Þjóðviljinn - 28.11.1952, Blaðsíða 1
Æ. ff\» R."
Skálaferð verður á sunmi-
(lag kl. 10 f. h. — Hafið sam-
band við skrifstofuna og látið
skrá ykkur.
STJÓRNIN.
Föstudagur 28 nóvember 1952 — 17. áragngur — 270. tölublað
ANDSÞiNGIÐ LYSIR FULLUM STUÐN-
VIÐ KRðFUR VERKALÝÐSFÉLAGANNA
Heifir á öil sambandsféiögin að samfyikja um þœr unz sigrt er nóð
„í naíni heildarsamtaka íslenzkrar alþýSu lýsir
þingið eindregnu íylgi sínu við krcíur þeirra verka-
lýðsfélaga er nú hafa bundizt samtökum i hags-
munabaráitunni og heitir þeim fullum stuðningi.
lafnframt hvetur þingið allan verkaiýð og öll
sambandsfélögin til að mynda órofa fylkingu að
baki þessum kröfum og samninganefnd verkalýðs-
félaganna, unz sigri er náð".
Framanskráð yfirrlýsing er
var flutt af Jóni Rafnss., Her-
manni Guðmundssyni, Gunnari
Jóhannssyni og nokkrum fleiri,
var einróma samþykkt á Al-
þýðusambandsþinginu í gær.
Fundur Alþýðusambands-
þingsins í gær hófst með því
að Ásta Ólafsdóttir frá Siglu-
firði veitti forseta A .S. í. og
Jóni Sigurðssyni framkvæmda-
stjóra, eftirminnilega ofaní-
gjöf fyrir ummæli er þeir létu
falla í hennar garð um það bil
er fundi lau!k í fyrrinótt.
Mál Sveinafélags gullsmiða.
Rætt var um inntökubeiðni
gullsmiða og virtist sambands-
stjórn hafa lagt sérstaka óvild
á þetta félag, kvað það félag
manna er sjálfir væru at-
vinnurekendur. Iðnsveinar fá
meistararéttindi eftir vissan
starfstíma í iðninni og virtist
i umræðunum töluvert ruglað
saman meistararéttindum og
atvinnurekstri. Ennfremur kom
ýmislegt fram er benti til þess
að í fleiri iðnsveinafélögum
myndi þörf athugunar. Inn-
tökubeiðni féiagsins var vísað
til næstu sambandsstjórnar.
Atvinnuofsóknin í Héðni
fordæmd.
Þá var rætt um brottrekstur
járnsmiðanna þriggja í Héðni
og fordæmdu allir brottrekst-
urinn, kváðu slíka atvinnuof-
sókn mál sem alla verkalýðs-
hreyfinguna varðaði. Enginti
vissi á hvaða félag yrði ráðizt
næst. — Málið varð eltki út-
rætt.
Bœrt með bátagjaldeyri og
þungaskatt.
Bergsteinn Guðjónsson ræddi
nókkur mál frá bílstjórunum
og voru samhljóða samþykkt-
ar áskoranir á ríkisstjórnina að
„horfið verði frá því að flytja
ina rekstrarvörur bifreiða á
frjálsum gjaldeyri bátaútvegs-
ins“, að þungaskattur á leigu-
bifreiðum verði lækkaður úr
kr. 36 á 100 kg. niður í 6 kr.
Ennfremur áskorun á dóms-
málaráðherra að flutt verði
frumvarp um umferðadómstól
og áskorun á Alþingi að sam-
Fundur með
ríkisstjórninni
Fyrir tilstuðlan sáttasemjara
ríkisins átti samninganefnd
verkaiýðsfélaganna fund með
ríkisstjórninni í gær.
Ríkisstjórnin mun einnig
ræða við atvinnurekendur.
þykkja frumv. nokkurra í-
haldsmanna um leigubifreiðar.
Þungur róður vestflrzka
benjamínsdýrkandans.
Jón Hjartar (Framsóknar)-
fulltrúi af Vestfjörðum flutti
tillögu um að skora á ríkis-
stjórnina að skipa nefnd til að
rannsaka atvinnumál og gjald-
þol atvinnuveganna, svo verka-
lýðurinn gæti á hverjum tíma
séð hvort hann mætti gera
kröfur!! Kvað hann upp þann
Salómonsdóm að allar kröfur
um hækkað kaup þýddu nýja
gengislækkun.
Tillaga þessi fékk þungar
viðtökur og mæltu henni engir
bót nema flutningsmaður.
Getum ekki beðið eftir að
spyrja Hermann.
