Þjóðviljinn - 15.06.1952, Qupperneq 1
Sunnudagur 15. júní 1952 — 17. árgangur — 131. tölubláð
Fjölbreytt hátíðahöld hér 17. júní.
Hetzta nýungin að efnt verður til barnaskemmtunar
á Lækjargötu — Smári samdi ávarp Fjallkonunnar
Hátíðahöldin hér 17. júní verða með svipuðu sniði og und-
anfarin ár en þó nokkuð f jölbreyttari. Vinsæl nýung er bama-
skemmtun á Laekjaxgötu.
Kosið á Isafirði
í dag
Kosning aíþingismanns fyrir
Ssafjarðarkaupstað fer fram í
dag og hafa allir stjórnmála-
flokkarnir fjórir frambjóð-
endur í kjöri: Sósíalistaflokk-
urinn Hauk Helgason banka-
íulltrúa, Alþýðuflokkurinn
Hannibal Vaklimarsson skóla-
stjóra, Sjálfstæðisflokkurinn
Kjartan J. Jóhannsson lækni
og Framsóknarflokkurinn Jón
Á. Jóhannsson Iögregluþjón.
Við síðustu alþingiskosning-
ar á Isafirði haustið 1949 urðu
úrslit þau að Finnur Jónsson
(A) var kosinn með 628 atkv.,
Kjartan J. Jóhaxmsson (Sj)
hlaut 616 atkv., Aðalbjöm Pét-
ursson (Só.) 115 atkv. og Jón
Á. Jóhannsson (F.) 67 atkv.
Atkvæði verða talin strax í
•kvöld og kosningaúrslit til-
kynnt að talningu lokinni.
Gömiil kosíiinga-
beita reynd á ný
Truman Bandarikjaforseti
sagði í ræðu í fyrradag, áð
brýna naifðsyn bæri til að
setja lög sem heimili alríkis-
stjóminni að beita valdi sínu
ti] að kveða niður kynþátta-
kúgunina í Bandaríkjunum.
um síöustu helgi.
Eftir húsrannsóknirnar var
básúnað út um állan heim að
fundizt hefðu sönnunargögn
um víðtækar njósnir og
fyrirhuguð skemmdarverk
kommúnista. (Aðalfyrir-
sögn Morgunblaðsins s.l. þriðju
dag á Reutersfrétt frá Toulon
var: VlÐTÆKAR NJÖSNIR
KOMMÚNISTA UPPVÍSAR I
FRAKKLANDI).
Pinay ber til baka.
En strax næsta dag neyddist
Pinay forsætisráðherra til að
bera allt saman til baka og
játa að ekkert það hefði fund-
•izt, sem gæfi tilefni til njósna-
ákæru. „Njósnaskýrslur um her
sendingar til Indó Kína“ reynd-
ust til dæmis vera safn af úr-
klippum úr stjórnarblöðunum
um hersendingarnar.
Ekki var sú fullyrðing lög-
reg’unnar haldbetri að afhjúp-
áðar hefðu verið fyrirætlanir
um skemmdarverk gegn járn-
brautarlínum, herflutnir.ga-
skipum og öðrum mannvirkj-
um flotahafnarinnar í Toulon.
Það kom nefnilega á daginn
að lögreglan hafði lagt hald á
skjalasafn mótspyrnuhreyfing-
arinnar frá stríðsárunum, sem
sð undirlagi útlagastjórnar
rle Gaulle Iagði allt kapp á að
hindra það með skemmdar-
verkum að uazistum yrðu not
af flotahöfnrnni. Ýmsir mót-
spyrnuhreyfingarmenn voru
Þjóðhátíðamefnd Reykjavíkur
skýrði fréttamönnum í gær frá
imdirbúningi hátíðarinnar.
Það er nú orðin föst venja
að Reykjavílkurbær gangist fyr
ir hátíðahöldum á þjóðhátíðar-
daginn 17. júní.
Eins og íkunnugt er hefur
skapast nokkuð ákveðið form á
þessum hátíðahöldum, en þó
hefur ávallt verið reynt að
bjóða upp á einhverjar nýung-
ar í dagskrá hátíðahaldanna —
og verður svo enn.
Fjölbreyttari og lengri
hátíðahöld en áður.
Að þessu sinni verður dag-
skráin lengri og fjölbreyttari
en áður hefur verið. Er það
von undirbúningsnefndarinnar
að bæjarbúar noti sér af iþeim
skemmtiatriðum, sem á boð-
stólum verða og fjölmenni, svo
sem jafnan fyrr, til hátíða-
haldanna. Bærinn mun verða
fégraðurx eftir föngum og verð-
ur skreytingunni hagað með
eftir stríðið særndir heiðurs-
merkjúm og jafnvel gerðir
riddarar í heiðúrsfylkingunni
fyrir afrek sín og hugrekki
við skemmdarverkin.
