Þjóðviljinn - 24.10.1951, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 24. október 1951 — ÞJÖÐVILJINN — (3
**#'#'*#*«**jr'*'4*#'*'#^'j*#<#'#'#,#sr#^#'r'#^#'«Nr#'#'*'#v#.#'#'#**'#N#'##s#s*^
ÍÞRÓTTIR
RITSTJÖRI: FRtMANN HELGASON
Þankar nm knattspyrminiál VI.
LEI03EININGAR
I síðasta þætti var þeirri
spurningu varpað til knatt-
spyrnuíelaganna: Hafið þið gef-
ið þeirrj æsku, sem til ykkar
■leitar leiðbeiningar í íþrótta- og
félagsmálmn ?
Ég efa ekki að þið þykist
undrandi yfir ókunnugleika
mínum. Þar sem vitað er að
flest knattspyrnufélög hér hafa
. á undanförnum árum haft af
,og til erlenda og innlenda þjálf
ara. Ef starfsemi þeirra er at-
huguð kemur í Ijós að höfuð-
verkefni þeirra er kennsla.
meistaraflokks, en sá tími, sem
afgangs verður er svo notaður
fyrir yngri flokkana. Eðlilega
kernur hún að takmörkuðu
liði þegar kennarinn talar er-
-lenda tungu. Ekki vantar, að
menn þessir séu dýrir, og geta
félögin því eðiilega sýnt mikinn
kennslukostnað og er furða
hvað þeim tekst að afla tekna
til þess. Eagin skyldi ætla að
ég mæli á móti því að hingað
-komi góðir (og dýrir) kennar-
ar. Það ætti alltaf að hafa sín
í FÁUM ORÐUM
Sadler og Pep, tveir hnefa
leikakappar í fjaðurvigt hafa
verið útilokaðir frá keppni um
. óákveðinn tima. Ástæðan var að
síðasta keppni þeirra líktist
meira fangbra.gðaviðureign en
hnefaleikum.
Sameinað lið úr I. deild ensku
keppninnar keppti nýlega við
úrval úr írsku keppninni og
vann það Irana með 9:1.
Ragnai* Larsen úr knatt-
spyrnufél. Sandeker í Noregi
hefur fengið tiiboð að leika fyr
ir ítalskt félag og verið boðn-
129 þús. n. kr. Samþykki knatt
spyrnusambandsins hefur enn
. ekki fengizt.
Tottenharn lék fyrir stuttu
við úrval frá Kaupmannahöfn
og vann 2:1 eftir að leikar
höfðu staðið 1:1 í hálfleik.
Leikurinn fór fram í London.
Sundkeppni miili danskra og
sænskra kvenna lauk með sigri
Dana 59:50 st. Þó vantaði Dani
í sína sveit stúlkur eins og
Gerda Olsen, Jytty Hansen og
Ragnhild Hveger.
KEtaiíspyimihétiir
Frakklaiul vann Sviss fyrir
stuttu í landskeppni í knatt-
spyrnu með 2:1 eftir mjög jafn
an og góðan leik, Leikurinn fór
fram í Genev í viðurvist 45 þús.
áhorfenda.
Austurríki vann Belgíu 8:1
í knattspyrnu landskeppni er
fram fór í Briissel 14. þ. m. í
hálfleik höfðu Austuri’íkismenn
2:1.
AB er efst I I. deild dönsku
knattspyrnunnar með 10 st.
Köge hefur 8. Árhús 6 st. I II.
deild er Næstved efst með 9
Æt. en KB nr. 2 með 8 st. KB
vann KFUM 1:0 um fyrri helgi.
góðu og örfandi áhrif, en það
breytir eb:ki þeirri staðreynd að
þeir eru fyrst og fremst fyrir
tiltölulega fámennan hóp. Þetta
er að ej.álfsögðu virðingarverð
tilraun félaganna til að efla
knattspyrnuna. En þrátt fyrir
þetta hendir það að félögin
geta ekki mætt til leiks með
fullu liði.
LEIÐBEININGAR INNAN-
FRÁ
Það ætti því að vera Ijóst
að þetta dugar ekki ef vel á
að fara það sem á hefur vantað
er það, að við sem hættir erum-
að keppa komum og bjóðum
okkur nú til starfs fyrir félag-
ið. Bjóðum því að miðla þeirri
reynslu sem við höfum fengið
ti! hinna yngri, og taka að
okkur flokka t. d. 2 tíma í
viku yfir sumartímann og
spjalla við þann sama hóp t.d.
einu sinni í mánuði vetrarmán-
uðina, um íþróttir, um félagið
og annað sem þýðingu getur
haft fyrir þá sem félaga og
samherja.
Stór hópur þeirra sern hætta
keppni hafa líúð gert í félags-
inu nema æfa og keppa. Með
öðrum orðum: verið að leika
sér, skemmta sér í félagahóp
og um leið, ef rétt er að staðið,
þroska anda sinn og líkama.
Væri nú til of.mikils mælzt að
við þökkuöum fyrir allar þær
ánægjustundir, sem við höfum
átt í félaginu með því að starfa
svolítið að því að gefa
uijguxn mönnum tækif'æri til að
njóta sömu ánægju af iðkun
knattspyrnunnar pg við nutum.
Ég spyr, er það ekld félags
leg skylda okkar, að gera það
og er það ekki þjóðfélagsleg
skylda. að beina æsku félag-
anna að hollari og skemmtilegi’i
tómstundaið ju ?
Þessu félagslegi stárfsvilji
er átakanlega lítill í félögunum,
og er varla við því að búast,
þar sem lítið eða ekkert er gert
til að glæða hann, af hálfu ráð-
andi manna félaganna.
