Þjóðviljinn - 15.02.1953, Síða 2

Þjóðviljinn - 15.02.1953, Síða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. febrúar 1953 5 i 1 dagf er sunnudagur 15. febr. ^ 46. dagur árslns. Hvað er hægt að gera í dag? Sá sem hefur hug á því að sitja ekki heima í allan dag, hann á ymsra kosta völ í samkunduhús- um bæjarlns. Hann getur til dæm- is. farið í ÞjóSIeikhúsiS kl. 3 í dag að sjá Skugga-Svein, hinn niræða ástvin þjóðarinnar. Ef hann getur ekki farið út fyrr en í kvöld þá er Stefnmótið eftlr Anouilh til sýnis á sama stað kl. 8. Það er þó alltcnd eftir mikinn kunnáttu- mann í skáldskap, og Ieikdómarar hafa lofað það. Ef hann Iangar aftur á móti meira til að hlæja, þá er að venda sínu kvæði í kross og fara í Iðnó og kynnast því hvernig góðir eiginmenn fara að því að sofa heima hjá sér. Reynd- ar þeklsir hann það af eigin raun, en sem sagt: þetta er í öllu falll ágæt skemmtan. — Svo er Gull- eyjan í Gamlabió, en annars skal ekki farið hér út í frásögn af kvikmyndum, því sjálfir höfum vér ekki séð neina þeirra mynda sem nú eru sýndar hér í höf- uðborginni, en kannski segir hann D. G. okkar frá einhverri þeirra á 9. síðunni hérna fyrir aftan. Eigum við ekkl að atliuga það. — Sá sem hefur hug á því að hreyfa sig eitthvað í dag, hann á líka einn útveg eftir: að ganga bara suður með Tjöminni, eða niður að sjó, eða á hvern annan sfað þar sem loftið cr ferskt og hressandi. döUlarannsóknafélag Islands Félagið heldur aðalfund sinn ann- aðkvöid kl. 20.30 í I. kennshistofu Háskólans. Auk venjulegra aða!- fundarstarfa verður sýnd kvilc- mynd af björgun skíðaflugvél- arinnar á Vatnajökli í apríl 1951. Ársrit féiagsins, Jökull, verður afhent félagsmönnum á fundinum. Sarntal á götunni: Jegrrevillbrrrskabok? Vrrbruhveriunmgrroþ! Nýlega opinberuðu trúlofun sína ung- frú Stefanía Ragn- arsdóttir, símamær Keflavík, og Krist- ján Guðleifsson, sama stað. 121 þúsund 1 gær söfnuðust hér í Rvík 10.410 krónur í Hollandssöfnun Rauða- krossins. Er þá söfnunarupphæð- in hér í bænum orðin 121 þúsund krónur. Hinsvegar er ekki kom- in skilagrein fyrir það sem safn- azt hefur úti á landi, enda held- ur söfnunin áfram enn um skeið. ■ Skrifstofa Ræuðakrossins í Thor- valdsensstræti er opin í dag kl. 10-12 fyrir hádegi og 2-5 e.h. Helgidagslæknir er Kjartan R. Guðmundsson, Úthlíð 8. Sími 5352. ILæknavarðstofan Austurbæjarskól- anum. Sími 5030. Næturvarzla er í Laugavegsapó- teki. Sími 1618. Stúdentar Atkvæðagreiðsla vegna íþ'rótta- skyldu heldur áfram á morgun mánudag kl. 10-18 í skrifstofu Stúdentaráðs. Lárus efstur í skákmótlnu 1 áttundu umferð Skákmóts Rvik- ur vann Ólafur Einarsson Jón Pá'sson, Óli Vald. Steingrím og Þórir Inga R. Jafntefli: Lárus og Jón Einarsson, Ingimundur og Haukur, Þórður og Gunnar Ólafsson. — Er Lárus nú efstur í meistaraflokki með 6 vinninga; en næstir eru Haukur, Öli Vald. og Ingi R. með 5 vinninga hver. Eftir eru 3 umferðir, og verður sú næsta tefld á fimmtudaginn kemur. Kl. 8:30 Morgunút- varp. 9:10 Veður- fregnir. 10:30 Prest- vígslumessa í Dóm- kirkjunni. Biskup Islands vígir þrjá guðfræðikandí data: Birgi Snæbjörnsson til fflsu- staðaþrestakalls í Húnavatnspró- fastsdæmi, Jónas Gíslason til Vík- urprestakalls í Vestur-Skaftfells- prófastsdæmi og Magnús Guðjóns- son til Eyrarbakkaprestakalls í Árnesprófastsdæmi. 13:15 Erindi: List og sálkönnun (Símon Jóh. Ágútsson). 