Þjóðviljinn - 15.02.1953, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 15.02.1953, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Suimudagur 15. febrúar 195S HVERS VEGNA kemur það svo þráfaldlega fyrir að menn segja fyrir kosningar ailt ann- að en það sem þeir gera og segja eftir kosningar. — Hví ekki að segja fólki hreinskiln- islega hvað ætlazt er fyrir, því um það er fólkið raunveru- lega að kjósa? VEGNA ÞESS að ýmsir, sem vilja láta fjöldann kjósa sig eru ekki fulltrúar fyrir hags- muni hans heldur fámenns stéttarhóps, sem í okkar þjóð- félagi beinlínis auðgast og dafnar á örbirgð fjöldans, sem dregur fram lífið af vinnu sinni. HVERS VEGNA setja fulltrúar fjárplógsmanna í Sjáifstæðis- flokknum og Framsókn ekki efst á blað fyrir allar kosning- ar baráttuna fyrir gengislækk- un, meiri tollaálögum, meiri dýrtíð, meiri launaráni, meira atvinnuleysi, afsaii íslenzicra iandsréttinda o. s. frv. ? VEGNA ÞESS að með slíkri hreinskilni fyrir kosningar væri vonlaust að geta í krafti atkvæðafylgis framkvæmt þessa hluti eftir kosningar. — Þetta skilja allir sæmilega félags- þroskaðir verkamenn. HVERS VEGNA var Alþýðu- flokkurinn með íhaidi og Fnam sókn í því að koma á ríkislög- regiu gegn verkalýðnum, geng- islækkun og banni við kaup- deilum á árunum 1938—’40, þrátt fyrir baráttu sína gegn þessu fyrir allar kosningar frá því 1916 og til þessa? VEGNA ÞESS að spillingin í forystuliði hans hafði þá geng- ið svo vitt að hin ráðandi öfl flokksins voru runnin saman í eitt við auðstéttarklikur hinna borgaralegu flokka. — Síðan hefur þessi gamli flokk- ur alþýðunnar átt í megin- atriðum öll sömu áhugamál og hinir gömlu borgaraflokkar tveir. — Hann hefur við hlið þeirra eftir kosningar beitt sér fyrir tollahækkunum, gengis- lækkunum, vísitölubindingu, dýrtíð, Marshallkreppu, atvinnu leysi, afsali landréttinda o. s. frv. — Þetta vita allir þrosk- aðir menn í verkalýðssamtök- unum. HVERS VEGNA er það ein- mitt þessi flokkur, sem nú mælir róttækt með baráttumál- um verkalýðsins og slær um sig með andmælum gegn hug- myndum samherja sinna um stofnun íslenzks hers? VEGNA þess að í dag eru verka- menn í stærsta verkalýðsfélagi Vegna þess... íslands að velja sér menn í fé- lagsstjórn og að Alþýðuflokk- • urinn hefur fengið það hlut- verk að stilla upp. iista við þessar kosningar á móti sam- einingarmönnum — gegn verk'amönnum í Dagsbrún. — En á bak við standa menn einkagróðans, dýrtíðarinnar, at- vinnuleysisiris og yfirstéttar- hersins. 1 krafti róttækra slag- orða fiokksins, ,sem ber irafn alþýðu, . á að vinna þessum á- hugamálum þríflokkaauðvalds- ins viðspyrnu, sem mæld skal í verkamannaatkyæðum við þessar Dagsbrúnarkosningar, þegar til framkvæmda kemur að loknum þingkosningum í sumar. — Mætti í þessu sam- bandi minna á h.versu efnd voru lvosningaloforðin 1946 um vinnu handa öllum, ijaráttu gegn afsali landsréttinda, gegn gengislækkun o. s. frv. ÞESS VEGNA er það ekki ein- ungis brýnt verlferðarmál hvers verkamanns — stéttarleg sæmd Dagsbrúnarmanna liggur þar við, að sem fæst atkvæði falli í gildru B-listans. ÞESS VEGNA fylkja Dags- brúnarmenn sér nú í ríkara mæli en nokkru sinni fyrr um lista sameiningarmanna, listá Sigurðar Guðnas.onar, A-list- ann. xx. SKÁK Ritstjóri: Guðmundur Arnlaussson Skáfo frá Saitsjöbitden Skákirnar frá þinginu í Salt- sjöbaden halda áfram að prýða skákblöð og dálka um allan heim, enda er þar úr óvenjulega mörgu og fallegu að velja. Skák okkar i dag er unnin af ungum Rússá, sem ekki er jafn- kunnur og þeir landar hans aðr- ir er þarna tóku þátt, en náði engu að síður 5.—7. sæti ásamt þeim Stáhlberg og Szabo. Fórn- arlambið er einn kunnasti tafl- meistari Breta, byrjunin er mik- ið tefld um þessar mundir, skák- in er fjörug og hlýtur að hafa verið einstaklega æsandi á að horfa, því að ofan á spennuleikj anna bættist tímaþröngin. Hvítur átti aðeins eftir tvær mínútur fyrir 16 leiki, en þá rak hann líka endahnútinn svo rösklega á skákina, að andstæðingur hans sá sitt óvænna og gafst upp. Nimzoindversk vörn. Averbakh Golombek 1. d2—d4 Rg8—f6 2. c2—c4 e7—e6 3. Rbl—c3 B1'8—b4 4. a2—a3 Bb4xc3t 5. b2xc3 c7—c5 6. e?,—e3 0—0 7. Bfl—d3 d7—d5 Þetta afbrig-ði hefur verið ta's- vert í deiglunni undanfarið, og bendir margt til þess, að sú opn- un taflsins sem síðasti leikur svarts hefur í för með sér, sé honum hættulegur. Ef ekki finn- ast nýjar leiðir fyrir svart má þvi búast við, að menn fari að leika hér d6 og e5. 8. c4xd5 e6xd5 9. Rgl—e2 b7—b6 10. 0—6 Bc6—a6 11. Í2—f3 Ba6xd3 12. Ddlxd3 Hf8—e8 13. Re2—g3 Rb8—c6 14. Bcl—b2 IIa8—c.8 15. Hal—el c5xd4 16. c3xd4 Dd8—d7 Svartur getur ekki lengur hindrað e3—e4, en býr sig undir að ná mótspili með riddaranum. 17. e3—e4 d5xe4 18. f3xe4 Rc6—e5 unum. Hann hefur ekki komizt til botns í flækjunum eða ekki litizt á niðurstöðuna. 19. . . . Re5—c4 20. Bb2—cl I)d~—o6 21. e4—e5 Rf6—d5 22. Ddl—f3 f7—f6? Svartur ætlar að hrista af sér e-peðið, en það færi sem hann gefur á sér ríður honum að fullu. Á það hefur með réttu verið bent að Hc7 og He6 við tækifæri hefðu gert hvít érfiðara að hrinda sókn sinni fram til sig- urs. 23. Rg3—h5! He8—f8 24. Df3—g3 Dc6—c7 Leppar e-peðið. Sem dæmi um sóknarfæri hvíts má nefna 24. — Hc7 25. Bh6 Hf7 26. e6! He7 27. Bxg7 Hxg7 28. Rxg7 Hxg7 29. Db8t og mát í næsta leik. 25. Bci—hö llf8—17 26. Dg3—f3 Hc8—d8 27. Rh5xg7!I GOLOMBEK ABCDEFGH SKÁKDÆMIÐ. Kenneth S. Howard (Am. Chess Bull. 1936). A B C D E F G H ÉrW *■' i * i; 19. Dd3—dl Þessi leikur kostaði Averbakh 50 mínútur! Haft er fyrir satt að hann hafi verið að velta fyr- ir sér 19. De2 Rc4 20. Hxf6! Rxb2 21. Rf5 með allskonar hót- AVERBAKH Lokafléttan! Það er hreint ekki auðvelt að sjá á hverju hún byggist. 