Ég fullyrði að ef félögin og
einstaklingar þeirra gerðu sér
fulla grein fyrir þessu og tækju
að framkvæma mundi margfald
ast sá fjöldi sem æfingár íðk-
uðu.
Það er söguleg staðreynd a'ð
félögin virðast gera sig ánægð
með ef þau geta teflt fram
einu liði í liverjum aldurflokki
og oft er það tæplega því al-
gengt er að yngri maður kepp-
it með eldri að .því að sagt er
vegna ,,mannfæðar“. Þetta er
jafnóeðlilegt og við segðum:
Drengir hafa ekkert gaman af
að leika knattspyrnu!
Þetta óeðli byggist á því að
félögin virðast ekki skilja nauð
syn þess að bvggja fyrst og
fremst upp starfið fyrir yngstu
félagana. Þetta hugsunarleysi
hefur mér alltaf verið ljóst,
en ég fékk þó ömurlega stað-
festingu á því er Unglingaráð
ÍSl gerði tilraunir til að glæða
skilning félágánna á þýðingu
skipulagsstarfs fyrir æsku
þeirra og íþróttalega og fé-
lagslega framtíð. — Það er því
fyrst og fremst undir því kom-
ið hvort knattspyrnufélögin fá
fleiri til að starfa, hvort við
megum eiga von á betri knatt-
spyrnu eða ekki, og hvort við
uppfyllum það fyrirheit a.ð
leyfa sem flestum að kynnast
okkar kæru og skemmtilegu í-
þrótt knattspyrnunni.
Meira.
Joe LoíiIs í góðii
Leikur Joe Louis við Roky
Markiano á föstudaginn kem-
ur er talin að hafa mikla þýð-
ingu fyrir Louis í baráttu hans
fyrir því að endurheimta heims-
meistaratitilinn. Yrði það þá í
fyrsta sinn í þyngsta flokki ef
honum tækist það.
Formaður hnefaleikasam-
bands New York gerði sér ný-
lega ferð til æfingastaðar hans,
Ponton Lake, til ao sjá af eig-
in raun hvernig þjálfun hans
væri og hvort hann tæki þjálf-
un sína alvarlega. Er hann
kom aftur lét hann þau orð
falla. að Louis væri í mikið
betri þjálfun en honum hefði
dottið í hug. Hann sagði enn-
fremur að hann tæki æfingarn-
ar mjög alvarlega og virðist
gera allt til að opna leiðina að
leik um heimsmeistaratitilinn.
Blaðamenn sem sáu hann við
sama tækifæri í 5 lotu leik
sögðu að hann væri í næstum
eins góðri þjálfun og í „gamla
daga“, að hann hafi átt hæg-
ara með að einbeita sér en að
undanförnu.
í New York er mikill áhugi
fvrir þessari viðureign og eru
líkurnarfetaldar 7:5 Louis í hag.
Leikurinn fer fram í Madison
Square Garden.
TIl sölu
2 góð’ar 3ja herbergja íbúðir í Kleppsholti. Ha,g-
kvæm kjör. — Nánari upplýsingar gefur
Málílutningsskriístoía
Áka Jakobssonar og Krisíjáns Eiríkssonar.
Sími 1453.
J I
Miöíuni uú mitur
í SVÖRTU — BRÚNU — cg RAUÐU skinnbandi,
cg ennfremur í GEITASKINNI
PANTANIR ÓSKAST SÓTTAR SEM FYRST
Islendíngasagnaiitgáían hi.
Túngötu 7 — Símar 7508 og 81244
Reykjavík
lis. aðgöngn-
miðar
ætlaðir útlendingum
Formaður finnsku fram-
kvæmdanefndarinnar undir 01-
ympíuleikanna Eric van Frenck
ell hefur nýlega skýrt frá því
við fréttamenn að bæði í Sov-
étríkjunum og löndum í Aust-
ur-Evrópu væri njikill i áhugi
fyfir því að senda úrvalsíþrótta
fólk til Helsingfors næsta sum-
ar. .
Hefur Frenckell verið á ferða-
lagi um höfuðborgir álfunnar,
og auk ,þess átt fund með ol-
ympíunefnd Þýzkalands. Harm
segir ennfremur að um 800
þús. aðgöngumiðar verði ætlað-
ir útlendingum. Um 50 þús.
miðar munu ætlaðir á dag til
jafnaðar.
Finnska framkvæmdanefndin
gerir ráð fyrir að geta veitt
um 100 þús. útlendingum húsa-
skjól, meðan leikirnir standa
yfir. 30—40 þús. verða í íbúð-
um einstaklinga, og um 60 þús.
í skólum eða sérstökum tjald-
borgum sem komið verður fyr-
ir segir von Frenckell.
Sameiningarílokks alþýðn — ■:
Sósíalistaf lokksins |
veröur haldiö í Listamannaskálanum í Reykjavík
dagana 9.—11. nóvember næstkomandi. — Dag-
skrá þingsins veröur þannig: jj
1. Skýrsla miðstjórnar og höfuö verkefni flokks- >;
ins: Barátta þjóöarinnar gegn hernáminu og ■;
árásum á lífskjör og sjálfstæöi þjóöarinnar. J
, £
2. Eming verkalýöshreyfirigarinnar í stettabar- J>
áttunni. ^
3. Þjóöviljinn.
4. Flokksstarfið.
Að öðru leyti fer um dagskrána samkvæmt \
flokkslögum. ' V
Miðstjórn í
Sameiningarílokks alþýðu — v
Sósíalistaílokksins.
Vegna rafmagnsbil-
unar er birtingu á
. j *t.
æskulýðsstðunni frestað til n. k. laugardags.