Þjóðviljinn - 07.01.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 07.01.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 7. janúar 1955 f i I dag er föstudagurinn 7. janúnr — Eldbjargarmessa — 7. dagur árslns — ÁrdegisháflæSi kl. 4:12 — SíðdegisháflæSi kl. 16:37. Þalckir fyrir bókagjafir og jólaglaðning „Orator, félag laganema i Háskóla Jslands, þakkar öllum þeim bóka- útgáfufyrirtækjum, er gáfu bækur ■i bókasöfnun þá, er laganemar í Háskóia Islands stóðu fyrir og eendar voru vistheimilinu á Litla- Hrauni að gjöf á annan dag jóla 1954. — Einnig vilja laganemar þakka á þessum vettvangi sælgæt- isverksmiðjum í Reykjavík svo og Tóbakssölu ríkisins fyrir góðfús- lega veittan jólaglaðning, er laga- jnemar færðu vistmönnum á Litla-Hrauni á annan dag jóia — J.M.“ KvöidskéSi alþýða Eins og sagt hefur verið frá hér á síðunni hefst á föstudaginn að viku liðinni nýr námsflokkur i Kvöldskóla alþýðu — upplestur, feem Karl Guðmundsson leikari kennir. Innritun i þennan flokk fer fram í húsakynnum skólans, Karl Guðmundsson Þingholtsstræti 27, II. hæð, í kvöld klukkan 8:30-^10. Á sama tíma er einnig tækifæri til að innrita sig 5 aðrar námsgreinar, en á mánu- daginn hefst kennsla i skólanum að loknu jólaleyfi. Fyrstu kennsluvikuna geta menn látið -►innrita sig í skólann, með því að koma nokkrum mínútum fyrir Viðkomandi kennslustund._______ Stundaskrá Mánudagur: Kl. 20:30—21:15 Þýzka Kl. 21:20—22:05 Islandssaga Þriðjudagur: KI. 20:30—21:15 Féiagsmál Miðvikudagur: Kl. 20:30—21:15 Verkalýðsfélög og stjórnmál islenzku verkalýðshreyfing- arinnar. KI. 21:20—22:05 Marxisminn og saga alþjóðlegu verkalýðshreyf- ingarinnar. Fimmtudagur: KI. 20:30—21:15 Enska. Kl. 21:20—22:05 Teikning og lita- meðferð. Föstudagur: KI. 17:00—19:00 Leiklist og upp- lestur. Kl. 20:30—21:15 Þýzka. Kl. 21:20—22:05 Upplestur. Kennsla fer fram í Þingholtsstrætl 27 (2. hæð). Kvöld- og næturlæknir er í læknavarðstofunni í Austur- bæjarskólanum frá kl. 18-8 í fyrra málið. — Sími 6030. Jíæturvörður er í læknavarðstofunni Austur- bæjarskólanum, simi 5030. Næturvarzla er í Lyfjabúðinni Iðunni, simi 7911. KYFJABÚÐIB Holts Apótek | Kvöldvarzla til Apófcek Austur- | kl. 8 alla daga bæjar | nema laugar- | daga til kl. 6. Móri glennti sig yfir hliðið Móri var löngum lieimagangur að Viðivöllum ytri hjá Jóni Einarssyni, merkisbónda, er þar bjó lengi. Jónas sonur Jóns var skyggn og sá því Móra mjög oft, þar sem óskyggnir menn sáu hann tíðum. Ketill Ögmunds- son, er var vinnumaður þeirra feðga, segir, að Jónas hafi einu sinni sótt hesta norður í svo nefnt Grjót- nes, og settu þeir opið garðshlið á leiðinni. „Þegar við komum með hestana, þorði enginn þeirra í það“, sagði Ketill. Jónas reið fram fyrir og sá, að Móri glennti sig yfir hliðið og bandaði móti klárunum. Jónas bað fjanda þann að dragnast brott. Fór hann þegar, og hestarnir runnu í gegn. En rétt í því kom Einar mjög drukkinn og reið í gegnum hliðið. Ketill kvað Jónas jafnaðarlega hafa rekið Móra út úr bænum, því þar var tíðförult miili bæja, og Jónas sá Móra á undan hverjum, sem kom frá Víðivöllum fremri. „Eitt kvöld“, segir Ketill, „geng- um við Jónas út í myrkri. Jónas sló þá út höndunum og dró þær með hvorum vegg. „Hví gerirðu þetta?“ sagði ég. Hann svaraði: „Ég er að reka djöfulinn hann Móra út úr bænum; liann á ekkert erindi inn í hann“. Maður kom að morgni, sem Móri fylgdi". (Þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar) Búkarestfarar Þeir sem hafa pantað myndir úr Búkarestförinni geta vitjað þeirra í skrifstofu Þjóðviljans, Skóla- vörðustíg 19. 