Þjóðviljinn - 08.09.1953, Side 12

Þjóðviljinn - 08.09.1953, Side 12
igyr Aefenayers landi Úrslit iþíngkosninganna í Vestur-Þýzkalandi í fyrra- dag uröu þau að hinn kaþólski flokkur Konrad Aden- auers forsætiisráðherra fékk 244 þingmenn af 487 eða c-inum meira en allir aðrir flokkar til samans. Aðal stjórnarandstöðuflokkur- inn, sósíaldemókratar, fékk 150 ■þingmenn. Stjórnarflokkamir, Frjáilsi lýðræðisflokkurinn og Þýzki flokkurinn, fengu 48 og 15 þingmenn. Flóttamannaflokk- urinn fékk 27 þingsæti og Mið- floikkurinn þrjú. / Græddi á kosningafyrir- komulaginu ■Kaþólskir voru eini flokkur- inn, sem vann hlutfallslega á í atkvæðamagni frá siðustu kosn- ingum. Þar að auki græddu þeir á kosningafyrirkomulaginu, sem er þannig að helmingur þingmanna er kosinn í ein- menningskjördæmum en helm- ingur í 'hlutfallskosningum eft- ir fylkjum. OEins og ætlunin var þegar 'kosningalögin voru sett þurrk- uðust flestir smáflokkamir út. Þurftu þeir að ná fimm af hundraði atkvæða til að koma til greina víð úthlutun hilut- fallssætanna. Kommúnistaflokkurinn, sem við síðustu kosningar fékk 5.4% atkvæða og 15 þingmenn fékk nú .2.2% og engan þingmann. í kosningabaráttunni voru menn handtekir hópum saman fyrir að útibreiða kosningastefnuskrá 'flokksins og fundum hans var hleypt upp. Stjómarmyndun Stjórn Adenauers kemur sam- an í dag til að ræða kosninga- úrslitin. Á fimmtudaginn ræðir Clokksstjórn kaþólskra áfram- haldandi stjórnarsamvinnu og er húizf við að sömu flokkar hafi samstarf áfram. Adenauer sagði í gær að hann teldi kosninga- úrslitin traustsyfir- lýsingu á hugr myndina um sameiningu Evrópu og yf- ^rlýsingu Vest- ur-Þjóðverja um að þeir séu samþykkir þeirri stefnu hans að hervæða landið á ný innan Vestur-iEvrópuhersins. Afturhald og e'nræði Eridh Ollenhauer, foringi sósí- aldemókrata, sagðist álíta að flokkur sinn hefði haldið sínu furðu vel Iþegar tillit' væri tek- ið til allra aðstæðna. Hinsvegar Adenauer. Plankarnir gengti gegnum bœði sfrýrishúsin Gctt sumar í Vopnafirði — Reist beina- mjöisverksmiðja — Mimikil síidarsöitun Vopnafirði lí gær. Frá frétta- Iþýðfr betri nýtingu sjávarafl- ritara Þjóðviljans. Hér hefur verið góð tíð og ágæt grasspretta í sumar. Að vísu voru nokkrir óþurrkar í síðastliðnum mánuði, en ekki me'ri en svo að hey hröktust ekki ti skemmda. Má segja að sumarið hafi le’kið við okkur hér eystra að því er tíðarfar varðar. í sumar hefur verið meiri síldarsöltun lí Vopnafjarðarkaup stað en áður. Er nú búið að salta í samtals 6100 tunnur, og hefur þetta skapað allmikla at- vinnu. Hinsvegar hefur fiskveiði verið hér með minna móti, bæði á trillur og eins á tvo 15 tonna vélbáta sem gerðir eru út í kaupstaðnum. Á Vopnafirði er nú nýtekin til starfa beinamjölsverksmiðja sem vinnur úr úrgangi frá frystihúsinu. Er bæð; atvinnu- bót að henni, auk þess sem hún Stökkum og stígvélum stolið úr símatjaldi Aðfaranótt föstudags var framinn smáþjófnaður í tjaldi, sem símamenn hafa við lagningu jarðsíma skammt frá grjótnámi bæjarins í Selási. Var Þar stol- ið tveim hlífðarstökkum, úr gúmí og plasti, og þrem vaðstíg- vélum. Bannsóknarlögreglan Þiður þá sem geta gefið ein- hverjar upplýsingar í ‘þessu máli að 'gefa sig fram. ans. Öllum úrgangi frá söltunar- planinu er hinsvegar kastað í sjóinn, og fara Þar verðmæti forgörðum. Á laugardaginn urðu hér skemmdir . á 2 vörubílum við á- rekstur. Voru þeir að flytja til tjcld og