Blaðið Ce Soir slkýrir frá því
að dúfurnar tvær, sem fundust
í aftursætinu í bíl Jaoues Duc-
los, aðalritara. Kommúnista-
flokks Frakklands, þegar hann
var handtekinn daginn sem lög
reglan réðist á mótmælafund
gegn Ridgv-ay í París, verði
greftráðar með mikilli viðhöfn
„á kostnað flokksins“.
Dúfur þéssar vörpuðu mjög
spaugilegu Ijósi á handtöku
Duclos. Lögreglan hélt því
fram að hér hefði verið um
bréfdúfur að ræða og þær væru
eitt helzta sönnunargagnið um
að Duclos væri sekur um
„samsæri gegn öryggi ríkisins".
Nánar var ekki útskýrt, hver
ógn öryggi rilkisins stóð af
dúfunum, en lögreglan stað-
hæfir að þær hefðu verið volg-
Iíku sniði og verið hefur und-
anfarið.
Tvær skrúðgöngur.
Ætlunin er að hátíðahöldin
hefjist kl. 1.15 með því að fólk
safnist saman á tveim stöðum
í bænum. Fólk úr Vesturbæn-
um safnist saman á Hringbraut
inni sunnan við kirkjugarðinn.
Fer ganga Vesturbæinga síðan
vestur Hringbraut, um Hofs-
vallagötu, Túngötu og Kirkju-
stræti.
Einungis íslenzkir fánar.
I Austurbænum hefst gang-
an'á Barónsstígnum við Sund-
höllina. Gengið verður um Bar-
ónsstíg, Laugaveg, Austur-
stræti og Pósthússtræti. Is-
lenzkir fánar verða bornir inn
N eðanfarðar-
rerkfall í hálf-
an mánuð
i ■
I hálfan mánuð hafa 160
námumenn frá Ancona á ítalíu
hafzt við mörg hundruð metra
í í jörðu niðri. Verkamennirnir
gerðu innisetuverkfall niðri í
námunni til að mótmæla því
að félögum þeirra var sagt
upp vinnu og segjast muni
vera um kyrrt þangað til þeir
hafa verið ráðnir til vinnu á
ný. Námumennirnir fá mat og
drykk sendan niður í námuna.
Almennt verkfall hefur verið
boðað í hérúðunum Ancona og
Pescara 18. júní til stuðnings
við námumennina.
ar þegar Duclos var handtek-
inn og muni hafa veri'ð kæfð-
ar í teppi.
Duclos kvaðst hafa fengið
þessa merkilegu fugla að gjöf
hjá kunningja sínum úti í sveit
fyrr um daginn og hafa-ætlað
að snæða þær næsta dag.
Yfirvöldin tóku framburð
hans eklki trúanlegan og þrír
fuglafræðingar voru kvaddir til
að kryfja dúfurnar og kveða
upp úrskurð um hvort þær
væru bréfdúfur eða alidúfur.
Yfirvöldunum til mikils angurs
varð niðurstaðan sú að um ali-
dúfur væri að ræða, en þær
voru ekki beint lystugar eftir
þessa löngu geymslu og jarð-
arför þeirra var því auglýst
með stórum stöfum á forsíðu
Ce SoÆr.
á Austurvöll og látnir mynda
fánaborg. Að þessu sinni er
ekki gert ráð fyrir að félags-
fánar verði bornir í göngunum.
Þurfa því forsvarsmenn félags-
samtaka í bænum ekki að
koma með félagsfána sína. —
Lúðrasveitirnar og fánaberar
munu ganga inn á Austurvöll,
en ekki er ætlazt til að fleiri
fari inn á völlinn sjálfan.
Komið með börnin.
Það eru eindregin tilmæli
nefndarinnar að foreldrar komi
með börn sín í skrúðgöngurnar
og raunar að allir sem vettlingi
geta valdið komi í göngurnar
svo að þær verði sem glæsileg-
astar.
Guðsþjónusta í Dómkirkj-
unni hefst kl. 2. Séra Óskar
J. Þorláksson predikar en
Þuríður Pálsdóttir syngur ein-
söng. Athöfninni verður út-
varpað og verður gjallarhorn-
um komið fyrir við Austurvöll.
Jakob Jóh. Smári samdi
ávarpið.
