverður eldur í
zkemmunni þegar það kom á
vettvang, en samt tókst fljótt
að ráða niðurlögum hans. Ekki
er hægt <sð fullyrða ncitt um
það hve miklar skemmdir hafa
orðið á varahlutunum, sem
voru í skurðgröfur o.fl. verk-
færi, en þeir voru geymdir í
hillum úr timbri, sem skemmd-
ust talsvert. Vörus remma þessi
er braggi, og hafði vélsmiðj-
an Keilir þar áður bækistöð
sína. Má bragginn heita ó-
rfcemmdur enda byggður úr
járni. Talið er sennilegt að
kviknað hafi í út frá olíuofni.
Þcssar eignir vélasjóðs höfðu
ekki verið vátryggðar fyrr en
í gærmorgun kl. 10,30, að þær
voru tryggðar fyrir 1,2 milljón-
ir króna h.iá Samvinnutrygg-
ingum. Virðist það furðulegur
trassaskapur að hafa slíkar
ntóreignir ótryggðar, og að
ekki hafi verið seinna vænna
að bæta úr þeirri vanrækslu!!.
Mjög góð aðsókn lieíur verið aö niálverkasýningu Ilarðar
Ágústssonar í Listamannaskálanum, og hafa þegar selzt 19
olíumyndír og 8 teikningar. — Myndin sýr.ir eitt af málverkum
Harðar og nefnist það „Tvö við hafið.“
íhaldið er enn á móti æskulýðshöll.
Sigríður Eiríksdóttir' og Ingi R. Helgason flutti cftirfarandi
tillögu á bæjarstjórnarfundi í gær:
„Um íeið og bæjarstjórn Reykjavíkur ítrekar samþykkt
sína frá 15. feb. 1948 um fjárframlag og' lc-ð undir Æskulýðs-
höll í Reykjavík leyfir hún sér að skora á liið háa Alþingi að
samþykkja þingsályktunartillögu þá um byggingu Æskulýðs-
hallar, sem flutt hefur verið í sameinuðu AIþmgi.“
Ingi R. kvað flesta hugsand;
menn sammála um það, að
aldrei hefði verið meiri þcrf
en nú að skapa æsku bæjarins
eitthvert athvarf til tómstunda-
Iðfcana og að hú;i hefði aðra
staði til samfunda en sjoppur
og knæpur. Ástandið í félags-
og skemmtanalífi æsku bæjarins
er nú þannig að það beinlínis
hrópar á aðgerðir, sagði hann.
íhaldið ákvað áð leggja æsku-
lýðshallarmálið enn í líkkistu
bæjarráosins. Fulltrúar allra
hinna flckkanna greiddu sam-
hljóffa, atkvæði gegn því. Var
tillagan lögð í Ihaldslíkkistuna
með 8 r.tkv. gegn 7. "
ttinh
Aðsókrin að sýningum Sjó-
mannadagskabaretísius er allt-
af jafnmikil, og er nú hver síð-
asiur að reyna að sjá hann því
sýningarnar liætta í kvöld.
I fyrrakv. var útvarpað ein-
um þætti kabarettEÍns: hugs-
anaflutningi Truxahjónanna.
Truxa var í Austurbæjarbiói og
spurði konu sína, er sat niðri í
útvarpssal, hvaða hluti áhorf-
endur í Austurbæjarbíói fengu
honum,- og reyndust öll svör
frúarinnar rétt. Blaðamenn
voru víðstaddir bæði í Austur-
bæjarbíói og útvarpssalnum.
Blaðamaður Þjóðviljans (sem
‘var í útvarpssal) var persónu-
lega þeirrar skoðunar að hér
væri ekki um það að ræða sem
venjulega er átt við með orð-
inu hugsanaflutningur, heldur
loddarabrögð sem blaðamenn
væru ekki menn til að koma
auga á.
Kvennadeild Slysavarnafélags
Islands í Reykjavík þakkar öll-
um bæjarbúum fyrir ágæta að-
stoð við hlutaveltu deiidarinnar
og sérstakl. vill deildin þakka
öllum piltum úr Sjomannaskól-
anum, sem aðstoðuðu við hluta-
veltuna.