27. . . . IIf7xg7 28. e5xf6 Hg7—d7 Ef Hf7 þá Dxd5! En hvernig vinnur hvítur nú? 29. f6—f7f! og Golombek gafst upp. Averbakh átti að vísu aðeins eina minútu eftir á næstu 11 leiki, en honum hefði ekki orðið skotaskuld úr því að tefla hrað- skák. Framhaldið hefði til dæm- is getað orðið svo: 29. — Hxf7 30. Dxd5 Hc8 (hvít- ur hótaði Hxf7, Dxf7, Dg5f og Dxd8t) 31. Dg5f Kh8 32, Hxf7 Dxf7 33. He7. Hvítur á að máta í fjórða leik. Innihald slcákdæmis getur ver- ið margskonar. Stundum er fyrsti lausnarleikurinn — lykiil- inn — aða'atriðið, svo óvæntur og ólíklegur að erfitt er að finna hann. Öðrum sinnum er það mát staðan sjálf sem mestu máli skiptir, hreinar og fallegar mát- stöður raðast upp á víxl eftir því hvernig leikið er. Þriðja gerð skákdæma snýst hvorki um lykil né lokastöðu, heldur um leiðina, samleik hvítu mannanna og mót leik hinna svörtu; hótanir hvíts og varnir svai-ts mynda geðþekka heild. Slík dæmi eru köll- uð strategísk og undir þann flokk skipar sér mikið af þeim dæmum sem gerð eru nú á dög- um. Þrautin sem fylgir þessum lín- um er hreinræktað dæmi þess- arar tegundar. Höfundurinn sem er einn af frægustu skákdæma- höfundum vestan hafs lýsir henni svo: „an example of triple consecutive anticipatory lineclosings or shut-offs of black pieces, combined with decoys of the black king“. Eg hætti mér ekki út í ti1- raunir til þýðingar, en vona að klausan hræði menn ekki frá því að líta á dæmið sjálft, það er ekki eins erfitt og hún eða leikjafjöldinn gætu gefið í skyn. Áríðandi er að gera þetta áður en lengra er lesið því að nú kemur lausleg skýring á dæm- inu. Svartur er sýnilega mát ef hvíta kónginum tekst að komast Framhald á 11. síðu. Sýning á myndum Emils Thoroddsens morgunúívarpið LJSTVINASALURINN við Frejrjugötu er sá staður, sem Reykvíkingar geta alltaf leit- að til og fundið eitthvað það, sem fullnægir þörf þeirra fyr- ir góða m.vndlist, ekki aðeins nútímalist, heldur einnig eldri tegundir og síður umdeildar af öllum þorra marnia. Það er ómaksins vert að fylgjast með því, hvað til sýnis er i Listvinasalnum á hverjum tíma, því hann er í rauninni einn af fáum „föstum punkt- um“ í listalífi höfuðstaðarins, og þangað er gott að koma. — Nú sem stendur er þar sýning, sem nauðsyn ber til að vekja athygli á, því að ekki mun að líkindum gefast í bráð tækifæri til að kynnast þeim listamanni svo náið á þessu sviði, sökum þess að myndir hans eru allar í prívat eigu og hafa fæstarkomiðfyrir almenningssjónir áður. Þetta er sýning á málverkum og teikningum Emils heitins Thoroddsens. Öllum er hann að góðu kunnur sem tónskáld, og árum saman var hann list- gagnrýnir, bókaþýðandi og leikritahöfundur. Færri þekkja hann af myndum hans, en myndlistin var sú tegund listar, sem hann lagði á hill- una um tvítugt, enda þótt ekki sé annað sjáanlegt, en að einnig á því sviði hefði hann getað orðið meðal fremstu listamanna okkar. 1 TILEFNI sýningar þessarar hefur Tómas Guðmundsson skáld skrifað m.a. á þessa leið: ,,Það er vinum Emils Thoroddsens fagnaðarefni, að efnt hefur verið til sýningar á málverkum hans, og veit ég þó ekki, hva.