15:15 Fréttaútvarp til Islendinga erlendis. 15:30 Miðdeg- istónleikar (pl.): a) Gullna són- atan eftir Purcell. b) Gloría eftir Vivaldi. c) Svíta nr. 3 í D-dúr eftir Bach. 18:30 Barnatími (Hildur Kalman): a) Grænbuxi, saga eftir sr. Friðrik Hallgrímsson (Gerður Hjörleifsdóttir leikkona les). b) Krummavísur. c) Leikrit: Pottur- inn. L.eikéhdúr1 'HólmfríðuV Páls- dóttir, Karl Guðmundsson, Knút- ur Magnússon og Helgi Skúlason. 19:30 Tónleikar: Artur Rubinstein leikur á píanó (pl.) 20.20 Tón- leikar: Blásarakvintett eftir Hin- demith. 20:45 Erindi: Refillinn mikli frá Bayeux. — Dregur til tíðinda við Helsingjaport. (Björn Th. Biörnsson). 21:00 Óskastund. 22:05 Gamlar minningar: Gaman- stjórn Biarna Böðvarssonar leikur. Kristindómur og kommúnismi Helztl viðburður bæjarlífsins í dag er umræðufundur Stúdentafé- lagsins um Kristindóm og komrn- únisma. Frummælendur eru þeir Gunnar Benediktsson og séra Jó- hann Hannesson. Fundurinn er í Sjálfstæðishúsinú, og hefst kl. 2 e.h. Þess er að vænta að stúdent- ar reyni nú að skapa fjörugar, og helzt dálítið andríkar umræð- ur — því hér er þó væntanlega um höfuðmál að ræða. TÍMINN skýrir nú frá þvi dag eftir dag, i óbeinni ræðu, hvað formaður flokksins hafi sagt í hinni frægu áramótagrein Sinni. — 'Sem góður vinur Hermanns Jpnassonar las ég grein hans af athygli —- og leikur mér nú forvitni á að vita hvort formanninum leiðist ekki þessir stöðugu útúrsnúningar úr grein hans, enda skyldi maður ætla að slíkt stæði öðrum nær en Timanum. Mér fyndist þvi formað- urinn ætti að krefjast þess af ritstjóra sínum að hann birti greinina orðrétta á 'ný. ,-mnr — Hœttu þessum skrípalátum. Stilltu heldur IjósopiS rétt. (Regards, Paris). Söngvarar: Edda Skagfield, Alfreð Andrésson, Haukur Morthens og Lárus Ingólfsson. 22:35 Danslög af plötum til klukkan 23:30. Dagskrá útvarpsins á morgun Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 17:30 Islenzkukennsla. 18:00 Þýzku- kennsla. 18:30 Iþróttaþáttur. 10:20 Tónleikar (pl.) 20:20 Útvarps- ihHjómsveitin: a) Forleikur að frönskum gamanleik eftir Keler- Bela. b) Caravane Hindoue eftir Francis Popy. c) Vals eftir Tschal- kowsky. 20:40 Um daginn og veg- inn (Gylfi Þ. Gíslason). 21:00 Ein- söngur: Paul Robeson syngur. (pl.) 21:20 Dagskrá Kvenfélaga- sambands Isl. Erindi: Um nýtni (frú Sigríður Eiríksdóttir hjúkr- unarkona). 21:45 Hæstaréttarmál. 22:20 „Maðurinn í brúnu fötunum". 22:45 Dans- og dægurlög: Kurt Foss og Reidar Böe syngja (pl.) Dagskrárlok kl. 23:10. Esperantonámskeið . Athygli skal vakin á esperantó- námskeiðum þeim, sem pólski fræðimaðurinn dr. Marek Wajs- blum stendur fyrir. Námskeiðin eru tvö, annað fyrir algera byrj- endur og hitt fyrir þá, sem hafa lært dálítið í málinu. Ætlunin er, að þau standi í átta vikur, en þátttökugjaldið er 80 kr. fyrir tímann. Kennslan fer fram á tveim stöðum, mánudagskvöld í fundarsal Óháða frikirkjusafnað arins í bakhúsinu á Laugavegi 3 og miðvikudagskvöld á efstu hæð Edduhússins við Lindargötu. — Fyrsti tíminn verður annað kvöld kl. 9 að Laugavegi 3. — Notið tækifærið og lærið alþjóðamálið. Upplýsingar og innritun í Bókabúð Kron, sími 5325. Kvenfélag Óháða fríkirkjusafn- aðarins. Félagsfundur í Breiðfirð- ingabúð annaðkvöld kl. 8.30. — Fjölmennið. Heimilisblaðið Haukur, f ebrúar- blaðið, er nýkomið út. Efni: