Þjóðviljinn - 08.05.1954, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.05.1954, Blaðsíða 7
Laugardagur 8. maí 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 3. og 4. apríl. Aðvörun. Það eru vafalaust hundruð Islendinga sem þekkja Árósa allvel, a. m.k. betur en undir- ritaður. Þeir eru hérmeð var- aðir við því að lesa þessa grein. Hinir eru þó miklu fleiri sem ekki hafa til Árósa komið og ætlast máske til einhverrar frásagnar. Árósar — Akureyri. Það er þá fyrst til að taka að íbúar Árósa eru taldir vera frá 160—165 þús., eða nokkru fleiri en allir ísiending- ar. Borgin liggur vcl við verzl- un og siglingum, er mikil verzl unarborg. Hér heyrir maður setninguna: Kaupmannahðfn er ekki öll Danmörk. Borgin á sér langa sögu og íbúarnir eru stoltir af borginni sinni, gott ef þeim er ekki eitthvað svipað innanbrjósts og Akur- eyringum, sem þykjast líka vera höfuðborg (a. m. k. ó- umdeilanlega Norðurlands), og Akureyringum til athug- unar er rétt að geta ]:ess að fyrir 100 árum kváðu íbúar Árósa ekki hafa vcrið nema 8 þús. Önnur stærsla hafnarborgin. Árósar kváðu vera önnur stærsta hafnarborg Ðana, næst á eftir Kaupmannahöfn, enda liggur hún vel við flutn- ingum, við „blátt og brosandi sundið" eins og íbúarnir orða það, og ég efa ekki að hér sé mjög vinalegt 'á björtum, hlýjum sumardögum. — Legu pláss við brvggjur og bakka er samtals 7—8 km og kvað eiga að aukast í 10 km. Héð- an ganga skip vikulega, ekki aðeins til nærliggjandi hafna heldirr og til Þýzkalands, Frakklands, Englands og Norður- og Suður-Ameríku, enda fer álitlegur hluti af landbúnaðarafuroum Dana um Árósahöfn. Heimskort í brugghúsi. Danir virðast furðu lagnir við að útvega sér markaði. Innan sviga mætti geta þ,ess að það mikla Geres-brugghús Árósa bauð okkúr sexmenn- ingunum heim, og eft.ir að við höfðum þrammað um völ- undarhús hinna miklu brugg- kera og vorum komnir upp í dagsljósið aftur til að kynnast drykkjunum fullgerjuoum sá- um við heimskort eitt roerki- legt, þar sem merkt voru á viðskiptaiönd fyrirtækisins, m. a. í Asíu og Suður-Ameríku. — Það skyldi engirm gera lítið út því afreki að gei-a danskt vatn að eftirsóttri vöru í fjar- Isígura heimsálfmn. Án vatnsafls. koia og málma. En það skal malt, og meira, til þ«s3 að tíanskt vatn verði útflutuingsvara, og maltið framleiða Danir sjálfir. En þá erum við farin að ta!a urn iðnað —■ c-g það er ein- mitt iðnaður sem veitir Árósa- búum mestar tekjur. Sam- kværnt skýrslum og töflum (a5 vi-:u nokkurra ára göml- um) er okkur voru látnar í 't.é, greiðir iðnaðurinn þar meir en helmingi hærri upp- hæð i laun en sú starfsgrein önnur sem næst honum kemst. Og í þessu ssmbandi skulum við skreppa til Kaup- mannahafnar aftur þar sem DAGARIDANMÖRK UM DAG veffinn NOTTUVA við stóoum gagnvart skipa- smíðastöð Burmeister & Wain og ígrunduðum að þjóðin á þsssu fiata landi, sem hvorki á vatnsafl, kol né málma, skuli samt smíða stálskip, ekki aðeins fjrir sjálfa sig og okkur íslendinga, heldur og fyrir sér margfalt stærri þjóðir. Það mætti gjama Það eru ckki aðeins hafskip í Árósahöfn, þar eru einnig margir sniábátar — og þeim er líka ætlaður staður! verða þeim sem mest fjand- skapast gegn islenz.kum iön- aði nokkurt umhugsunarefni. Háskólinn. Háskólinn í Árósum kvað standa í fremstu röð hva-3 snertir nútíma snið. Bygging- ar stíihreinar, ' allgott svig- rúm á grasvöilum. Bn rektor. sem var svo vinsamlegnr að sýna okkur byggingamar, kvað þó aðkaiiandi þörf meira landrýmis undir nýjar bygg- ingar. Þarha munu aðailega stunduð húmanísk fræci, en við flausturslega yfirsýn me-ð fram veggjum norræna ból’.a- safnsins sýndist mcr skólinn verðskulda að íslenzkar bæk- ur væru þar fleiri. Þama stunda 1800 stúdentar nám. Flestir eða. 800 lækniáfræði. Ekki spui-fti ég hvort né hve margir islenzkir stúdenfar dveldu þar, en þar eru tveir íslendingar prófessorar, dr. Slcúli Guðjónsson og dr. Lár- us Einarsson. Dr. Skúli Guð- jónsson var fjarverandi á ein- Ilcr sést no ur hluti af 'skóiahvérfihi Arósuni. I skólíini er bj ingasanistæð efst á my inni. Samby