Þjóðviljinn - 08.03.1953, Page 8

Þjóðviljinn - 08.03.1953, Page 8
£) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 8. marz 1953 ] liggur leiðin Sófasett og einstakir stólar, margar gerðir. Húsgagnabcistran Erlings Jónssonar Sölubúð Baldursg. 30, opin kl. 2—6. Vinnustofa Hofteig Símanúmer vort verður íramvegis 82460 Vorugeymsluhús vor haía íyrst um sinn sömu símanúmer og áður, en innan skamms munu þau einnig íá oíangreint númer, og verður það nánar auglýst síðar. H.f. Eimskipaíéiag ísiands ÍÞRÓTTIR RJTSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON HoSmenkolienmótið Stökkin. Þokubakki lá yfir ÍHolmen- kollen um morguninn, en það fáeldi ekki hina á'hugasömu Oslóbúa frá fþví að taka þátt í ihátíðinni sem er mest allöa iþróttahátíða í Noregi — Holm- enikollenstökkkeppninni. Þessi dagur á • viss ítök í hug og hjarta fólksins, meira en nokk- ur annar íþróttaviðburður. Þrátt fyrir þokunia lögðu um 75 þús. áhorfenda ieið sína til keppn- innar. Sportsmanden segir að kon- unigsfjölskyldan hafi verið mætt og fleiri fiulltrúar víða að. Þá hafi heldur ekki vantað hund í forautima sem alltaf verður að stelast (þamgað, en hann náðist áður en hann yrði til taíar eða hættu. Til að byrja með voru stökk- in heldur stutt; um 60 m og undir en torátt fór að kveða meira iað stökkmönnum. Finninn Neikko Salmenrauta stökk kröft- uglega í finnskum stíl og hafði gott vald á stökkinu og stökk 64 m. Sverre Stallvik stökk 62.5 og Halvor nær 64 m stökki. Finninn Eskö Mommo teygði sig of mikið, stökk 65 m en datt, og Dalplads datt líka. Nú kom Otto Austad og stökk 64 og fékk háa einkunn. Erling Erlanson frá Svíþjóð náði góðu stökki, 64.5 m sem var það bezta í þessari urnferð. Falkang- er og A. Bergmann voru tald- ir líklegastir, komu með litlu millibili. Bergmann stökk ekki vel, vantaði þann frískleik sem hann á venjulega og stökkið var aðeins 59.5. Aftur á móti var stökk Falkangers gott og 63.5 m langt. lEftir fyrri umferð var Falk- anger efstur með i/2 stig meira en Otto Austad og Erling Er- ilandson, Svíþjóðl, Stallvik og Salmenrauta næstir á eftir. En það varð Otto Austad sem sigraði með framúrskarandi góðu stökki og því lengsta sem stokkið var þann dag, eða 68 m. Þetfca var 6. stórsigur Austads í röð. í fyrra varð hann nr. 16. Stallvik stökk nú 4 m lengra en áður eða 66,5 og fékk 19 í stíl hjá dómurunum. Halvor Næs tókst ekki að auka stökklengd- ina nema um % m. Arne Ellingsen og Erlin Kroken stukku báðir 2l/2 m. lengra en í fyrra skiptið. Thor- björn Falkanger náði 65 m stökki í fallegu stökki. Arnfinn Bergmann fann nú loiks sitt gamla góða lag og stökk 65.5 með 18.5 og 19 í stíl en hann hafði hleypt keppi- nautum of langt frá sér og hafnaði í 8. sæti. Erling Erlandson stökk % m lenigra í/ síðara ,s'tökkin.u, en Finninn Salmenrauta stökk tveim metrum styttra og hafnaði í 10. sæti. Úrslit urðu þessi: 1. O. Aust. N. (64—68 m) 217 st. 2. S. Stallv. N. (62.5—66,5) 214.5 stig. 2. S. T. Falkanger N. (63.5—65.0) 214.5 stig. 4. H. Næs N. (63.0—64.5) 210.0 stig. 5. A. Ellingsen N. (62.5—64) E. Kroken N. (62.5—64) og Er- ling Erlandson S. (64.5—65.0) Allir með 209 stig. A. Bergmann fékk 208.5 stig. í drengjaflokki vann (Finni og er þetta í þriðjia sinn í röð sem útlendingur sigrar í þessu stökki. í hitteðfyrra var það Finni sem vann og Svíi í öðru sæti, og í fyrra var það Svíinn Bergkvist, og í ár v.ar það enn Finninn sem tók iþátt í mótinu og vann með yfirburðum. Úrslit urðu: 1. Eino Kirjonen F. (64.5—64.5) 209.5 stig. 2. Tore Aaberg N. (62—62) 198.