annan útbúnað vega- manma, og óku hvor á eftir öðrum. Gengu nokkrir plankar aftur af palþ fremra bílsins. Nam hann skyndilega staðar, en hinn híllinn var þá of nálægt ti1 að geta stöðvað sig í tæka tíð Gengu -plankarnir inn um rúð- ur laftari bílsins, og aftur c gegnum stýrishúsið og skemmd ist það mikið. Hinsvegar tóks1 þílstjóranum að forða sér und- an plönkunum og slapp við meiðsli. En við áreksturinr gengu plankamir einni-g fram ' stýrishús fremra bílsins og skemmdi það einnig allmikið En bílstjóranum þar tókst sömu leiðis að víkja sér undan með snarræði. Allmikil vegagerð hefur verið í Vopnafirði í sumar, bæði við- 'gerðir og nýlagningar. Er nú unnið að nýjum vegi út með firðinum að austanverðu milli bæjanna Vindfells og Eyvindar- staða. Á sá vegur með tímanum að iliggja austur yfir Hellisheiði til Jökulsárhlíðar. Þá er -einnig unnið að lagn- ingu vegar inn Sunnudal, og eru þetta hvort tveggja miklar samgöngubætur. kvaðst 'hann uggand; um fram- tíðina, sameining hægriaflanna í kaþólska flokknum myndi knýja hann lengra og lengra til hægri á foraut vaxandi aftur- halds, þjóðrembings og einræðis- tiilhnei'ginga. Framhald á 10. síðu. Strákar fremja spellvirki og þjófnað f fyrrinótt var torotizt inn í verzlun Ingu Kristjánsdóttur í Laugamesi og stolið dálitlu af sælgæti. Um nóttina var einnig farið inn i matvælageymsluhús, sem SÍS á í smíðum við Kirkjuteig og framin marghátt- uð spellvirki. Voru verkfæra- kassar trésmiða, er þar vinna, brotnir upp og verkfærum dreift um allt, gluggekista á miðhæð stórskemmd, málningu klínt víðsvegar um toygginguna á borð, veggi og gólf, skrifborð í skrifstofunni brotið og inni- haldinu dreift um gólfið. I gær handsamaði lögreglan þá, sem voru að verki á þáðum þessum stöðum. Voru það tveir strákl- ingar, 10 ára gamlir. í fyrrinótt var einnig farið inn í Tívolí og stolið 2—300 krónum í peningum og fleirú smávegis. Hér voru tveir smá- strákar líka að verki. lÓÐVlUmN Þriðjudagur 8. september 1953 — 18. árgangur — 200. tölublað 2783 konur fróku þéff í 139 nétnskelðum KFSÍ sl. ér Landsþing Kveníélagasambandsins hófst í Reykjavík í gær Kvenfélagasamband íslands heldur um þessar mundir 10. landsþing sitt hér í Reykjavík og sitja það rúmlega 40 konur, sem eru fulltrúar frá 17 héraðssamböndum víðvegar um land. LandSþingið var sett með viðhöfn í Breiðfirðingabúð í gærmorgun. Hélt formaður sambandsins, frú Guðrún Pét- ursdóttir, setningarræðuna en að henni lokinni var helgistund og prédikaði sr. Jón Thoraren- sen. Auk fulltrúanna voru frúr forseta og forsætisráðherra við- staddar setningarathöfnina, en forsetafrúin er verndari þings- ins. Þingstörf. Eftir hádegið hófust þing- störf og stóðu þau fram eftir deginum. Aðalmál þingsins fjalla um áframhaldandi starfs grundvöll Kvenfélagasambands ins, lagabreytingar og fleira. Verða þingfundir haldnir alla þessa viku en þingslit fara fram á laugardaginn fkemur. 