Þjóðviljinn - 16.05.1952, Side 8
línffliwaroir njéti sama réftar til
jnlftliM
VLum
KSSiSllSr 8:
crsnir
Guðimmdur Vigfússon flutti á bæjarstjómarfundi í gær eft-
irfarandi tillögu:
„Um leið og bæjarstjórn samþykkir tillögur vinnuskótanefud-
ar uni fyrirkomulag unglingavinnu bæjarins á næstkomandi
suniri lýsir bæjarstjórn því yfir að hún telur rétt og skylt að
laun 'unglinganna breytist I samræmi við vaxandi dýrtíð og
hækkandi kaupgjaldsvísitölu og ákveður því að kaup J»eirra taki
eftirfaraiidi breytingum frá þ\í sem var fyrir ári: Kaup 13 ára
unglinga hækki úr kr. 4.00 í kr. 4,80 á klst. Kaup 14 ára ungl-
inga hækki úr kr. 4,50 í kr. 5,40 á klst. Kaup 15 ára unglinga
hækld úr kr. 5,00 I kr. 6,00 á klst.“
Nýr bokavörðar í
Íþöku
Nýlcga hefur Jóhann llann-
esson, fyrrum lektor í ensku
við Háskólann, verið riáðinn
bóltavörður FiskesafnSins í I-
þöku í New York-ríki í Banda-
ríkjunum, cn þar mun vera
mest safn íslenzkra bólta utan
Islands.
Halldór Hermannsson hefur
veitt þessu safni forstöðu
í nærri hálfa öld. Hann lét
af bókavarðarstörfum árið
1948, og tók þá við bókavörzl-
unni Kristján Karlsson, er
stundað hefur nám í ensku og
enskum bókmenntum við Ber-
•keley-háskólann í Kaliforníu.
Hefur hann nú sagt starfi sínu
lausu og ákveðið að helga sig
öðrum störfum.
Jóhann Hannesson er sonur
Hannesar Jónassonar bóksala
á Sigiufirði. Hann stundaði
timgumálanám í Berkeley,
kenndi síðan ensku tvo vetur
Framhald á 7. síðu.
í framsöguræðu rökstuddi
Guðmimdur að kaup það sem
greitt var í fyrra hefði verið
iægra en svo að unglingarnir
hefðu getað unnið fyrir sér.
Þott þetta héti nú vinnuskóli
væri raimverulega um sama
að ræða og unglingaviununa,
þ.e. unnið væri að verltefnum
Framhald á 7. síðu.
Málverkasýning
Kristínar jóns-
I fyrradag opnaði frú Krist-
ín Jónsdóttir málverkasýningu
í Listamannaskálaniun í Reykja
vík.
Á málverkasýningu þessari
eru 60 olíumálverk, og eru flest
máluð á síðari árum. Eru mó-
tíf myndanna af mörgu tagi:
myndir úr þjóðlífi, landlags-
myndir, og innimyndir. Meðal
hinna síðasttöldu er Kvöld í
baðstofu, sem er stærsta mynd-
in á sýningunni.
•Kristín Jónsdóttir er meðal
eldri málara okkar, og mtmu
þær Júliana Sveinsdóttir hafa
orðið einna fyrstar íslenzkra
kvenna til að leggja málaralist
fyrir sig.
Kristín Jónsdóttir hefur ekki
haft hér sjálfstæða sýningu
síðan árið 1931. Hinsvegar hef-
ur hún tekið þátt í mörgum
samsýningum, bæði hér heima
og erlendis.
Sýningin verður opin fram
yfir helgi.
SuSurnesjamenn
fagna
Hin nýja reglugerð um
verndun fiskimiðanna og til-
heyrandi stækkun lándhelginn-
ar gekk í gildi á miðnætti í
fyrrinótt.
Suðurnesjamenn fögnuðu
með því að draga fána að hún
á húsum sínum og skipum í
gær.
Framlag til útrýmingar heilsuspillandi íbúðum:
láti sand og möl
ókeypis í smáíbúðarhúsin
Sigurður Guðgeirsson flutti á bæjarstjórnarfundi í gær eft-
irfarandi tillögu::
„Þar sem bæjarstjórn telur það skyldu sína að styðja með
öllum tiltækum ráðum að úrbótuin á húsnæðisvandræðum bæj-
arbúa og vitað er að hundruð efnalítilla og fjárvana einstak-
linga eru að liefja byggingu smáíbúða í hverfi sem bærinn
hefur skipulagt í þessu skyni samþykldr bæjarstjórnin að láta
þessum mönnum í té nauðsynlegt byggingarefni (sand og möl)
til húsanna, án endurgjalds."
blÓÐVILHNN
Föstudagur 16. maí 1952 — 17. árgangur
108. tölublað
Mæðradagurinn er á snnnndaginn
Mæðradagurinn er á sunnudaginn kemur og verður þá að
vanda selt mæírablómið tif ágóða fyrir starfsemi Mæðra-
styrksnefndar.
