Þjóðviljinn - 08.03.1953, Side 12

Þjóðviljinn - 08.03.1953, Side 12
Almemii fimdtirinn um Befst í StjörnnMói kinkkan 2 í dag Almenni fundurinn sem Menningar- og friðarsamtök kvenna Iialda um kirkjuna og friðinn, hefst kl. 2 e.h. í dag í Stjörnu- bíói. Auk tveggja þjóðkunnra kvenna, þeirra Aðalbjargar Sig- urðardóttur og Sigríðar Eiríks- dóttur, tala þar þrír starfandi prestar um þetta mál, þeir sr. Árelius Níelsson, sr. Björn Jónsson og sr. Jakob Jónsson. Flestir kristnir menn munu telja friðarhugsjónina eina af Drengur é fjórða árí, Karl Sjang Karlsson, féll út iaf bryggju á Eskifirði og drukkn- aði. Drengurinn var að leika sér á bryggjunni þegar slysið varð, ásamt félaga sínum á líku reki. Enginn fullorðinn v.ar á bryggj- unni þegar drengurinn féll í sjó- inn og þegar hann náðist var hann drukknaður. Vélbátur laskast Keflaví'k. Frá fréttaritara Þjóðviljans. í fyrradag laskaðist vélbátur- inn Nonni, „sló úr sér“ og kom mikill leki að honum. Steinunn 'gamla fylgdi bátnum til Reykja- víkur til viðgerðar. Vélstjórinn á Nonna meiddist lítilsháttar, en vont var í sjó. Aðeins helmingur bátanna var á sjó í fyrradag, enda va'r veður mjög vont. Helmingur þeirra mun sarna og ekkert 'hafa fisk- að. Jón Guðmundsson aflaði bezt, fékk tæp 20 skipþurtd. 221 millj. í umferð sl . ár Á síðasta ári var seðlaveltan mest í desember og voru þá í umferð rúimar 221 millj. krónur. Minnst var seðlaveltan á árinu í febrúar eða nálega 40 millj. kr. mtnni en þegar hún var mest. Til samanburðar má geta þess að 'árið 1951 var seðlavelt- an mest í september, 202 millj. og 435 þús. kr., en minnst í márz, 30 rnillj. kr. minni en í september. grundvallaratriðum kristin- dómsins og mun því gjarnan margur vilja fræðast um þátt kirkjunnar í 'baráttunni fyrir því að varðveita frið í heimin- um. Sjómaður drukknar Aðfaranótt s. 1. föstudags varð það slys á vélbótnum Vísi frá Keflavík .að einn hásetinn féll fyrir borð og dru'kknaði. Hásetinn, Guðmundur Hólm Guðmundsson, var 23 ára gam- all, frá Þórshöfn. Slysið vildi til um þrjúleytið um nóttina, þegar verið var að leggja línuna. Var Sigurður Hólm og annar maður þá á þilfari og sá félagi hans ekki þegar Sigurður féll út. Þeg- ar hann sá að Sigurður var horf- inn var hafin leit og leitað á 'sjónum með kastljósum, en Sig- urður sást hvergi. Útvarpstíðindi skipta um eigendor Útvarpstíðindi hafa ekki komið út á þessu ári, en eru nú að hefja göngu sína á ný. Jón úr Vör, sem hefur gefið út blaðið undanfarið hefur nú selt þeim Guðmundi Sigurðssyni bókara og Jóhannesi Guðfinnssyni lögfræðingi blaðið, og munu þeir fram- vegis annast útgáfu þess og ritstjórn. ftiest innflutt frá U8A. 1 janúar sl. voru fluttar inn vörur frá 26 löndum a.m.k. en íslenzkar afurðir á hinn bóginn seldar til 22 landa. Mest var flutt inn frá Bandaríkjunum, fyrir rúmlega 23 millj. ísl króna og einnig var mest flutt út þangað eða fyrlr hálfa elleftu milljón króna. Næst mestur var útflutningur- inn til Austur-Þýzkalands hátt á tíundu mi'ljón kr. en á sama tíma var ekkert flutt þaðan inn. Önnur helztu viðskiptalöndin voru Bretland (innfl. nær 9 millj. og útfl. liátt á áttundu mirtj.), Vest- ur-Þýzkaland (innfl. 3,8 mfllj. og útfl. 5 miflj.), Frakk'and (innfl. 874 þús. og útfl. 4 millj.) og Isra- el (innfl. 