ingarnar mester hásl anum, eru s' entegarðar. Hér sést hluti af alþýðubókasafnsbyggingunni í Árósum. hverri sérfræðingaxáðstefnu en dr. Lárus mun hafa verið i bænum, og sáum við hvor- ugan. Málvcrk af Rcykjavík. I Árósum er hverfi eitt er nefnist Gamli bærinn. Þetta nafn ber þó ekki svo að skilja að það eigi við elzta hluta Ár- ósa heldur er þetta hverfi gam alla húsa — sumra mörg hundruð ára ■— cr flutt hafa verið víðsvegar að úr Da.n- mörk. Þar er gaman að koma. Ekki aðeins til að sjá hinar fornlegu útlínur húsanna held ur þó miklu freniur innri gerð, húsgögn og muni. — Gamla kaupmannsbúðin minnti mig í ýrnsu mjög á „Búðina“ á Raufarhöfn — og það h\'e við eigúm þar dýmiætan forn- grip. Og meðal annarra safn- nmna sem þarna eru geymdir er máherk af Reykjavik, tal- ið frá því um 18S5. líver var Th-orsteinson? Hér bjó einu sinni íslenzkur blaðamaður, sögou stéttar- bræðurnir i Áróstim eitt sinn við okkur. Hann hét Thor- steinson. Hann er kominn undir græna torfu fyrir fáum árum. Hér vandaðist málið, því Danimir gátu engar upp- lýsingar gefið tun það hvaðan af íslandi Thorsteinson hafi verið, og við urðum að játa þá vankunnáttu að geta ekk- ert frætt þá um þenna horfna stéttarbróður. Hann var cins- konar lausamaður (free-lancc) í blaðamennskunni, skrifaði fyrir öíl blöðin, en biaða- mennska hans var þó fvrst og fremst fólgió í því að selja fréttir og upplýsingar. Hann kvað hafa verið með nefið niíri í hverjum fréttvænleg- um koppi, ef svo mætti segjá, og jtess var minnzt með ftirðu hve r.iargt „gamle Thorstetn- son“ fcefði vitað. „Það var ó- hsett að trúa Thorsleinson fyrir uppiýsmgum, hann kjaft aði ekki frá fyrr en það var tímabært,“ sagði einn Dan- anna. „BLti íug'inn". Og svo var það nóttin. Fj-rra kvölóið okkar í Arós- um var okkur boðrð í leik- húsið til að sjá ,.Den kære familie". Jnnihald leiksins gamansamt þunnmeti, en þakkað sé snjölmm lcik Jo- hannesar Meycrs, er lék þarna sem gestur frá Konung lega leikhúsinu va.r þetta á- nægjuiegasta kvöldstund. Á leiðinm frá leikhfísinn, þegar þreytt'r skrokkar okk- ar voru fyrirfram farnir að skynia h.ví d m.iúkrar sængur beygði .gestgjafi* okkar þctta kvöld allt í einu inn í húsa- suntíl og !e:ddi okkur gegn um mannþröng .svo mikla, að þéttar troviast ékki sauíir í haustréttum á Islandi, og ein- hversstaðar inni í iðrum jarð- arinnar tófest honum það kraftaverk að útvega okkur borð á bezta stað. I þesaum skemmtilega boghveífingasal var kátt fóik er dansaði af hjartans lyst. Að yísu var svo þáttskipað á gólfinu að ekki gafst tækifæri til víðavangs- hlaupa á íslenzka vísu, en var þeim mun betur fallið til nota- legra faomlaga. Staður sá nefnist „Blái fuglinn.“ „Ó Jósef, Jósef . . . “ Heimamenn segja að hér ríki hin rétta sigaunastemn- ing. Um það get ég ekki bor- ið, hef aldrei dvalið með þeirri ágætu þjóð. En hér skemmtu menn sér og sungu. Hér var þjóðkór, þótt hvergi sæist neinn Páll Isólfsson. Það vcrður því miður að játast að á þessum stað stóð- um vio sexmenningamir okk- ur skammarlega. Það mun fijótt hafa kvisazt hverskonar fnglar við værum, og þar kom að kvinnurnar tóku að frýja okkur hugar að koma með í dansinn. Eg hafði þá afsök- un eina fyrir mannleysuhætt- inum að vera rígskorðaður innan við borðið. En vinur minn Ándrés Kristjánsson, — liann á sér enga afsökun! Hann sat nefnilega næst dans gólfmu. Og skyndilega var komin til hans lítil elskuleg stúlka, en Andrés bara setti upp undrunarsvip! — og sat kyrr. Vesalings stúlkan, er sá að maðurinn myndi hafa hrapallega misskilið sig, benti honum ) 4 á giftingarhringinn á hendi sér til sannindamerk- is um að hún meinti aðeins saklaust gaman í allra aug- sýn, en Andrés þreif þá í cða- goti um fingur sér, unz hon- um tókst að láta blika. á eitt- hvað gullið-----ég hef hann sterklega grunaðan um að hafa fengið lánaða höndina á Hauki Sjiorrasyni. Svo tók Andrés meyna tali. En karl- menn munu vera eitthvað svipað innréttaðir í Árósuro. og Reykjavík, því ekki höfðu ifvamhald á 8. síftu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.