Þjóðviljinn - 25.05.1952, Side 1
SiumudagTir 25. maí 1952 — 17. árgangur — 115. tölublað
Dagsbrúnarfundur
Dagsbrún heldur íélags
íund n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 8,30 *í Iðnó.
Kosnlngar á Ifalíu i dag
tfrsiifanna heoið meS mikilii eftÍEvænfingai — Eining vinstri flokkanna hefur
aldrei verið öflugri
I dag fara frairí bæjar- og Bveitarstjórnarkosningar í
Italíu. — Kosið er í 2589 bæjar- og sveitarfélögum á Suö-
ur- og Miö-Ítalíu, á Sikiley og Sardíníu. M. a. fara fram
kosningar í stórborgunum Róm og Napoli.
Kosningar þessar hafa stór-
pólitíska þýðingu, enda hefur
kosningabaráttan verið ákaf-
lega hörð. Kristilegir demoRrat-
ar de Gasperis og stuðnings-
flokkar hans óttast miög úr-
slit' kosninganna.
Kosningum írestað
Á Italíu er kosið til fjög-
urra ára í senn, og átti að
kjósa í fyrra, en þá beitti de
Gasperi þeim bellibrögðum. að
l'áta kosningar fara fram á
Norður-ítaliu, en fresta kosn
ingu annars staðar. Eins og
menn muna, biðu stjórnarflckk-
árnir herfilegan ósigur í þeim
kosningum, töpuðu mörg
hundruð þúsund atkvæðum.
Ástæðan til þess að ekki
var kosið um alla ftalíu í
fyrra er sú áð stjómarflokk-
amir reka aðra pólitík í iðn-
aðarhéruðum Norður-ftalíu,
heldur en í landbúnaðarhéiuð-
nnum á Suður-ítalíu. Nyrðra
hafa þeir samvinnu við hluta
af sósíalidemokrötum, frjáls-
lynda og repúblíkana og haga
áróðri sínum með tilliti ti!
þess, en á Suður-ítalíu hefur
de Gasperi samvinnu við ný-
fasista og konungssinna, og það
'þótti ekki sigurstranglegt að
ganga samtímis til kosninga
með tvær ólíkar stefnuskrár.
Aíturhaldið sundrað
Nú hefur aftur á móti ekki
tekizt eins vel um samvinnu
afturhaldsflokkanna, því að ný-
fasistar og konungssinnar bjóða
víða fram sérstaklega. Þeir
hyggjast vinna sér fylgi með
því að látast' vera andvígir
stjórninni, einkum í utanríkis-
málum; þeir vita hversu und-
irlægjuháttur hennar við Banda
ríkin er orðinn óvinsæl] meðal
þjóðarinnar.
Eining vinstri ílokkanna
Vinstri flokkarnir ganga til
þessára kosninga samstilltari
en áður hefur verið. Komraúa-
istar, sósíal-demokratar, óháð-
ir demokratar og fleiri frjáls-
lyndir flokkar hafa með sér
traust kosningabandalag.
Framboð vinstri sinna í
Rómaborg vekur mikla athygli.
— Francesco Nitti, sem áður
var foringi frjálslynda flokks-
ins, en er nú forystuma'ður ó-
háðra, hefur bedtt sér fyrir
kosningabandalagi. í kjöri eru
40 óháðir, 20 kommúnistar og
20 úr hópi óháðra demókrata.
Framboð þétta nýtur einnig
stuðnings fjöMa þekktra á-
hrifamana, þiugmanna, dóm-
ara, lækna, lögfræðinga og
margra annarra, sem vilja berj-
ast gegn spiilingu afturhalds-
ins og kirkjuvaldsins. Fordæm-
inu frá Rómaborg hefur verið
fylgt víða um landið.
Segja má að í kosningum
þessum sé aðallega um þrjár
pólitískar samsteypur áð
ræða: 1. Sósíalistar, komm-
únistar og óháðir demokrat-
ar; 2. Kristilegi' lýðræðis-
flokkurinn (flokkur de Gas-
peri), og ýmsir smáflokk-
ar; 3. Konungssinnar og ný-
fasistar.