Þegar þetta var rætt í fyrra-
dag og Jóni Hjartar þótti flas-
að að samkomulagi því sem
verkalýðsfélögin hafa gert, þar
sem ekki hefði verið beðið
eftir áliti Jóns Hjartar og fé-
lags hans, svaraði Sæmundur
Ólafsson: „Við getum ekki
beðið eftir því að e. t. v. verði
einhvern tbna hringt vestan
af fjörðum og Hermann Jónas-
son spurður að því hvort við
megum fara í verkfall“I!
Framsókn talar fyrir Ihaldið.
Stefán Stefánsson frá Isa-
Framhald á 8. siðu.
EEEefu dauðadómar í Praha
Ellefu af fjórtán sakborningum 1 réttarhöldunum i
Praha í Tékkóslóvakíu voru dæmdir til dauða í gær.
Þessir ellefu menn voru
dæmdir til dauða fyrir land-
ráð, njósnir og skemmdarverk:
Rudolf Slansky, fyrrverandi
aðalritari Kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu og fyrrverandi
varaforsætisráðherra. Vladislav
Clementis, fyrrverandi utanrík-
isráðherra. Bcðrich Geminder,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
i sambandsdeild kommúnista-
flokksins við útlönd. Josef
Franck, fyrrverandi vararitari
miðstjórnar kommúnistaflokks-
ins. Otto Sling, fyrrverandi a'ð-
alritari flokksdeildarinnar í
Brno. Ludvig Frejka, fyrrver-
andi stjórnandi efnahagsmála-
deildar forsetakansellisins.
Bedrich Raicin, fyrrverandi
varalandvarnaráðherra. Karel
Svab, fyrrverandi varaöryggis-
málaráðherra. Rudolf Margoli-
us, fyrrverandi utanríkisverzl-
unarráðherra. Otto Fichl, fyrr-
verandi varafjármálaráðherra.
Arnlré Simone, fyrrverandi ut-
anríkismálaritstjóri við Rude
Pravo, aðalmálga.gn kommún-
istaflokksins.
Þrír hinna ákærðu voru
dæmdir í ævilangt fangelsi.
Voru það fyrrverandi varautan
ríkisráoherrarnir Arthur Lond-
on og Vavro Hajdu og fyrrver-
andj varavi'ðskiptamálaráðherr-
ann Ezvan Löbl.
Er dómurinn hafði verið
kveðinn upp risu sakborning-
arnir á fætur hver af öðrum
og lýstu yfir að þeir gerðu sig
ánægða með dóminn yfir sér.
Er því ekki búizt við áð dómn
um verði áfrýjað.
Mikil ólga er í ísrael vegna
þeirra ásakana á hendur Síon
istum, samtökum þeim, sem
vinna að því að fá sem flesta
gyðinga til að flytjast til Isra-
el, sem komið hafa fram í
vitnaleiðslum við réttarhöldin í
Praha. Gerði mannfjöldi í gær
aðsúg að sendiráðsbyggingu
Tékkóslóvakíu í Tel Aviv og
varð lögregla að skerast í leik-
inn.
Ösvífin tilmæli brezku
ríkisstjórnariiinar
Ríkisstjórn íslanás vísar á bug þeim skiln-
ingi Breta að tcgaraeigendur séu aðiljar að
landhelgisdeilunni.
Brezka ríkisstjórnin hefur látið flytja íslenzku ríkis-
stjórninni þau skilaboð að brezkir togaraeigendur séu
fúsir til fundahalda með íslenzkum togaraeigendum út
af deilunnli um landhelgi Íslands! Býðst brezka stjórnin
til að hafa forgöngu um slík fundahöld íslenzkra og
brezkra togaraeigenda. Ríkisstjóm íslands hefur vísað
þessum ósvífnu tilmælum brezku ríkisstjórnarinnar á
bug og bent á að setning íslenzku landhelgisreglugerðar-
innar sé ekki mál togaraeigenda heldur stjómarat-
höfn. Jafnframt mótmælir ríkisstjórnin ráðstöfunum
brezkra togaraeigenda og fiskikaupmanna til að hindra
löndun íslenzks fisks í brezkum höfnum.
Þjóðviljanum barst í gær svohljóðandi fréttatilkynn-
ing um þetta efni frá utanríkisráðuneytinu:
„Hinn 24. þ.m. bárust rikis-
stjórninni skilaboð frá brezka
utanríkisráðuneytinu þess efnis,
að samtök brezkra j,ogaraeig-
enda hefði enn á ný lýst sig
fús til að hafa fund með full-
trúum islenzku ríkisstjórnar-
Meirihluti Stúdentaráðs bannar rit-
nefnd 1. des,-blaðsins aS birta grein
eftir séra Emil Bjömssm
Allt í uppnámi í Stúdentaráði og í ritneíndinni
Mikil tíðindi og ill eru nú að gerast í stúdentaráði. Fimm
Ihalds stúdentar hafa bannað ritnefnd stúdentablaðsins, er
út á að koma 1. des. að birta í blaðinu grein eftir séra Emil
'Björnsson um friðarkenningu kristindómsins og framtíð Islands.