1 dag fara fulltrúar þingsins í boði forsetahjónanna til Bfessa- staða, en í kvöld verður almenn ur fundur í Breiðfirðingabúð og er öllum konum heimill að- gangur. Á þessum fundi mun Zóphónías Pétursson ræða um nýju fjölskyldubætumar og Þ;éðin vakis — ráðkerramir sofa Sgéið til þess að hercefingar li ekki atvinnu okkar spilli Á Fjóroungsþingi Vest- fjarða, er haldið var að Bjarkarlunöi í Reykhóla- sveit 5. og 6. þ.m., var eft- irfarandi tillaga samþykkt í einu hljóði: „Þar sem vitað er að stór- fenglegar heræfingar eiga að fara fram í haust við strendur landsins, skorar . Fjórðungsþing Vestfjarða 1953 á ríkisstjómina að hlutast tii nm að slíkar að- gerðir fari ekki fram á þeim Yfiriýsing A'ð gefnu tilefni skal fram tekið, að fleiri hundruð mjólk- urframleiðendur hér á landi framleiða eins góða mjólk og þeir 15-20 framieiðendur, sem selja mjólk til varnarliðs'ns á Keflavíkurflugvelli. — Reykja- vík, 7. sept. ’53 — Kári Guð- mundsson, mjólkureftirlitsmað- ur ríkisins. Sésíalistafélag Reykjavíkur heldur fulltrúaráðsfund á morgun kl. 8.30 e.h. Dag- skrá nánar auglýst í blað- inu í fyrramálið. Fulltrú- ar eru beðnir að mæta vel og stundvíslega. Stj. slóðum þar sem þær gætu á einlivern hátt spiilt atvinnu landsbúa, svo sem á Breiða- firðj eða á fiskimiðum Vest- fjarða“. Eins og áður segir var til- laga þessi samþykkt í einu hljóði á þinginu, og sýnir samþykkt hennar og einhug- ur þingfulltrúa um hana að fólkið er vakandj gagnvart þeim hættum sem stafað geta af aðgerðum Atlanz- hersins bæði í landinu og við strcndur þess. En gaman væri að sjá framan í ráð- herrana þegar þeir fara að koma þessari tillögu á fram færi við vígamennina. rétt mæðra, Rannveig Þor- steinsdóttir, sem kjörin var for seti þingsins í gær, flytur er- indi: Úr sögu íslenzkra kvenna, og loks verður kvikmyndasýn- ing. Framhald á 11. siðu Nýtt rit: Lofthlendi i steinsteypu eftir Harald Asgeirsson, verkfræðing Nýlega er komið út r'.t er nefnist Loftblendi í steinsteypu Höfundur er Haraldur Asgeirs- son verkfræðingur og útgef- andi Atvinnudeild Háskólans. Ritið fjallar um byggingar- efnarannsóknir og eru í því teikningar til skýringar á efni þess. í formála segir höfundur m. a.: ,,í þau fimm ár, sem ég hefi starfað við Byggingarefnarann- sóknir Atvinnudeildar, hefur það orðið mér æ augljósara, að skortur á efnisvöndun við steypuframkvæmdir er orsök til stórkostlegra árlegra fjár- útgjalda fyrir þjóðina. Nemur þessi kostnaður nú milljónum króna, og fer vaxandi. Nauð- synlegt er, að úr þessu verði bætt, en til þess þarf sameigin- legt átak og þrotlausar rann- sóknir byggingaryfirvalda landsins og annarra verk- fróðra manna. í upplýsingariti þessu er skýrt frá því, hvernig hægt sé að nota loftblendi til þess að auka veðrunarþol steinsteypu, og jafnframt draga úr ýmsum ókostum hennar. Loftblendi er ekki einhlítt lyf við öllum steypukvillum, en notkun þess er markverð nýj- ung, sem ég vona að muni verða byggingariðnaðinum að gagni.“ Ritið er gefið út í 250 ein- tökum og fæst í skrifstofu At- vinnudeildar Háskólans. Litlc: telpan fannst örend ásunnudag H&fði gengið um 3 km leið frá Hólmavík Litla telpan scm týndist sl. fimmtudag á Hólmavík fannst örend á sunnudagiim í svonefndum Þiðriksvalladal, um 8 km vegalengd frá þorpinu. Er talið að telpan hafi hnigið út af þarna í dalnum örmagna af vosbúð og þreytu eftir hina löngu göngu. Litla telpan hét Daðey og var dóttir Péturs Jónssonar málara á Akranesi og konu hans, en þau hjónin voru í heimsókn á Hólmavík er telpan týndist sl. fimmtudag. Það er álit manna á Hólma- vík að Daðey litla hafi verið komin út fyrir Ieitarmörk'n fyrsta kvöldið sem léitað var. En á föstudagsmorguninn var leitað á dalnum þótt meiri á- herzla væri lögð á að leita nær þorpinu fyrst í stað. Mikill fjöldi fólks tók þátt í leitinni, bæði frá Hólmavík og úr næsta nágrenni.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.