I kosningabaráttunn ihefur
kirkjuvaldið notað öll tæki-
færi til framdráttar flokki de
Gasperi. Undir forystu vatík-
an^ins hafa guðsþjónustur ver-
ið notaðar til áróðurs í kosn-
ingum, og mönnum miskunnar-
laust hótað með eilífum kvöl-
um í hreinsunareldinum, ef
þeir gerðu ekki skyldu sína:
að .kjósa flokk de Gasperi. Það
fer ekki hjá því að í eins
rammkaþólsku landi og Italía.
er, hefur áróður sem þessi
miklð að segja.
Fari svo að flokkur de Gasp-
eri bíði ekki minna afhroð í
þessum kosningum, heldur en
kosningunum í fyrra, og ailar
líkur benda til þess, ekki sízt
þar sem afturhaldsflokkar
ganga til kosninganna í tveim-
ur fylkingum, þá getur þaö
þýtt algjört gjaldþrot fyúir
bandarísku pólitíkina á ítalíu.
Þess ber og að gæta, að þing-
kosningar eiga að fara fram á
næsta ári.
Framlöff Trumans lækk-
uð um fjórðung
Bandaríkjamenn eru orðnir
hugsandi út af gegndarlausum
fjáraustri til leppa sinna erlend-
is með vafasömum árangri.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær að lækka víg-
búnaðarstyrkinn, sem frumvarp
Trumans gerir ráð fyrir, um
1700 milljónir dollara. Þar af
nemur lækkunin til Evrópu 600
milljónum dohara. Lækkanir
þessar vcru samþykktar með
245 atkvæðum gegn 110, og
frumvarpinu síðan vísað til öld-
ungadeildarinnar.
Þessi meðferð frumvarpsins
hefur vakið mikla ólgu meðal
vígbúnaðarpostula Bandaríkj-
Andúðin má ekki sjási
Dr. Adenauer, forsætisráð-
herra Vestur-Þýzkalands, hef-
ur látið gera mjög víðtækar
varúðarráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir samkomur
og fundi i mótmælaskyni við
undirritun samningsins um
endurvígbúnað Þýzka’ands.
anna. Averell Harrimann komst
svo að orði, að þeir þingmenn,
sem léð hefðu lækkuninni fylgi,
gerðu sig seka um beinan stuðn-
ing við kommúnismann í heim-
inum.
Eumimr ítalskur söagvari heimsækir Reykjavík
Syngur í Ganila bíói í dag
Nýkomirn er hingað til lands-
ins víðfrægur í.talsk'ur söngvari,
Leonida BelTon að nafni. Mun
hann halda hér nokkrar söng-
skemmtanir, og er hin fyrsta
þeirra kl. 3 í <lag í Gamla bíói.
Lconida BcIIon
Leonida Bellon er frá bænum
Vicenza á Italíu, en söngnám
stundaði hann í Mílanó, hjá
Garbin er sjálfur var kunnur
tenorsöngvari. Síðar stundaði
hann nám í Sesilíusöngskólan-
um í Róm, og þar kom hann
fyrst fram, i óperunni Faust
eftir Gounod. Af öðrum óperum
er hann hefur sungið i má
nefna Manon Lescaut og Turan-
dot, eftir Puccini. Árið 1939
söng hann í Vilhjálmi Tell, eftir
Rossini, í París. En á stríðsár-
unum söng hann samfleytt 5
ár í sjálfri Skalaóperunni í Míl-
anó.
Leonida Bellon hefur sungið
víða um Evrópu, en auk þess
hefur hann farið 8 söngferðir
til Ameríku. Hefur hann m. eu
sungið þar í Metropolitan í
New York, í Chicago, Buenos
Aires og Líma í Chile. 1 fyrra
söng Bellon í Skalaóperunni, í
vetur var hann í Róm, en héðan
fer hann til Napólí og syngur
í San Carlo söngleikahúsinu.
Blaðamönnum og nokkrum
öðrum gesuum gafst kostur á
að heyra Bellon syngja nokkur
lög í Gamla Bíói í gær. Því
miður er blaðamaður Þjóðvilj-
ans, er viðstaddur var, ófróður
um söng. En einhvern veginn.
hafði hann á tilfinningunni, og
sýndist það líka á andlitum
sessunautanna, að slík rödd
hefði sjaldan heyrzt á þessum
stað. Röddin er hár og bjartur
tenór, og Reykvíkingar ættu að
fjölmenna í Gamla bíó kl. 3 í
dag.
Verður Borgarbíl-
sföðinni lokað?