Rabb við lesendurna. Mesti ofurhugi norsku mótspyrnuhreyfingarinnar, eftir Edwin Muller. Skautasvell og ást, þýdd smásaga. Þróun sjón- varpsins. Stúlka ársins 1953, þýdd smásaga. Þannig verður þú alkó- hólisti, þýdd grein. Dvergurinn og björninn, ævintýri. Ýmislegt um ritvélina. Maður með mönnum; Tuttugu og fjögra ára hjónaband, þýddar smásögur. Stóreignir brezkra aðalsmanna, grein eftir Heinz River. Getið þér- lengt líf manns yðar? eftir Louis Dublin, Listamannaþáttur Hauks er um Karl O. Runólfsson. Kvæði er eft- ir Tómas Guðmundsson. Ennfrem- ur ýmislegt smávegis til skemmt- unar, auk framhaldssögunnar. For- síðumynd er af leikurunum Elínu Ingvarsdóttur og Gísla Halldórs- syni. ú hóíninni Ríkisskip Hekla er á Austfjörðum á norður- leið. Esja er á Austfjörðum á suð- urleið. Herðubreið er á leið frá Austfjörðum til Reykjavíkur. Þyr- 111 er á Vestfjörðum á norður- leið. Helgi Helgason fór frá Rvík i gærkvöld til V?. Baldur fór frá Rvík í gærkv. til Breiðafjarðar. Sambandsskip Hvassafell fór frá Akureyri 10. þm. áleiðis til Blyth í Englandi. Arnaifell fór frá Reykjavík 12. þm. til Álaborgar. Jöku'fell kom til Reykjavíkur í gærkvöldi. Bæjartogararnir Ingólfur Arnarson kom 9. þm. og landaði hér 46 tonnum af nýjum fiski og 106 tonnum af saltfiski. Auk þess hafði skipið 11% tonn af lýsi. I veiðiförinni landaði skip- ið 16% tonni á Flateyri. Skúli Magnússon fór á ísfiskveiðar 8. þm. Hallveig Fróðadóttir fór á ísfiskveiðar 7. þm. Jón Þorláksson fór á ísfiskveiðar 6. þm. Þorsteinn Ingólfsson kom 11. þm. og landaði 112 tonnum af ísuðum þorski, 37 tonnum af öðrum fiski. Auk þess hafði skipið 6 tonn af lýsi. Fór aftur á ísfiskveiðar 12. þm. Pétur Halldórsson fór á saltfiskveiðar 4.' þm. Jón Baldvinsson fór á salt- fiskveiðar 23. jan. Þorkell máni er í Reykjavík. — 1 vikunni unnu 150 manns í fiskverkunarstöðinni. Krossgáta nr. 9 Lárctt: 1 afgamla 7 gól 8 dýr 9 hlé 11 ættingi 12 málfr. skammst. 14 til 15 stúta 17 hrylla 18 snöggt 20 fjandi Lóðrétt: 1 meinsemd 2 fóðra 3 skammst. 4 tæka 5 eimur 6 eld- stæði 10 ásynja 13 hita 15 dund 16 sigað 17 mynni 19 tveir eins Lausn á kross.gátu nr. 8 Lárétt: 1 fleipur 7 RE 8 lóga 9 ógn 11 111 12 ef 14 al 15 firr 17 sá 18 áir 20 skorðar Lóðrétt: 1 fróm 2 leg 3 il 4 pól 5 ugla 6 ralla 10 nei 13 frár 15 fák 16 rið 17 ss 19 ra Það voru síðustu forvöð fyrir Hodsja Nas- reddín. Handan frá kirkjugarðinum barst ómur af háværum skammaryrðum varð- anna. Þvínæst liðu langir skuggar þeirra út á veginn gegnum gat á garðmúrnum, þar á eftir komu þeir sjálfir í ljós. Landshornaflakkari og hundur! æptu verð- irnir og spörkuðu í sekkinn, og létu braka í vopnum sínum svo það hefði auðveldlega getað verið glamur koparvængjanna: Nú höfum við leitað um allan kirkjugarðinn — hvar etu peningarnir sem þú lofaðií- okkur? Okrarinn mundi greinilega hina dularfullu særingu: Sá sem hefur koparskjöld hefur koparenni, svaraði hann úr pokanum. I hreiðri fálkans situr hornugla. Ó, drekar, þið leitið þar sem ekkert er að finna — kyssið því asna minn undir taglið. Er verðirnir heyrðu þessi orð urðu þeir óendanlega reiðir: Þú hefur logið að okk- ur, hundur og svín, og nú kallarðu okkur ófreskjur. Sko, hann hefur velt sér við í þeirri von að losna, á meðan við leituðum í garðinum og blóðguðum hendur okkar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.