ð hann liefði sjálf ur sagt um slíkt tiltæki. Hon- um var mjög ótamt að lialda sjálfum sér fram, og málverk- um sínum — sem öðrum lista- verkum —- hélt hann svo lítt til haga, að tilviljun ein réð oft mestu um það, livort þau geymdust eða glötuðust. Þá er sýningargestum einnig rétt að hafa það í huga, að hann var ekki nema rúmlega tví- tugur, þegar hann lagði myndlistina á liilluna. Eftir það tók tónlisti<i hug hans æ meir, og það, sem hann vann ihenni, mun væntanlega halda nafni hans lengst á lofti. En þó að þessi sýning taki aðeins til nokkurra æskuverka, mundi mig furða á því, ef það færi fraimhjá nokkru glöggu auga, að hér var á ferðinni mjög gáfaður. og geðþekkur listamaður, sem líklegur var til þess að þræða eigin leið- ir og sjá heiminn í frumlegri og skemmtilegri skáldsýn." — Sem sagt, góðir Reykvíking- ar, ykkur stendur til boða að kynnast æskuverkum Emils Thoroddsens í Listviaasaln- um þessa viku. .Sýningin verð- ur opin til næstu helgar. MAÐUR kom að máli við Bæj- arpóstinn í fyrradag og hafði orð á því, að sér og fleirum leiddist orgelspilið og bæna- lesturinn í útvarpinu á morgn- ana, og einkum og sér í lagi þegar á eftir færi runa af hergöngumörsum, danslögum og allskonar viðkvæmnis- söngvum, hvað innan um ann- að. Víst er um það, að margir Framhald á 11. síðu Páli .áHjáímsi-, í gær varð áttræður Páll Guð- mundsson, bóndi og skáld á Hjálmsstöðum í Laugardal. Hana er fæddur á Hjálmsstöð- um hinn 14. febrúar 1873, son- ur hjónanna Gróu Jónsdóttur ljósmóður og Guðmundar Páls- sonar, er þar bjuggu. Páll er uppalinn á Hjálmsstöðum og hefur alið þar allan aldur, utan hvað hann réri á vertíðum á sínum yngri árum, eða frá sex- tán ára aldri og þar til er hann hóf búskap á föðurleifð sinni, tæplega þrítugur að aldri. Páll er af bændaættum svo langt, sem rakið verður, og hefur erft marga hina betri lcosti feðra sinna. Hafa sveitungar hgns og kunnað þá að meta og falið hon um i headur mörg sinna mála. Meðal annars var hana um fulla tvo áratugi oddviti hrepps nefndar og átti auk þess sæti í flestum nefndum, sem starfa í venjulegum hreppsfélögum, svo sem sóknarnefnd, sátta- nefnd o.s.frv. Páll hefur jafnan þótt lið- tækur til hverskonar starfa, verið hjálpfús og greiðviikinn með afbrigðum og gestrisai hans þó hvað mest viðbrugðið. Hann er hrókur alls fagnaðar á gleðistundum, enda gæddur í ríkum mæli þeim hæfileikum, sem þar til útheimtast, svo sem glaðværð, fypdni og kímni, góð- um gáfum og síðast en ekki síst hinni alkunnu hagmælsku, sem einna víðast mun hafa bor- ið hróður hans. Páll er tvíkvæntur; var fvrri kona hans Þórdis Grímsdóttir bónda í Laugardaishólum, er hann missti frá ungum barna- hópi eftir 12 ára sambúð, og hin síðari Rósa Eyjólfsdóttir bónda á Snorrastöðum í sömu sveit. Eignaðist hann með þeim stóran ihóp barna, sem öll eru hið mesta dugnaðar- og mynd- arfólk. Báðar þessap konur hafa þótt hinar mestu prýðis- og sómakonur og hafa ekki litlu valdið um það, hve gestum og gangandi þótti gott að gista heimili þerra. Kunningjar og vinir Páls og heimilis hans óska öldungnum á Hjálmsstöðum allra heilla á ævikvöldi hans. Kunningi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.