Deila er risin milli Borgarbíl-
stöðvarinnar og bifreiðastjóra-
félagsins Hreyfils út af há-
markstölu bifreiða afgreiðslu-
tilhögun o. fi. Bílstjórafélagið
hefur haft samninga undanfar-
in tvö ár við bílstöðvarnar um
hámarkstölu bifreiða, en Borg-
arbílstöðin neitar að skrifa und-
ir samnir.g um þau atriði. tír-
slitasamningstiiraunir stóðu yf-
ir síðdegis í gær.
Víðtæk samtök um fjársöfnun til bygg-
ingar Árnasafns í Reykjavík
Stúdentafélag Reykjavíkar beítir sér fyrir raálinu —
1 milijén kréna fyrir haustið
Ætlunin er að safna
Fyrir forgöngu Stúdentafélags Reykjavíkur befur nú verið
slofnuð landsnefnd er hefur með höndum yfirstjóm f jársöfnunar
til Árnasafns í Reykjavik. Hefur verið reiknað út að um tíu króna
framlag frá hverju mannsbarni á íslandi mundi nægja til að
reisa húsið. Fer hér á eftir frétt frá Stúdentafélaginu um gang
málsins, en á 8. síðu er ávarp landsnefmlarinnar.
Stjórn Stúdentafélags Reykja-
víkur ritaði í byrjun þessa
mánaðar nokkrum helztu fé-
Frakkar emiliá
báðum áttiim
r
a
SendinefiuUn á Rauða torginu í Moskva 1. maí. (Sjá grein á 8. s.)
Franska. stjórnin hélt tvo
ráðuneytisfundi í fyrradag um
samniugana við Vestur-Þýzka-
land. I gær sendi stjórnin síðan
Schuman, utanríkisráðherra,
sem staddur er í Bonn til þess
að undirrita vígbúnaðarsamn-
inginn við Þjóðverja, ný skil-
yrði fyrir undirskrift Frakka.
Ekkert var látið uppi um það
í fréttum hver þessi nýju skil-
yrði væru, en Frakkar töldu
þau mjög aðgengileg. -
lagssamtökum í landinu og
bað þau að tilnefna fulltrúa
af sinni hálfu í nefnd, sem
hefði forgöngu í fjársöfnun og
undirbúningi að byggingu safns
yfir íslenzku handritin, Þess-
um tilmælum var strax vel tek-
ið og tilnefndu félagssamtök-
in hvert af öðru fulltrúá í
nefndina, þannig að hún er
nú fullskipuð og eiga eftirfar-
andi samtök fulltrúa í n°Oid-
inni.:
Stúdentafélag Reykjavíkur,
Vinnuveitendasamband íslands,
Alþýðusamband Islands, Stétt-
arsamband bænda, Samband
íslenzkra, samvinnufélaga. Verzl-
unarráð Islands, Landssamband
íslenzkra útvegsmanna, Félag
íslenzkra iðnrekenda, Lands-
samband iðnaðarmanna KvCn-
félagasamband íslands, Ung-
mennafélag íslands,' Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja,
Farmanna & Fiskimannasam-
band Islands, Samband íslenzkra
sveitarfélaga, Félag íslcnzkra
stórkaupmanna, Samband smá-
söluverzlana.
Nefndin hefur komið saman
nokkrum sinnum og rætt hvern-
ig f jársöfnuninni verði bezt fyr-
ir komið.Hefur verið skipuð 5
manna framkvæmdanefnd og
eiga þessir sæti í henni:
Páll Ásgeir Tryggvason,
Barði Friðriksson, Guðrún Pét-
ursdóttir, Ólafur Pálsson og
Sæmundur Friðriksson.
Er ætlunin að framkvæmda-
nefndin hafi með höndum um-
sjón söfnunarinnar og hefur
henni til aðstoðar verið ráðinn
sérstakur framkvæmdastjóri
Magnús Guðjónsson stud. jur.,
og liefur hann aðsetur í her-
bergi Stúdentaráðs í Háskólan-
um sírni 5959 og hefur þar
fastan viðtalstíma milli kl. 5—7
alla virka daga nema laugar-
daga.
Takmark nefndarinnar er að
safnað verði alls 1 millj. kr.,
og að söfnuninni verði lokið í
haust. Ekki er enn fullráðið
Fi'amha.ld á 6. síðu.