I samráði við formann rit-
nefndar skrifaði séra Emil
grein í stúdentablaðið 1. des.
og þrír ritnefndarmenn af fimm
lásu greinina og samþykktu
birtingu hennar. Greinin var
sett en fulltrúi Vöku í nefnd-
inni fór með próförk af henni
til. pólitískra yfirboöara sinna
sem heimtuðu áð greinin yrði
bönnuð. Var í skyndi boðað til
stúdentaráðsfundar og þar sam
þykktu 5 íhaldsstúdentar að.
banna ritnefndinni að birta
grein séra Emils.
Aðfarir þessar spilla mjög á-
liti stúdenta og brjóta í bág við
þá víðsýni og það frjálslyndi
sem stúdentar eiga að tileinka
sér. Stúdentablaðið á að vera
vettvangur fyrir frjálsar skoð-
anir en ekki einkamálgagn
nokkurra Ihaldsstúdenta, sett
undir ritskoðun flokksskrifstof-
unnar í Holsteini.
Kostar 370 þús.
segir hitaveitustjóri
Á bæjarráðsfuundi s. 1.
þriðjudag var lögð i'ram áætl-
un hitáveitustjóra um kostnað
við að leggja liitaveituna í bæj-
arhúsin við Bergþórugötu og
Barónsstíg og Bjarnaborg.
Samkvæmt áætlun hitaveitu-
stjóra kostar 170 þúsund krón-
ur að leggja hitaveituna í
Bjamaboi’g og 200 þúsund
krónur í Bergþórugötu- og
Barónsstígshúsin eða samtals
370 þúsund krónur. /Etti þess
nú ekki að verða langt að bíða
að þessu nauðsynjamáli verði
hrundið í framkæmd en sósíal-
istar hafa hvað eftir annað
flutt málið í bæjarstjórn og
krafizt þess að íbúar þessara
bæjarhúsa yrðu hitaveitunnar
aonjótandi eins og aðrir íbúar
viðkomandi bæjarhverfa.
innar, til þess að athuga til
hlítar ástand fiskimiðanna um-
hverfis Island og ganga frá
samkomulagi. sem bæði lönd-
in gætu sætt sig við um full-
nægjandi verndun fiskimið-
anna. Var jafnframt skýrt frá
því, að sú von hefði verið fátin.
í ljós, að brezka ríkisstjórnin
gæti stofnað til slíks fundar
tafarlaust, og var það tekið
fram af hálfu brezka utanrikis-
ráðuneytisins, að hér væri ekki
átt vi'ð fund með fnlltrúum ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar held-
ur fund fulltrúa brezkra og ís-
lenzkra togaraeigenda.
Hinn 26. þ.m. var sendiherra
Islands í London falið að flytja
brezka utanríkisraðuneytinu
þa.u svör, að íslenzka rikis-
stjórnin væri þeirrar skoðunar,
að hvorki brezkir né íslenzkir
togaraeigendur væru réttir
samningsaðilar að því er snerti
verndarráðstafanir þar, er gerð
ar hafa verið, því að þar væri
um stjórnarathöfn að ræða,
sem íslenzka ríkisstjómin hefði
hvað eftir annað tekið fram,
að hún áliti vera í samræmi við
alþjóðalög. Ráðstafanir þessar
myndu því standa óhaggáðar,
meðan þeim hefði ekki verið
hnekkt með lögmætum hætti á
þann veg, er tíðkast um lausn.
deilumála þjóða í milli. Jafn-
framt mótmælti íslenzka ríkis-
stjórnin eindregið þeim ráð-
stöfunum, sem brezkir togara-
eigendur og fiskikaupmenn
hefðu gert, er þeir settu bann
á löndun íslenzks fisks í Bret-
landi, enda yrði vissulega að
telja, að með því hefði skap-
ast ástand, sem hefði mjög
skaðleg áhrif á sambúð land-
anna svo sem nánar vo’ u færð
rök að. Islenzka ríkisstjórnin
yrði því enn á ný aö sl<ora á
brezku ríkisstjórnina. að hún
sæi um að, löndunarbanninu
yrði aflétt.“