1 Hafnarfirði hefur Aðalsteinn Jónsson opnað trésmíðavinnustofu i húsakynnum Fjölnis við Norðurbraut. Kl. 8:00 Morgunút- I varp. 9:10 Veður- fregnir. 12:00 Há- ' ^ degisútvarp. 15:30 Miðdegisútvarp. — 16:30 Veðurfregnir. 18:00 Islenzkukennsla II. fl. 18:25 Veðurfregnir. 18:30 Þýzkukennsla I. fl. 18:55 Framburðarkennsla i frönsku. 19:15 Tónleikar: Har- monikulög (pl). 19:40 Auglýsingar. 20:00 Fréttir. 20:30 Tónleikar: Adolphe saxófónkvartettinn leikur lög eftir Albeniz og Debussy (pl). 20:45 Óska-erindi: Eru eldri áhrif í kenningu Jesú frá Nazaret? (Þórir Þórðarson guðfræðidósent). 21:10 Tónleikar: Ixjg úr óratóri- inu „Sköpunin" eftir Haydn (pl). 21:25 Fræðsluþættir: a) Efnahags- mál (Gylfi Þ. Gíslason prófessor). b) Heilbrigðismál (Kristinn Ste- fánsson lyfsölustjóri). c) Lögfræði (Rannveig Þorsteinsdóttir lögfræð- ingur). 22:00 Fréttir og veðurfr. 22:10 Útvarpssagan; sögulok. 22:25 Hátíðarmessa, nýtt verk eftir norska tónskáldið Sigurd Islands- moen. 23:40 Dagskrárlok. Otbreiðið Þjóðviljann Á aðfangadag jóla opinberuðu trúlof- un sína ungfrú Ingibjörg Friða Hafsteinsdóttir og - Karl Berndsen, bæði frá Höfðakaupstað. Á aðfangadag jóla opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Va’gerður Frið- riksdóttir, Ytri-Hlíð, Vopnafirði, og Sveinn Sveinsson, Höfða Vopna firði. Hinn 15. desem- ber sl. voru gefir saman í hjónaband i Baltimore Mary- land Bandarikjun- um af séra Ole Poulsen frú Ingibjörg Árnadóttir, Hraunteigi 24 Reykjavík, og dr. phil. Stefán Einarsson, prófessor við Hopkins University og íslenzk- ur konsúll í Baltimore. Heimilis- fang þeirra er 2827 Forest View Baltemore. Lúðrasveit verkalýðs- ins. Æfing í kvöld kl. O. 8:30 i Tjarnargötu 20. 0JUí----------------- Gengisskráning: Genglsskráning (sölugengi) 1 sterlingspund ... 45.70 1 bandariskur dollar . ... 16.32 1 Kanada-dollar 100 danskar terónút . .. l.. 236.30 100 norskar krónur ... ... 228.50 100: sænskar krónur ... ... 315.50 100 ;finnsk mörk i ... 7.09 1000- fransltir frankar . i.. 46.63 100 belgískir frankar . ... 32.75 100 svissneskir frankar .. 374.50 100 gyllini ... 431.10 100 tékkneskar krónur . ... 226.67 100 vesturþýzk mörk ... ... 388.70 1000 lírur Kaupgengi 1 sterlingspund 45,55 kr 1 Bandaríkjadollar .. 16,26 — 1 Kanadadollar 16,26 — 100 danskar krónur .... 235,50 — 100 norskar krónur .... 227,75 — 100 sænskar krónur .... 314,45 — 100 finnsk mörk 1000 franskir frankar .. 46,48 — 100 belgískir frankar .. 32,65 — 100 svlssneskir frankar . 873,30 — 100 gyllini 429,70 — 100 tékkneskar krónur . 225,72 — 100 vestur-þýzk mörk .. 387,40 — 1000 lírur 28,04 — Hann: Og eitt enn — ég fæ aldrei mat þegar ég kem heim úr vinnunni. Hún: Þú fékkst þó soðið egg í gær. Áttræðisafmæli 80 ára er i dag hinn víðkunni hagyrðingur Jósep S. Húnfjörð, Bergstaðastræti 33 B hér i bæ. Mogginn blrtir ýtar- lega frásögn af því að kafað hafi ver- ft. ið eftir „ankerum I Skerjafirði". Er 'S®" ** síðan grelnt frá því að skip nokk- urt hafl misst „ankeri" sín í fjörð- Inn í síðasta mámiði, og eru það þessi „ankeri" sem nú er verið að bjarga aftur úr djúputnum. Hér virðist hafa verið um mjög sér- kennilegt sklp að ræða, því eins og knnnugt er þýðir anker stórt ílát, stundum notað fyrir orðið áma. Orðabækur þýða orðið einnig þannig, en auðvitað þurfa morg- unblaðsmenn ekki á slíkum verk- um að halda — það er máltil- tllfinnLngin sem ræður hjá þeiml! Þá er „mjölvi“ ótvírætt karlkyns- orð á forsíðu blaðsins I gær, sbr. hina dönsku reglu: það skal vera kerfi í vitleysuimi. Pan American- flugvél er væntan- leg