Starfsemi mæðrastyrksnefndar er tvíþætt: Hvíldarvika fyr-
ir konur einar og hvíldarheimili fyrir konur, ásamt með börn-
um sínum. Á sl. 10 árum hafa 600 konur dvalið á hvíldar-
vikunni, — kostnaður numið 127 þús. 711 kr. — og á dvalar-
heimilum mæðra með börnum sínum liafa dvalizt 754 gestir,
kostnaður um 200 þús. kr. ___.
Mæðrastyrksnefnd er skipúð
fulltrúum frá 22 kvenfélögum
í bænum og veitir hún konum
margvíslega fyrirgreiðslu, lög-
fræðilega og aðra. Mæðradags-
nefndin, en formaður hennar
er Jónína Guðmundsd., ræddi
við blaðamenn í gær. Blóma-
sala á mæðradaginn hófst upp
úr 1930 og hefur verið árlega
sfðan. Fyrsta árið komu inn
45 kr. en 1949 komu inn 55
þús. kr. og 1951 44 þús. kr.
Það, hve margar konur og
börn geta notið sumardvalar á
vegmii mæðrastyrksnefndar
1 framsöguræðu benti Sig-
urður á að bygging smáíbúða-
húsanna væri hugsuð sem þátt-
ur bæjarstjórnarinnar í útrým-
ingu heilsuspillandi húsnæðis
og væri því eðlilegt að bærinn
lilypi undir bagga með því
fólki að þaraa ætlaði að byggja
og sem væri flest efnalítið eÖa
efnalaust, og léti því í té sand
og möl í byggingarnar án end-
urgjalds.
Magnús Ástmarssan spurði
hvað liði tiil. sinni frá síðasta
fundi um að verðhækkunin á
sandi og nöl yrði ekki lát'n
ná til efuls cr -c’t vtrr: þess-
I'’-. 1íj á T sfftu.
Yfirkjörstjórn
Bæjarstjóm kaus í gær tvo
menn í yfirkjörstjóm við for-
setakosningarnar 29. júní n.k.
Kosnir voru Hörður Þórðarson
og Ragnar Ólafsson. Varamenn
voru kosnir Páll Lindal og
Steinþór G'tðmundsson.
Hifreiðastyrkirnir verði
lækkaðir 11111 helmiiig
Guðmundur Vigfússon flutti á bæjarstjórnarfundi í gær eft
irfarandi tillögu:
„Þar sem bæjarstjórnin telur að gæta beri ýtrustu varfærni
i öllum óuauðsyulegum útgjöldum bæjarsjóðs og bæjarstofnana,
en er hinsvegar þeirrar skoðunar að fjöldi bifreiðastyrkja, og
einstakar úpphæðir þeirra, séu komnar út fyrir öll skynsamleg
takmörk, samþykkir bæjarstjórnbi að beina því til bæjarráðs
og væntanlegrar bilreiðastyrkjanefndar að fækka styrkjum svo
sem föng eru framast á. Jafnframt ákveður bæjarstjórn að
lækka um lielmhig núverandi upphæðir bifrciðastyrkja bæjarins
og verði þeir þannig:
byggist á skilningi bæjarbúa á
mæðradaginn, að þeir kaupi
mæðrabiómið. Fyrst byrjaði
nefndin með hvíidarvikur fyrir
mæður, en brátt kom í ljós að
oft komust þá ekki mæður sem
helzt hefðu þurft hvíldar með,
vegna þess að þær urðu að
vera heima yfir börnum sín-
um. Var þá horfið að því að
hafa dvalarheimili fyrir mæður
er liefðu börn sín með sér,
dvelja þær á hvíldarheimilun-
um í 3—4 vikur.
Á simnudaginn verður mæðra
•blómið selt til ágóða fyrir
þessa starfsemi. Verður blóma-
sala í öllum skólunum, 'Elli-
heimilinu og svo að sjálfsögðu
í Þingholtsstræti 18. Skorar
mæðradagsnefndin á mæður að
hvetja börn sín til að selja
masðrabiómið. Blómabúðirnar
verða opnar frá kl. 1—3 á
sunnudaginn og renna 15% af
sölunni til mæðradagsins.