30 þús. og útfl. 3,7 millj.) Samkvæmt skýrslu Hagtíðinda um verzlunina í jan. 1953 við ein- stök lönd hefur minnst verið flutt út til Portóríkó eða fyrir 3 þús. króna og til Italíu fyrir 5 þús. króna en ekki er þess getið hvaða vörur hér hefur verið um að ræða. Blaðið hefur breytt nokkuð um form, en fyrsta tölublað þess í höndum hinna nýju út- gefendajiemur út nú um helg- ina. 1 þessu fyrsta blaði er efnt til skoðumarkönnunar um það hverjir voru fjórir vinsælustu útvarpsmenn ársins 1952. Er ekki vafi á, að mikil þátttaka verður í þessari atkvæða- greiðslu meðal hlustenda, en at- kvæðaseðill með léiðbeiningum fýlgir þessu fyrsta blaði. Efni þessa blaðs er m.a. Lesendum heilsað. Viðtal við Viihjálm Þ. Gíslason útvarpsstjóra. Jónas Þorbergsson lætur af embætti. Hvað er í útvarpinu? (dag- skrárkynning). Ljóð og létt hjal. Fréttaauki. Til móður minnar, kvæði eftir Heine. Tvær konur ræðast við, saga. Hverjir voru vinsælustu út- varpsmenn ársins 1952? o.m.fl. Hinir nýju útgefendur hyggj- ast að gera Útvarpstíðindi að góðu útvarpsblaði og skemmti- legu heimilisblaði í senn Hin nýju Útvarpstíðindi eru 20 síður að stærð í smekklegri kápu og vönduð að ytri og innri frágangi. Lét Guðni heiðar- leikann fyrir bílinn bandaríska Fyrir nokkrum árum bauð stjórn Bandaríkjanna Tíman- um að senda einn blaðamanna sinna vestur til guðs eigin lands. Sendur var Guðni Þórðarson, þá saklaus og góð- viljaður „sveitapiltur" ofan af Akranesi, útskrifaður úr Samvinnuskólanum. Þegar hann kom að westan hafði liann bíl meðferðis og ók í lioniun nær eins árs skeið hér lieima skrásettum westur í guðseiginlandi, áður en hann lét skrásetja hann í Reykjavík. Um það leyti er Guðni kom heim með banda- iíska bílinn hóf Tíminn fyrir alvöru þann sið bandarískra sorpblaða að hirða ekki um staðreyndir og heiðarleika í frásögnum sínum en leggja mest upp úr æsifregnum og fölsunum. í fyrradag mætti Guðni, Þórðarson hjá Menningar- og friðarsamtökum kvenna og daginn eftir birtir Tíminn eft- ir konum þessum þveröfug ummæli við þau er þær sögðu. Það er sagt að áður fyrri hafi menn stundum í gjald- eyrisvandræðum selt skratt- anum sál sína. Skyldi Guðni hafa greitt fyrir bílinn banda- ríska með heiðarleikanum? Sunnudagur 8. marz 1953 — 18. árgangur 56. tplublað a Það var manninargt í heimsókn hjá Ágúst Matthíassyni í gær á 18 ára afmælinu. Vinir og vandameun konni og þrýstu hendi hans og árnuðu honum heilla. i Þá komu og í heimsókn til háns forseti fSl Ben. G. Waage V! r • rt Hú savík. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Leikfélag Húsavíkur er þessa dagana að sýna Skuggasvein, eft- ir Matthiías Jochumsson. Er leikurinn mjög vel 'sóttur og prýðilega tekið. Útlán baiikaima sioast lioio ar Útlán bankanna árið 1952 voru svipuð alla mánuði ársins, minnst í janúar ein millj. 244 þús. 'kr. og mest í ágúst ein millj. 459 iþús. kr. Árið 1951 voru útlán bankanna einnig minnst í jan. ein milli. 82 þús., en mest í ■október ein millj. 