Ö 3. Arne Larsen N. (61—58.5) 192.5. stig. 4. Ivar Aalbu (60—59.5) 192.0 st. 4. Göran Somdson S. (60.5—58.0) 192.0 stig. Getraunaúrslit Arsenal 0 Cardiff 1 2 Aston Villa 4 Liverpool 0 1 Blackpool 2 Tottenham 0 1 Bolton 1 Manch. City 0 1 Charlton 0 Nev/castle 0 x Chelsea 0 Burnley 2 2 Derby 2 Sheffield W. 1 1 Manch.Utd. 5 Preston 2 1 Portsmouth 1 Stoke 1 x Sunderland 1 Middlesbro 1 X Wolves 2 W. B. A. O 1 Huddersf. 1 Birmingham 1 x Úíslif handknattleiks mótsins í kvöld íslandsmótinu í handknattleik lýkur í kvöld og keppa þá til úrslita í B-deild KR og Þróttur. iVirðist sem þetta ætti að vera lauðunninn isigur fyrir KR enda hafa þeir með flesta ,af meist- ;araflokksmönnum sínum. Þrótt- ur hefur þó verið í stöðugri fr.amför en þeir hafa fengið of fáa leiki í vetur og kemur til álita hvort ekki eigi að hafa tvær umferðir í B-deild ef iað- eins eru 3'—4 félög sem þar keppa. í A-deild eru það Ármann og Valur sem eiigast við. Ármann hefur engum leik tapað en Val- ur einum, svo að Ármann, með ■sitt góða lið, hefur meiri mögu- leika til að sigra. Eigi að síður má gera ráð fyrir að Valur selji 'sig dýrt oig ætti þetta að geta orðið skemmtilegur ieikhr. A-deild. L. U. J. T. Mörk St. Ármann 4 4 0 0 82:49 8 , Valur 4 3 0 1 71:48 6 ÍR 5 3 0 2 80:67 6 Víkingur 5 2 0 3 70:79 4 Fnarn 5 ,2 0 3 77:91 4 Afturelding 5 0 0 5 66:112 0 B-deild. L. U. J. T. Mörk St. iKR 1 ll 0 0 21:8 2 Þróttur 1 1 0 0 17:9 2 FH 2 0 0 2 17:38 0 LamaSI IþsóttaœaSuzinn Framhald af 12. síðu. mátti sjá að sá samhugur er hamn hafði orðið var við glöddu hann og ef til vill hefur það verið stærsta afmælisgjöfin. Heimsókninni er lokið. Frammi á ganginum mætir mér fagur hópur fríðra kvenna, voru það hjúkrunarnemar sjúkrahússins sem safnast höfðu þar saman. Ein þeirra lók á gítar og all- ur hópurinn söng uadir afmæl- isvísu. 1 fangi hafði ein fagr- an lampa og önnur blómvönd, og þessi fríða fylking hélt beint inn á nr. 14. Á svip þessara fallegu meyja mátti sjá að all- ar höfðu þær fangið fullt af innilegum óskum til afmælis- barnsins. Scagurinn dó út í fjarska. Hátíðleg einföld at- höfn, scm hinn ungi maður mun seint gleyma. UEYMVlMlNGAli Vanti yður góSa hluti fyrir lítið fé, þá lífið inn í Listamannaskálasm kl. 2 í dag á eztu HLUTAVELTU ársins Af miklum fjölda ágætra nýrra muna má nefna: m. a.: Matarforða. húsgögn, bókasafn, koL vetrarfrakka og skófatnað auk margs annars.—í happdrætti verða 25 vinnmgar og skipta verðmæti þeirra þúsundum króna. — Komið á hlutaveliuna, —- það marghorgar sig. Grípið gæsina meðan hún gefst — Engin núll! Fóstbræðrafélag Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík Kristilegt félag ungra manna Fríkirkjusafnaðarins

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.