til Keflavíkur frá New York kl. 6:30 í fyrramálið, og heldur áfram til Prestvíkuiý Ósló, Stokkhólms og Helsingfors eftir skamma við- dvöl. Gullfaxl, millilandaflugvél Flugfé- lags Islands, fer til Kaupmanna- hafnar í fyrramálið. Flugvélin kemur aftur tiþ baka um miðaft- ansbil á sunnudag. Innanlandsflug: 1 dag er ráðgert að fljúga til Akureyrar, Fagur- hólsmýrar, Hólmavíkur, Hornafj., Isafjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vestmannaeyja. Söfnin eru opin Bæjarbókasafnlð Útlán virka daga kl. 2-10 síðdegis. Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl. 5-7. Lesstofan er opin virka daga kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar- daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga kl. 2-7. Landsbókasafnið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga nema laugardaga kl 10-12 og 13-19. Náttúrugripasafnlð kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögúm, kl. 13-15 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Þjóðskjalasafnið á virkum dögum kl. 10-12 og 14-19. M -Trá hófninni* Sambandsskip Hvassafell fór frá Stettin í gær til Arhus. Arnarfell er í Kefla- vík. Jökulfell er í Gufunesi. Dís- a^fell fór frá Hamborg 4. þm til Reykjavíkur. Litlafell er væntan- legt frá Vestmannaeyjum í dag. Helgafell er í Reykjavik. Elin S er á Hornafirði. EIMSKIP: Brúarfoss kom til Rvíkur 4. þm. frá Hull. Dettifoss kom til Vent- spils i fyrradag frá Kotka í Finn- landi. Fjallfoss fór frá Rvik í gærkvöld til Vestmannaeyja, held- ur þaðan til Rotterdam og Ham- borgar. Goðafoss fór frá Rvík í gærkvöld til Vestmannaeyja, fer þaðan til Hafnarfjarðar og síðan til N.Y. Gullfoss fer frá Kaup- mannahöfn á morgun áleiðis til Leith og Rvikur. Lagarfoss fór frá Rotterdam 4. þm. á’.eiðis til Rvíkur. Reykjafoss fór frá Rott- erdam í fyrradag áleiðis til Ham- borgar. Selfoss kom til Falken- berg í fyrradag, fer þaðan til Kaupmannahafnar. Tröllafoss fer frá N.Y. í dag áleiðis til iRvíkur. Tungufoss fór frá Rvík 27. des. áleiðis til N.Y. Katla fór frá Hafnarfirði í fyrradag til Bíldu- dals, Súgandafjarðar og Isafjarð- ar, fer þaðan til Lundúna og Fóllands. Bæjartogararnir Hallveig Fróðadóttir er í Rvíkur- höfn. Pétur Halldórsson fór á veiðar aðfaranótt miðvikudagsins. Skúli Magnússon fór á veiðar í fyrradag. Jón Baldvinsson er á leið til Þýzkalands með afla. Aðr- ir togarar Bæjarútgerðarinnar eru á veiðum hér við land. Aðrir togarar Askur er í slipp i Rvik. Isólfur, Goðanesið og Vilborg Herjólfs- dóttir eru í Reykjavikurhöfn; sið- asttaldi togarinn mun fara til hafnar í Norðurlandi innan skamms. Mogens Hedegárd skemmtir næstu kvöld að Röðli með leik á píanó og rafmagns- pianó. Námsflokkar Reykjavíkur Kennsla hefst í kvöld samkvæmt stundaskrá. Hjónadansleikur Kópavogsbúa verður |i barna- skólahúsinu annaðkvöld og hefst kl. 9. Dansaðir verða gömlu og nýju dansarnir. Aðgöngumiðar eru seldir við innganginn. Krossgáta nr. 547. Ég er sem sé þeirrar skoðunar að það sé o£ snemmt að láta hann fljúga einan. XX X NfiNKIN DR-^i Lárétt: 1 men 4 ábendingarfor- nafn 5 elti uppi 7 vafi 9 dýr 10 veiðarfæri 11 sjór 13 flatmagaði 15 tilvísunarfornafn 16 ílát. Lóðrétt: 1 atviksorð 2 tjarnar- gróður 3 ákv. greinir 4 datt 6 i uppnámi 7 kopar 8 utan að 12 fljótið 14 borðaði 15 umdæmis- merki. Lausn á nr. 546. Lárétt: 1 staflar 7 ái 8 eina 9 TNT 11 nnn 12 ör 14 ak 15 efar 17 el 18 lök 20 stúlkan. Lóðrétt: 1 sáta 2 tin 3 ef 4 lin 5 Anna 6 Ranka 10 töf 13 rall 15 elt 16 rök 17 es 19 KA. *r jfr * KHAKI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.