Að messu lokinni leggja
handhaf ar valds f orseta ís-
lands blómsveig að styttu Jóns
Sigurðssonar. Þá flytur fjall-
konan ávarp af svölum Alþing-
ishússins og að því loknu flyt-
ur forsætisráðherra ræðu. Á-
varp fjallkonunnar er samið af
Jakobi Jóh. Smára en frú Þóra
Framhald á 8. siðu.
Blaðið segir 18. maí, að vel
geti svo farið að sú afstaða
Bandaríkjamanna að neita að
hafa skipti á öllum stríðsföng-
um í Kóreu geti leitt til þriðju
heimsstyrjaldarinnar. Útlit
hafi verið orðið gott um sam-
komulag um vopnahlé þegar
Bandaríkjamenn tilkynntu allt
í einu að flokkun á föngum
hefði leitt í Ijós að 100.000
þeirra neiti að hverfa heim
til sín og því yrðu almenn
fangaskipti ekiki tekin í mál.
„Að minni hyggju er ...
þessi afstaða byggð á lögleysu,
vafasamri mannúð og grun-
samlegum staðreyndum“, segir
ritstjóri Reynolds News. Hann
bendir síðan á að alþjóðasamn-
ingur um meðferð fanga kveð-
ur skýlaust á um að öllum
föngum skuli skilað er vopna-
viðskiptum lýkur. Væri föng-
unum haldið eftir væri einskié
annars úrkostar en að fá þá
í hendur Syngman Rhee en
„meðferð hans á föngum og
grunuðu fólki er svo villimann-
ANDREI GROMIKO
Gromiko sendi-
herra í Loitdon
Tilkynnt var í Moskva í gær
að Gromiko a'ðstoðarutanríkis-
ráðherra hefði verið skipaður
sendiherra í London og stað-
fest að Sarúbin, sem lét af
sendiherraembættinu í London
tæki við starfi sendiherra í
Washington. Gromiko var
sendiherra í Washington frá
1943-til 1947 og gengur næst
Vishinski utanrikisráðherra í
utanríkisþjónustu Sovétríkj-
anna.
Gróði Unílever
81 milljónir
Reikningar brezk-hollenzka
auðhringsins Unilever fyrir ár-
i'ð 1951 hafa verið birtir í
Haag. Af þeim sést að gróði
hringsins að sköttum og af-
skriftum frádregnum er 200
milljónir gyllina eða um 860
milljónir íslenzkra króna. Af
skriftirnar nema 158 milljón-
um gyllina og skattarnir 352
milljónum. Velta Unilever var
árið 1951 12,8 milljarðar gyll-
ina og óx um 2,3 milljarða frá
árinu áður.
leg að hvað eftir annað hefur
legið við að brezlkir hermenn.
sneru vopnum sínum gegn
suðurkóreskum bandamönn-
um sínum af bræði yfir
að horfa á fanga brytjaða nið-
ur“. Loks bendir Reynolds
Nevvs á að „eftir Dodd-Colson
atburðinn er ómögulegt að trúa
orðum Bgtndaríkjamanna um að
fangarnir neiti að fara heim.“
„Það er kominn tími til að
Bandaríkjamönnum sé sagt að
við látum ekki draga okkur
blindandi út i hefndarstríð Mac
Arthurs“, segir þetta málgagn
brezkra samvinnumanna að
lokum.
Islaodsmótið
KR vann 3:2
I gær kepptu KR og Fram
í Islandsmótinu i knattspvrnu.
KR vann með 3:2. — I kvöld
leika Valur og Víkingur.
Framhald á 8. sfðu.
Franska lögreglan „afhjúpar"
skemmdarverk sfríðsóranna!
Enginn íótur reyndist íyrir njósnaíréttum
Franska leynilögreglan hljóp heldur betur á sig eftir
húsrannsóknir hjá kommúnistum í flotahöfninni Toulon
Tvær díiíisr greftraðar með
niikilli viðhöfn í París
Fuglarnir frægu í bíl Duclos voru alidúfur!
Ridgway, hinum bandaríska yfirhershöfðingja A-
bandalagsins, hefur verið boðið aö vera viðstaddur jarð-
arför tveggja dúfna í París.
Yopnahlé í Kóreu hindraö
með lognum fangatölum
Málgagn brezkra samvinnumamta fordæmir aðfarir
bandarísku herstjórnarinnar í Kóreu
í tveim harðoröum ritstjórnargreinmn hefur Reynolds
News, blaö brezku samvinnuhreyfingarinnar, fordæmt
aðfarir bandarísku herstjórnarinnar í Kóreu.