Mæðrastyrksnefnd hefur ver-
ið með dvalarheimili sín á
Laugarvatni, Þingvöllum og
nokkrum skólum, en liefur nú
fengið land með hitaréttind-
um fyrir ofan Reykjahlíð í
Mosfellssveit, 2 ha. af Hlað-
gerðarkoti, og lxyggst reisaþar
dvalarheimili. Hefur nefndin
ekki enn fengið fjárfestingar-
leyfi, þótt sótt hafi verið nm
það á hverju ári frá 1949. ,—
En um það hugsa Reykvíking-
ar ekki á sunnudaginn, á
suiinudaginn kaupa þeir mæðra
blómið.
Áfengisvarna-
I. fl. kr. 6.562,00
II. fl. kr. 5.625,00
III. fl. kr. 4.687,00
IV. fl. lsr. 3.750,00
V. fl. kr. 2.812 00“
Guðmundur kvað hinar
mörgu tillögur (sem íhaldið
hefur ætíð fellt) og umræður
um bílastyrki bæjarins hafa
borið, þann árangur að nokkuð
hefði dregið úr eyðslunni. Hins
vegar væri veiting bílastyrkj-
komin út í mestu ógöngur og
væri styrkirnir of háir. Þegar
einstaklingi væru greiddar 13
þús. kr. í bílstyrk væri undir
venjulegum kringumstæðum
verið að halda uppi bifreið við-
komandi manns, en það sé á
engan hátt rétt’ætanlegt að
bærinr. haldi uppi bíium ein-
stakra manna þess vegna
kvaðst hann leggja til að bíia-
Pramhald of 6. síðu.
nefnd
Á bæjarstjórnarfundi í gær
var loks kosin ný áfengisvam-
arnefnd í stað þeirrar er fyr-
ir alliöngu var haitt störfum.
1 liinni nýju nefnd er aðeins 1
af þeim er störfuðu í fyrri
nefndinni, og stafar það af því
að stjórnarvöldin gerðu fj'rri
nefndinni ókleyft að vinna á-
rangursríkt starf.
Af A-lista, AB-flokksins var
kosinn Björgvin Jónsson. Af
C-lista, Sósíaljstaflokksins voru
kjörin Haraldur S. Norðdahl,
Bjarni Benediktsson frá Hof-
teigi og Sigríður Eiriksdóttir.
Af D-lista, íhaldsins, voru
kjörin Ólöf Kristjánsdóttir, Jó-
hanna Eiriksdóttir, Jón Gunn-
laugsson, og Gunnar E. Bene-
diktsson.
Vélar settar niðiar í áburðsrwerk-
smiðjuna í haust ef vel gengur
Aðalfundur Áburðarverk-
smiðjunnur h. i'. var haldlnn í
dag (fiinmtudag). Attu tveir
stjórnarmer n, þeir Jón ívars-
son og Ingólfur Jónsson, af:
ganga úr stjórninni, en voru
báðir cndurkjörnir. Ennf'rcmur
voru endurkjörnir í varastjórn
þeir Eyjóifur Jóharnesson og
Kr'stjón Kristjónsson, og Ilall-
dór Kjartanssön var endur-
kjörinn cndurskoðandi.
Formaður verksmiðjustjórn-
Framhald á 6. síðu.
Eins og áður hefur verið
getið í dagblöðunum, heldu"
Söngfélag verkalýðssamtak-
anna í Reykjavík samsöng í
Austurbæjarbíói n.k. sunnudag
kl. 3 e.h. Kómum hafa borizt
fjölmargar áskoranir um að
eyngja aftur opinberlega, en
eins og kunnugt ér söng hann
1. maí sl. við ágætar undirtekt-
ir áheyrenda. Kórinn mun ekki
syngja aftur opinberlega hér í
Reykjavík á þessu vori, en mun
hinsvegar hafa í hyggju að fara
í söngför út á land ef aðstæð-
ur leyfa. Þetta er því síðasta
tækifærið sem Reykvikingar
hafa til að hlusta á kórinn í
vor, og eru meðlimir verka-
hvattir til að notfæra sér það.
kvattir til að notfæra sér það.
Á öðrum stáð í b’áðinu er aug-
lýsing frá kórnum um að-
göngumiðasölu að samsongn-
um. —- Myndin hér a'ð ofan
var tekin af kórnum eftir sam-
sönginn 1. maí s.l.
/