306 þús. kr. Grindavík. tFrá fréttaritara Þjóðviljans. Allir Grindavíkurbátarnir eru nú hættir við netin og ætla að 'byrj.a aftur að fiska á línu, því ekker.t hefur veiðzt í netin und- anfarið. Sjórinn er fullur af loðnu. Sundmét KR fer fram aunað kvöld Hið árlega suiidmót KR verður háð í Sundhöll Reykjavíkur annað kvöld og hefst kl. 20.30. Margir keppendur eru skráðir til leiks frá 9 félögum og félagasamböndum, þar af 5 utan Reykjavíkur. Keppt verður í 10 greinum og má búast við mjög harðri og skemmtilegri keppni í sumum þeirra. I 50 m skriðsundi karla eru keppendur 13 og verður keppn- in hörðust milli Pcturs Krist- jánssonar og bræðranna Ölafs og Theódórs Diðrikssona, sem allir keppa fyrir Ármann. Þær Helga Haraldsdóttir KR og Inga Árnadóttir af Suður- nesjum keppa ásamt Ásgerði Haraldsdóttur KR í 100 metra skriðsundi um flugfreyjubikar- inn svonefnda, en hann var gef inn til árlegrar keppni í þessu sundi af -Rögnvaldi Gunnlaugs- syni til minningar um systur- sína, íBáru Sigríði, sem fórst í flugslysinu mikla í Héðins- firði 1947. Af öðrum greinum má geta um 100 metra bringusund karla, iþar sem m.a. keppir drengjamethafinn Sverrir Þor- steinsson úr Ölfusi og Þor- steinn Löve af Suðurnesjum, 50 m baksund karla, en þar er Ólafur Guðmundsson á meðal keppenda, og 100 m skriðsund drengja þar sem líklegast er að keppnin um fyrsta sætið verði milli Amar Ingólfssonar IR óg Steinþórs Júlíussonar IS. Síðasta keppnisgreinin á kvöldinu er boðsundskeppni, 4 X 50 m flugsund karla. Keppa þar þrjár sveitir, frá Ægi, Ár- manni og KR, og er ómögulegt að spá neinu um úrslitin. Pétur Kristjánsson og framkvæmdastjóri Hermann Guðmundsson og afhenti for- setinn hcnum fyrir hönd í- þróttamanna og annara velunn- ara 17 þús. krónur, sem þegar höfðu safnazt til styrktar af- mælisbarninu á vegum fram- kvæmdastjórnar ISl. Er upphæðin frá eftirtöldum aðilum: Gefið á skrifstofu Iþróttasam- bands Islands kr. 1716,93. Frá nemendum Reyklioltsskóla í iBorgarfirði kr. 1000,00. Frá Knattspyrnufélagi Reykja- víkur, ágóði af skyndihapp- drætti kr. 6000,00. Frá Knattspyrnufélaginu Val- ur, ágóði af iþróttamóti kr. 3634,07. Frá Skíðadeild Knattspyrnufél. Víkingur kr. 671,00. Frá Iþróttafélagi Reykjavíkur kr. 310,00. Safnað af Morgunblaðinu kr. 3638,00. Safnað af Þjóðviljanum kr. 200,00. Safnað af Tímanum kr. 180,00. Samtals kr. 17.350,00. Söfnuninni er ekki lokið. Sá sem þessar línur ritar leit inn til Ágústar rétt sem snöggvast. Af fölu andliti hans Framhald á 8. síðu. Hvað gerir stjórn ríkisspítalanna Fyrir skömmu upplýsti. Þjóð- viljinn að stjórn ríkisspítalanna hefði að starfsfólki fornspurðu hækkað fæðisverð um 100 krón- iur 'á mánuði á sama tim.a og neyzluvörur lækkuðu samkvæmt nýgerðum kjarasamningi við verkalýðssamtökin. Þetta hefur að vonum vakið almenna at- hygli og mælzt illa fyrir, því mönnum þykir yfirleitt ekki við- eigandi að opinberar stofnanir 'gangi á undan i því að fj.and- skapast við rétt verkafólks svö ekki sé talað um þau fyrirtæki, sem notið hafa sérstakrar til- litssemi af hálfu verkalýðssam- takanna í kaupdeilum eins og 'spitalarnir. — Sú spurning er nú mjög í ihuga almennings, hvort stjórn ríkisspitalanna ætl- ar að láta sér sæma að tregðast öllu lengur en orðið er við að uppfylla þær sjálfsögðu sann- 'girniskröfur starfsfólksins að umrædd verðhækkun verði aft- urkölluð. Adenauei* fær afsvar Stjórnlagadómstóll Vestur- Þýzkalands kvað upp þann úr- skurð í gæir að hann hefði ekki vald til að verða við beiðni Adenauers forsætisráðherra urrt að kveða á um það fyrirfram, 'hvort samnin'garnir um Vestur- Evrópuher, sem nú liggja fyrir vesturþýzka þinginu, iséu sam- rýmanlegir stjOTnarskránni. —

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.